Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                     SAMGÖNGUNEFND Reykjavík- urborgar hefur borist erindi frá for- stöðumanni Félagsstarfs Gerðu- bergs vegna umferðarmála þar í grennd. Kvartað er undan miklum umferðarþunga, umferðarhraða og vöntunar á merkingum fyrir gang- andi vegfarendur. Segir forstöðu- maðurinn að ástand þessara mála sé svo slæmt að eldri borgarar í hverf- inu veigri sér við að vera þar á ferli. Guðrún Jónsdóttir er forstöðu- maður Félagsstarfs Gerðubergs en svæðið sem hún gerir að umtalsefni í bréfi sínu er frá Höfðabakka um Vesturhóla að Vesturbergi og um Suðurhóla. Hún segir fjölmörgum atriðum ábótavant í umferðarmálum þar. Má þar nefna mikinn umferð- arhraða, hávaða- og rykmengun auk þess sem hún segir öryggi íbúa hverfisins ábótavant á álagstímum vegna umferðarþunga. „Það er lest af bílum alveg niður undir Staldur þannig að sjúkralið og annað kemst ekki inn í hverfið og það er punktur sem þarf að leggja áherslu á,“ segir hún. Guðrún segir að hún verði mikið vör við að þeir sem sæki þjónustu til Félagsstarfs Gerðubergs kvarti und- an umferðarmálum í hverfinu. „Fólk þorir ekki yfir ómerktar götur þar sem er þessi mikli hraði og þar af leiðandi fer það síður út og sækir síð- ur þjónustu,“ segir hún. Ekki hættulegra en önnur hverfi Að sögn Baldvins Baldvinssonar, yfirmanns hjá umferðardeild borg- arinnar, er ekkert í vöktun gatna- kerfisins sem bendir til þess að hverfið sé hættulegra en önnur hverfi. Hann bendir á að gangbrautir stuðli ekki alltaf að auknu öryggi gangandi vegfarenda, þvert á móti minnki umferðaröryggi með gang- brautum. Kvartað undan umferðarmálum Hólahverfi REYKJAVÍKURBORG hef- ur efnt til hugmyndasam- keppni um skipulag miðborg- ar og hafnarsvæðis við Austurhöfn. Efnt er til sam- keppninnar að höfðu samráði við samstarfsnefnd ríkis og borgar um tónlistarhús, ráð- stefnumiðstöð og hótel, en samkeppnin nær á þessu stigi eingöngu til hugmynda að skipulagi svæðisins en ekki hönnunar mannvirkja og húsa. Keppnissvæðið afmarkast í megindráttum af Suðurbugt/ Norðurstíg í vestur, Klappar- stíg og Ingólfsstræti í austur og Sæbraut, Tryggvagötu og Hafnarstræti. Að sögn Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur borgar- stjóra og formanns dóm- nefndar, er tilgangur samkeppninnar að fá fram hugmyndir að skipulagi svæð- isins sem er um margt sér- stakt, áhugavert og einstakt í miðborg Reykjavíkur. Í fram- haldi af samkeppninni er fyr- irhugað að hefja einka- framkvæmdarútboð vegna tónlistarhúss og ráðstefnu- miðstöðvar. Allt að 300 þúsund notendur á ári Gert er ráð fyrir að reisa 250 fermetra hótelbyggingu með mögulegri stækkun upp í 400 herbergi. Áformað er að tónleikasal- ur rúmi 1.500 manns en að- alsalur ráðstefnuaðstöðu 750 manns. Þá er áformað að minni tónlistarsalur geti rúm- að allt að 450 manns en áætl- að er að notendur tónlistar- hússins verði allt að 300 þúsund á ári. Lagt er upp með þá hug- mynd að við allar fram- kvæmdir og úrbætur á um- ferðarkerfi miðborgarinnar verði þarfir gangandi hafðar að leiðarljósi. Í tengslum við Sæbraut, Kalkofnsveg og Geirsgötu er bent á að þær séu stofnbraut- ir og jafnframt þjóðvegir og viðunandi sé að bæta við fjórða arminum á gatnamót- um Geirsgötu og Lækjargötu. Í samkeppnislýsingu segir að mikilvægt sé að göngu- tengsl þvert yfir Kvosina verði sem best og hugsanlegt sé að Geirsgata verði lækkuð eða hún sett í stokk. Þetta yrði framkvæmanlegt með því að setja gegnumumferð framhjá Pósthússtræti í stokk en umferðartengsl við Pósthússtræti haldist í beygjustraumum. Önnur leið væri að rjúfa öll tengsl á milli Pósthússtrætis og Geirsgötu. Yrði síðari kosturinn fyrir valinu yrði að skapa nýjar leiðir fyrir umferð út úr Kvos- inni með stækkun gatnamóta í vesturenda Tryggvagötu við Geirsgötu. Jarðgöng undir Skólavörðuholt Þá er þess einnig getið að fram hafi komið hugmyndir um gerð jarðgangna undir Skólavörðuholt sem kæmu í framhaldi af Hlíðarfæti og enduðu við Kalkofnsveg. Auk þessa er gert ráð fyrir að hafnarstarfsemin verði áfram mikilvægur hlekkur í miðborgarlífinu og í því sambandi skuli aðgengi að hafnarbökkum vera óhindrað og Reykjavíkurhöfn hafi áfram afnot af viðleguköntum í Austurhöfn og á 25–40 metra breiðu belti á hafnar- bökkunum. Uppi eru hug- myndir um að gera sumarvið- legu fyrir stærri skemmti- ferðaskip austan Ingólfs- garðs. Rætt er um að reisa nýja skiptistöð fyrir almennings- vagna SVR. Þá er lagt til að bílastæðum verði fjölgað. Í því sambandi er stefnt að því að auka skammtímastæði fyr- ir viðskiptavini og gesti og tryggja forgang íbúa að stæð- um í íbúðahverfum. Fyrir- hugað er að byggja bílahús í Kvosinni og í nágrenni við Hlemm. Tekið er fram sér- staklega að bílahús verði að- eins byggð í góðum tengslum við umferðaræðar og í þriggja til fimm mínútna göngufjar- lægð frá miðborginni. Að auki verður reynt að bæta verslunar- og þjónustu- svæði. Segir að fjölmargir að- ilar hafi lýst yfir áhuga á að byggja þar ýmiss konar versl- unar- og þjónustustarfsemi, meðal annars kvikmynda- og tómstundahús, yfirbyggða smábátahöfn og hótel henni tengdri, söfn í tengslum við Listasafn Reykjavíkur auk listaháskóla. Stærð svæðisins sem um ræðir er 7–10 hektarar en nú- verandi byggingarmagn á svæðinu er u.þ.b. 70 þúsund fermetrar. Gert er ráð fyrir að viðbótarbyggingarmagn á svæðinu verði að minnsta kosti 60 þúsund fermetrar. Reiknað er með að fram- kvæmdir hefjist árið 2003 og standi yfir í tvö til þrjú ár. Áætlað er að kostnaður við tónlistarhús, ráðstefnumið- stöð og hótel nemi allt að 10 milljörðum en framlag ríkis og borgar nemi allt að 4,5 milljörðum af þeirri upphæð. Hægt að koma með ábendingar á Netinu Samkeppnin er öllum opin en hægt er að nálgast keppn- isgögn á heimasíðu sam- keppninnar sem hefur slóðina www.midborg.net. Þar er hægt að skila inn ábendingum og hugmyndum sem þeir, sem keppa um bestu tillöguna, geta notfært sér. Verðlaun verða veitt fyrir bestu hugmyndina og er heildarverðlaunafé sam- keppninnar 8 milljónir. Að auki er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir 2 milljón- ir til viðbótar. Frestur til að skila inn hug- myndum rennur út 5. nóvem- ber og er stefnt á að niður- staða dómnefndar liggi fyrir í desember. Í nefndinni eiga sæti, auk borgarstjóra, Inga Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi, Árni Þór Sigurðsson, formaður skipulags- og bygg- ingarnefndar, Ólafur B. Thors, formaður samstarfs- nefndar ríkis og Reykjavíkur- borgar um tónlistarhús, ráð- stefnumiðstöð og hótel og Albína Thordarson, Sólveig Berg Björnsdóttir og Knud Fladeland Nielsen arkitektar. Hugmyndasamkeppni um skipulag miðborgar og hafnarsvæðis kynnt á blaðamannafundi í gær Framkvæmdir á mann- virkjum boðnar út síðar Miðborg Morgunblaðið/Jim Smart Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri útskýrir hugmyndasamkeppnina. SKIPTA þurfti um loka í brunni í Engidal á mótum Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar í fyrra- dag. Af þeim sökum var heitavatnslaust um tíma á Álftanesi, í Hraunholti, í norðurbæ Hafnarfjarðar að hluta og á iðnaðarsvæðinu austan Engidals. Böðvar Magnússon raf- suðumaður og Magnús Magnússon bifvélvirki unnu að viðgerð í brunninum alla nóttina. Böðvar og Magnús starfa hjá SS járnsmíði ehf. sem er undirverktaki hjá Orkuveitu Reykjavíkur en hún stendur að framkvæmd- unum. Starfsmenn Orkuveit- unnar aðstoðuðu þá við verkið. Að sögn Sigurðar Guð- mundssonar, svæðisstjóra í framleiðsludeild Orkuveit- unnar, var vatni hleypt á aft- ur í Hraunsholti og á Álfta- nesi um klukkan fimm í morgun. Um klukkan 7 var vatni hleypt á svæðið austan Engidals og í Norðurbæ. Það varð því enginn af morgunsturtunni en áætlað var að verkinu yrði lokið fyr- ir kl. 8. Það var létt yfir mann- skapnum í fyrrakvöld. Lok- að var fyrir heita vatnið kl. 18 og tveimur tímum síðar, eftir að pípurnar voru tæmd- ar, átti að hefjast handa við að skipta um loka. Lokinn skilur að vatn úr Nesjavalla- vatni og Reykjavatni en mik- ilvægt er að því sé haldið að- skildu. „Við erum undir mikilli tímapressu með að ljúka verkinu á réttum tíma,“ seg- ir Böðvar. Hann hefur unnið við rafsuðu í tæp 30 ár og segir starfið líkamlega erfitt. Sérstaklega sé erfitt að vinna á nóttunni og undir tímapressu eins og í þessu tilviki. „Maður hefur engan tíma til að slappa af og taka kaffi- pásur. Það er einstaka sinn- um að einhver er sendur eft- ir samlokum og þeim er hent niður til okkar í brunninn. Annars erum við yfirleitt að vinna sleitulaust í 8 -10 tíma,“ segir hann. Fékk rafsuðublindu og flís í augað Síðar um nóttina varð Böðvar fyrir því óláni að fá rafsuðublindu og járnflís í augað. Honum var ekið á Borgarspítalann um kl. hálf- fimm í morgun. „Það er vont þegar tveir eru að sjóða. Maður lyftir hjálminum upp til að skipta um vír og þá fær maður glampann frá hinum í augun. Maður áttar sig ekkert á þessu fyrr en á líður. Þá er glampinn búinn að brenna fremstu himnuna í augunum. Sem veldur því að augað þornar upp og maður fær gífurlegan sviða í augun,“ segir Böðvar. Betur fór þó en á horfðist. Böðvar var útskrifaður af spítalanum strax um morg- uninn og fór sama dag til augnlæknis sem fjarlægði flísina. „Þetta er eitthvað sem getur komið svona einu sinni, tvisvar á ári fyrir þá sem eru að vinna í þessu starfi,“ segir Böðvar sem verður frá í nokkra daga á meðan hann er að jafna sig. Hann segir enga hættu á öðru en hann muni ná sér að fullu og að þetta sé óhjá- kvæmilegur fylgikvilli starfsins. Unnið næturlangt við að skipta um vatnsloka Í mikilli tímaþröng Engidalur Böðvar Magnússon rafsuðumaður varð fyrir því óláni um nóttina að fá rafsuðublindu og járnflís í augað. Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.