Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss, Triton, Bit-
land, Trinket, Puente
Sabarism, Mánafoss
og Victoria koma í dag.
Locomocean og Arn-
arfell fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Bit-
land kom í gær, Slétt-
bakur fór í gær.
Fréttir
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum
alls konar notuð frí-
merki, innlend og út-
lend, ný og gömul,
klippt af með spássíu í
kring eða umslagið í
heilu lagi (best þannig).
Útlend smámynt kemur
einnig að notum. Mót-
taka í húsi KFUM og
K, Holtavegi 28,
Reykjavík, og hjá Jóni
Oddgeiri Guðmunds-
syni, Glerárgötu 1, Ak-
ureyri.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30–17.
Mannamót
Norðurbrún, Furu-
gerði og Hæð-
argarður. Fimmtudag-
inn 21. júní verður farið
að Ljósafossvirkjun,
lagt af stað frá Norð-
urbrún kl. 12.30, síðan
verða farþegar teknir
upp Furugerði og Hæð-
argarði, ekið verður um
Mosfellsheiði og Þing-
velli að virkjuninni þar
sem skoðaðir verða
m.a. munir í eigu Þjóð-
minjasafns Íslands. Ek-
ið verður til baka um
Þrengslin. Farþegar
taki með sér nesti og
hlýjan fatnað. Skráning
í Norðurbrún, s. 568
6960, Furgerði, s. 553
6040, og Hæðargarði, s.
568 3132.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan og
bókband og öskjugerð,
kl. 9.45-10 helgistund,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13-16.30 opin
smíðastofan, kl. 10-16
púttvöllur opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9.30 morg-
unkaffi/dagblöð, kl.
11.15 matur, kl. 14–15
dans hjá Sigvalda, kl.
15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl.
11.20 leikfimi, kl. 11.30
matur, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli.
Sumarfagnaður verður í
dag, 14. júní, kl. 14,
fjölbreytt skemmti-
dagskrá og kaffisala. Á
morgun, föstudag, verð-
ur lokabrids fyrir sum-
arið kl. 13:30 og verður
boðið upp á kaffi og
tertu eftir spila-
mennsku. Þriggja daga
ferð til Hornafjarðar 3.
júlí, nokkrir miðar laus-
ir. Orlofið að Hótel
Reykholti, Borgarfirði,
26. águst nk. Skráning
hafin, allar upplýsingar
í Hraunseli, sími 555
0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10 til 13. Matur í há-
deginu.
Brids í dag kl. 13.
Dagsferð 18. júní.
Söguferð í Dali, skoð-
aðir verða Eiríksstaðir,
Höskuldsstaðir í Lax-
árdal, Hjarðarholt,
Búðardalur, Krosshólar
og landnámsbærinn
Hvammur. Eigum
nokkur sæti laus.
Skráning hafin. Leið-
sögumaður er Sigurður
Kristinsson.
Eyjafjörður – Skaga-
fjörður – Þingeyj-
arsýslur 6 dagar.
26.-31. júlí. Ekið norður
Sprengisand til Ak-
ureyrar. Farið um
Eyjafjarðardali, Svarf-
aðardal, Hrísey, Sval-
barðsströnd, o.fl. Ekið
suður Kjalveg um
Hveravelli til Reykja-
víkur. Leiðsögn Þórunn
Lárusdóttir. Eigum
nokkur sæti laus. Ath.:
Vegna mikillar aðsókn-
ar í hringferð um Norð-
austurland viljum við
biðja þá sem eiga pant-
að að koma og greiða
inn á ferðina sem fyrst.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588 2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, gler-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla og böðun, kl.
10 leikfimi, kl. 13.30
bókabíll, kl. 15.15 dans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9.30 sund- og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.30, um-
sjón Edda
Baldursdóttir íþrótta-
kennari, kl. 10.30 helgi-
stund, frá hádegi vinnu-
stofur og spilasalur
opin. Fimmtudaginn 21.
júní er Jónsmessufagn-
aður í Skíðaskálanum í
Hveradölum, m.a. ekið
um Heiðmörk o.fl., veg-
legt kaffi, hlaðborð að
hætti hússins. Söngur
og dans undir stjórn
Ólafs B. Ólafssonar
harmonikuleikara. Allar
veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsem-
ina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9–15, gler
og postulín.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 9.45 boccia, kl. 14
félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9
dagblöð og kaffi, fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30 al-
menn handavinna, kl.
10 boccia, kl. 11.45 mat-
ur, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 14.30 kaffi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
og hárgreiðsla, kl. 9.30
morgunstund og al-
menn handmennt, kl.
10 boccia og fótaað-
gerðir, kl. 11.45 matur,
kl. 13 frjálst spil, kl. 14
létt leikfimi, kl. 14.30
kaffi.
GA-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ, Síðumúla 3–5, og
í kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg
á laugard. kl. 10.30.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Nánari uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530
3600.
Kiwanisklúbbarnir
Jörfi og Mosfell. Kiw-
anismenn og aðrir,
fyrsti sumarfundur í
Kiwanishúsinu, Engja-
teigi 11, verður haldinn
í kvöld kl. 20.00. Ræðu-
maður verður Einar
Sveinbjörnsson aðstoð-
armaður umhverf-
isráðherra.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma,
Breiðholtskirkju við
Þangbakka. Skálholts-
skóli, ellimálanefnd
Þjóðkirkjunnar og elli-
málaráð Reykjavík-
urprófastsdæma efna til
sumardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti.
Boðið er til fimm daga
dvalar í senn og raðast
þeir þannig: 25. til 29.
júní, 2. til 6. júlí og 9.
til 13. júlí. Allar nánari
upplýsingar eru veittar
á skrifstofu ellimálaráðs
Reykjavíkurprófasts-
dæma.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður í
dag kl. 10 við Fróðengi
og kl. 14 við Frosta-
skjól og á morgun kl.
10 við Hlaðhamra og kl.
14 við Mararás.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort. Þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552 4994 eða síma
553 6697. Minning-
arkortin fást líka í
Háteigskirkju við
Háteigsveg.
Í dag er fimmtudagur 14. júní, 165.
dagur ársins 2001. Dýridagur. Orð
dagsins: Fyrir trú skiljum vér, að
heimarnir eru gjörðir með orði Guðs
og að hið sýnilega hefur ekki orðið
til af því, er séð varð.
(Hebr. 11, 3.)
Víkverji skrifar...
MIKIL umræða hefur átt sérstað um ástand þorskstofns-
ins í ljósi nýjustu upplýsinga Haf-
rannsóknastofnunar. Þeir, sem
gagnrýnt hafa ráðgjöf stofnunar-
innar og fiskveiðistjórnunarkerfið,
hafa bent á að áður en kerfið var
tekið upp hefðum við áratugum
saman veitt 300–400 þúsund tonn af
þorski en síðustu ár hefði veiðin
einungis verið 150–240 þúsund
tonn.
Víkverja langar til að leggja eitt
atriði fram inn í þessa umræðu. Ein
meginfæða þorsksins er loðna og
rækja. Sókn í þessa tvo fiskistofna
hefur stóraukist á síðustu árum og
raunar má segja að ekki séu nema
um 30 ár síðan veiði á þeim hófst að
einhverju marki. Þó að Víkverji
hafi ekki aflað sér um það ítarlegra
upplýsinga verður ekki betur séð
að minni veiði á þorski fari saman
við aukna veiði á rækju og loðnu
sem er eins og áður segir aðalfæða
þorsksins. Þarna hlýtur að vera
samhengi á milli. Raunar hljóta all-
ir að skilja að dýrastofn sem fær
skyndilega aukna samkeppni um
fæðuna, í þessu tilviki frá mann-
inum, hlýtur að eiga erfiðara upp-
dráttar en áður.
Oft hefur verið rætt um að hvalir
éti mikið af þorski og að ástand
þorskstofnsins væri betra ef hér
væru stundaðar hvalveiðar. Með
sömu rökum hlýtur að vera hægt að
segja að ástand þorskstofsins væri
betra ef við veiddum ekki svona
mikið af loðnu og rækju.
x x x
TALSVERÐ umræða hefur ver-ið um hreindýrin á Austur-
landi í tengslum við umræður um
byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Margir eru þeirrar skoðunar að
maðurinn megi helst ekkert raska
búsetuskilyrðum hreindýra. Í þessu
sambandi gleymist oft að maðurinn
flutti hreindýrin til Íslands og þau
hafa einungis verið hér í rúmlega
300 ár. Upphaflega var hugmyndin
sú að rækta þau og nýta í landbún-
aði en af því varð ekki og því hafa
dýrin lifað villt á landinu frá upp-
hafi. Þótt hreindýrin séu í dag hluti
af náttúrunni á Austurlandi má
heldur ekki gleyma því að þeim
fylgir talsvert álag fyrir gróðurinn,
ekki síst trjágróður. Um þetta get-
ur skógræktarfólk á Austurlandi
vitnað. Það er því kannski ekki
óeðlilegt þó að spurt sé hvort hrein-
dýr, sem búið hafa á Íslandi í 330
ár, eigi meiri rétt en maðurinn sem
búið hefur á Íslandi í 1130 ár. Ekki
er um það deilt að maðurinn vinnur
á degi hverjum margvísleg spjöll á
umhverfinu, en færa má rök fyrir
því að það geri hreindýrin líka.
x x x
Í SÍÐUSTU viku kom fram ífréttum að umhverfisráðuneytið
hefði hafnað umsókn nokkurra að-
ila á Austurlandi sem óskað hafa
eftir að fanga og temja hreindýr.
Hugmynd Austfirðinga var að sýna
hreindýrin ferðamönnum og efla
þannig ferðaþjónustu í landshlut-
anum. Það kann að vera að ein-
hverjir formgallar hafi verið á um-
sókninni eða að hún hafi ekki verið
studd nægjanlegum rökum. Það er
a.m.k. vandséð hvers vegna Aust-
firðingum er meinað að fanga og
halda hreindýr á sama tíma og höf-
uðborgarbúum er leyft það, en í
fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
Reykjavík er hægt að skoða hrein-
dýr. Á heimasíðu garðsins kemur
fram að fjögur hreindýr séu í garð-
inum en þau eru Draupnir, Snotra,
Dögun og Jóhanna sem raunar var
fönguð á Fljótsdalshéraði.
LÁRÉTT:
1 trúlega, 8 furða, 9 spar-
semi, 10 illmælgi, 11
vagn, 13 forfaðirinn, 15
rassa, 18 heysætið, 21
þrep í stiga, 22 vopn, 23
kjáni, 24 gróðurfletinum.
LÓÐRÉTT:
2 bál, 3 gabba, 4 fiskur, 5
passaði, 6 eyðslusemi, 7
stakur, 12 hlaup, 14 skjót,
15 baksa við, 16 sjón-
varpsskermur, 17 nátt-
úrufarið, 18 óvirti, 19 ref-
urinn, 20 örlagagyðja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 snökt, 4 gráta, 7 ætlar, 8 geirs, 9 tón, 11 Inga,
13 maur, 14 gamla, 15 töng, 17 naum, 20 gró, 22 pokar,
23 lætin, 24 rengi, 25 gengi.
Lóðrétt: 1 snæði, 2 öflug, 3 tært, 4 gagn, 5 árita, 6 ansar,
10 ólmur, 12 agg, 13 man, 15 tapar, 16 nakin, 18 aftan, 19
munni, 20 grái, 21 ólag.
K r o s s g á t a
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
HVERNIG myndi þér líða
ef þú ættir hund og værir
að flytja í raðhúsahverfi eða
íbúð? Ég nefni dæmi: Einn
af íbúum þess neitar því að
þú megir vera með hundinn
þinn með þér í nýju íbúð-
inni þinni, þrátt fyrir já-
kvæð svör frá öllum hinum
íbúunum. Oftast eru afsak-
anir notaðar eins og t.d. of-
næmi, þar sem engar sann-
anir ligga frammi fyrir því.
Ef ég má vitna í önnur
Norðurlönd, þá spyr maður
engan að því hvort maður
megi vera með hund eða
ekki þegar maður er að
flytja, þú átt hundinn þinn í
friði þar svo lengi sem hann
er ekki truflandi. Eru það
bara sérréttindi einbýlis-
húsaeigenda á Íslandi að
halda hund í friði og ró? Ég
spyr. Þetta er ekki bara
eitthvað sem var að gerast í
gær heldur er þetta næst-
um því á hverjum degi, ann-
aðhvort er verið að reyna
að fæla fólk úr íbúðum sín-
um eða að hundurinn verð-
ur svæfður.
Alvöru hundafólk myndi
auðvitað flytja, en finnst
ykkur það virkilega rétt?
Að fólk sé rekið úr húsum
sínum vegna þess að það á
hunda sem því þykir vænt
um, hunda sem hafa ekki
truflað neinn og gera eng-
um mein. Það skilja það all-
ir mæta vel ef hundurinn
hefur gert eitthvað af sér,
er t.d. sígeltandi, það er
truflandi. Maður reynir þá
að bæta úr því, að svæfa
hundinn er kannski einfald-
asta lausnin en þó ekki sú
réttlátasta. Það er morð á
saklausu dýri. Fólk í dag er
að kæra hundaeigendur að-
eins fyrir hundahald. Þetta
er alveg fráleitt. Hundaeig-
andinn hefur þá sáralítið að
segja í því máli. Þannig er
íslenska þjóðin í dag. Ís-
lendingar bera litla virð-
ingu fyrir dýrahaldi og
verðmæti þess, hvað þá
kunnáttu. Hundar eru í
huga hins dæmigerða Ís-
lendings eitthvað sem á
heima úti í hlöðu í sveit.
Hundar eru meira og
minna börn okkar og hluti
af fjölskyldunni. Þeir hafa
bjargað lífi fólks bæði and-
lega og líkamlega. Neitun
og hundabannsskiltin um
allan bæ segja mikið um
hve íslenska þjóðin hefur
því miður alltaf verið lítið
fyrir dýrahald á Íslandi. Ís-
land er eina landið í heimi
sem lætur svona og hefur
vont orð á sér þegar það
kemur að hundahaldi. Í Sví-
þjóð ferðu með hundinn
þinn í strætó og lest, hægt
er að binda hundinn sinn á
sérstökum svæðum fyrir
utan matvöruverslunina og
aðrar verslanir, svo fátt eitt
sé nefnt. Hundar eru
hvergi bannaðir í görðum
og hundabannsskiltin sjást
hvergi. Hundar hafa
ákveðna stöðu í samfélag-
inu þar og eru virtir. Og
enn og aftur minnist ég
þess að hundurinn er besti
vinur mannsins; „hvort sem
þú átt hund eða ekki“.
Ekki gleyma því !
JP Fannar Jónsson,
105 Reykjavík.
Að vera rændur
á ferðalagi
MIG langar að koma því á
framfæri við þá er hyggjast
fara til Barcelona að þar í
borg eru þjófar sérlega
kræfir. Nú nýverið heyrði
ég af þrem konum er gerð
var fyrirsát við hótelið er
þær gistu og af þeim teknar
axlartöskur. Síðastliðið
sumar voru þeir einnig
stórtækir. Aðvörunin er:
verið ekki með lausar tösk-
ur (veski) með verðmætum
utan á líkamanum. Það eru
kortin og peningarnir sem
þeir eru að sækjast eftir. Í
margmenni og troðningi
ber að vera vel vakandi og
horfið hvert á eftir öðru ef
þið eruð fleiri saman. En
auðvitað ber að fara með
gát hvar sem er í borgum,
þessi er aðeins nefnd hér til
sögunnar þar sem vitað er
að glæpaflokkarnir eru
skipulagðir. Hinum inn-
fæddu borgurum þykir
þetta afar leitt og blettur á
annars skemmtilegri borg
og mannlífi.
Ferðalangur.
Tapað/fundið
Brúnt seðlaveski
tapaðist
BRÚNT samanbrotið
seðlaveski, með öllum skil-
ríkjum, tapaðist á annan í
hvítasunnu. Veskið gæti
hafa tapast fyrir utan Ís-
búðina í Álfheimum. Skil-
ríkin eru mikill missir fyrir
eigandann og því er finn-
andi vinsaml. beðinn að
hafa samb. í s. 564 3677.
Dýrahald
Stjáni kisi er týndur
STJÁNI er tveggja ára
högni, grásprengdur á baki
og ljósgrábröndóttur á
kvið. Hann hvarf frá Helgu-
braut 33 fimmtudagskv. 7.
júní sl. Stjáni er eyrna-
merktur K 1009 en var ekki
með ól. Stjána er sárt sakn-
að og ekkert er verra en
óvissan um afdrif hans. Ef
einhver hefur einhverja
vitneskju um afdrif hans þá
vinsaml. hafið samb. við
Svandísi í s. 863 9901 eða
554 2953.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hundahald
á Íslandi?