Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 9 HELGI Sigurbjörnsson á Smyrla- björgum í Suðursveit bað um hæn- ur í afmælisgjöf þegar hann varð 12 ára. Hann fann það út að ef hann ætti nokkrar hænur gæti hann farið að vinna sér inn pen- inga og selja foreldrum sínum egg, þeim Laufeyju Helgadóttur og Sigurbirni Karlssyni ferðaþjón- ustubændum að Smyrlabjörgum. Hænurnar fékk hann og þegar þær voru hvað flestar í fyrra voru þær yfir tuttugu talsins. Einn hani hefur síðan séð um að stytta þeim stundirnar. Helgi lætur vel af búskapnum, hann fóðrar fiðurfénaðinn tvisvar á dag og gefur þeim aðallega korn og afganga sem til falla hjá ferðaþjónustunni. Hænurnar ganga frjálsar og þegar Helgi var að spjalla við blaðamann kom að trésmiður sem var að vinna að framkvæmdum á Smyrlabjörgum og kvartaði sáran við Helga undan því að ein hænan hefði verpt milli timburstafla. Hann benti einnig á að iðn- aðarmennirnir vildu gjarnan að hann fjarlægði hænuna hið snar- asta og það sem henni fylgdi. Sendir vikulega reikning Fyrir hvert egg fær Helgi 10 krónur, þ.e. ef hann selur ferða- þjónustunni þau. Á hinn bóginn segist hann hafa mun meira uppúr því að selja öðrum því þá fær hann 15 krónur á hvert egg. Hann segir misjafnt hversu mörg egg hann fær á dag en flest hafa þau verið 22. Vikulega sendir hann svo foreldrum sínum reikn- ing frá Helga hænsnabónda. Eitthvað hefur nú fækkað í hænuhópnum en það stendur til bóta, segir hann, enda pabbi hans búinn að lofa því að gefa honum nokkrar hænur við tækfiæri. En ætlar hann að gerast hænsnabóndi þegar fram líða stundir? „Ég veit það nú ekki, ætli ég gerist þá ekki frekar rollubóndi.“ Helgi Sigurbjörnsson er þrettán ára hænsnabóndi Selur eggið á 10–15 krónur Morgunblaðið/Guðbjörg R Guðmundsdóttir. Helgi Sigurbjörnsson hænsna- bóndi býst ekki við að hænsni verði fyrir valinu snúi hann sér að landbúnaði síðar meir heldur frekar rollubúskapur. SAMKOMULAG hefur náðst milli eiganda jarðarinnar Hvamms í Skorradal og Skógræktarinnar, sem felur í sér að Skógræktin eignast allar húseignir á jörðinni auk 35 hektara landsvæðis sem verður not- að til skógræktar. Á móti afsalar stofnunin sér yfirráðarétti yfir girð- ingum og skógrækt á öðrum hluta jarðarinnar. Eignarhaldsfélagið Skorradalur ehf., sem keypti jörð- ina, hefur auglýst nokkrar eignar- lóðir til sölu undir sumarbústaði. Hvammur í Skorradal er ein mesta skógræktarjörð landsins, en Skógræktin hefur ræktað þar skóg í áratugi. Jörðin var í eigu erfingja Hauks Thors, en þeir seldu hana fyrr á þessu ári fyrir á annað hundr- að milljónir króna. Ágreiningur var milli erfingjanna og Skógræktarinn- ar í tengslum við söluna, en að sögn Kristjóns Benediktssonar, fram- kvæmdastjóra Skorradals ehf., hef- ur nú náðst samkomulag um upp- gjör við Skógræktina. „Samkomulagið felur í sér að öll hús á jörðinni tilheyra Skógrækt- inni. Jafnframt því fékk hún 35 hektara lands til áframhaldandi skógræktar en á móti afsalaði hún sér ræktuninni og girðingum,“ sagði Kristjón. Kristjón sagði að þær lóðir sem væru til sölu væru tæplega hektari að stærð og væri hver lóð seld á 3,8 milljónir. Hann sagði að mikil eft- irspurn væri eftir lóðunum og kvaðst reikna með að salan gengi hratt fyrir sig. Unnið er að aðalskipulagi fyrir Skorradalshrepp, en Davíð Péturs- son, oddviti sveitarfélagsins, sagði að vinnu við deiliskipulag væri ólok- ið. Kristjón sagði að búið væri að vinna drög að deiliskipulagi fyrir lóðirnar og stefnt væri að því að þær yrðu byggingarhæfar sem fyrst.Hann sagði að búið væri að kynna þessar hugmyndir í Skipu- lagsstofnun og hjá sveitarstjórn. Hann sagðist ekki sjá fram á nein vandamál sem ættu að tefja skipu- lagsvinnuna. Skógræktin fær hús og land undir skógrækt Samkomulag milli Skógræktarinnar og eiganda Hvamms í Skorradal á horni Laugavegs og Klapparstígs, sími 552 2515 Leirvara - púðar - dúkar - speglar í miklu úrvali Sígild verslu n Léttir frakkar og sumarjakkar, buxnadress og kjólar Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, s. 562 2862 ÍTALSKUR SUMARFATNAÐUR www.oo.is Ungbarnafötin fást hjá okkur sumarkjólar — stuttermabolir — buxur — sundföt Verð- lækkun á sumarfatnaði Austurhrauni 3, Hfj. sími 5552866 Lokað á laugardögum í sumar NÝTT VISATÍMABIL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.