Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„ISAL er vel stjórnað fyrirtæki og
hefur á að skipa mjög góðu og vel
menntuðu starfsliði. Ég finn það vel
að framleiðslustarfsemi fyrirtækis-
ins er undir góðri stjórn,“ segir
Emery P. LeBlanc, forstjóri hrááls-
framleiðslusviðs Alcan Inc. álfyrir-
tækisins, móðurfélags Íslenska ál-
félagsins.
LeBlanc er einn af æðstu yfir-
mönnum Alcan, sem er annað
stærsta álfyrirtæki heims. Undir
hann heyra níu báxítnámur, átta
súrálsverksmiðjur og 15 álver í sjö
löndum. Þar á meðal er álver Ís-
lenska álfélagsins í Straumsvík í
kjölfar samruna Alcan og Algroup
(áður Alusuisse-Lonza Group) í
október síðastliðnum.
Framleiðslugeta verksmiðjanna
er 2,2 milljónir tonna en stærst ál-
veranna er nýtt álver Alma í Quebec
í Kanada, með 400 þús. tonna árlega
framleiðslugetu. Álver ISAL er sjö-
unda stærsta álverið innan Alcan-
samsteypunnar og framleiðir í dag
tæplega 170 þús. tonn á ári.
Starfsmenn Alcan eru um 53 þús-
und í 40 löndum. Velta
Alcan á síðasta ári var
9,1 milljarður Banda-
ríkjadala. Hagnaður af
rekstrinum var 618
millj. dala og jókst um
34% á milli ára.
Auk hráálsvinnslunn-
ar er Alcan umsvifa-
mikið í úrvinnsluiðnaði og rekur
m.a. 37 verksmiðjur á því sviði í
Evrópu og umbúðaframleiðslu í 85
verksmiðjum í 14 löndum. Þá er
Alcan í forystu í heiminum í ál-
vinnslu fyrir bílaiðnaðinn.
Tók sæti í stjórn ISAL
Emery LeBlanc var hér á landi í
vikunni en hann sat aðalfund Ís-
lenska álfélagsins á þriðjudag og
tók jafnframt sæti í stjórn fyrirtæk-
isins á stjórnarfundi sem haldinn
var að loknum aðalfundinum.
Nokkrar aðrar breytingar urðu á
stjórninni. Wolfgang Stiller, yfir-
maður Primary Metal Group í Evr-
ópu, tók við stjórnarformennsku í
stað dr. Christian Roth, sem situr
áfram í stjórninni. Auk Emery P.
LeBlanc tók Einar Einarsson fram-
kvæmdastjóri sæti í stjórn en Einar
og LeBlanc tóku sæti Páls Kr. Páls-
sonar og Ólafs Thors.
Góður árangur hjá ISAL
ISAL skilaði 40,5 milljóna dala
rekstrarhagnaði á síðasta ári (um
3,1 milljarði kr. miðað við meðal-
gengi dollars á síðasta ári). LeBlanc
segist vera mjög ánægður með af-
komu ISAL í fyrra.
„Síðasta ár var mjög gott hjá
ISAL og batnaði enn frá árinu á
undan. Álverð var að sjálfsögðu
heldur hærra á síðasta ári en á
árinu 1999, sem átti auðvitað sinn
þátt í bættri afkomu en ég er líka
mjög ánægður með heildarstarf-
semi ISAL. Miklar framfarir hafa
orðið í umhverfismálum og aðgerð-
um til að tryggja aukið öryggi
starfsmanna. Unnið hefur verið að
úrbótum í öryggismálum sl. þrjú ár
með þeim árangri að það sem af er
þessu ári hafa engin slys átt sér stað
í verksmiðjunni, sem er svo sann-
arlega markverður árangur,“ segir
hann.
Ákjósanlegir kostir á Íslandi
fyrir álframleiðslufyrirtæki
LeBlanc var spurður hvaða meg-
inkosti hann sæi við rekstur álvers á
Íslandi. Hann sagði að frá sjónar-
hóli Alcan væri lega landsins mjög
hagstæð. Hún opnaði m.a. aðgang
að mörkuðum í Evrópu, þar sem
skortur væri á málmi til vinnslu.
„Ísland er líka vel í sveit sett til að
þjóna viðskiptavinum og til hráefn-
isöflunar til framleiðslunnar. Í ál-
iðnaðinum þarf að flytja
súrálið með stórum
flutningaskipum og er
lega Íslands hagstæð
að því leyti líka þar sem
landið liggur á milli
Evrópu og Ameríku.
Það sem gerir Ísland
einnig áhugavert að
okkar mati er að stjórnvöld hér á
landi styðja með skipulegum hætti
þróun og uppbyggingu orkufreks
iðnaðar og sýna mikinn áhuga á að
laða fyrirtæki á borð við okkar til
landsins. Hér eru miklir möguleikar
til staðar á orkuöflun, vatnsaflsorku
og jarðhita,“ segir hann.
Kynnti sér starfsemi
orkufyrirtækja
LeBlanc heimsótti Landsvirkjun,
Orkuveitu Reykjavíkur og Hita-
veitu Suðurnesja á meðan á heim-
sókn hans stóð.
,,Það eru miklir möguleikar til
staðar hér,“ heldur hann áfram.
„Þar sem þið getið ekki flutt rafork-
una út til Evrópu hafið þið tekið þá
afstöðu að fá stóriðjufyrirtæki til
landsins til að skapa atvinnu og
flytjið þannig út orkuna í formi út-
fluttrar iðnaðarvöru. Það er mjög
skynsamleg stefna að mínu mati,“
segir LeBlanc.
– Sérðu vaxtarmöguleika fyrir
Alcan á Íslandi?
,,Við erum að leita nýrra tæki-
færa hjá hinu nýja Alcan. Við rek-
um 15 álver víðs vegar um heiminn
og ISAL-verksmiðjan er mjög hag-
kvæm viðbót við starfsemi okkar,
bæði vegna legu landsins, eins og
áður segir, og þeirra vaxtarmögu-
leika sem eru hér til staðar. Við er-
um að velta fyrir okkur nokkrum
mismunandi tækifærum og sjáum
fyrir okkur þrjá til fjóra vaxtar-
möguleika, sem við þurfum að vega
og meta vandlega áður en ákvarð-
anir verða teknar.“
Niðurstöðu að vænta
innan sex til níu mánaða
„Í framhaldi af samruna Algroup
og Alcan hefur nýr forstjóri tekið
við stjórnartaumum [Travis En-
gen], nýir menn hafa komið inn í
stjórn fyrirtækisins og um þessar
mundir vinnum við að endurskoðun
viðskiptaáætlana okkar. Við mun-
um skoða mögulega vaxtarmögu-
leika og ISAL er að sjálfsögðu einn
þeirra. Við þurfum velja besta kost-
inn áður en ákvörðun verður tekin
um næstu fjárfestingu fyrirtækis-
ins. ISAL er svo sannarlega meðal
þeirra kosta sem við munum fara
vandlega yfir á næstunni. En við
höfum ekki lokið heimavinnunni
ennþá, það er talsverð matsvinna
enn eftir. Það er því erfitt fyrir mig
að segja nákvæmar fyrir um þetta á
þessu stigi,“ segir hann.
Afla þyrfti raforku til stækk-
unar á svæðinu suðvestanlands
Aðspurður segir LeBlanc að ekki
sé tímabært að svara þeirri spurn-
ingu afdráttarlaus hvort Alcan hafi
hug á frekari stækkun álversins í
Straumsvík.
„Allar nauðsynlegar forsendur
virðast vera til staðar hér, raforka
og vilji stjórnvalda er fyrir hendi.
Það lítur því allt sérstaklega vel út
hér, en við verðum engu að síður að
ljúka öllum hagkvæmniathugunum
okkar áður en ákvarðanir verða
teknar. Því verki er ekki lokið en við
munum ljúka því. Innan svona sex
til níu mánuða eða snemma á næsta
ári ættum við að hafa fengið góða
mynd af því hvaða vaxtartækifæri
við eigum hér hjá ISAL.“
– Nú hefur Norsk Hydro á prjón-
unum að reisa stórt álver á Aust-
fjörðum og Columbia Ventures ál-
félagið sýnir mikinn áhuga á frekari
stækkun álversins á Grundartanga.
Hafa þessar mögulegu framkvæmd-
ir einhver áhrif á fyrirætlanir Alcan
hér á landi og hefur þú engar
áhyggjur af því að ISAL kunni að
verða skilið eftir á meðan stjórnvöld
og Landsvirkjun sinna viðræðum
við þessi félög um raforkufram-
leiðslu til álvera?
„Ég tel ekki að svo sé. Í fyrsta
lagi er á það að líta að Norsk Hydro
er með hugmyndir um byggingu
álvers í öðrum landshluta og það
útilokar ekki frekari uppbyggingu á
suðvesturhorninu.
Það er ljóst að ef við ráðumst í
stækkun álversins í Straumsvík
þyrftum við að afla raforkunnar hér
á svæðinu í kring. Landsvirkjun
hefur uppi ýmsar hugmyndir og
kosti í þeim efnum. Ég held því að
þessi verkefni þurfi ekki að hafa
nein áhrif á hugsanlega stækkun
ISAL. Ég tel að það séu næg tæki-
færi til staðar fyrir alla.
Það væri hins vegar ekki eins
gott ef farið yrði of hratt í svona
stór verkefni. Það væri mun hag-
stæðara ef stjórnvöld hér á landi
gætu útvegað aukna raforku smátt
og smátt,“ segir hann.
Björt framtíð í áliðnaði
LeBlanc var þessu næst beðinn
að leggja mat á framtíð áliðnaðarins
í heiminum. ,,Framtíð áliðnaðarins
er björt til lengri tíma litið vegna
þess mikla vaxtar sem á sér stað í
samgönguiðnaðinum. Ál er í síaukn-
um mæli notað við smíði farartækja
og hluta í farartæki, bifreiðar, lest-
ir, flugvélar. Þar á sér stað mjög ör
vöxtur. Í bílaframleiðslunni er sí-
fellt verið að leita leiða
til að draga úr eldnseyt-
isnotkun og nota léttari
málma, sem hafa þó
sama styrkleika og stál.
Ál er vel til þessa fallið
og notkun þess eykst
stöðugt.
Einhversstaðar las
ég spá um að árið 2010 verði allar
vélar sem framleiddar verða í heim-
inum gerðar úr áli. Þetta á líka við
um fleiri hluti sem notaðir eru við
smíði bifreiða. Kröfur almennings
um aukahluti í bíla aukast í sífellu,
t.d. um margskonar rafstýrða smá-
hluti með litlum mótorum. Sagt hef-
ur verið að finna megi 30 litla
hreyfla í venjulegum bíl í dag. Þó
litlir séu auka þeir þyngd bifreið-
arinnar og því er farið að nota ál í
smíði þeirra í auknum mæli. Það er
mikill vöxtur í samgönguiðnaðinum,
á síðustu þremur til fjórum árum
nam hann 8–10% á ári.“
Tímabundinn samdráttur
vegna efnahagslægðar
„Að öllu samanlögðu vex áliðnað-
urinn um 2–3% að meðaltali á ári,
sem er mjög heilbrigður vöxtur í
iðnaði,“ segir LeBlanc.
„Mikill uppgangur var á síðasta
ári í áliðnaði en á þessu ári erum við
farin að sjá merki um samdrátt
vegna þess að efnahagslífið er í
lægð. Sú þróun hófst í Bandaríkj-
unum og hefur svo náð til Evrópu
og Asíu. Við höfum nokkrar áhyggj-
ur af þessari þróun og erum farnir
að finna fyrir að dregið hafi úr eft-
irspurn meðal viðskiptavina okkar.
Talið var í upphafi ársins að sam-
drátturinn í bandarísku efnahagslífi
og Evrópu stæði aðeins yfir í
nokkra mánuði og við ættum að
vera kominn yfir þetta skeið í lok
ársins. Nú er það hins vegar mat
margra að það verði ekki fyrr en á
síðari hluta næsta árs sem við mun-
um sjá merki um uppgang á nýjan
leik,“ segir hann.
Að sögn LeBlancs hefur minnk-
andi eftirspurn í för með sér of-
framboð sem mun valda verðlækk-
un á málmum. Á sama tíma og
eftirspurn hefur minnkað hafa álver
þurft að draga úr framleiðslu sinni
vegna orkukreppunnar í norðvest-
urhluta Bandaríkjanna vegna lélegs
vatnsbúskapar. Verksmiðjum hefur
jafnvel verið lokað vegna orku-
skorts og framleiðsla dregist saman
um allt að 1,5 milljónir tonna. Hann
segir það því lán í óláni að fram-
leiðsla hefur minnkað á sama tíma
og eftirspurnin hefur dregist saman
og því sé iðnaðurinn nokkurn veg-
inn í jafnvægi.
„Álverð á málmmarkaðinum í
London (LME) hefur haldist í
kringum 1500 dollarar á tonnið. Að
margra mati væri verðið mun lægra
ef ekki væri vegna orkukreppunn-
ar,“ segir LeBlanc.
Álframleiðsla skynsamlegur
kostur í litlu hagkerfi
– Telur þú skynsamlegt til lengri
tíma litið fyrir lítið hagkerfi á borð
við Ísland að leggja áherslu á áliðn-
að?
,,Já, ég er þeirrar skoðunar. Fá-
menn þjóð notar þá kosti sem eru til
staðar, s.s. orkulindirnar og alla þá
möguleika sem vatnsorkan býður
upp á, með skipulegri áætlun um
notkun þeirra í þeim tilgangi að
skapa atvinnu. Ég tel góða framtíð-
armöguleika í áliðnaði fyrir Ísland.
Alcan hefur svo sannarlega áhuga á
vera þátttakandi í áliðnaðinum á Ís-
landi til framtíðar litið. Við munum
kanna þá möguleika til hlítar.“
Alcan leggur mikla áherslu á um-
hverfisvernd, ráðstafanir til að
tryggja öryggi starfsfólks og gott
sambýli við samfélög þar sem verk-
smiðjur fyrirtækisins eru, að sögn
LeBlanc. „Við leggjum mikla
áherslu á að draga sem kostur er úr
áhrifum starfseminnar á umhverfið
og leggjum einnig kapp á að tryggja
öryggi starfsmanna,“ segir hann.
Ekki reist fleiri álver í Evrópu
Hann var að lokum spurður hvort
orkufrek stóriðjufyrirtæki væru í
auknum mæli að flytja starfsemi
sína til þróunarland-
anna vegna umhverfis-
verndarsjónarmiða á
Vesturlöndum.
„Nei, ég er ekki sam-
mála því. Orkufrekur
iðnaður færist þangað
sem orkuframboð er til
staðar. Við munum ekki
sjá fleiri álver rísa í Evrópu, vegna
þess að þar er ekki næg raforka. Ég
held líka að það verði reist fá ný ál-
ver í Norður-Ameríku á næstu ár-
um, en þeim muni hins vegar fjölga
annarsstaðar þar sem nægilegt
orkuframboð er til staðar s.s. á Ís-
landi, á nokkrum stöðum í Afríku og
í Miðausturlöndum. Þar eru í dag
aðeins tvö stór álver, í Dubai og
Barain. Nú vilja fleiri þjóðir á þeim
slóðum koma upp áliðnaði, t.d. í Om-
an og Quatar.
Ég tel að álver muni hverfa af
svæðum sem búa við orkuskort á
næstu 20 til 25 árum. Ástæðan er sú
að það er mjög dýrt að byggja álver.
Fyrirtæki ráðast ekki í svo stóra
fjárfestingu nema hafa tryggingu
fyrir því að nægilegt framboð sé á
raforku til nokkurra ára.
Ég er því ekki þeirrar skoðunar
að þessi þróun muni eiga sér stað
vegna umhverfismála. Það skiptir
ekki máli fyrir álfyrirtæki á borð við
hið nýja Alcan eða önnur stór álfyr-
irtæki hvar við erum með starfsemi
okkar vegna þess að við fylgjum alls
staðar sömu umhverfiskröfum. Ég
veit að sumir vilja ekki trúa þessu
en þannig er það nú samt.“
Emery P. LeBlanc, forstjóri hjá Alcan Inc., segir mögulega stækkun ISAL til ítarlegrar skoðunar
Næg tækifæri
til staðar fyrir alla
Emery LeBlanc, forstjóri hráálsframleiðslu
Alcan, móðurfélags ÍSAL, segir Ísland búa
yfir sérstaklega góðum kostum til reksturs
álvera. Allar nauðsynlegar forsendur virðist
vera til staðar hér til stækkunar álversins í
Straumsvík. Alcan muni á næstu mánuðum
vega og meta þau vaxtartækifæri sem
fyrirtækið hefur. LeBlanc segir í samtali við
Ómar Friðriksson að aðrar álversfram-
kvæmdir hér á landi ættu ekki að hafa
áhrif á mögulega stækkun álversins
í Straumsvík.
„Það sem gerir Ísland einnig áhugavert að okkar mati er að stjórnvöld
hér á landi styðja með skipulegum hætti þróun og uppbyggingu orku-
freks iðnaðar og sýna mikinn áhuga á að laða fyrirtæki á borð við okkar
til landsins,“ segir Emery P. LeBlanc, forstjóri hjá Alcan.
omfr@mbl.is
Álver á Austur-
landi útilokar
ekki frekari upp-
byggingu á suð-
vesturhorninu
ISAL verk-
smiðjan mjög
hagkvæm viðbót
við starfsemi
okkar
Morgunblaðið/Sverrir