Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 23
Stuðningur þinn setur
æskufólk í öndvegi með
íslenska þjóðfánanum.
Flöggum á góðum degi
SKÁTAHREYFINGIN
WWW.SCOUT.IS
50 vinningar
Vöruúttektir í Kringlunni,
hver að verðmæti 100.000,-
2000 vinningar
Emmess fjölskyldupakkar af
blönduðum ís og ístertum,
hver að verðmæti 2.500,-
20 vinningar
Ferðavinningar frá
Plús-ferðum,
hver að verðmæti 200.000,-
Verðmæti kr. 2.690.000,-
Verðmæti kr. 1.890.000,-
Verðmæti kr. 1.990.000,-
Greiða má með greiðslukort i í s íma 550 9800
H
Ö
N
N
U
N
A
R
H
Ú
S
IÐ
0
10
5
BÚMENN hafa fengið loforð Íbúða-
lánasjóðs fyrir láni vegna bygg-
ingar sex íbúða í Grindavík. Fyrir
liggja umsóknir frá félaginu um
fleiri íbúðir í Grindavík og Vogum.
Á vegum Búmanna er verið að
byggja í Garði og Sandgerði og á
síðarnefnda staðnum stendur auk
þess til að félagið yfirtaki leigu-
íbúðir fyrir aldraða sem Sandgerð-
isbær lét byggja.
Búmenn eru með á þriðja þúsund
félagsmenn á Suðurnesjum og fer
þeim sífellt fjölgandi. Segir Reynir
Ingibjartsson, framkvæmdastjóri,
að eftirsókn eftir íbúðum hjá félag-
inu sé mjög mikil á þessu svæði.
Búmenn standa fyrir byggingu
íbúða sem einkum eru hugsaðar
fyrir fólk sem orðið er fimmtugt
eða eldra. Fólkið kaupir sér búsetu-
rétt með því að leggja fram 10% eða
30% byggingarkostnaðar en Íbúða-
lánasjóður lánar hinn hlutann.
Hægt er að selja búseturéttinn.
Í samvinnu við Grindina hf. hafa
Búmenn áform um að reisa tíu íbúð-
ir í parhúsum í Grindavík á þessu
ári og jafn margar á því næsta.
Einnig á að hefja uppbyggingu í
Vogum þar sem félagið hefur feng-
ið lóðir undir þrjátíu íbúðir. Á síð-
asta fundi stjórnar Íbúðalánasjóðs
var veitt lánsloforð fyrir sex íbúð-
um í Grindavík, auk fjögurra íbúða
í parhúsum í Hveragerði, en Reynir
vonast til að fá á næstunni jákvæða
svar við hinum umsóknunum.
Þegar er byrjað að byggja þessar
sex íbúðir í Grindavík.
Verkefnið í Vogum er sérlega
áhugavert, að sögn Reynis. Vatns-
leysustrandarhreppur úthlutaði
félaginu lóðum fyrir 30 íbúðir og
var Guðmundur Jónsson, arkitekt
sem starfar í Noregi, fenginn til að
skipuleggja svæðið og hanna húsin.
Í þessi hverfi verður blanda af ein-
býlis-, par- og raðhúsum og segir
Reynir að arkitektinum hafi tekist
að blanda þessu saman á skemmti-
legan hátt. Húsin verða byggð úr
timbureiningum sem SP-hönnun/
húseiningar framleiða. Segir Reyn-
ir að þótt um sé að ræða eininga-
hús, hafi hverfið yfir sér fjölbreytt
yfirbragð vegna þess að formið sé
brotið upp. Reynir segir að við
hönnunina hafi verið lögð áhersla á
að láta umhverfið halda sér.
Yfirtaka íbúðir aldraðra
Húsagerðin hf. er langt komin
með byggingu átta íbúða fyrir Bú-
menn í Sandgerði.
Íbúðirnar eiga að vera tilbúnar í
lok ágúst. Þær eru í fjölbýlishúsi,
sem byggt er í tengslum við leigu-
íbúðir aldraðra. Sandgerðisbær
hefur óskað eftir því að Búmenn
taki einnig yfir eignarhald og
rekstur leiguíbúðanna og segir
Reynir að samkomulag hafi náðst
um það. Sandgerðisbær mun þá
verða eigandi búseturéttarins og
hafa ráðstöfunarrétt á honum. Tek-
ur Reynir fram að þetta hafi engin
áhrif á íbúa hússins, þeir muni búa
þarna áfram.
Í Garðinum er Bragi Guðmunds-
son, byggingameistari, langt komin
með byggingu fjögurra íbúða í par-
húsum. Verða þær afhentar í lok
ágúst. Þá er Bragi byrjaður á sex
íbúðum til viðbótar.
Reynir Ingibjartsson segir að
verulegur áhugi sé einnig í Reykja-
nesbæ, ekki síst eftir kynning-
arfund sem þar var haldinn síðast-
liðinn vetur.
Félagið er í viðræðum við tvo
byggingaverktaka, sem hafa lóðir á
áhugaverðum stöðum, en Reynir
segir nauðsynlegt að undirbúa mál-
ið betur.
Tími stofnanalausna liðinn
Sú mikla eftirspurn sem er eftir
búseturétti hjá Búmönnum end-
urspeglar, að sögn Reynis, þær
breytingar sem eru að verða á fyr-
irkomulagi þessarra mála, bæði hér
á landi og í öðrum vestrænum ríkj-
um. „Tími stofnanalausna er liðinn.
Fólk vill vera í íbúðum sínum eins
lengi og það getur. Á Suðurnesjum
búa margir í stórum íbúðum eða
einbýlishúsum. Fólkið vill frekar
vera áfram í sínum byggðarlögum
en að flytjast í blokkir í Reykjavík,“
segir Reynir.
Hann segir að sú lausn sem Bú-
menn bjóði henti mörgum, en tekur
fram að mikilvægt sé að íbúðirnar
séu á góðum stöðum, þar sem stutt
sé í mikilvægustu þjónustu.
Búmenn eru að byggja tugi íbúða
Áform um upp-
byggingu í Vog-
um og Grindavík
Guðmundur Jónsson arkitekt teiknaði húsin sem Búmenn hyggjast byggja í Vogum.
Suðurnes
BÆJARFULLTRÚI Framsóknar-
flokksins í Sandgerði hefur ákveðið
að leita álits félagsmálaráðuneytis-
ins á því hvort rétt hafi verið staðið
að málum við útleigu grunnskóla
bæjarins til varnaræfingarinnar
Norðurvíkings 2001.
Bæjarstjórn Sandgerðis leigði
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins húsnæði skólans við síð-
ustu varnaræfingu. Hluti her-
mannanna sem kom til landsins til
að taka þátt í æfingunni gistu þar.
Að sögn Óskars Gunnarssonar for-
seta bæjarstjórnar var ákveðið að
verða ekki við ósk ráðuneytisins um
leigu skólans nú. Ekki hafi verið
nógu vel greitt fyrir afnotin síðast
auk þess sem mikið rask væri á lóð-
inni vegna framkvæmda við stækk-
un skólans. Ráðuneytið ítrekaði
beiðni sína og segir Óskar að ákveð-
ið hafi verið að verða við henni eftir
samráð við húsvörð skólans, skóla-
stjóra og aðra viðkomandi aðila.
Málið var tekið fyrir á síðasta bæj-
arstjórnarfundi og samþykkt með
sex atkvæðum gegn einu.
Heiðar Ásgeirsson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sem greiddi at-
kvæði á móti, hefur gert athuga-
semdir við það hvernig að málinu
var staðið af hálfu meirihluta bæj-
arstjórnar og var í gær að ganga frá
bréfi til félagsmálaráðuneytisins þar
sem hann leitar álits á hvort meðferð
málsins hafi verið samkvæmt fund-
arsköpum bæjarstjórnar. Hann seg-
ir að bæjarstjórinn hafi verið búinn
að semja um málið og aðeins hafi átt
að renna samningnum í gegnum
bæjarstjórn. Þá hafi málið ekki verið
í boðaðri dagskrá fundarins.
Óskar Gunnarsson, forseti bæjar-
stjórnar, neitar því að búið hafi verið
að ganga frá málinu áður en það var
lagt fyrir bæjarstjórn. Aðeins hafi
legið fyrir upplýsingar um ákvæði í
væntanlegum samningi og hvað
greitt yrði fyrir afnot húsnæðisins.
Athugasemd ekki gerð
Óskar segir að í upphafi bæjar-
stjórnarfundarins hafi verið sam-
þykkt að bæta þremur málum á dag-
skrá og það verið samþykkt
samhljóða. Hann hafi ákveðið að
ræða útleigu grunnskólans með öðru
máli frá varnarmálaskrifstofunni
enda hafi enginn gert athugasemd
við þá málsmeðferð þótt eftir því
væri leitað.
Hermennirnir verða ellefu daga í
skólanum og greiðir ráðuneytið 240
þúsund krónur fyrir. Að sögn Ósk-
ars ganga peningarnir til grunnskól-
ans, til tækjakaupa.
Bæjarfulltrúi gagnrýnir vinnubrögð við útleigu skólans
Ákveður að leita álits
félagsmálaráðuneytis
Sandgerði
GLERLISTAVERKIÐ Tyrkjaránið
eftir Einar Lárusson var afhjúpað í
Grindavík á sjómannadaginn. Eins
og nafnið ber með sér er yrkisefnið
sótt aftur til júní 1627 þegar Tyrkir
gerðu strandhögg á staðnum.
Tyrkjaránið er á lóð Grindavíkur-
kirkju, almenningi til sýnis með frá-
sögn af atburðunum. Textinn er á
fimm erlendum tungumálum. Auk ís-
lenska textans er sagt frá á frönsku,
dönsku, ensku, þýsku og kínversku.
Meðal annars er frásögn af því, að
á bænum Járngerðarstöðum hafi
húsfreyjan beðið með öðrum milli
vonar og ótta eftir heimsókn sjóræn-
ingjanna. Þeir hafi farið ránshendi
um það heimili eins og önnur. Til er
munnmælasaga sem segir, að þar
sem blóð ræningjanna og heima-
manna hafi blandast sé að finna þyr-
nijurt.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Glerlistaverkið Tyrkjaránið var afhjúpað um helgina.
Tyrkjaránið afhjúpað
Grindavík