Morgunblaðið - 14.06.2001, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ó HÆTT er að segja að at-hygli allra hafi beinst aðGeorge W. Bush, Banda-ríkjaforseta, á fundinum
í Brussel, enda nánast um frumraun
hans á alþjóðavettvangi að ræða.
Þetta var fyrsta heimsókn hins nýja
forseta í höfuðstöðvar Atlantshafs-
bandalagsins og í fyrsta sinn sem
hann hitti flesta af öðrum leiðtogum
ríkja bandalagsins.
Heimspressan birti fregnir af
fyrsta degi Evrópuferðar forsetans
í gær og lýsti forsetanum sem í vörn
gagnvart leiðtogum Evrópu sem
ætluðu að krefja hann svara um
stefnu nýju stjórnarinnar í varnar-
og umhverfismálum. En eftir fund-
inn í gær var mál manna að Bush
forseta hefði tekist að koma vel fyr-
ir, þrátt fyrir reynsluleysið, og hann
hafi fremur sótt á en varist þegar á
reyndi.
Þetta var fyrsti leiðtogafundur
NATO-ríkjanna frá í apríl árið 1999,
þegar 19 leiðtogar hittust í Wash-
ington til að fagna 50 ára stofnun
bandalagsins. Til hans var boðað
sérstaklega, að ósk Bandaríkja-
stjórnar, en með því vildi Bush
Bandaríkjaforseti kynnast af eigin
raun öðrum leiðtogum bandalagsins
og kynna um leið helstu stefnumál
stjórnar sinnar í utanríkismálum.
Gríðarleg öryggisgæsla var í
tengslum við leiðtogafundinn, enda
kom til mótmæla bæði í nágrenni
höfuðstöðva NATO, þar sem fund-
urinn var haldinn, og framan við
bandaríska sendiráðið í Brussel.
Nokkurrar gremju gætti meðal
borgarbúa, því mörgum klukku-
stundum fyrir fundinn höfðu yfir-
völd komið fyrir á annað þúsund
lögreglumönnum víðs vegar um
borgina. Kom til talsverðra tafa í
umferðinni vegna þessa, enda veg-
um til og frá höfuðstöðvum banda-
lagsins lokað auk þess sem umferð
var bönnuð um miðbæinn. Ekki
kom þó til alvarlegra átaka og flestir
mótmælendur hurfu á braut jafn-
skjótt og fundinum lauk.
Það var Robertson lávarður,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, sem tók á móti leið-
togunum við komuna til fundarins í
gærmorgun. Hann lét þess getið í
upphafsávarpi sínu að margt hefði
felist miklu fremur í pó
lausnum en hernaðarlegum
aðrir óttast afleiðingar þ
Evrópu segi Bandaríkin u
málanum sem þeir gerðu
étríkin árið 1972 um bann
flaugavörnum. Meðal mar
Evrópu er sá sáttmáli enn
hávegum og Jacques Chira
landsforseti hefur kallað h
af ástæðum þess að hal
valdajafnvægi í álfunni og
víðar.
Chirac sagði hins vegar
sínu til leiðtoga NATO í
Frakkar væru reiðubúnir a
umræður um þessi mál me
huga og meta stöðuna að þ
Gerhard Schröder, kanslar
lands, sagðist hins vegar
um að eldflaugavarnakerf
ríkjamanna yrði til þess
öryggi.
„Enn eru uppi spurnin
tæknilegar hliðar málsins
slíkt kerfi er einfaldlega t
framkvæmanlegt,“ sagði
inn. „Ennfremur er óljós
áhrif slíkt kerfi hefði á gilda
mála,“ bætti hann við og la
inheldur áherslu á að Rú
Kínverjar gætu ekki staðið
alla umræðu um þessi má
yrði þessum ríkjum að rökr
með einhverjum hætti.
NATO mun stækk
Leiðtogar aðildarríkjan
áunnist í að færa bandalagið og
starfsemi þess í nútímalegra horf,
en enn væri margt ógert í þeim efn-
um svo það teldist fullfært til að tak-
ast á við nýjar áskoranir á nýrri öld.
„NATO er áfram sá hornsteinn
og vettvangur þar sem Evrópa og
Norður-Ameríka ráðgast og starfa
saman. NATO á jafnmikið við nú á
tímum og áður í að tryggja með góð-
um árangri sameiginlegar varnir
okkar,“ sagði hann.
Bandaríkjastjórn stefnir
ótrauð að eldflaugavörnum
Eins og við var búist komu áætl-
anir Bandaríkjastjórnar um upp-
byggingu eldflaugavarna mjög til
umræðu á fundinum. Bush forseti
skýrði öðrum leiðtogum NATO frá
því að stjórn sín stefndi ótrauð að
uppbyggingu varnaráætlunarinnar
og sagðist vilja skýra út fyrir þeim
sjónarmið sín og stjórnarinnar í
þessu máli. Leiðtogar Frakklands
og Þýskalands lýstu hins vegar yfir
efasemdum með áætlanirnar.
Bandaríkjamenn standa í þeirri
trú að þeim stafi ógn af hugsanleg-
um eldflaugaárásum landa á borð
við Norður-Kóreu, Íran og Írak en
talið er að þessi lönd standi að til-
raunum til að útbúa langdrægar
kjarnaflaugar. Margir bandamanna
Bandaríkjanna í NATO eru þó á því
að Bandaríkjamenn þurfi ekki að
hafa áhyggjur af þessu. Aðrir hafa
jafnframt bent á að lausn málsins
NATO mun st
í Prag á næst
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalag
Brussel í gær reyndist veigameiri en
hafði verið fyrir gert. Björn Ingi Hra
son sem fylgdist með fundinum, skrifa
athyglin hafi einkum beinst að Georg
Bush Bandaríkjaforseta og föruney
hans, en ekki síður hafi menn beint sj
um að viðsjárverðu ástandi mála í Ma
dóníu og ráðagerðum Bandaríkjama
um eldflaugavarnaáætlun.
LEIÐTO
ER George W. Bush keppti við Al
Gore um forsetaembættið sl.
haust gerðu andstæðingar hans
mikið úr vanþekkingu hans á um-
heiminum og fullyrtu sumir að
hann hefði aldrei komið til Evr-
ópu. Það er rangt, Bush hefur
komið til nokkurra Evrópulanda,
þ.á m. Ítalíu og Skotlands en samt
hefur loðað við hann ímynd fá-
fróða Texasbúans. Og alþekkt
mismæli hans og vanþekking á
ýmsu utan Bandaríkjanna bætir
ekki úr skák.
En Bush hefur lagt sig fram um
að bæta ímyndina og auka þekk-
ingu sína á evrópskum aðstæðum.
Í lok maí átti forsetinn fund
með fimm sérfræðingum, þremur
bandarískum og tveimur bresk-
um, til að kynna sér Evrópumál
og búa sig undir að ræða við
helstu leiðtoga álfunnar sem flest-
ir eru nú miðju- eða vinstrimenn.
Heimildarmenn í Washington
lýstu fundinum sem „einkatíma“
og mennirnir fimm hétu því að
þeir myndu ekki segja frá því sem
rætt var til þess að ekki færu af
stað nýjar sögur um fáfræði Bush.
Einn sérfræðinganna var Lio-
nel Barber, fréttaritstjóri hjá
breska dagblaðinu The Financial
Times. Annar var þekktur sagn-
fræðingur og fréttaskýrandi, Ti-
mothy Garton Ash sem starfar við
Oxford-háskóla. Hann tjáði blaða-
manni The Daily Telegraph að
hann gætin ekki sagt frá því sem
rætt hefði verið. En á hinn bóginn
varaði hann Breta við að halda að
þeir fengju um alla eilífð að halda
stöðu sinni sem mikilvægasta
vinaþjóð Bandaríkjamanna í Evr-
ópu. Þjóðverjar og fleiri Evr-
ópuþjóðir gætu skipt meira máli
fyrir Bandaríkjamenn í fr
inni, að sögn Garton Ash.
„Maður eins og Gerhard
der (kanslari Þýskalands)
ekki að fara yfir Lundúna
að eiga orðastað við ráðam
Washington,“ sagði hann.
Bush átti á mánudag fu
Hvíta húsinu með fulltrúu
dagblaða í Evrópu. Þar á
voru fréttaritarar The Da
graph og sænska blaðsins
Nyheter og voru þeir sam
um að Bush hefði verið ág
heima í þeim málefnum se
Ráðfærði sig
við breska
sérfræðinga
George W. Bush á b
BIÐLISTAR HEILBRIGÐISKERFISINS
BUSH, EVRÓPA OG NATO
Fæstir áttu fyrirfram von á því aðleiðtogafundur Atlantshafs-bandalagsins (NATO), sem
haldinn var í höfuðstöðvum bandalags-
ins í Brussel í gær, markaði einhver
sérstök þáttaskil. Fundurinn átti fyrst
og fremst að vera tækifæri fyrir nýjan
forseta Bandaríkjanna, George W.
Bush, til að kynna sig og hitta evrópska
starfsbræður sína.
Á fundinum í gær var hins vegar
ákveðið að bandalagið skyldi stækkað á
næsta leiðtogafundi sem haldinn verður
í Prag á næsta ári. Þetta er þeim þjóð-
um eflaust mikill léttir, sem sækjast
eftir aðild, þótt enn liggi ekki ljóst fyrir
hvaða ríki og hversu mörg verða tekin
inn. Þá gafst á fundinum tækifæri til að
ræða hið ótrygga ástand í Makedóníu
en þaðan berast stöðugt skuggalegri
fregnir af ástandi mála. Þótt NATO
hyggist enn sem komið er ekki skipta
sér af málinu með beinum hætti er ljóst
að leiðtogarnir hafa miklar áhyggjur af
stöðu mála og ekki er hægt að útiloka að
enn eitt stríðið brjótist út á Balkan-
skaga.
Eins og búast mátti við beindust
augu flestra að Bush Bandaríkjafor-
seta, málflutningi hans og framkomu. Í
Evrópu hefur upp á síðkastið verið
dregin upp sú mynd af forsetanum að
hann sé treggáfaður kúreki er vilji
steypa heimsbyggðinni í glötun með
glannalegri geimflaugavarnaáætlun og
ákvörðun sinni um að leggja Kyoto-
sáttmálann til hliðar vegna efnahags-
legra hagsmuna Bandaríkjanna.
Það er því fróðlegt að sjá hvernig
þeir Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra meta frammistöðu forsetans að
loknum fundinum.
Davíð Oddsson segir Bush alls ekki
hafa verið í vörn á fundinum. „Ég held
að menn hafi bersýnilega vanmetið
hann og mér þótti hann koma fyrir sjón-
ir sem mun meiri þungavigtarmaður en
látið hefur verið í veðri vaka. Ég held að
hann hafi gefið mönnum hér góða mynd
af sér.“
Halldór Ásgrímsson tekur í svipaðan
streng, hann hafi alls ekki upplifað
Bandaríkjaforseta í vörn vegna eld-
flaugavarnaáætlunarinnar. „Ég held að
þessi umræða sé komin til að vera þótt í
sjálfu sér hafi ekki komið fram svör við
hvernig eigi að bregðast við nýjum ógn-
um. Þessi áætlun Bandaríkjamanna er
hins vegar ekki í þeirri andstöðu við
Evrópuþjóðirnar sem virðist koma
fram í alþjóðlegri umræðu.“
Álykta má af þessu að andstaðan við
hugmyndir Bandaríkjastjórnar um eld-
flaugavarnir risti ekki eins djúpt og
sumir hafa viljað halda fram. Raunar
gaf Jacques Chirac Frakklandsforseti í
skyn í athyglisverðri ræðu í lok síðustu
viku að Frakkar væru reiðubúnir að
skoða þessi mál með opnum hug. Sú
virðist einnig vera niðurstaða margra í
Brussel þótt forsetanum muni vafalítið
ganga verr að sannfæra leiðtoga Evr-
ópusambandsins um afstöðu Banda-
ríkjastjórnar til Kyoto þegar hann hitt-
ir þá í Gautaborg í dag.
Langir biðlistar eru einn helsti löst-ur íslensks heilbrigðiskerfis.
Þessir biðlistar eru engum til góðs og
óþarfi að taka fram að það er enginn
sparnaður í því fólginn að láta fólk bíða
svo mánuðum skiptir eftir að fá lausn
sinna vandamála. Mætti hæglega færa
að því rök að það sé baggi á þjóðfélag-
inu að fólk sé óvinnufært á meðan það
bíður þess að röðin komi að því og þess
utan getur það verið heilbrigðiskerfinu
dýrkeypt ef sjúklingi hrakar meðan á
biðinni stendur með þeim afleiðingum
að viðameiri læknismeðferðar verður
þörf en í upphafi.
Eitt fáránlegasta birtingarform
þessara biðlista hefur verið á sviði
heyrnartækja. Bið eftir heyrnartækj-
um getur verið hátt á annað ár. Engin
rök eru þó fyrir slíkum biðlistum. Ekki
er hægt að bera við skorti í heilbrigð-
iskerfinu, hvorki á mannafla né að-
stöðu, enda eru heyrnartækin keypt og
framleidd erlendis. Nú er hins vegar
kominn nýr kostur fyrir þá sem gista
biðlistann eftir heyrnartækjum. Í gær
var fyrsta einkarekna heyrnartækja-
stöðin opnuð á Íslandi. Hún heitir
Heyrnartækni ehf. og í fyrirsögn
Morgunblaðsins í gær sagði að með til-
komu hennar styttist biðtími úr 15
mánuðum í 15 daga. Ríkið niðurgreiðir
hins vegar ekki heyrnartækin frá
Heyrnartækni og kosta þau á bilinu 82
til 160 þúsund krónur í stað um 30 þús-
und króna með niðurgreiðslu úr trygg-
ingakerfinu.
Morgunblaðið hefur ítrekað haldið
því fram að fjölga ætti kostum í heil-
brigðisþjónustu, án þess að því hafi
verið hnekkt með rökum að fólk „eigi
að geta valið um að greiða sjálft fyrir
nauðsynlegar aðgerðir á einkasjúkra-
húsi og flýta þannig meðferð fremur en
að verja fé sínu í annað, t.d. til sólar-
landaferðar. Þetta breytir að sjálf-
sögðu engu um það að allir landsmenn
eiga rétt á þjónustu opinbera heil-
brigðiskerfisins sem þeir greiða fyrir
með sköttum sínum. En valfrelsið mun
auka samkeppni og þar með leiða til
betri þjónustu fyrir sjúklinga svo og
lægri útgjalda fyrir ríkissjóð; auk þess
sem biðraðirnar munu styttast, öllum
til hagsbóta. Vísi að einkarekstri á
heilbrigðissviði má nú þegar finna þar
sem ýmsar aðgerðir eru gerðar á lækn-
ingastofum án þess neinn hafi haft
neitt við það að athuga.“
Opnun Heyrnartækni er dæmi um
það hvernig fjölga má kostum í heil-
brigðisþjónustu. Þeir, sem vilja borga
meira fyrir að komast hjá því að bíða á
biðlista eftir heyrnartækjum, eiga þess
nú kost og að öðru óbreyttu mun biðin
styttast fyrir hina sem annaðhvort
vilja nota peningana í annað eða hafa
þá ekki handbæra.
Landlæknir sendi frá sér skýrslu í
desember þar sem sagði að rúmlega
átta þúsund manns væru á biðlistum
hjá helstu sjúkrastofnunum landsins.
Sú tala er allt of há og það er óverjandi
að hafna skilyrðislaust þeirri augljósu
leið til bóta sem fólgin yrði í auknum
einkarekstri á heilbrigðissviði. Það
mætti halda því fram að hér væri á
ferðinni klassískur árekstur milli hug-
myndarinnar um jöfnuð annars vegar
og rétt einstaklingsins hins vegar. Þeir
sem beita jafnaðarhugtakinu mega
hins vegar ekki hengja sig svo í þá
hugmynd að eitt skuli yfir alla ganga
að þeir geti ekki fellt sig við tillögur
sem þegar upp er staðið yrðu öllum til
góðs.