Morgunblaðið - 14.06.2001, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.06.2001, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 35 þykktu á fundinum í gær, að stefna að því að stækka bandalagið á næsta leiðtogafundi sem haldinn verður í Prag í Tékklandi í nóvember á næsta ári. Robertson lávarður, framkvæmdastjóri bandalagsins, segir þó að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvaða ríkjum af þeim níu sem sótt hafa um aðild að NATO verður veitt innganga. „NATO mun stækka á fundinum í Prag,“ sagði Robertson við blaða- menn að loknum leiðtogafundinum í gær. „Leiðtogar ríkjanna ákváðu í dag að núll-lausnin (að bjóða engu ríki að ganga í bandalagið) væri ekki lengur uppi á borðinu,“ sagði hann. Robertson lagði áherslu á að ríkin sem sótt hafi um aðild verði að upp- fylla skilyrði NATO varðandi lýð- ræði, markaðskerfi og öryggismál. Eistland, Lettland, Litháen, Sló- vakía, Slóvenía, Búlgaría, Rúmenía, Makedónía og Albanía hafa öll sótt um aðild að NATO. Árið 1999 gengu þrjú fyrrum austantjaldsríki í bandalagið, Pólland, Tékkland og Ungverjaland, en þau áttu öll áður í samstarfi við Sovétríkin í svonefndu Varsjárbandalagi. Bush Bandaríkjaforseti lagði áherslu á nauðsyn þess að styrkja innviði Atlantshafsbandalagsins, en um leið auka veg þess til framtíðar með því að hleypa fleiri ríkjum að og búa þannig bandalagið undir það að verjast nýjum ógnum. „Við höfum nú einstakt tækifæri til að byggja upp Evrópu sem eina heild, frjálsa og í friði,“ sagði forset- inn m.a. í ávarpi sínu til annarra leiðtoga á fundinum. „Þessi vinna er þegar hafin. Með því að bjóða fleiri ríkjum aðild, aukum við og víkkum öryggisnetið og stöðugleikann í Mið-Evrópu. Með aðgerðum okkar á Balkanskaga komum við í veg fyr- ir þjóðernishreinsanir í sjálfu hjarta Evrópu og spilltum fyrir einræðis- herra um leið. En það er að fleiru að hyggja og þess vegna ber okkur að styrkja bandalagið. Við eigum ein- mitt að stórauka samvinnu við aðrar þjóðir, þar á meðal Rússland og Úkraínu, og breiða út faðminn og bjóða velkomnar nýjar bandalags- þjóðir í því skyni að tryggja öryggi í allri Evrópu,“ sagði Bandaríkjafor- seti. litískum m. Og enn ess fyrir upp sátt- við Sov- n við eld- gra ríkja n hafður í ac Frakk- hann eina ldist hafi g jafnvel r í ávarpi gær, að að hlýða á eð opnum því loknu. ri Þýska- ekki viss fi Banda- að auka ngar um og hvort æknilega kanslar- st hvaða andi sátt- agði auk- ssar og ð utan við l; hleypa ræðunum ka nna sam- Morgunblaðið/Golli Frá fundi leiðtoga ríkja Atlantshafsbandalagsins í Brussel í gær. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Davíð Oddsson forsætisráðherra eru í forgrunni og meðal þeirra sem sitja við borðið eru Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands (t.v.), og George W. Bush Bandaríkjaforseti (3. t.v.). tækka ta ári sins í n ráð afns- far að ge W. yti jón- ake- anna GAFUNDUR ATLANTSHAFSBANDALAGSINS Í BRUSSEL ramtíð- d Schrö- ) þarf abrú til menn í . und í um níu meðal aily Tele- s Dagens mmála gætlega em eink- um var spurt um, eldflaugavarnir, Kyoto-sáttmálann, samskiptin við Rússland og stækkun Atlantshafs- bandalagsins, dauðarefsingar og fleira. Hann fór að vísu tvisvar rangt með embættisheiti Jose Maria Aznars, forsætisráðherra Spáns, kallaði hann „forseta“ en virtist annars öruggur og hrein- skilinn. „Svörin voru löng og hann virðist hafa aflað sér ítarlegra upplýsinga fyrir fyrstu ferð sína sem forseti til landa utan Norður-Ameríku,“ segir í grein fréttamanns Dagens Nyheter. Morgunblaðið/Golli blaðamannafundi með Robertson lávarði. H ALLDÓR Ásgrímsson,utanríkisráðherra, segirað athyglin hafi mjögbeinst að Makedóníu og hinu viðsjárverða ástandi mála þar, á vinnufundi sem utanríkisráðherr- ar aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins sátu eftir hádegið í gær í höf- uðstöðvum bandalagsins. Hann segir ljóst að menn hafi miklar áhyggjur af ástandi mála í Make- dóníu og óttist að borgarastyrjöld kunni að brjótast út. „Það er mjög erfitt ástand í Make- dóníu og hætta á að borgarastyrjöld brjótist út,“ sagði Halldór við Morg- unblaðið að fundinum loknum. Hann segir að hins vegar lítist mönnum lítt á að blanda sér inn í deilurnar með formlegum hætti. „Það þarf fyrst og fremst að beita pólitískum þrýstingi, en gallinn er sá að yfirvöld þar í landi eru mjög mótfallin því að alþjóðastofnanir blandi sér inn í þessar deilur. Það sér hins vegar enginn neina lausn án þess, því að ríkisstjórnin virðist vera mjög veik.“ Utanríkisráðherra sagði að á leið- togafundinum sjálfum hefði athyglin ekki síst beinst að stækkun banda- lagsins og áformum Bandaríkja- manna um eldflaugavarnakerfi. „Það kom greinilega fram á þessum fundi að það er ekki jafn mikil ósam- staða um eldflaugaáætlunina og kemur fram í fjölmiðlum. Leiðtog- arnir voru sammála um að ekkert væri að því að ræða þessi mál og að ógnarjafnvægið hefði tilheyrt kalda stríðinu; komnir nýir tímar en enn séu ríki að þróa vopn í þeim tilgangi að ógna öðrum og við því verði að bregðast.“ „Ég held að þessi umræða sé komin til að vera, þótt í sjálfu sér hafi ekki komið fram svör um hvern- ig bregðast ætti við nýjum ógnum. Þessi áætlun Bandaríkjamanna er hins vegar ekki í þeirri andstöðu við Evrópuþjóðirnar sem virðist koma fram í alþjóðlegri umræðu.“ Halldór sagðist alls ekki hafa upp- lifað nýjan Bandaríkjaforseta í vörn á fundinum, enda þótt athyglin hafi mjög beinst að honum og ýmis stefnumál hans sætt gagnrýni. „Hins vegar hefur hann engin svör við því hvað þeir ætli sér að gera. Hin tæknilega hlið eldflaugaáætlun- arinnar hefur enn ekki verið leyst.“ Pressa aukin á næstu dögum Aðspurður hvort Atlantshafs- bandalagið kunni að grípa inn í ástandið í Makedóníu, jafnvel með hervaldi, segir utanríkisráðherra: „Þá vaknar sú spurning: til að gera hvað? Til þess að draga allan mátt úr skæruliðunum? Hvað verður þá gert í framhaldi af því? Verða réttindi Al- bana tryggð með því? Það er fyrst og fremst þörf fyrir pólitíska lausn. Hernaðarleg lausn er engin lausn, en hins vegar er ljóst að til þess að ná fram pólitískri lausn þarf mjög líklega að pressa og það verður gert á næstu dögum. Menn eru vissulega ekki tilbúnir fyrir enn eitt stríðið á Balkanskaga, en menn eru heldur ekki tilbúnir til þess að sjá deilurnar blossa upp. Menn eru því, eins oft áður, ekki alveg vissir um hvað skuli gera. Það var mjög al- varleg ákvörðun að grípa inn í átök- in í Júgóslavíu á sínum tíma. Nú eru allir sammála um að inngrip NATO í Bosníu kom of seint. Munurinn á Bosníu þá og Makedóníu nú felst hins vegar að mínu mati í því að hin pólitísku öfl í Makedóníu vilja halda landinu saman. Pólitísku öflin í Bos- níu á sínum tíma vildu sundra land- inu. Þetta er afskaplega mikilvægt atriði.“ Halldór segir að vandinn felist því einkum í því að fá hin mismunandi pólitísku öfl til að sameinast um að halda landinu saman um leið og tek- ið sé tillit til ólíkra þjóðarbrota. Að- eins með þeim hætti verði unnt að halda landinu saman. „Það er hins vegar enginn í þessu húsi tilbúinn að styðja lausn sem felst í fjölgun þessara ríkja. Sjálf- stætt Svartfjallaland og sjálfstætt Kosovo fékk minni hljómgrunn á þessum fundi en oft áður og það er afleiðing af þeirri deilu sem nú geis- ar í Makedóníu,“ sagði Halldór Ás- grímsson. Miklar áhyggj- ur af ástandinu í Makedóníu Halldór Ásgrímsson D AVÍÐ Oddsson forsætis-ráðherra segir að leið-togafundurinn í gær hafijafnvel verið efnismeiri en búist hafi verið við í upphafi. Hann bendir á að til hans hafi verið boðað sem óformlegs fundar af hálfu Bandaríkjaforseta í tilefni af valdaskiptum þar í landi. „Það vill til að menn standa frammi fyrir margvíslegum og við- kvæmum verkefnum nú þegar þessi fundur er haldinn. Bandaríkjafor- seti fékk tækifæri til að skýra sína hlið á málunum og að mínu viti fékk hann og þessi sjónarmið betri við- tökur en búast hefði mátt við fyr- irfram,“ sagði forsætisráðherra við Morgunblaðið að fundinum loknum. Hann bætir við að vissulega hafi einhverjir haft uppi fyrirvara gagn- vart einstökum þáttum í stefnu Bandaríkjaforseta, en almennt hafi menn ekki lokað á að hefja umræð- ur við Bandaríkjamenn um eld- flaugaáætlun þá sem sem Bush hafi mælt fyrir. „Miðað við spár fjöl- miðla fékk hann miklu betri viðtök- ur um það efni en menn gátu búist við.“ Mjög skýrar línur í átt að stækkun Davíð segist í öðru lagi ekki minnast þess að hafa áður fundið fyrir jafn ákveðnum vilja til að stækka bandalagið enn frekar og gera það með myndarlegum hætti á næsta leiðtogafundi í Prag á næsta ári. Hann segir að mjög skýrar línur hafi verið lagðar í þeim efnum á fundinum enda þótt stækkunin verði kynnt með formlegum hætti á næsta ári. „Ég tel að það sé afar mikilvægt og við Íslendingar höfum lengi verið slíku fylgjandi. Mér finnst megin- breytingin felast í því að það sem áður var svo mikið tabú að ræða, eins og aðild Eystrasaltsríkjanna, er að hverfa að miklu leyti og um- ræðan er öll opnari en áður. Enn eru nokkrar þjóðir hikandi og ræða þessi mál af mikilli varfærni, en tabúið er mjög á undanhaldi.“ Góður fundur og jákvæður Forsætisráðherra lætur þess get- ið að andinn á fundinum hafi al- mennt verið mjög góður, enda þótt greinilega hafi komið fram að menn hafi miklar áhyggjur af þróun mála í Makedóníu. „Þetta var góður fundur og jákvæður,“ sagði hann og sagðist lítið hafa fengið tækifæri til að ræða við Bush Bandaríkjafor- seta. Þeir hafi þó ræðst stuttlega við á mjög jákvæðum nótum og Banda- ríkjaforseti hafi látið þess getið að sér líkaði mjög vel afstaða Íslend- inga hvað varðar stækkun NATO og einnig varðandi áform ríkja Evr- ópusambandsins um aukna sam- vinnu í varnar- og öryggismálum. Davíð sagðist hafa skýrt sjónar- mið Íslands í þessum efnum á fund- inum og ítrekað þá skoðun sína að rétt væri fyrir Evrópusambandið að byggja sig upp í hernaðarlegri sam- vinnu, innan og utan NATO, en meginskilyrðið væri að slík upp- bygging og aukin ábyrgð henni samfara drægi ekki mátt úr NATO eða veikti bandalagið. Ég held að þessi sjónarmið sem við höfum haft, hafi fengið meiri byr að undan- förnu,“ segir hann. Bandaríkjaforseti ekki í vörn, heldur þvert á móti Fjölmiðlar drógu þá ályktun fyrir fundinn í gær að á honum þyrfti Bush að skýra sjónarmið sín og fyr- ir vikið yrði hann að líkindum í vörn á fundinum. Davíð Oddsson segir mál ekki hafa þróast með þeim hætti. „Mér fannst Bush alls ekki vera í vörn á þessum fundi, heldur þvert á móti. Bandalagið vildi sýna honum jákvæð viðbrögð og þótt allt hafi ekki verið kokgleypt, fékk hann betri viðbrögð en að mínu mati hefði mátt búast við. Ég held að menn hafi bersýnilega vanmetið hann og mér þótti hann koma fyrir sjónir sem mun meiri þungavigtarmaður en látið hefur verið í veðri vaka. Ég held að hann hafi gefið mönnum hér góða mynd af sér.“ Mjög ákveðinn vilji til frekari stækkunar Davíð Oddsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.