Morgunblaðið - 14.06.2001, Side 42
MINNINGAR
42 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hæ Steinar, er ekki
allt gott að frétta, er
strákurinn að trufla
þig? Nei, hafðu ekki
áhyggjur af honum,
hann er bara að
hjálpa mér. Já svona
samtöl voru tíð okkar á milli þegar
Enok sonur minn sá sig knúinn til
að hjálpa þér við hitt og þetta í
garðinum sem þú eyddir svo mörg-
um stundum í. Það er erfitt að
setjast niður og skrifa minning-
argrein um vin sem nú er sárt
saknað. Okkur veittist sá heiður að
kynnast þér fyrir nokkrum árum
þegar við fluttum í næsta hús við
ykkur hér í Kinnunum. Smám
saman fórum við að hópa okkur
STEINAR
VIGGÓSSON
✝ Steinar Viggós-son fæddist í
Borgarnesi 8. júlí
1950. Hann lést af
slysförum 18. maí
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Hafnarfjarðarkirkju
28. maí,
saman nokkrar fjöl-
skyldur. Einu sinni á
sumri héldum við
grillveislu sem allir
hlökkuðu svo til, og
ekki síðst vegna þín
Steinar minn, því
gleðin var jú haldin í
ykkar garði og svo
morguninn eftir
bauðst þú í þetta líka
fína morgunkaffi, já
eins og segir í text-
anum „beint í hjarta-
stað berast minningar
um þig“. Þessi orð eru
svo sannarlega sönn
því um þig eigum við bara góðar
minningar. Kæri Steinar, þú mátt
vera viss um að við munum reyna
eftir bestu getu að styðja við þær
mæðgur í sorginni. Með þessum
fátæklegu orðum kveðjum við þig,
kæri vinur. Við sendum elsku
Gyðu, Unni og öllum aðstandend-
um, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að gefa
ykkur styrk í sorginni.
Fjölskyldan Köldukinn 17.
✝ Magnús Jóhanns-son fæddist í
Hafnarfirði 30. júní
1959. Hann lést á
heimili sínu í Reykja-
vík 4. júní síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Málfríður Þór-
oddsdóttir, húsmóðir
frá Fáskrúðsfirði, f.
23. maí 1921, d. 19.
september 1984, og
Jóhann Þórlindsson,
útgerðarmaður frá
Fáskrúðsfirði, f. 5.
apríl 1920, d. 13.
október 1983.
Magnús var yngstur átta syst-
kina, en þau eru, Guðlaugur, f. 1.
apríl 1943, Þórlindur, f. 19. sept-
ember 1945, Arnar, f. 7. mars
1952, Sjöfn, f. 23.
mars 1953, Smári, f.
23. október 1954,
Gunnar, f. 6. des-
ember 1955, Friðjón,
f. 21. janúar 1957.
Sambýliskona
Magnúsar var Þor-
björg Samsonardótt-
ir, f. 13. maí 1961, og
eignuðust þau fjögur
börn: Samson, f. 7.
janúar 1980, Krist-
inn, f. 3. júlí 1982,
Sigfríð Sjöfn, f. 9.
júlí 1986, Friðjón
Smári, f. 6. apríl
1994.
Útför Magnúsar fer fram frá
Fella- og Hólakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Harmur sækir á hug okkar þegar
kær frændi og vinur hefur kvatt
okkur svo allt of snemma. Ekki ór-
aði okkur fyrir því þegar við ókum
honum heim að kvöldi hvítasunnu-
dags að hann yrði allur daginn eftir,
að handtakið hans hlýja í kveðju- og
þakkarskyni yrði hinzta kveðjan.
Hann Magnús sagði á leiðinni, að
það yrði alltaf að hafa eitthvað til að
hlæja að í lífinu og sjálfur brá hann
á léttara hjal, eins og löngum áður
og kom okkur til að hlæja, þó að við
fyndum einnig sársaukann að baki
gamanyrðunum.
Magnús var efnismaður góðra
eiginleika, fríður maður og gjörvu-
legur og átti þennan bjarta, hlýja
svip, þessa léttu lund og ljúfu sem
aldrei brást honum í oft of erfiðu
lífsstríði. En með sanni mátti þó
segja að hann ætti lífsláni að fagna í
indælum lífsförunaut um alllangan
veg og ljómandi vel gjörðum börn-
um þeirra fjórum.
Hann var einkar vel verki farinn,
dugmikill drengur og kappsamur
við hvert verk og segja mátti að allt
léki í höndum hans. Hann var eðl-
isgreindur hið bezta og hefði vissu-
lega getað átt auðvelda göngu um
námsbrautina hefði hann svo kosið.
En minnisstæðust er okkur þessi
hlýja einlægni, þessi bjarti hlátur og
hressileiki á hverju sem gekk, þótt
oft væri þungt fyrir fæti.
Heið er því í huga okkar hjóna
minning svo mæt.
Við sendum sambýliskonu hans
og börnunum fjórum sem hann unni
svo mjög hjartanlegar samúðar-
kveðjur og vitum að þau eiga marg-
ar fallegar minningar í muna til að
milda sáran söknuð. Systkinum
hans og þeirra fólki eru einnig send-
ar samúðarkveðjur. Oft verður okk-
ur örðugt örlögin grimm að skilja,
og enn verra er að sætta sig við þau,
en hjartahlýr og ljúfur drengur hef-
ur nú lotið hinum grimma dómi og
eftir stöndum við með ótal óræðar
spurnir um lífsins gang og gæfunn-
ar duldu leiðir.
Samfylgd svo allt of stutt er þökk-
uð hrærðum huga og kveðjan er haf-
in í heiðloftið blátt um hulda slóð
ókunnra leiða.
Blessuð sé heiðbjört minning
frænda og vinar.
Hanna og Helgi Seljan.
Mig langar með nokkrum orðum
að kveðja Magga frænda, en hann
varð bráðkvaddur á heimili sínu
hinn 4. júní sl. Þegar mamma
hringdi í mig annan í hvítasunnu og
sagði mér að Maggi hefði dáið um
nóttina varð mér mjög brugðið.
Þrátt fyrir að hafa oft í gegnum tíð-
ina átt von á þessu símtali miðað við
það líf sem hann valdi sér kom þetta
samt sem reiðarslag því innst inni
batt ég alltaf vonir við að hann
myndi ná að snúa við blaðinu áður
en það yrði of seint.
Maggi var yngsti bróðir hans
pabba og á milli okkar voru bara
nokkur ár. Ég man alltaf eftir því
hvað ég leit upp til hans þegar ég
var lítil. Þar sem ég var sú elsta í
mínum systkinahóp var hann eldra
systkinið sem mig langaði svo að
eiga. Hann hafði mikið samband við
pabba og leitaði mikið til hans og
þannig frétti ég alltaf reglulega af
honum, auk þess hringdi hann oft í
mig til að spjalla. Og þó að það hafi
nú verið misjafnt ásigkomulagið á
honum í þessum símtölum var hann
alltaf léttur og skemmtilegur og
stutt í grínið og alltaf spurði hann
frétta af börnunum mínum og hvað
þau væru að stússa. Inn á milli
komu svo símtöl þar sem við rædd-
um um alvarlegri hluti og hann tal-
aði um sjúkdóminn sem hann glímdi
við en því miður virtist hann ekki
búa yfir þeim gífurlega viljastyrk
sem þarf til að losna undan bölinu
sem áfengið oft er. Síðasta símtalið
okkar, sem var ekki alls fyrir löngu,
var bæði langt og skemmtilegt. Við
vorum að tala um allavega fíkn sem
fólk er að glíma við og hvað fíknin
getur verið í mörgum myndum og
ég stakk upp á því að við myndum
skella okkur saman í meðferð. Hann
færi til að losna við áfengið og ég til
að venja mig af gosdrykkjunni.
Honum leist vel á það og hló mikið
að þessu. Við töluðum líka um börn-
in hans og það var augljóst að hann
var mjög hreykinn af þeim enda
myndarleg börn þar á ferð. Ég veit
að honum þótti það sárt að hafa ekki
verið þeim betri fyrirmynd, því um
það talaði hann oft. Ég veit líka að
lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá
henni Dobbu, sambýliskonu hans,
og hún hefur sýnt alveg ótrúlegt
umburðarlyndi og þolinmæði í gegn-
um öll þessi ár og á hrós skilið fyrir
það. Einnig á hann pabbi minn heið-
ur skilinn fyrir alla tryggðina og
góðmennsku í garð Magga. Hann
var síður en svo sáttur við lífsstíl
hans en eftir margar árangurslaus-
ar tilraunir til að fá hann til að hætta
tók hann þá ákvörðun að taka hon-
um bara eins og hann væri með öll-
um hans kostum og göllum. Og hann
átti vissulega marga góða kosti,
hafði mikinn húmor, var léttur og
skemmtilegur og var góðhjörtuð sál
en sjálfum sér verstur.
Elsku Dobba, Samson, Kristinn,
Sigfríð, Friðjón og aðrir ástvinir, ég
sendi ykkur mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur og bið Guð að gefa ykk-
ur styrk. Við vitum að amma og afi
hafa tekið vel á móti honum og að
hann hvílist nú á góðum stað í faðmi
þeirra.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum lifum í trú
að ljóstið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Hugga þú faðir, fjölskyldu hans
sem finnur ei ró í hjarta.
Blessaðu sál hins unga manns
og láttu ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
vekja hann með sól að morgni.
Farðu í friði, vinur minn kær,
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei þér skal ég gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni,
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Guð blessi minningu þína, kæri
frændi.
Kolbrún Þórlindsdóttir.
Okkur langar að minnast góðs
drengs sem féll frá langt fyrir aldur
fram, Magnúsar Jóhannssonar, eða
Magga á 46 eins og við kölluðum
hann. Maggi var hjartahlýr og góð-
ur maður, hann kunni að meta grín
og var oft stutt í brosið hjá honum.
Líf Magga var ekki alltaf dans á rós-
um. En nú hefur hann fengið hvíld-
ina og við vitum að nú líður honum
betur og megi góður guð geyma
hann.
Elsku Tobba, Sammi, Kiddi, Sig-
fríð og Friðjón Smári.
Megi góður guð styrkja ykkur í
þessari miklu sorg.
(Sara og Elli á 44.)
Elías Oddur Jóhannsson,
Sara Ósk Guðmundsdóttir.
MAGNÚS
JÓHANNSSON
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
8#6 9" #&? 1 $%@0
%
8
%
,'
0
0
4
$8(
' ,
$
'.
+ 9!!19!
/% &
%
%, & %(
4 %, <
%#$ (
3 4 ! , %, 2- 9 (
# !
%, 9( !3( (
, ,$ (, , ,$ *
"
$'
.A. A
/
6
'1 3%
% , %@B
/
! .-&' )
% 9(. ' %
4 !4 .
4 ,((
&' (%
.-
!%(/ %*
$'
4<494
-(
+
,
++!
/( 4
9( ( & ! ) '- 3
,$9(
9- 9( ( /% &
4 9( ( # -
& *9( ( 9 ( ,
!% *
"
4&" , %;C
/
5
++!
7
4
$
$$
)
41 !
,$ ,$ (, ,$ *
944
1 $%D>
!
:'
9!!
1 9(
! 9( "
%.E
? 9( ( . ! 9
(
,$ *