Morgunblaðið - 14.06.2001, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsing um
framlengingu á umsóknarfresti:
Þann 29. apríl 2001 var staða yfirlæknis
við sameinaða deild lyflækninga
krabbameina á lyflækningasviði II auglýst
sem hér segir með umsóknarfresti til 15.
júní 2001:
Staða yfirlæknis við sameinaða deild lyflækninga
krabbameina á lyflækningasviði II er laus til
umsóknar. Starfið er 100% og er veitt frá 1.
október 2001. Umsækjendur skulu hafa
sérfræðiviðurkenningu í krabbameinslækningum
með sérþekkingu á lyflækningum krabbameina.
Áhersla er lögð á frekari uppbyggingu og þróun
lyflækninga krabbameina við sjúkrahúsið.
Yfirlæknir sérgreinar er yfirmaður deildarinnar
og ber ábyrgð á henni gagnvart sviðsstjóra og
lækningaforstjóra. Stjórnunarreynsla er því
mikilvægt skilyrði. Yfirlæknir þarf að hlúa að
kennslu og vísindavinnu á deildinni og skapa
nauðsynlegan jarðveg til að slík vinna þrífist.
Því er nauðsynlegt að umsækjendur hafi reynslu
á því sviði.
Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum
eyðublöðum og nálgast má á heimasíðu heilbrigðis
og tryggingamálaráðuneytisins eða skrifstofu
landlæknisembættisins, fylgi vottfestar
upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af
stjórnunarstörfum, kennslu og vísindavinnu ásamt
sérprenti eða ljósriti af greinum sem umsækjandi
hefur skrifað eða birt. Umsóknagögn sendist í
tvíriti til sviðsstjóra lyflækningasviðs II LSH,
Vilhelmínu Haraldsdóttur sími 525 1000, netfang
vilhehar@landspitali.is fyrir 15. júní 2001 og
veitir hún eða lækningaforstjóri, upplýsingar um
starfið. Mat stöðunefndar byggist á innsendum
umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við
umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu
í starfið einnig á þeim.
Hér með framlengist umsóknarfrestur um
þessa stöðu til 16. júlí 2001.
Auglýsing um
framlengingu á umsóknarfresti:
Þann 29. apríl 2001 var staða yfirlæknis
geislameðferðardeildar lyflækningasviðs
II auglýst sem hér segir með
umsóknarfresti til 15. júní 2001:
Staða yfirlæknis geislameðferðardeildar
lyflækningasviðs II er laus til umsóknar.
Starfið er 100% og veitist frá 1. október 2001.
Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviðurkenningu
í krabbameinslækningum með sérþekkingu á
geislameðferð krabbameina. Áhersla er lögð á
frekari uppbyggingu og þróun geislameðferðar
krabbameina við sjúkrahúsið. Yfirlæknir
sérgreinar er yfirmaður deildarinnar og ber ábyrgð
á henni gagnvart sviðsstjóra og lækningaforstjóra.
Stjórnunarreynsla er því mikilvægt skilyrði.
Yfirlæknir þarf að hlúa að kennslu og vísindavinnu
á deildinni og skapa nauðsynlegan jarðveg til að
slík vinna þrífist. Því er nauðsynlegt að umsækj-
endur hafi reynslu á því sviði.
Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum
eyðublöðum og nálgast má á heimasíðu
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins eða
landlæknisembættisins, fylgi vottfestar
upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af
stjórnunarstörfum, kennslu og vísindavinnu ásamt
sérprenti eða ljósriti af greinum sem umsækjandi
hefur skrifað eða birt. Umsóknagögn sendist í
tvíriti til sviðsstjóra lyflækningasviðs II LSH,
Vilhelmínu Haraldsdóttur sími 525 1000, netfang
vilhehar@landspitali.is fyrir 15. júní 2001 og
veitir hún eða lækningaforstjóri, upplýsingar um
starfið. Mat stöðunefndar byggist á innsendum
umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við
umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu
í starfið einnig á þeim.
Hér með framlengist umsóknarfrestur um
þessa stöðu til 16. júlí 2001
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Almenni hlutabréfasjóðurinn
Aðalfundur
verður haldinn í húsakynnum Kaupþings
hf., Ármúla 13A, fimmtudaginn 28. júní
nk. kl. 16.00.
Dagskrá:
● Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
● Ákvörðun um samruna félagsins við Hluta-
bréfasjóðinn Auðlind hf., sbr. 124. gr. og
93. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995.
● Tillaga um að Almenni hlutabréfasjóður-
inn hf. verði sameinaður Hlutabréfasjóðn-
um Auðlind hf. með yfirtöku eigna og
skulda.
Gögn vegna fundarins má nálgast hjá
Kaupþingi hf. viku fyrir aðalfundinn.
Reykjavík, 14. júní 2001.
Stjórn Almenna hlutabréfasjóðsins hf.
Ármúla 13A, 108 Reykjavík,
sími 515 1500, fax 515 1509.
Kynning á tillögu
að matsáætlun Sultartangalínu 3
Landsvirkjun hyggst leggja nýja 420 kV há-
spennulínu, Sultartangalínu 3, frá tengivirki
við Sultartangastöð að aðveitustöð Landsvirkj-
unar á Brennimel á Hvalfjarðarströnd.
Af þessu tilefni stendur Landsvirkjun fyrir opnu
húsi þar sem framkvæmdin verður kynnt í Ara-
tungu, Reykholti í Biskupstungum, föstudaginn
15. júní frá kl. 16.00—22.00 og laugardaginn
16. júní frá kl. 10.00—18.00.
Við hvetjum alla, sem hafa áhuga á að kynna
sér þessi málefni, til að mæta.
TIL SÖLU
Trjáplöntusalan
Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ
(við hliðina á versluninni 11-11)
Aspir, reynitré, birki, fura, greni, fjallaþinur.
Sími 566 6187.
TILKYNNINGAR
Skógarganga
Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir
skógargöngu í kvöld. Boðið er upp á rútuferð
frá Mörkinni 6 kl. 20.00. Fargjald kr. 500.-
Gangan hefst við Maríuhella, hliðið inn í Heið-
mörk að vestanverðu kl. 20.30. Gengið verður
um skógarstíga, skógurinn og náttúra svæðis-
ins skoðuð. Kynnt verður nýtt gönguleiðakort
af Heiðmörk. Allir velkomnir.
Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Forval
Umsýslustofnun varnarmála, sala varnar-
liðseigna, f.h. varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli framlengir hér með frest til að taka þátt
í forvali vegna útboðs á verki innan varnar-
svæðisins á Keflavíkurflugvelli: Málningar-
vinna utanhúss á byggingum 914-919 og
921-925.
Auglýsing um forval vegna verksins birtist áður
7. júní sl.
Nánari lýsingar fylgja forvalsgögnum.
Tilkynning þessi tekur einungis til íslenskra
lögaðila.
Forvalsgögn fást hjá umsýslustofnun varnar-
mála, sölu varnarliðseigna, Grensásvegi 9,
Reykjavík og að Brekkustíg 39, Reykjanesbæ.
Þau ber að fylla út af umsækjendum og áskilur
forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins sér rétt
til að hafna forvalsgögnum sem ekki eru full-
nægjandi. Ekki verður tekið við upplýsingum
frá þátttakendum eftir að forvalsfrestur rennur
út.
Frestur til að skila umsóknum er hér með
framlengdur til mánudagsins 25. júní nk.,
kl. 16:00.
Umsóknum skal skilað til umsýslu-
stofnunar varnarmála, sölu varnarliðs-
eigna, Grensásvegi 9, Reykjavík eða
Brekkustíg 39, Njarðvík fyrir þann tíma.
Umsýslustofnun varnarmála,
sala varnarliðseigna.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Íslands
Sálarrannsóknar-
félagið Sáló 1918—
2000, Garðastræti 8,
Reykjavík
Vinsamlega athugið!
Fyrirlesturinn með Guðrúnu
Hjörleifsdóttur sem vera átti í
kvöld fellur niður vegna óviðráð-
anlegra orsaka.
SRFÍ.
FÉLAGSLÍF
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Samhjálpar vinir vitna.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að
lokinni samkomu. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is .
Fimmtudag 14. júní: í kvöld
kl. 20.
Lofgjörðarsamkoma í umsjón
majóranna Turid og Knut
Gamst.
Allir hjartanlega velkomnir.
Útivist
Næsta helgi:
Jeppaferð í Bása 15. - 17. júní.
Fjölskyldu- og grillferð.
Útivistardagur fjölskyldunnar.
Laugardaginn 16. júní kl. 13, létt
ganga.
Þjóðhátíðarganga yfir Leggj-
abrjót 17. júní kl.10.30.
Góð æfing fyrir Jónsmessunæt-
urgönguna geysivinsælu yfir
Fimmvörðuháls.
Fimmvörðuhálsganga 16.—
17. júní, en uppselt í ferð-
ina 15.—17. júní.
Sjá utivist.is og textavarp
bls. 616. Eignist nýja ársritið
um Hornstrandir.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkoma kl. 20:00. Högni Vals-
son predikar, lofgjörð og fyrir-
bænir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudag, opið hús kl. 20.00.
Mánudag, fjölskyldubænastund
og súpa og brauð.
„Þér elskaðir, elskum hvern
annan, því að kærleikurinn er frá
Guði kominn, og hver sem elsk-
ar er af Guði fæddur og þekkir
Guð.“