Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í OKKAR umfangsmikla heilbrigð-
iskerfi eiga sér stað mistök í með-
ferð sjúklinga, hvort sem þau hin
sömu mistök stafa af fljótfærni,
þreytu, eða skorti á faglegum hæfi-
leikum, ellegar þá að skortur á upp-
lýsingastreymi og boðskipti innan
kerfisins um áður framkvæmda
meðferð til handa sjúklingum eru
ekki nægileg.
Þannig virðist það æ oftar koma
inn á borð til okkar hjá samtökunum
Lífsvog að sjúklingar megi ganga
um mánuði og jafnvel ár án nægi-
legra rannsókna og séu meðhöndl-
aðir með lyfjum, í stað þess að und-
irliggjandi orsök sé greind hjá
viðkomandi einstaklingi með t.d.
myndgreiningu, þegar undirliggj-
andi sjúkdómur hefur þá náð að
þróast til hins verra á stundum, ell-
egar þá um sé að ræða lyfjameð-
höndlun þegar ónógar rannsóknir
liggja til grundvallar faglegra
ákvarðana að sjá má, og skortur á
upplýsingum millum sérfræðinga
annars vegar og heimilislækna hins
vegar hefði ef til vill í einhverjum til-
vikum getað forðað einhverju því
ferli misvísandi upplýsinga millum
aðila er starfa innan sama kerfis.
Svo virðist sem hið faglega mat
hér að lútandi sé engan veginn hið
sama millum heilbrigðisstarfsmanna
á hinum ýmsu svæðum landsins,
sem ekki getur talist bera kerfinu
faglegan vitnisburð í heild.
Röng meðferð getur
kostað mikla peninga
Sú vísa verður aldrei of oft kveð-
inn hve mjög við þurfum á þvi að
halda að fækka mistökum og
óhappatilvikum, er eiga sér stað.
Hver sá einstaklingur er kann að
þurfa bíða tjón á heilsu sinni sökum
rangrar greiningar og meðferðar í
framhaldinu, gerir ekki aðeins kröfu
á hendur hinu opinbera, okkur
skattborgurum, fyrir tjón á heilsu-
meðferð heldur kann sá hinn sami að
mega þurfa lifa við örorkugreiðslur
sem við kostum einnig þótt upphæð-
ir sem ríkið greiðir nú dugi illa til
framfærslu þeim hópi er þarf við
slíkt að búa. Faglegt endurmat í
heilbrigðiskerfinu, byggt á vísinda-
legum útreikningum gæðaþátta
allra, skortir enn hér á Íslandi, þar
sem almenningur hefur aðgang að
upplýsingum um til dæmis fjölda og
meðferð kvartana á hinar einstöku
sérfræðigreinar lækninga innan
kerfisins. Þrátt fyrir mjög háa
menntunarstaðla heilbrigðisstarfs-
manna sem og mikið framboð þjón-
ustu hefur enn ekki tekist af hálfu
þeirra er hafa það lögbundna hlut-
verk með hendi að gæta réttinda
sjúklinga, að upplýsa þá og allan al-
menning, um hvað sé vel gert og
hvað kunni að þurfa úrbóta við.
Hér þarf hið opinbera að taka sig
á og ein forsenda framsettrar heil-
birgðisáætlunar til ársins 2010, af
hálfu stjórnvalda, þarf að innihalda
skilvirkt endurmat með tilliti til ár-
angursstaðla, en án þess er betur
heima setið en af stað farið frá sjón-
arhóli okkar í samtökunum Lífsvog,
hvað varðar heilbirgðismarkmið
hvers konar til framtíðar til þjónustu
við almenning.
F.h. Samtakanna Lífsvog.
GUÐRÚN MARÍA
ÓSKARSDÓTTIR,
JÓRUNN ANNA
SIGURÐARDÓTTIR,
stjórnarmenn í
samtökunum Lífsvog.
Röng sjúkdóms-
greining þýðir
ranga meðferð
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur
og Jórunni Önnu Sigurðardóttur:
OFT ER það þannig að einstök mál-
efni blossa upp í fjölmiðlum um tak-
markaðan tíma, allt ætlar um koll að
keyra og hasar-
inn verður svo
mikill að maður
fer að trúa því að
eitthvað fari að
gerast.
En svo, ein-
hvern veginn fell-
ur allt í dúnalogn
og ekkert meira
heyrist. Maður
spyr sig, ætli eitt-
hvað hafi náð fram að ganga í mál-
inu, ætli málið sé komið farsællega í
höfn, hvernig fór þetta allt saman?
Þó svo að undanfarnar vikur hafi
lítið sem ekkert heyrst í fjölmiðlum
um málefni öryrkja þýðir það ekki að
málefnum þeirra sé borgið eða að ör-
yrkjum hafi fækkað. Síður en svo.
Mig langar að minna á að örorku-
lífeyririnn er 18.424.- kr. Þar á eftir
koma svo hinir bótaflokkarnir sem
bæði eru lágir og flóknir, flóknir segi
ég af því að þá flokka fá sumir og
sumir ekki. Þú færð þennan flokk ef
þú ert svona og hinn flokkinn ef þú
ert hinsegin.
Svo féll öryrkjadómurinn – yfir
suma en ekki aðra. Getur verið að
stjórnvöldum hafi með öryrkja-
dómnum tekist að höggva skarð í
samstöðu öryrkja, samstöðu sem
hugsanlega er þeirra eina baráttu-
vopn?
Við skulum aðeins hugleiða hvað
felst í orðinu öryrki, hvað felst í því
að vera öryrki. Jú, það felst í því að
einstaklingur getur ekki vegna
heilsuleysis séð fyrir sér og sínum.
Getur ekki aflað tekna með vinnu
sinni, vegna þess að hann býr við
skerta starfsorku og verður því að
reiða sig á samfélagsaðstoð. Ég vil
ítreka að öryrkjar þurfa líka að sjá
fyrir fjölskyldum sínum rétt eins og
aðrir.
Almannatryggingakerfið þarf að
endurskoða frá grunni, fækka bóta-
flokkum, koma enn frekar til móts
við öryrkja í gegnum skattakerfið og
hækka örorkulífeyrinn til muna.
MARGRÉT
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skipholti 16,
Reykjavík.
Hvar er góðæri öryrkja?
Frá Margréti Guðmundsdóttur:
Margrét
Guðmundsdóttir