Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 57

Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 57 17. júní tilboð Kringlunni 8–12  sími 568 6211 Skóhöllin  Bæjarhrauni 16  Hf.  sími 555 4420 20–50% afsláttur fimmtudag - föstudag – laugardagAllir barnaskór N ýtt kortatím ab il Verð kr. 1.990 Verð áður kr. 3.990 rauðir - svartir- fjólubláir mikið úrval á 990 kr. Sprengitilboð! ÍSLENDINGARNIR á Evrópu- mótinu í skák stóðu sig frábærlega og fengu þrjá vinninga af fjórum í elleftu umferð mótsins eftir fremur slakt gengi í næstu tveimur umferð- um á undan. Hannes Hlífar Stefánsson náði sér aftur á strik eftir tvær taps- kákir í röð og sigraði alþjóð- lega meistarann Zviad Izoria (2.489) frá Georgíu. Eftir þennan sigur á Hannes enn möguleika á að tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu í skák, en þá verður hann að ná 1½ vinningi úr síðustu tveimur umferð- unum. Það er því ljóst að íslenskir skákáhugamenn munu fylgjast grannt með mótinu allt til loka. Eftir ótrúlega góða frammistöðu Jóns Viktors Gunnarssonar í síðustu fjórum umferðum varð hann loks að láta í minni pokann fyrir úkraínska stórmeistaranum Valeriy Neverov (2.562 Eló) í elleftu umferð. Eftir sem áður er árangur hans mjög góð- ur. Það mátti jafnvel eiga von á stór- meistaraáfanga hjá Jóni, en þrátt fyrir tapið mundi þessi frammistaða duga til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Bragi Þorfinnsson sigraði al- banska stórmeistarann Erald Derv- ishi (2.491). Bragi hafði slakað á eftir að hafa náð alþjóðlegum áfanga og tapað næstu tveim skákum. Hann er greinilega að komast í gang aftur. Stefán Kristjánsson lagði Ljub- omir Ilic (2.282) með svörtu. Það er greinilegt, að Stefán hefur ekki lagt árar í bát þrátt fyrir fjórar tapskákir í röð. Gangi honum allt í haginn í síð- ustu tveimur umferðunum gæti hann enn tryggt sér áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli, en vissu- lega verður það að teljast ólíklegt. Staða Íslendinganna þegar tvær umferðir eru til loka mótsins er þessi: 64.-92. Hannes H. Stefánsson 6 v. 93.-121. Jón V. Gunnarsson 5½ v. 122.-151. Bragi Þorfinnsson 5 v. 168.-186. Stefán Kristjánsson 4 v. Það er Bragi Þorfinnsson sem er í aðalhlutverkinu í skák dagsins, sig- urskák hans úr 11. umferð. Hvítt: Eraid Dervishi (Albaníu) Svart: Bragi Þorfinnsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bc4 e6 7. Be3 Be7 8. De2 0–0 9. 0–0–0 a6 10. Bb3 Rd7 11. Kb1 – Önnur leið er 11. g4, t.d. 11. – Rc5 12. Hhg1 Bd7 13. g5 b5 14. Rxc6 Rxb3+ 15. axb3 Bxc6 16. e5 Db8 17. Bd4 b4 18. exd6 Dxd6 19. Be5 Dc5 20. Rb1 Hac8 21. f4 Bf3 og hvítur gafst upp (Grosar-Galliamova, Halle 2000) 11...Dc7 12. f4 Rc5 13. f5 Bf6!? (Sjá stöðumynd I) Nýr leikur í stöðunni. Eftir 13...Rxb3 14. axb3 Bd7 15. Hhf1 Re5 16. Rf3 Bc6 17. Rxe5 dxe5 18. fxe6 fxe6 19. Dg4 Hxf1 20. Hxf1 Dd7 21. Hd1 Dc8 22. h4 Kh8 23. Bg5 var jafntefli samið í skákinni, de Firm- ian-Ívantsjúk, Biel 1989. 14. g4 He8 15. fxe6 fxe6 16. Hhf1 Bxd4 17. Bxd4 Rxd4 18. Hxd4 Rxb3 19. axb3 b5 20. Hfd1 Hd8 21. e5?! – Betra hefði verið að leika 21. Dd2 e5 (21...Bb7 22. Hxd6 Hxd6 23. Dxd6 Dxd6 24. Hxd6 b4 25. Hb6) 22. Hxd6 Hxd6 23. Dxd6 Dxd6 24. Hxd6 Bxg4 25. Hd5 He8 26. b4 Bh3 og staðan er nokkuð jöfn. 21...d5 22. De3 – Því miður gengur ekki að leika 22. Re4, vegna 22. – Dxe5 o.s.frv. 22...Bd7 23. Re2 a5 24. Hf4 Be8 25. Rd4 Bg6 26. De2 Hdc8 27. Hc1 b4! (Sjá stöðumynd II) 28. Rxe6 – Hvítur er kominn í vandræði, sem hann á enga leið út úr. Eftir 28. h4 a4 29. bxa4 Hxa4 30. Rb3 h6 31. g5 h5 32. Dh2 Da7 33. Dh3 Ha8 34. Dxe6+ Kh7 er engin vörn við hót- uninni 35. – Ha1+, nema: 35. Dxg6+ Kxg6 36. c3 o.s.frv. 28...Db6 29. Rd4 a4 30. Db5 – Hvítur getur ekki komið í veg fyr- ir, að svartur opni sér a-línuna til sóknar og þá verður fátt um varnir. T.d. 30. Rf5 Bxf5 31. gxf5 axb3 32. cxb3 (32. f6 Ha1+ 33. Kxa1 Da5+ 34. Kb1 Da2+ mát) 32...Ha1+ 33. Kxa1 Hxc1+ 34. Ka2 Da5+ mát. Eða 30. bxa4 Hxa4 31. Df3 b3 32. Dxd5+ (32. Dxb3 Dxb3 33. Rxb3 Hxf4) 32...Kh8 33. Dxb3 Dxb3 34. Rxb3 Hxf4 og svartur vinnur. 30...Dxb5! 31. Rxb5 axb3 32. Hf5 – Eða 32. Rd4 bxc2+ 33. Rxc2 b3 34. Hf5 Bxf5 35. gxf5 Hxc2 36. Hxc2 Ha1+ 37. Kxa1 bxc2 38. Ka2 c1D og svartur vinnur. 32...Bxf5 33. gxf5 Hxc2! (Sjá stöðumynd III) og hvítur gafst upp: Lokin hefðu getað orðið: 34. He1 (34. Hxc2 Ha1+ 35. Kxa1 bxc2, ásamt 36. – c1D) 34. – Ha2 35. Rd4 Haxb2+ 36. Ka1 Ha2+ 37. Kb1 Hcb2+ 38. Kc1 Hxh2 39. Kb1 Had2 40. Re6 Hdb2+ 41. Ka1 Ha2+ 42. Kb1 Hhb2+ 43. Kc1 Ha1+ 44. Kxb2 Hxe1 og svartur vinnur. Úrslitakeppni um meistaratitil Skákskólans Ólafur Ísberg Hannesson, Stefán Bergsson og Halldór Brynjar Hall- dórsson fengu allir 5½ vinning á meistaramóti Skákskólans og verða að tefla til úrslita um það hver þeirra hlýtur meistaratitil Skákskóla Ís- lands. Röð efstu manna varð þessi: 1.-3. Ólafur Ísberg Hannesson, Stefán Bergsson, Halldór Brynjar Halldórsson 5½ v. 4.-5. Guðmundur Kjartansson, Guðni Stefán Bergsson 5 v. 6.-8. Davíð Kjartansson, Guðjón Heiðar Valgarðsson og Dagur Arn- grímsson 4½ v. 9.-12. Björn Ívar Karlsson, Birkir Örn Hreinsson, Atli Freyr Krist- jánsson, Aron Ingi Óskarsson 4 v. 13.-17. Aldís Rún Lárusdóttir, Víðir Petersen, Anna Björg Þor- grímsdóttir, Örn Stefánsson, Helgi Brynjarsson 3½ v. Aukaverðlaun 14 ára og yngri: 1. Dagur Arngrímsson 2. Aron Ingi Óskarsson Aukaverðlaun 10 ára og yngri: 1. Helgi Brynjarsson 2.-3. Ásgeir Mogensen og Hjörvar Steinn Grétarsson Stúlknaverðlaun: Aldís Rún Lárusdóttir, Anna Björg Þorgrímsdóttir og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir. Mjóddarmót á laugardag Mjóddarmót Taflfélagsins Hellis verður haldið laugardaginn 16. júní og hefst kl. 14. Eins og áður verður mótið haldið í göngugötunni í Mjódd. Keppendur draga um fyrir hvaða fyrirtæki þeir tefla. Þar sem fjöldi keppenda tak- markast við fjölda fyrirtækja sem þátt taka er mikilvægt að skrá sig sem fyrst. Hægt er að skrá sig með tölvupósti (hellir@simnet.is). Einn- ig er hægt að skrá sig símleiðis: 692 7266. Verðlaun: 1. 10.000, 2. 6.000, 3. 4.000. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfinu og hefur hvor kepp- andi sjö mínútur á skákina. Hægt verður að fylgjast með skráningunni á mótið á heimasíðu Hellis (www.simnet.is/hellir). Úr mótaáætlun Skáksambandsins 16.6. Hellir. Mjóddarmótið 22.6. TG. Íslandsm. 60 ára og e. 23.6. TR. Helgarskákmót Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Þrír sigrar á Evrópumótinu Hannes Hlífar Stefánsson SKÁK O h r i d , M a k e d ó n í a EVRÓPUMÓTIÐ Í SKÁK 1.–15.6. 2001 SKÁK Stöðumynd I Stöðumynd II Stöðumynd III

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.