Morgunblaðið - 14.06.2001, Qupperneq 64
64 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit nr. 236.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 235. B.i. 12 ára
Sá snjalli er
bxunalaus!
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
29 þúsund áhorfendur
Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30.
Vit nr. 234
Sýnd kl. 10. B. i. 16. Vit nr 238.
Undrahundur
inn SPOT
slær í gegn í
frábærri
grínmynd í
anda Big
Daddy
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Vit nr. 240.
Nýi Stíllinn Keisarans
Sýnd kl. 3.45.
Vit nr. 213
Sweet november
Sýnd kl. 8. Vit nr. 233
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 231
Miss Congeniality
Sýnd kl. 4. Vit nr. 207
Sýnd kl. 10.15. B.i. 16 ára. Vit nr. 223
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
Stórkostleg mynd sem endurskapar einn magnaðasta atburð
seinni heimsstyrjaldarinnar á raunsæjan hátt. Frábær upplifun
fyrir augu og eyru sem er í senn spennandi og góð ástarsaga.
Ef þú ferð bara tvisvar í bíó á ári, þá sérðu þessa tvisvar!
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 5.45.
Loksins alvöru tryllir sem fær hárin til að rísa. Með
hinum magnaða Morgan Freeman (Kiss the Girls,
Seven). Hér er komið sjálfstætt framhald myndarinnar
Kiss the Girls. Rafmögnuð spenna frá byrjun til enda.
Hefur verið líkt við Seven og Double Jeopardy.
Svikavefur
Sýnd kl. 5.30 og 8.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B. i. 16.
29 þúsund
áhorfendur
strik.is
1/2 Hugleikur
KVIKMYNDIR.is
Sýnd kl. 8 og 10.30
B. i. 14
B E N A F F L E C K
Sýnd kl. 4.30, 8 og 10.30. B. i. 12.
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
Sýnd kl. 10.30
!
"# $ %%$&&
Í KVÖLD heldur hljómsveitin
Tena Palmer og Cru tónleika í
Kaffileikhúsinu og hefjast þeir kl.
21.
Söngkonan Tena er löngu orðin
landsþekkt fyrir söng sinn, ekki
síst fyrir djass og sérstakan og fjöl-
breyttan spuna. Að þessu sinni ætl-
ar hún, ásamt Matthíasi Hemstock,
trommu- og slagverksleikara, og
Kjartani Valdimarssyni hljóm-
borðsleikara, að flytja tónlist sem
er byggð á ljóðum eftir hana sjálfa.
Ljóðin skreyta þau með sameig-
inlegum spuna af rafrænum og líf-
rænum tónum sem hefur þróast út
frá samvinnu þeirra á geisladiski
Tenu, Crucible, frá árinu 1998.
Óvanaleg hljóðfæranotkun
„Þetta er raftónlist og sum ljóð-
in eru sungin við einfalda laglínu,
önnur eru töluð. Við erum öll að
nota hljóð-
færin okkar,
en á annan
hátt en vanalega, bæði
rafmagnað og óraf-
magnað. Ég nota mis-
munandi vinnsluað-
ferðir, eitt sem ég geri
er að hljóðsmala upp-
tökum af röddinni
minni, og ýmsum öðr-
um áhugaverðum
hljóðum, spila þau og
tala síðan eða syng yf-
ir. Matti gerir það
sama með sína sym-
bala, trommur og upp-
tökur af mínídiski.
Hann er að ná fram
yndislegum og ríkum
hljóðum með marg-
breytilegum áferðum. Og Kjartan
notar píanó, konsertínu, sem er
eins kon-
ar lítil
harm-
onikka, og hljóm-
borð.“
Annars segir Tena
að þar sem um spuna
sé að ræða viti þau
sjálf aldrei fyrr en á
tónleikum hvað ger-
ist nákvæmlega, en
þau eiga það til að
skiptast á hlut-
verkum innan bands-
ins.
„Það sem kemur
út eru ljóð með tón-
list í bakgrunni, eða
bara einfaldlega
lög.“
Kjartan, Matthías
og Tena eru kjarni þeirra sem léku
inn á diskinn hennar, Crucible.
„Við höfum spilað mikið saman og
þekkjum smekk hvors annars
mjög vel og bakgrunn sem gerir
það mjög auðvelt og skemmtilegt
að spila saman.“ Ljóðin fjalla um
allt milli himins og jarðar og m.a
er eitt stutt sem fjallar um hvernig
við skynjum hljóð. Mér datt það í
hug eitt sinn þegar ég heyrði hljóð
og var ekki viss hvort það væri í
hjólabretti eða í breiðþotu. Þessi
hugsun finnst mér vera grunn-
urinn að kvöldinu. Við erum öll
tónlistarfólk sem gætum staðið
þarna með hljóðfærin okkar og
spilað á venjulegan hátt, eða við
getum leikið okkur að hljóðunum
og það verður samt tónlist og sama
fólkið að tjá sig,“ segir Tena að
lokum og býður alla velkomna að
koma að hlusta á hljóðfæraleikinn,
orðin, upptökurnar og hljóðin og
njóta vel.
Hvernig við skynjum hljóð
Tena syngur og
leikur spuna og
ljóð í kvöld.
Skreytt ljóð í Kaffileikhúsinu
SJÓMANNADAGSBALL er ómissandi hluti af
stemmningu dagsins og í Vestmannaeyjum tróðu Stuð-
menn upp í hinni glæsilegu og hljómgóðu Höll þeirra
eyjaskeggja. Þetta nýja samkomuhús var byggt ofan á
vatnstank bæjarins og var vígt fyrir rúmum mánuði en
þar voru 600 manns, sjómenn og eiginkonur, í mat fram-
an af kvöldi.
Húsið var því fullt af íslenskum karlmönnum enda
Vestmannaeyjingar löngum þótt þrautgóðir á rauna-
stund. Nú voru þeir mættir til að dansa bæði rokk og
ræl og fórst það ekki síður vel úr hendi. Enda sagði Jak-
ob Frímann ballgesti mestu stuðbolta íslenska lýðveld-
isins og fékk góðar undirtektir við þau ágætu ummæli.
Snemma á dansleiknum tók hljómsveitin lagið Úti í
Eyjum og það startaði stuðinu allhressilega. Ragnhildur
sýndi góða takta með gömlum Grýlulögum og tileinkaði
Árna Johnsen lagið Hvað er að ske? en hann og gítarinn
hans höfðu einmitt skemmt veislugestum fyrr um kvöld-
ið með vel völdum tónum. Einnig fékk Ungfrú Ísland,
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, sem einmitt er frá
Vestmannaeyjum, lagið Sísí fríkar út sungið sér til heið-
urs og hinum fallegu konunum úr Eyjum sem skemmtu
sér hið besta þessa fallegu sumarnótt í glæsilegum
veislusal með útsýni yfir stórfenglegt bæjarstæðið.
Morgunblaðið/Hildur LoftsVestmannaeyingar kunna aldeilis að skemmta sér.
Stuðboltar
íslenska
lýðveldisins Egill og Ragnhildur í kröftugri sveiflu.
Sjómannadagsball í Eyjum