Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 65
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 16. Vit nr 238.
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 231 Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr 236.
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
B E N A F F L E C K
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. Vit nr 235.
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Strik.is
HL.MBL
Sýnd kl. 6 og 8.30. B. i. 16. Vit nr. 201. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.14. Vit nr 220.
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
B E N A F F L E C K
Sýnd kl. 6.30 og 10. Vit nr 235. B.i. 12 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
STEGGJAPARTÝIÐ ER HAFIÐ!I I !
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kirikou
og galdrakerlingin
Tveimur fremstu njósnurum heims hefur
verið rænt og aðeins börnin þeirra geta
bjargað þeim!
3 vikur á
toppnum í USA
Sannir spæjarar...bara aðeins minni
Frábær fjölskyldu og ævintýramynd
„Bond mynd fyrir
fjölskylduna“
HK DV
AI MBL
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6
TOP SHOP
17. júní gleði í
fimmtudag, föstudag
og laugardag.
10% afsláttur
og fullt af tilboðum í
snyrtivörudeild.
Við leysum þig út með gjöfum
frá
ef þú verslar fyrir kr. 3.500
TEIKNARINN Hank Ketcham, sem
þekktastur er fyrir að búa til
Denna dæmalausa, lést síðastliðinn
föstudag 81
árs að aldri.
Banamein
hans var
krabbamein
auk þess sem
hann þjáðist af
hjartasjúk-
dómi.
Þó að
Ketcham hafi
lagt blýantinn
á hilluna árið
1994 fylgdist hann grannt með dag-
legum teiknimyndasögum um
Denna og félaga. Þeir Marcus Ham-
ilton og Ronald Ferdinand hafa séð
um myndasögurnar síðustu ár en
hafa sent Ketcham allar hugmyndir
til yfirlestrar.
Denni dæmalausi leit dagsins ljós
árið 1951 og fagnaði því á dögunum
hálfrar aldar afmæli sínu. Mynda-
sögur af uppátækjum hans birtast
nú í yfir eitt þúsund dagblöðum í 48
löndum og á 19 tungumálum.
Hugmyndin að Denna kviknaði í
lok ársins 1950 þegar eiginkona
Ketcham, Alice, kom inn á vinnu-
stofu hans og skammaðist yfir
uppátækjum Dennis, fjögurra ára
sonar þeirra hjóna. „Sonur þinn er
alveg dæmalaus,“ á Alice að hafa
sagt.
Ketcham fæddist árið 1920 í
Seattle. Hann var ekki nema sex
ára gamall þegar hann ákvað að
hann vildi gerst teiknimyndateikn-
ari. Ketcham hætti háskólanámi og
hóf að vinna hjá teiknaranum Wal-
ter Lantz sem teiknaði m.a. Villa
spætu. Eftir það lá leið hans til
teiknimyndarisans Disney. Í seinni
heimsstyrjöldinni fékk Ketcham
svo það verkefni að teikna áróð-
ursveggspjöld og annað í þágu
hersins. Eftir stríðið helgaði Ketch-
am sig Denna dæmalausa, nágrann-
anum herra Wilson og félögum
þeirra allar sínar teikningar, allt til
dauðadags.
Skapari Denna
dæmalausa látinn
„Ég get sagt þér það að þetta er frek-
ar ung hljómsveit. Við erum búnir að
æfa í 6 mánuði, en við höfum samt all-
ir verið í tónlist í mjög langan tíma,“
segir Skúli Örn Sigurðsson, söngvari
og gítarleikari hljómsveitarinnar
Basic, sem leikur á Kringlukránni í
kvöld.
„Ég veit ekki hvað er hægt að segja
meira, við spilum popp og rokk í bland
við frumsamið efni,“ bætir félagi hans
Bjarki Gunnlaugsson gítarleikari við.
„Okkar eigið efni er svona léttmeló-
dískt rokk,“ útskýrir Skúli.
En hvaða tökulög ætla þeir Basic
félagar að tækla?
„Við tökum náttúrulega Bítlana,
Creedence, U2, Creed, smávegis með
Clapton, Doors og bara allt mögu-
legt,“ upplýsir Bjarki.
„Efnið er nánast ótakmarkað, við
blöndum þessu saman. Það verða
kannski sex til sjö frumsamin á móti
30 tökulögum,“ segir Skúli.
Þrátt fyrir stuttan starfsaldur hef-
ur sveitin þegar sett á stefnuskrána
að hljóðrita afurðir sínar.
„Við erum með eitt lag sem við tök-
um sennilega upp í byrjun júlí,“ segir
Skúli. „Við ætlum að sjá hversu langt
við náum með það. Það hefur verið
rosalega vel tekið í það lag. Þetta er
rosalega hresst lag, með suðrænum
áhrifum. Við reynum nú samt að
halda okkur í þessu létta melódíska
rokki.“
Að lokum er við hæfi að forvitnast
svolítið um hljómsveitarnafnið.
„Við vildum leita aftur í grundvöll-
inn, miðað við það sem er í gangi
núna. Það er rosalega mikið um ný-
tískulegt hipp-hopp og soul-tónlist.
Við vildum bara fara aftur í grunninn,
spila með hefðbundinni uppsetningu,
lög sem eru melódísk með mikilli til-
finningu. Þannig að við náum inn á
grundvallartilfinningar fólks sem er
að hlusta,“ segir Skúli að lokum.
Eins og áður sagði leikur hljóm-
sveitin fyrir gesti Kringlukrárinnar í
kvöld og spilamennskan hefst kl. 22.
Morgunblaðið/Billi
Basic (f.v.) Bjarki Gunnlaugsson gítarleikari, Skúli Örn Sigurðsson gítarleikari og söngvari og Marteinn Þór
Harðarson bassaleikari. Á myndina vantar Kristján Valdimar Eyjólfsson trommuleikara.
Hljómsveitin Basic leikur á Kringlukránni í kvöld
Grundvallartilfinningar