Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRAGI Jóhann Ingibergsson sókn-
arprestur í Siglufirði hefur verið val-
inn til að taka við embætti sóknar-
prests í Víðistaða-
prestakalli í
Hafnarfirði.
Ákvörðun var
tekin síðastliðinn
mánudag er val-
nefnd kom sam-
an. Þrír sóttu um
embættið auk
Braga, þau sr.
Arnaldur Bárðar-
son, sóknarprest-
ur í Hálsprestakalli, sr. Hulda Hrönn
M. Helgadóttir, sóknarprestur í
Hrísey og sr. Þórhallur Heimisson,
prestur í Hafnarfjarðarprestakalli.
Fráfarandi sóknarprestur er Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson og mun hann
láta af störfum 1. september.
Bragi Jóhann Ingibergsson lauk
kandídatsprófi 1989 og var vígður 12.
nóvember sama ár til Siglufjarðar-
prestakalls.
Víðistaðasókn
Sr. Bragi J.
Ingibergsson
valinn sókn-
arprestur
Sr. Bragi Jó-
hann Ingi-
bergsson
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og Páll Skúlason há-
skólarektor undirrituðu í gær í
Ráðhúsi Reykjavíkur samning um
stofnun tímabundins starfs lektors
í félagsráðgjöf á sviði félagsþjón-
ustu sveitarfélaga. Markmið
samningsins er að efla rannsóknir
og kennslu á sviði félagsþjónustu
sveitarfélaga. Ráðið verður í
starfið til fimm ára. Um verður að
ræða 100% starf og skiptist starfs-
skylda milli rannsókna, kennslu
og stjórnunar. Áhersla verður
lögð á greiningu og sérhæfða ráð-
gjöf ásamt rannsóknum á sviði
félagsþjónustu sveitarfélaga.
Starfið verður auglýst ekki síðar
en 17. júní nk. og verður ráðið í
það frá 1. janúar 2002. Félags-
þjónustan í Reykjavík greiðir laun
og launatengd gjöld vegna lekt-
orsstöðunnar en kostnaður vegna
þess stöðugildis nemur 3,5 millj-
ónum kr. á ársgrundvelli.
Ingibjörg Sólrún fagnaði samn-
ingnum og sagði að Reykjavík-
urborg vilji standa að baki Há-
skólanum en þó gjarnan á þann
hátt að gagnkvæmur hagur felist
í samstarfinu. „Við höfum lagt
fjármuni í stöður í Háskólanum,
eins og t.d. í verkfræðideild þar
sem Orkuveitan hefur komið að
málum. Við höfum lagt fjármagn
til kvennarannsóknafræða og sett
inn fjármuni í Kvennasögusafnið.
Við leggjum fram 12 milljónir kr.
á ári í Nýsköpunarsjóð náms-
manna og höfum því komið víða
við. Þessi samningur á að geta
nýst til þess að renna styrkari
stoðum undir félagsþjónustu
Reykjavíkurborgar og sveit-
arfélaganna almennt. Á því sviði
erum við í lagaumhverfi sem er
viðkvæmara og vandasamara en
áður var og því er mikilvægt að
stofnun eins og Háskólinn marki
ákveðna braut í því sambandi,“
sagði borgarstjóri.
Lára Björnsdóttir félags-
málastjóri sagði að Félagsþjón-
ustan ætti síaukið samstarf við
félagsvísindadeild Háskólans og
gerður hefði verið sérstakur
samningur um starfsþjálfun við
nema í félagsráðgjöf. Hún fagnaði
mjög þessu framfaraspori.
Mikilvægur stuðningur
Páll Skúlason háskólarektor
lýsti yfir ánægju Háskólans með
samninginn. „Það er gott fyrir
Háskólann að fá stuðning til að
ýta framkvæmd af þessu tagi úr
vör því við höfum átt í erf-
iðleikum með að taka fé frá starf-
semi sem þegar er til staðar.
Stuðningurinn er því mjög mik-
ilvægur. Hagsmunir Háskólans á
þessari stundu er að eflast sem
mest sem rannsóknarstofnun og
að hann verði betri mennta-
stofnun með því að auka rann-
sóknir á sem flestum sviðum.
Borgin og þjóðfélagið þarfnast
þess æ meira að stundaðar séu
rannsóknir á þeim málefnum sem
þjóðfélagið glímir við,“ sagði há-
skólarektor.
Reykjavíkurborg kostar
stöðu lektors í félagsráðgjöf
Morgunblaðið/Arnaldur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Páll Skúlason háskólarektor undirrita samninginn.
NÝJAR áherslur í norrænu samstarfi
og breytt uppbygging Norðurlanda-
ráðs var meðal þess sem rætt var á
fundi samstarfsráðherra Norður-
landanna í Nådendal í Finnlandi á
miðvikudag. Þá ræddu samstarfsráð-
herrarnir við fulltrúa Norðurlanda-
ráðs um tillögur sem aldamótanefnd-
in undir forystu Jóns Sigurðssonar,
bankastjóra Norræna fjárfestinga-
bankans, lagði fram síðasta haust. Á
grunni þeirra tillagna verða lagðar
fram tillögur um fimm helstu áherslu-
atriði varðandi norræna samvinnu á
þingi Norðurlandaráðs í haust.
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráð-
herra og norrænn samstarfsráð-
herra, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að verið væri að breyta áherslum í
norrænu samstarfi og uppbyggingu
þess, meðal annars til að mæta
breyttu umhverfi í ljósi alþjóðavæð-
ingar og upplýsingabyltingarinnar.
Að sögn Sivjar voru ráðherrarnir
sammála um þau fimm áhersluatriðið
sem lögð verða fram á næsta þingi
Norðurlandaráðs.
Þau atriði eru í fyrsta lagi áhersla á
samvinnu varðandi tækniþróun og þá
sér í lagi upplýsingasamfélagið. Í
öðru lagi verður lögð áhersla á vel-
ferðarmál og réttindi norrænna
þegna innan Norðurlandanna til að
vinna og nema í öðrum norrænum
löndum. Í þriðja lagi verður lögð
áhersla á innri markað Norður-
landanna og aukna samvinna til að
fækka hindrunum vegna landamæra.
Í fjórða lagi verður lögð áhersla á
samstarf Norðurlandaþjóðanna við
nærsvæði þeirra, til dæmis Eystra-
saltsríkin og Kanada og Skotland.
Að sögn Sivjar hafa Íslendingar,
Færeyingar og Grænlendingar verið
sérlega áhugasamir um að skoða nýja
fleti á samstarfi á Norður-Atlantshafi
varðandi umhverfismál og sjávarút-
veg.
Þá hafi verið lögð áhersla á að efla
samstarfið við Kanada og Skotland og
ríki sem liggja umhverfis Norður-Atl-
antshafið. Í fimmta lagi verður síðan í
tillögum um breyttar áherslur í nor-
rænu samstarfi lögð áhersla á um-
hverfismál og sjálfbæra þróun.
„Um þetta er pólitísk samstaða að
leggja áherslu á í norrænu samstarfi
á næstu árum. Það er auðvitað mjög
mikilvægt að Norðurlöndin nýti sér
það hversu lík þau eru, með sama
menningarbakgrunn og svipað tækni-
stig.
Þannig hafa löndin t.d. afar mikla
hagsmuni af því að standa saman til
að efla sig í þessari alþjóðavæðingu. Í
Evrópusamstarfinu sjáum við að þau
ná meiru fram í sínu samstarfi gagn-
vart öðrum ríkjum og einnig gagnvart
ýmsum alþjóðastofnunum.“ Siv segist
telja samstarfið mjög spennandi og
sífellt mikilvægara fyrir Norðurlönd-
in og þá ekki síst fyrir Ísland. „Það er
gífurlega mikilvægt fyrir okkar hags-
muni að efla norrænt samstarf. Við
höfum mikla hagsmuni af því t.d. að
vera í samstarfi við ríki eins og Sví-
þjóð, Danmörku og Finnland, sem
eru innan Evrópusambandsins.
Við erum að fara alveg inn í nýja
tíma varðandi samstarf Norður-
landanna vegna breytinga sem hafa
orðið í heiminum, t.d. með alþjóða-
væðingunni og upplýsingavæðing-
unni.“
Samkvæmt nýjum tillögum verður
uppbyggingu Norðurlandaráðs
breytt á þann hátt að farið verður úr
landfræðilegri skiptingu nefnda ráðs-
ins yfir í fagnefndir. Þannig munu 5
fagnefndir starfa í ráðinu og verður
ráðið þannig líkara venjulegu þjóð-
þingi, að sögn Sivjar.
Þá segir Siv að á fundinum hafi ver-
ið rædd mikilvæg mál eins og sam-
starf þjóða á norðurskautssvæðinu. Á
þeim vettvangi er verið að undirbúa
nýja samstarfsáætlun þar sem verið
er að kanna hvort ekki sé rétt að
leggja sérstaka áherslu á Norður-
skautsráðið. Siv segir þá breytingu
vera mikilvæga bæði varðandi um-
hverfismál og einnig vegna þess að
mikil byggðaröskun eigi sér nú stað á
þessu svæði, líkt og Íslendingar hafa
upplifað. Af þeim sökum er mikill vilji
fyrir því að efla samstarf þjóðanna til
að fjölga tækifærum yngra fólks í
framtíðinni.
„Og það er sérstaklega áhugavert
fyrir okkur Íslendinga því Ísland er
allt innan svæðisins sem er skilgreint
norðurheimskautið.“
Íslendingar óska eftir for-
mennsku í Norðurskautsráðinu
Norðurskautsráðið er samstarfs-
vettvangur Norðurlandanna og Kan-
ada, Rússlands og Bandaríkjanna um
málefni norðurskautsins og segir Siv
að Íslendingar hafi nú boðist til að
veita ráðinu formennsku. Engin önn-
ur þjóð hefur gert hið sama og því
munu Íslendingar að líkindum taka
þar við formennsku á eftir Finnum.
Á fundinum í gær var ráðherrunum
kynnt sú fyrirætlan norrænu knatt-
spyrnusambandanna að sækja sam-
eiginlega um að halda Evrópumeist-
aramótið í knattspyrnu árið 2008.
Ekki hefur verið tekin nein ákvörð-
un um þetta ennþá, nema hvað Finn-
ar hafa ákveðið að styðja við bakið á
slíkri umsókn. Að sögn Sivjar lýstu
ráðherrarnir því yfir að slík umsókn
myndi verða mjög spennandi norrænt
verkefni.
Samstarfsráðherrar Norðurlandanna samþykkja tillögur um samstarf þjóðanna
Mikilvægt fyrir Íslendinga
að efla norrænt samstarf
RANNVEIG Sigurðardóttir,
hagfræðingur hjá Alþýðusam-
bandi Íslands, segir hækkun
verðbólgu mikið áhyggjuefni,
en vísitala neysluverðs hækk-
aði um 1,5% á milli mánað-
anna maí og júní. „Við höfum
varað við því í nokkur misseri
að ef ekki yrði tekið í taum-
ana þá myndi ofþenslan sem
verið hefur í þjóðfélaginu
enda í mikilli verðbólgu sem
nú er raunin.“
Rannveig segir að til að ná
tökum á verðbólgunni þurfi
aðhald, tryggja þurfi að verð
á vörum og þjónustu sé ekki
hækkað meira en nauðsynlegt
er. Hún telur að minnkandi
eftirspurn og gengislækkun
verði til þess að verðbólgan
muni ganga til baka á næstu
mánuðum. „Okkar mat er að
þetta sé tímabundin hækkun.
Við teljum að gengi krónunn-
ar eigi eftir að hækka og ljóst
er að bæði fyrirtæki og heim-
ili eru byrjuð að laga sig að
minni tekjuaukningu og meiri
skuldum sem ætti að hafa
áhrif á verðbólguna.“
Verður næst skoðað
í febrúar 2002
Forsenda kjarasamninga
sem gerðir voru árið 2000
voru að verðbólgan færi
lækkandi að sögn Rannveig-
ar. „Við gerð þeirra var
teiknaður upp ákveðinn verð-
bólguferill en í febrúar ár
hvert er skoðað hvort verð-
bólguþróun hafi verið í sam-
ræmi við ferilinn. Þetta verð-
ur næst tekið fyrir í febrúar
2002 og munum við þá skoða
hvort hún standist þegar
heildarniðurstaða ársins ligg-
ur fyrir.“
Forsenda
kjarasamn-
inga að
verðbólg-
an lækki
Hagfræðingur ASÍ
SAMEINING Rafveitu Sauðárkróks
og og Vatns- og Hitaveitu Skaga-
fjarðar í Orkuveitu Skagafjarðar
verður hugsanlega að veruleika inn-
an tíðar en athuganir á hagkvæmni
sameiningar hafa staðið yfir. Að sögn
Snorra Björns Skúlasonar, bæjar-
stjóra á Sauðárkróki, hefur þetta mál
verið lengi í umræðunni og undanfar-
ið hefur það verið kannað af þeim
Jóni Vilhjálmssyni verkfræðingi og
Sigurði Páli Haukssyni endurskoð-
anda. Þeir hafa skilað tveimur
skýrslum um málið, búið er að kynna
þær fyrir sveitarstjórn og fram-
haldsvinna stendur nú yfir.
Snorri bendir á að sameining raf-
veitna og annarra orkuveitna sé orðin
mjög algeng og nú séu ekki nema
örfáar rafveitur eftir á landinu sem
ekki hafi enn verið sameinaðar öðr-
um veitustofnunum. Sveitarfélagið
hafi horft til þess hvernig þessum
málum hafi verið háttað annars stað-
ar, svo sem í Reykjavík. „Það er ljóst
að með sameiningu næst fram veru-
legt hagræði enda hefðu ekki nánast
allar veitustofnanir stórar og smáar
farið í þetta ef menn hefðu ekki séð að
það væri skynsamlegt,“ segir Snorri
Björn. Að mati hans hefði að ósekju
mátt ráðast í þetta verkefni fyrr en
fleiri sameiningarverkefni hafa stað-
ið yfir í sveitarfélaginu og því hefur
ekki orðið af vinnu við þetta mál fyrr
en nú.
Vangaveltur um
sölu rafveitunnar
Snorri segir einnig hafa verið uppi
hugmyndir um hvort skynsamlegt sé
að selja rafveituna til að létta á skuld-
setningu sveitarsjóðs, en skuldastað-
an hefur verið erfið. „Hins vegar eru
veiturnar mjög lítið skuldsettar, raf-
og vatnsveiturnar eru skuldlausar
með öllu og hitaveitan skuldar tiltölu-
lega lítið. Hitaveitan hefur verið
helsta tekjulind sveitarfélagsins, hún
er ódýr í rekstri og sjálfrennandi
vatn hefur meðal annars valdið því að
hitveitugjöld eru lág. Menn hafa velt
því fyrir sér hvort skynsamlegt sé að
selja rafveituna, eins og gert hefur
verið með margar minni veitur og
sameina þá vatns- og hitaveituna.“
Eins og staðan er í dag segir Snorri
Björn menn þó hallast frekar að því
að allar veiturnar verði sameinaðar í
eina orkuveitu og býst hann við því að
ákvörðun um þessi mál verið tekin í
sumar.
Athuganir á
hagkvæmni
standa yfir
Orkufyrirtæki í
Skagafirði
♦ ♦ ♦