Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 56
DAGBÓK
56 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Bald-
vin Þorsteinsson, Vic-
toria, Skógarfoss og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ostroje kom í gær.
Ocean Tiger fór í gær.
Fréttir
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum alls
konar notuð frímerki,
innlend og útlend, ný og
gömul, klippt af með
spássíu í kring eða um-
slagið í heilu lagi (best
þannig). Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM og K, Holtavegi
28, Reykjavík, og hjá
Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó.
Árskógar 4. Kl. 13-
16:30 opin smíðastofan,
kl. 13:30 bingó
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8:30
böðun, kl. 9-16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9:30 kaffi/
dagblöð, kl. 11:15 mat-
ur, kl. 13 spilað í sal, kl.
15 kaffi. Farið verður
norður Kjöl, fimmtu-
daginn 21. júní kl. 8.
Þingeyrarkirkja í A-
Hún skoðuð. Kvöldverð-
ur í Hreðarvatnsskála.
Nesti og góður klæðn-
aður. Upplýsingar og
skráning í síma 568-
5052 fyrir þriðjudaginn
19. júní.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20:30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10 verslunin opin,
kl.11:30 matur, kl. 13
„opið hús“, spilað á spil.
kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag verður pútt á
Hrafnistuvelli kl. 14 til
16 og lokabridge fyrir
sumarið kl 13:30 og
verður þá boðið upp á
kaffi og tertu eftir spila-
mennsku. Á morgun
Laugardagsgangan kl.
10 frá Hraunseli.
Þriggja daga ferð til
Hornafjarðar 3. júlí.
Nokkrir miðar lausir.
Orlofið að Hótel Reyk-
holti Borgarfirði 26.
ágúst n.k. Skráning haf-
in, allar upplýsingar í
Hraunseli sími 555-
0142
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10 til 13. Matur í hádeg-
inu.
Dagsferð 18. júní. Sögu-
ferð í Dali, skoðaðir
verða Eiríksstaðir,
Höskuldsstaðir í Lax-
árdal, Hjarðarholt,
Búðardalur, Krosshólar
og landnámsbærinn
Hvammur. Brottför frá
Glæsibæ kl. 9. Eigum
nokkur sæti laus. Leið-
sögumaður er Sigurður
Kristinsson. Eyja-
fjörður – Skagafjörður
– Þingeyjarsýslur 6
dagar. 26.-31.júlí. Ekið
norður Sprengisand til
Akureyrar. Farið um
Eyjafjarðardali, Svarf-
aðardal, Hrísey, Sval-
barðsströnd og fl. Ekið
suður Kjalveg um
Hveravelli til Reykja-
víkur. Leiðsögn Þórunn
Lárusdóttir. Eigum
nokkur sæti laus. Ath:
Vegna mikillar aðsókn-
ar í hringferð um Norð-
austurland viljum við
biðja þá sem eiga pant-
að að koma og greiða
inn á ferðina sem fyrst.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588-2111.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9-12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9:30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Gerðuberg, kl. 9-16:30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur opinn.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Fimmtu-
daginn 21. júní er Jóns-
messufagnaður í Skíða-
skálanum í
Hveradölum, m.a. ekið
um Heiðmörk o.fl., veg-
legt kaffi, hlaðborð að
hætti hússins. Söngur
og dans undir stjórn
Ólafs B. Ólafssonar
harmonikuleikara. Mið-
vikudaginn 27. júní
ferðalag í Húnaþing
vestra m.a. staldrað við
í Víðigerði, ekinn Vatns-
neshringurinn. Kaffi-
veitingar á Hvamms-
tanga með eldri
borgurum. Allir vel-
komnir. Uppl. og skrán-
ing 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9:30-16. Vorvaka
eldra fólks í Kópavogi
verður í Gjábakka í dag
föstudag og hefst að
lokinni félagsvist. Dag-
skráin er óformleg en
kl. 23 syngur Árni Sig-
hvatsson við undirleik
Jóns Sigurðssonar,
nokkrar einsöngs-
perlur. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir og allir
eru hvattir til að koma
með og flytja ljóð, ör-
sögu o. fl. Umsjón-
amaður vorvöku er Jó-
hanna Arnórsdóttir.
Upplýsingar í síma 554-
3400.
Hraunbær 105. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 9-12:30
bútasaumur, kl. 10-12
pútt, kl. 11 leikfimi, kl.
14 spilað bingó, kaffi-
veitingar.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12:30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9:30 út-
skurður, kl. 10 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9 dag-
blöð, kaffi, fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9:15
almenn handavinna, kl.
10-11 kántrý, kl. 11-12
stepp, kl. 11:45 matur,
kl. 13:30 sungið við flyg-
ilinn, kl. 14:30 kaffi og
dansað í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9:30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 11:45
matur, kl. 13:30 bingó,
kl. 14:30 kaffi.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13:15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugardögum.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20:30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og meðlæti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt Húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16-25 ára) að mæta með
börnin sín á laug-
ardögum kl.15-17 á
Geysi, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykja-
nesbæ, fer sína árlegu
sumarferð miðvikudag-
inn 20. júní.
Fyrir valinu í ár var
ferð að Sólheimum í
Grímsnesi. Lagt verður
af stað kl. 13 frá S.B.K.
og komið við í Hvammi
og Selinu.
Þeir sem hafa áhuga á
að fara með í þessa ferð,
láti skrá sig í síma 861-
2085 eða 421-4322.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma,
Breiðholtskirkju við
Þangbakka. Skálholts-
skóli, Ellimálanefnd
Þjóðkirkjunnar og Elli-
málaráð Reykjavík-
urprófastsdæma efna til
sumardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti.
Boðið er til fimm daga
dvalar í senn og raðast
þeir þannig: 25 til 29.
júní, 2 til 6 júlí og 9 til
13. júlí. Allar nánari
upplýsingar eru veittar
á skrifstofu Elli-
málaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma f.h.
virka daga í síma 557-
1666.
Brúðubílinn
Brúðubílinn, verður í
dag kl. 10 við Hlað-
hamra og kl. 14 við
Malarás.
Í dag er föstudagur 15. júní, 166.
dagur ársins 2001. Vítusmessa .
Orð dagsins: Og friður Guðs,
sem er æðri öllum skilningi,
mun varðveita hjörtu yðar og
hugsanir yðar í Kristi Jesú.
(Fil. 4, 9.)
Víkverji skrifar...
HANN er runninn upp í dag,loksins er svo komið að við för-
um í vinnuna og vitum að launin
renna ekki öll til samneyslunnar.
Skattleysisdagurinn. Víkverji dags-
ins þykist vita að haldið verði upp á
daginn með hefðbundnum hætti.
Ungir hægrimenn munu nota tæki-
færið og brýna fyrir landslýð og
ráðamönnum að draga nú úr skatt-
píningunni. Víkverji hefur stundum
furðað sig á því að ungir vinstrimenn
skuli ekki svara með því að hvetja
þennan dag til skattahækkana. Lík-
lega er það tímanna tákn að þeir
gera það ekki. Þótt flestum finnist
nauðsynlegt að halda uppi ýmiss
konar opinberri þjónustu er það ekki
til vinsælda fallið að mæla með aukn-
um sköttum.
Oft er bent á að munurinn á Evr-
ópu og Bandaríkjunum sé að vestra
borgi menn miklu lægri skatta en al-
gengast er í Evrópu. Í sumum Evr-
ópulöndum, þar á meðal Frakklandi
og Svíþjóð, er samneyslan á við rösk-
lega helming þjóðarframleiðslunnar
í peningum talið en auðvitað er um-
deilanlegt hvaða reikningsaðferð er
hin eina rétta. En Víkverji sá nýlega
grein eftir breskan ritstjóra, Hamish
McRae, sem fullyrti að jafnvel jafn-
aðarmennirnir sem nú stjórna flest-
um Evrópuríkjum, væru nær alls
staðar að lækka hlutfall ríkisins. Þeir
væru hins vegar ekkert endilega að
hampa þeirri staðreynd um of enda
margir traustustu kjósendur þeirra
mjög hlynntir opinberum rekstri.
Og fyrst Víkverji er að minnast á
Bretland koma kosningarnar þar
upp í hugann og lítil kjörsókn, um
60%. Hann sá einhvers staðar að
félagatalan í bresku stjórnmála-
flokkunum hríðlækkar. Verka-
mannaflokkurinn er ekki með nema
um 300 þúsund félaga. Fuglaskoð-
unarfélagið er með tvær milljónir
félaga og ætti kannski að bjóða fram.
En hver skyldi þróunin verða hér á
Íslandi í næstu Alþingiskosningum?
Síðast var kjörsókn nokkru minni en
oftast áður, um 82%. Ef eitthvað má
ráða af þróuninni annars staðar í
Evrópu getum við gert ráð fyrir að
talan lækki enn.
x x x
KUNNINGI Víkverja sagði hon-um í vikunni frá góðu dæmi um
möguleikana sem fólk hefur nú á því
að spara ef það notfærir sér tölvu.
Sonur hans ætlaði að vera í tvær vik-
ur í London ásamt vini sínum í júlí og
þeir könnuðu verð á hótelgistingu.
Eitt af miðborgarhótelunum sem
Flugleiðir hafa samið við tók að sögn
starfsmanna flugfélagsins sem svar-
ar 14 þúsund krónum fyrir sólar-
hringinn og þá átt við tveggja manna
herbergi.
En syninum datt í hug að fara inn
á heimasíðu hótelsins og viti menn:
Þar var tilboð sem stendur út júlí og
verðið aðeins 9.800 krónur. Líklega
gera Flugleiðir langtímasamninga
við hótelin og geta því ekki breytt
verðinu. En nú er orðið auðvelt að
kynna sér hvort hægt er að komast
að betri kjörum.
x x x
VÍKVERJA líst vel á hugmynd-irnar um stækkun gömlu Sund-
hallarinnar í Reykjavík. Oft hafa
slíkar breytingar mistekist illa en
teikningarnar sem birtar hafa verið
lofa góðu. Ekki mun ætlunin vera í
sjálfu sér að hrófla við upprunalegri
hugmynd Guðjóns Samúelssonar
enda væru það mikil spjöll. Húsið er
gamalt listaverk og við það tengdar
margar góðar minningar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 nagdýr, 4 andinn, 7
spjald, 8 snákur, 9 myrk-
ur, 11 beitu, 13 ljúka, 14
dugnaðurinn, 15 sæti, 17
ferskt, 20 eldstæði, 22
eru í vafa, 23 framleiðslu-
vara, 24 skvampa, 25
týna.
LÓÐRÉTT:
1 léleg skepna, 2 refur-
inn, 3 skelin, 4 stuðning-
ur, 5 barin, 6 ginna,
10 starfið, 12 læt af
hendi, 13 bókstafur, 15
grön, 16 logið, 18 fiskinn,
19 gera oft, 20 eykta-
mark, 21 snaga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 sennilega, 8 undur, 9 nýtni, 10 róg, 11 kerra, 13
afinn, 15 bossa,
18 sátan, 21 rim, 22 spjót, 23 álfur, 24 grundinni.
Lóðrétt: 2 eldur, 3 narra, 4 langa, 5 gætti, 6 sukk, 7 einn,
12 rás, 14 frá, 15 bisa,
16 skjár, 17 artin, 18 smáði, 19 tófan, 20 norn.
K r o s s g á t a
ÞEGAR barnið mitt fermd-
ist á annan í hvítasunnu
gáfu eldri systkinin því rúm
og margt fleira sem var
keypt í Rúmfatalagernum í
Smáranum í Kópavogi.
Sá, sem keypti vörurnar,
valdi dýnu í rúmið hjá sölu-
manni og greiddi allar vör-
urnar við kassann. Seinna
kom í ljós að sá eða sú á
kassanum hafði látið kaup-
anda greiða fyrir miklu dýr-
ari dýnu en var valin. Þess
ber að geta að sú dýna var
ekki afgreidd frá verslun-
inni heldur kom önnur
dýna, 2000 kr. ódýrari.
Gæta verður þess að kassa-
kvittunin gildir sem
ábyrgðarskírteini.
Við búum úti á landi og
var greitt fyrir flutning við
kassann. Þar sem þetta var
fermingargjöf var ætlast til
að vörurnar kæmust í tæka
tíð til síns heima en svo varð
ekki. Grennslast var fyrir
um vöruna hjá flutnings-
aðila en hún fannst ekki og
var sagt að þetta væri ekki
ný bóla hjá Rúmfatalagern-
um, þeir ættu það til að
selja vöru í Kópavogi sem
þeir þyrftu svo að fá senda
frá öðrum verslunum, t.d.
frá Akureyri. En sagan er
ekki öll sögð. Þegar loksins
rúmið kemur, viku eftir
fermingu, reyndar skilið
eftir við þjóðveginn, kíló-
metra frá viðtökustað, þá
vantar botninn í það.
Þegar gerð er athuga-
semd við verslunina er sagt
að botninn þurfi að kaupa
sér.
Til efs er að það sé eðli-
legur viðskiptamáti að selja
botnlaus rúm og það án
þess að þess sé getið við
kaupanda.
Mætti líkja þessu við að
kaupa nýjan bíl og þegar
ætti að aka honum kæmi í
ljós að vélina vantaði.
Þá skal þess getið að
kvartað var við lager versl-
unarinnar og var sagt þar
að verslunarstjórinn væri
upptekinn. Tók maðurinn
niður númerið og sagði að
hann myndi hringja innan
stundar. Ekki varð af því.
Þeir sem ætla að versla
þarna ættu að hyggja vel að
því að þeir fái og greiði fyrir
þá vöru sem þeir völdu.
Verslunarmáti eins og lýst
er hér að ofan er ekki hrós-
verður.
Víst er að langur tími
mun líða þar til mín fjöl-
skylda verslar þarna aftur.
Kt. 280347-3379.
Góðar
útvarpsstöðvar
ÉG las um daginn í Velvak-
anda ábendingu um tvær
útvarpsstöðvar. Þegar ég
las þetta mundi ég allt í
einu eftir því að ég veit um
aðrar tvær útvarpsstöðvar
sem flytja boðskap sem hef-
ur gjörbreytt mínu lífi til
hins betra. Þessar stöðvar
eru Lindin á FM 102,9 og
KFM á 107,0.
Bjartmar Leósson.
Tapað/fundið
Drengjahjól
og úlpa töpuðust
DRENGJAGÍRAHJÓL,
gult og svart, hvarf frá
Keilufelli um hvítasunnu-
helgina. Einnig tapaðist
svört Nike-dúnúlpa á
Leiknisvelli. Úlpan er af
stærðinni 128. Úlpan er
merkt. Þeir, sem geta gefið
einhverjar upplýsingar,
vinsamlegast hafið sam-
band í síma 557-7289.
Stormúr í óskilum
STORMÚR fannst í miðbæ
Reykjavíkur föstudags-
kvöldið 8. júní sl. Upplýs-
ingar í síma 869-4067.
Utanborðsvél
hvarf úr Gunnunesi
UTANBORÐSVÉL af
gerðinni Mercury Sea Pro,
25 ha., svört að lit með
löngum legg, meðfylgjandi
rauður 25 l. eldsneytis-
geymir og tvær árar, hvarf
úr Gunnunesi við Þerneyj-
arsund aðfaranótt þriðju-
dagsins 11. júní sl. eða þann
dag. Á legg vélarinnar er
áfestur svartur stýriuggi,
eða vængur. Þeir sem verða
vélarinnar varir eru beðnir
um að gera viðvart í síma
892-7946 (Haraldur) eða
847-5915 (Sölvi).
Grænt hjartalaga
nisti tapaðist
GRÆNT hjartalaga nisti
úr kristal tapaðist í eða við
Leifsstöð eða í eða við Aust-
urver laugardaginn 9. júní
sl. Nistið hefur mikið til-
finningalegt gildi fyrir eig-
andann og þess er sárt
saknað. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Önnu í
síma 551-8824.
Lyklakippa
í óskilum
LYKLAKIPPA fannst við
grillið í Elliðaárdalnum
mánudaginn 11. júní sl.
Upplýsingar í síma 698-
0752.
Dýrahald
Kettlinga
vantar heimili
FALLEGIR tíu vikna kett-
lingar (fress) óska eftir góð-
um heimilum hjá dýravin-
um. Þeir eru kassavanir.
Upplýsingar í síma 694-
2312.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Botnlaust
rúm