Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HEILBRIGÐISSTOFNUN Suður-
nesja hefur samið við heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið um árang-
ursstjórnun. Jafnframt hefur stofn-
unin fengið viðbótarfjármagn, lið-
lega 80 milljónir kr., til rekstrarins í
ár og til að standa undir rekstrar-
halla síðustu ára.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, undirritaði
samninginn fyrir hönd ríkisins í
fyrradag. Er þetta fjórtándi samn-
ingur ráðuneytisins um árangurs-
stjórnun heilbrigðisstofnana.
Jóhann Einvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, segir að með samningn-
um sé gengið frá því hvaða verkefni
stofnunin eigi að sinna á sviði heilsu-
gæslu og sjúkrahúsrekstrar. Hann
feli í raun í sér staðfestingu á þeirri
þjónustu sem þar hafi verið þróuð á
undanförnum árum.
Líkt og í fyrri samningum um ár-
angursstjórnun er kveðið á um gagn-
kvæmar skyldur heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins og
stofnunarinnar er lúta að starfssviði,
verkefnum, rekstrarumfangi, söfnun
upplýsinga, samskiptum, áætlana-
gerð og mati á árangri. Með gerð
áætlana sem samningurinn kveður á
um er mótuð stefna um þjónustu og
rekstur til næstu ára. Sýna skal fram
á árangur af starfseminni í árs-
skýrslu með samanburði við sett
markmið, segir í fréttatilkynningu
frá ráðuneytinu.
Losna við skuldahalann
Samhliða samningi um árangurs-
stjórnun var undirritað samkomulag
um lausn á fjárhagsvanda Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja. Samkvæmt
því fær stofnunin viðbótarframlag
vegna rekstrar þessa árs, auk fram-
lags vegna rekstarhalla síðasta árs,
samtals 81,3 milljónir króna. Í samn-
ingnum er kveðið á um ýmsar ráð-
stafanir til að styrkja fjármála-
stjórnun stofnunarinnar og til að
tryggja að reksturinn verði innan
fjárheimilda á árinu 2001 og þjón-
ustan í samræmi við markmið samn-
ings um árangursstjórnun.
Jóhann segir að viðbótarframlagið
sé heldur lægra en stofnunin hafi
farið fram á en hann telur eigi að síð-
ur að það muni duga. Hann segir að
það muni gjörbreyta starfsaðstöð-
unni að losna við skuldahalann.
Ekki er gert ráð fyrir viðbótar-
fjármagni vegna þeirrar viðbótar
sem felst í D-álmu sjúkrahússins
sem nú er verið að byggja. Jóhann
segir að samningar kveði á um að
önnur hæðin verði tekin í notkun um
mitt næsta ár og fjármögnun vegna
aukinnar starfsemi komi því inn á
fjárlög ríkisins fyrir næsta ár.
Árangursstjórnun á sjúkrahúsinu
Fá 80 milljónir
króna í viðbót
Reykjanesbær
FULLTRÚAR úr bæjarstjórn Sand-
gerðis og bæjarstjóri létu hendur
standa fram úr ermum, í bók-
staflegri merkingu, þegar þeir
unnu við að einangra loftið í nýjum
sal sem verið er að útbúa í Fræða-
setrinu. Náttúrustofa Reykjaness
fær inni húsi Fræðasetursins að
framkvæmdum loknum. Vinnan
hefur dregist nokkuð og þess vegna
gengu bæjarfulltrúar sjálfir í verk-
ið, í sjálfboðavinnu. Gekk þetta vel
hjá þeim enda eru smiðir í bæj-
arstjórninni, byggingatæknifræð-
ingur, rafvirki og húsmæður. Hóp-
urinn stillti sér upp til myndatöku
áður en þeir tóku til við að gæða sér
á kaffi og pönnukökum í tilefni af
afmæli eins bæjarfulltrúans.
Létu hend-
ur standa
fram úr
ermum
Sandgerði
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur út-
hlutaði lóðum eða byggingaleyfum
fyrir um 25 íbúðum á fundi sínum í
vikunni. Telur bæjarstjórinn að það
sé með því mesta sem gert hafi verið
á einum fundi.
Að tillögu skipulags- og bygginga-
nefndar úthlutaði bæjarstjórn 8 lóð-
um fyrir um 10 íbúðir og 14 bygg-
ingaleyfum fyrir tæplega 20 íbúðum.
Að hluta til er um sömu framkvæmd-
ir að ræða en Einar Njálsson bæj-
arstjóri telur að leyfin séu fyrir lið-
lega 25 íbúðum alls. Flestar
íbúðirnar eru í nýja hverfinu norðan
Kúadals.
Veitt leyfi
fyrir 25
íbúðum
Grindavík
Samið á
Heilbrigð-
isstofnun
Reykjanesbær
SAMNINGANEFNDIR Starfs-
mannafélags Suðurnesja og ríkisins
hafa skrifað undir nýjan kjarasamn-
ing fyrir starfsmenn innan félagsins
sem starfa hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja og Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja. Boðuðu verkfalli sem hefj-
ast átti aðfaranótt næstkomandi
mánudags hefur verið aflýst.
Starfsmannafélag Suðurnesja
semur fyrir 40 starfsmenn á heil-
brigðisstofnuninni og tvo í fjöl-
brautaskólanum, meðal annars
læknaritara, móttökuritara og skrif-
stofufólk.
Ragnar Örn Pétursson, formaður
félagsins, segir að tekist hafi að
lækka lægstu laun og lagfæra kjör
þess hluta starfsfólksins sem verið
hafi á lægri launum en sambærilegir
hópar. Samningurinn gildir frá 1.
júní sl. til nóvember 2004 og þótt
áhrif samningsins hafi ekki verið að
fullu metin áætlar Ragnar Örn að
launahækkanir á samningstímanum
samsvari um 30%.
Samningurinn verður kynntur á
fundi næstkomandi þriðjudagskvöld
og síðan borinn undir atkvæði.
BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar hefur
hafnað boði Jóns G. Gunnlaugssonar
um að kaupa fasteignir og rekstur
Sæfiskasafnsins í Höfnum.
Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir
að þótt erindi Jóns hafi verið hafnað
sé áhugi á því að finna leiðir til að
koma til móts við hann. Safnið sé mik-
ilvægt fyrir ferðaþjónustuna, þangað
komi 30-40 þúsund gestir á ári. Því
verði gengið til viðræðna um málið og
ef eigandinn vilji þá verði reynt að
finna samstarfsaðila úr röðum hags-
munaaðila til að mynda rekstrar- eða
eignarhaldsfélag um Sæfiskasafnið.
Hafna
kaupum á
Sæfiskasafni
HafnirUNGLINGAR úr vinnuskóla
Reykjanesbæjar taka víða til hend-
inni í bænum þessa dagana, ekki
síst við að snyrta og fegra umhverf-
ið. Þau fá til dæmis verkefni við að
mála hús og slá gras. Vinnuskólinn
er fyrir nemendur áttunda, níunda
og tíunda bekkjar. Þá eru haldin
námskeið fyrir nemendur sjöunda
bekkjar. Þessir knáu vinnu-
skólapiltar voru á dögunum að
mála staura sem notaðir eru til að
afmarka bílastæði við Duus-húsin í
Keflavík og að því loknu áttu þeir
að fara upp á Berg í sömu erinda-
gjörðum.Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vinnuskól-
inn snyrtir
og fegrar
Reykjanesbær
FRAMKVÆMDASTJÓRI SBK
hf. segir að ekki séu rekstrarleg-
ar forsendur til að fjölga ferðum
í Garð. Hann tekur fram að fyr-
irtækið aki þangað tvisvar á dag
á virkum dögum og einu sinni
um helgar.
Hreppsnefnd Gerðahrepps
hefur óskað eftir því við Vega-
gerðina, að SBK verði svipt sér-
leyfi til farþegaflutninga til og
frá Garði. Telur hreppsnefndin
að fyrirtækið sinni ekki skyldu
sinni til aksturs samkvæmt sér-
leyfi.
Aka samkvæmt
sérleyfi
Einar Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri SBK, segir að
SBK hf. hafi samið við Gerða-
hrepp og Sandgerðisbæ um að
sveitarfélögin styrktu áætlunar-
ferðir til staðanna. Eftir ár hafi
Gerðahreppur sagt samningnum
upp, hætt að styrkja ferðirnar,
en viljað eftir sem áður halda
uppi óbreyttum samgöngum.
Einar segir að það hafi ekki ver-
ið hægt. Þessar ferðir hafi ekki
staðið undir sér, hafi raunar
ekki gert það í áratugi og því
hafi SBK og eigendur fyrirtæk-
isins verið að greiða niður þjón-
ustu við íbúa Gerðahrepps. Þess
vegna hafi verið nauðsynlegt að
fækka ferðum í Garð, þegar
hreppsnefndin hætti að greiða
fyrir aukna þjónustu.
Gerðahreppur hefur vísað til
sérleyfis SBK frá 1996, þar sem
gert var ráð fyrir fleiri ferðum.
Einar segir að hreppsnefndin
virðist föst í gamla tímanum.
Ekki sé hægt að ætlast til þess
að fyrirtæki aki eftir sérleyfi
sem ekki séu rekstrarlegar for-
sendur fyrir og það hafi Vega-
gerðin staðfest. Þá hafi sérleyf-
inu verið breytt á síðasta ári og
nú aki SBK til Garðs eftir því
sérleyfi sem í gildi er.
SBK vill ekki sleppa sérleyf-
inu til Garðs að svo stöddu. Ein-
ar segir að nú standi yfir endur-
skoðun á áætlunarsamgöngum á
landsbyggðinni og breytingarn-
ar nái til Suðurnesja eins og
annarra héraða landsins. Þjón-
ustuþörf við hvern einstakan
stað verði metin, meðal annars
Garðinn og vonandi fylgi aukið
fé, því ljóst sé að einhver þurfi
að greiða fyrir aukna þjónustu.
SBK ekur tvisvar á dag í Garðinn
Ekki forsendur
fyrir aukinni
þjónustu
Garður
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar hefur
samþykkt að leggja 15 milljónir kr. í
lagfæringar á húsinu við Duusgötu 10
til að þar verði hægt að koma upp
bátasafni Gríms Karlssonar.
Reykjanesbær hefur með aðstoð
Alþingis eignast bátasafnið. Það verð-
ur sett upp í gömlum fiskvinnsluhús-
um sem tengjast Duus-húsunum. Al-
þingi hefur veitt nokkra fjármuni til
safnsins og framlag Reykjanesbæjar
á að duga til að hægt verði að koma
safninu þar fyrir.
15 milljónir í
Duus-húsin
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦