Morgunblaðið - 15.06.2001, Page 48
MINNINGAR
48 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Auður Guðjóns-dóttir fæddist að
Skaftafelli í Vest-
mannaeyjum 7. apríl
1918. Hún lést á
Öldrunardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á
Ísafirði 30. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Guðjón
Hafliðason útgerðar-
maður og skipstjóri í
Skaftafelli í Eyjum,
og kona hans Hall-
dóra Kristín Þórólfs-
dóttir húsmóðir.
Auður var fjórða í
röðinni af ellefu systkinum. Þau
eru Ingólfur, f. 5.7. 1913, látinn.
Trausti, f. 13.3. 1915. Guðbjörg, f.
26.12. 1916. Haraldur, f. 12.12.
1920, látinn. Rebekka, f. 23.3.
1923, látin. Elísabet G. Cortes, f.
5.3. 1926. Óskar, f. 26.12. 1927.
Anna, f. 10.11. 1929. Ester, f. 4.4.
1934. Hafliði, f. 21.4. 1936.
Þann 17.8. 1946 giftist Auður
Höskuldi Árnasyni, gullsmið, f.
6.6. 1898, d. 21.3. 1977. Hann var
sonur Árna Árnasonar, smiðs og
fiskimatsmanns frá Innsta-Landi
í Skagafirði og Filippíu Sigurð-
ardóttur húsfreyju frá Hofi í
Svarfaðardal. Stjúpbörn Auðar
eru Filip Þór, f. 10.9. 1931, skip-
stjóri, kvæntur Önnu Hjartar-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Jóna Valgerður, f. 28.3. 1933,
hjúkrunarfræðingur, var gift
Gísla H. Guðlaugs-
syni sem er látinn og
eignuðust þau fimm
börn. Árni, f. 30.3.
1934, gullsmiður,
kvæntur Ásu Ketils-
dóttur og eiga þau
fjögur börn. Börn
Auðar og Höskuldar
eru Davíð Arndal, f.
22.12. 1946, málara-
meistari, kvæntur
Sigríði Svavarsdótt-
ur og eiga þau þrjú
börn. Anna, f. 26.9.
1948, hjúkrunar-
fræðingur, gift Agli
G. Egilssyni og eiga þau eitt barn.
Guðjón Halldór, f. 25.1. 1950, mál-
arameistari og á hann tvö börn.
Gunnhildur Inga, f. 29.8. 1951,
sjúkraliði gift Ólafi S. Ögmunds-
syni og eiga þau tvö börn. Auður
Arna, f. 4.9. 1956, skrifstofumað-
ur. Brynhildur Rebekka, f. 29.1.
1960, gift Marselíusi Guðmunds-
syni og eiga þau fjögur börn.
Ung að árum fór Auður til Sví-
þjóðar og var þar þjónustustúlka.
Árið 1944 settist hún að á Ísafirði
og var lengst af húsmóðir á stóru
heimili en starfaði jafnframt utan
heimilis í fjölda ára. Auður tók
virkan þátt í starfi Hvítasunnu-
hreyfingarinnar, einkum með
söng og hljóðfæraleik.
Útför Auðar fór fram 12. júní
frá Hvítasunnukirkjunni Fíla-
delfíu.
Hún amma mín, Auður Guðjóns-
dóttir, var Guðs barn af hreinni að-
dáun og mikil áskorun til eftirbreytni
hvernig hún lifði lífi sínu í ást til síns
Guðs og frelsara, Jesú Krists. Henn-
ar eiginmanns, Höskuldar Árnason-
ar afa míns, barna sinna, stjúpbarna,
tengdabarna, barnabarna og barna-
barnabarna.
Þótt ég myndi nota öll heimsins
orð til að reyna að lýsa hversu góð
hún var við mig alla daga og allar
okkar stundir hvar svo sem þær
voru, þó flestar hafi verið heima í
stofu hjá henni eða í eldhúsinu þar
sem alltaf var nóg af ískaldri mjólk
og kökum, þá myndu þau aldrei duga
til að lýsa því og þeirri ást sem ég
fann alltaf streyma frá henni og
þeirri hlýju sem gat alltaf yljað mér
um hjartarætur sama hve veruleik-
inn virtist grimmur. Hún var alltaf til
staðar og alltaf vildi hún allt fyrir
mig gera og veit ég að allir sem hittu
hana geta sagt það sama henni til
heiðurs og fyrir það vil ég þakka
elsku ömmu minni, Auði Guðjóns-
dóttur.
Ég er mjög stoltur af því að vera
hennar barnabarn og vonandi gerði
ég hana stolta af mér þessi fimmtán
ár sem við vorum saman nánast dag-
lega og einnig hin átta sem við vorum
fjarlægari vegna fjarlægrar búsetu
minnar.
Hún er nú farin til síns frelsara
Jesú Krists og ég veit að í dag lítur
hún niður úr Paradís og brosir til mín
sem minnist allra stunda okkar. Hún
er komin á þann stað sem hún stefndi
á allt sitt líf, Paradís.
Í Lúkasar guðspjalli segir frá
krossfestingu frelsarans með tveim-
ur föngum og annar þeirra biður
Jesú að minnast sín þegar hann kem-
ur í ríki sitt og Jesús svarar „Í dag
skalt þú vera með mér í paradís“.
Þegar lífi hennar hér á jörðu lauk
miðvikudaginn 30. maí þá fór hún til
Jesú í Paradís því hún elskaði hann
og hann elskar hana og þar er sála
hennar sæl. Páll postuli segir í Fil-
ippíbréfinu 1:21-24 versi að sá staður
sem hún sé á í dag sé mun betri en
jörðin og segir hann „Því lífið er mér
Kristur og dauðinn ávinningur. En
eigi ég áfram að lifa á jörðinni, þá
verður meiri árangur af starfi mínu.
Veit ég eigi hvort ég á heldur að
kjósa. Ég á úr tvennu vöndu að ráða.
Mig langar til að fara héðan og vera
með Kristi, því það er miklu betra.
En yðar vegna er það nauðsynlegt,
að ég haldi áfram að lifa hér á jörðu.“
Ég veit að einn dag munum við
amma vera saman á ný í nærveru
okkar algóða Guðs og frelsara okkar
Jesú Krists. Því að koma mun sá dag-
ur er hún kenndi mér mikið um og
sagði mikið frá, sá dagur er Drottinn
kemur að sækja þá er trúa á hann.
Eins og Jesaja spámaður hefur spáð
fyrir um og Jóhannes fékk opinberun
um þá mun sá tími koma að allir sem
trúa og hafa dáið í trú á Krist verða
saman á ný í hans helgu borg.
Jesaja 65 og opinberunarbókin 21
og 22.
„Sjá ég skapa nýjan himin og nýja
jörð, og hins fyrra skal ekki minnst
verða, og það skal engum í hug koma.
Gleðjist og fagnið ævinlega yfir því,
sem ég skapa, því sjá, ég gjöri Jerú-
salem að fögnuði og fólkið í henni að
gleði. Ég vil fagna yfir Jerúsalem og
gleðjast yfir fólki mínu, og eigi skal
framar heyrast þar gráthljóð eða
kveinstafir.
Úlfur og lamb munu vera saman á
beit, og ljónið skal hey eta sem naut.“
„Og ég sá nýjan himin og nýja
jörð, því sá fyrri himinn og hin fyrri
jörð voru horfin og hafið er ekki
framar til. OG ég sá borgina helgu,
nýja Jerúsalem, stíga niður af himni
frá Guði, búna sem brúði, er skartar
fyrir manni sínum. Og ég heyrði
raust mikla frá hásætinu, er sagði.
Sjá tjaldbúð Guðs er meðal mann-
anna og hann mun búa hjá þeim, og
þeir munu vera fólk hans og Guð
sjálfur mun vera hjá þeim, Guð
þeirra. Og hann mun þerra hvert tár
af augum þeirra. Og dauðinn mun
ekki framar til vera, hvorki harmur
né vein né kvöl er framar til. Hið
fyrra er farið.“
„Og hann flutti mig á anda upp á
mikið og hátt fjall og sýndi mér borg-
ina helgu, Jerúsalem, sem niður steig
af himni frá Guði. Hún hafði dýrð
Guðs. Ljómi hennar var líkur dýr-
asta steini, sem jaspissteinn kristals-
kær. Múr hennar var byggður af
jaspis og borgin af skíra gulli, sem
skært gler væri. Undirstöðusteinar
borgarmúrsins voru skreyttir alls
konar gimsteinum. Fyrsti var jaspis,
annar safír, þriðji kalsedón, fjórði
smaragð, fimmti sardónyx, sjötti sar-
dis, sjöundi krýsólít, áttundi beryll,
níundi tópas, tíundi krýsópras, ellefti
hýasint, tólfti ametýst. Og hliðin tólf
voru tólf perlur, og hvert hlið úr einni
perlu. Og stræti borgarinnar var af
skíru gulli sem gagnsætt gler. Og
musteri var ekki í henni, því að
Drottinn Guð, hinn alvaldi, er must-
eri hennar og lambið. OG borgin þarf
ekki heldur sólar við eða tungls til að
lýsa sér, því dýrð Guðs skín á hana og
lambið er lampi hennar. Og hliðum
hennar verður aldrei lokað um daga
– því að nótt verður þar ekki. Og
menn munu færa henni dýrð og veg-
semd þjóðanna.
Og hann sýndi mér móðu lífsvatns-
ins, skínandi sem kristall. Hún rann
frá hásæti Guðs og lambsins. Á miðju
stræti borgarinnar, beggja vegna
móðunnar, var lífsins tré, sem ber
tólf sinnum ávöxt. Á mánuði hverjum
gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins
eru til lækningar þjóðunum. Og eng-
in bölvun mun framar til vera. Og há-
sæti Guðs og lambsins mun í borg-
inni vera og þjónar hans munu
honum þjóna. Þeir munu sjá ásjónu
hans og nafn hans mun vera á ennum
þeirra. Og nótt mun ekki framar til
vera og þeir þurfa ekki lampaljós né
sólarljós, því að Drottinn Guð skín á
þá og þeir munu ríkja um aldir alda.“
Alla daga þá sagði hún mér að ekk-
ert kvöld færi hún að sofa án þess að
biðja Drottin Guð um varðveislu og
velgengni fyrir mig og alla sína fjöl-
skyldu. Fyrir það verð ég ævinlega
þakklátur henni og fyrir hennar
væntumþykju í minn garð. Ég elska
hana eins og ég hef alltaf gert og
sakna mikið en huggaður verð ég
þegar ég les 1. Þessalóníkubréf. 4:13-
18.
„Ekki viljum vér bræður, láta yður
vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir
eru, til þess að þér séuð ekki hryggir
eins og hinir, sem ekki hafa von. Því
að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn
og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú
leiða ásamt honum fram þá, sem
sofnaðir eru.
Því að það segjum vér yður, og það
er orð Drottins, að vér, sem verðum
eftir á lífi við komu Drottins, munum
alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu.
Því að sjálfur Drottinn mun stíga
niður að himni með kalli, með höf-
uðengils raust og með básúnu Guðs,
og þeir, sem dánir eru í trú á Krist,
munu fyrst upp rísa. Síðan munum
vér, sem eftir lifum, verða ásamt
þeim hrifnir burt í skýjum til fundar
við Drottin í loftinu. Og síðan munum
vér vera með Drottni alla tíma. Upp-
örvið því hver annan með þessum
orðum.“
Megi hennar minning verða varð-
veitt og heiðruð um alla tíma.
Haukur Örn.
AUÐUR
GUÐJÓNSDÓTTIR
!! "
#$% &"' (&"'
) *! ) *!
'% +,- " )"! (
./0#.012
3
4
!
#$ !%$
& !
'($ !% $ ')$*+$
5!* ! *5!
* ! * ! *5!" ,
0 6 7
0 #.2 8 5,9:;
9-!<
! ! !
'($ !% $ ',$++$
-
! . ! / - . % /0 $ '*"1++21+$
=9( #$ ($,,!
9-( 09<*! ( ($,,! #$ 9!< "
09<*! ( ($,,! /!<-9! 5! "
> *,09<*! ( ($,,! ? 7$!< ! "
!( -09<*! ( ($,,! 7"! ,>" ! "
* ! *5!" * ! * ! *5!
3 %
#@@
=! 9 !<
-!<
! ! !
'($ !% $ ',$++$
8 ##$% "
09 !#$% 8 " * 5! = " !($,,!
,-! ! 8 "
0!A, ! ! "
5! 8 ($,,! 7$!<9! 9! ! "
/!( 5- 8 ($,,! (9!= "
$ 5! 8 ($,,!
-9! 5! "
* ! *5!" * ! * ! *5!
. /@00722
-! "!<-!<
*$ !% ! "
- ! %
')$ !% $ '*$*+$
4
7"! , " #$ B% > ($,,!
* 5! 7"! , ($,,!
7! 7"! , " =9( #$ ($,,!
!,7"! , " ! ! , ($,,!
#$!7"! , " 7$!"*
! C$! 7"! , ($,,! 09<>9(9! 9!< "
!<9!2(( , ($,,!
?@
@/202
&!,>( ><9!" !, , $!
-! B
7!%",D;
! 5! %
')$ !% $ ')$++$
9!? ($,,!
8 !? "
E !? "
, ( *5!* ! *5!
" * ! * ! *5!
" <
6 ! 78 $ 499-:;< :9<=
%
')$ !%$
! ><90