Morgunblaðið - 15.06.2001, Qupperneq 50
FRÉTTIR
50 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Safnaðarstarf
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11-
12:30. Lofgjörð, barnasaga, prédik-
un og biblíufræðsla þar sem ákveðið
efni er tekið fyrir, spurt og svarað.
Barna- og unglingadeildir á laug-
ardögum. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu-
dagskvöld kl. 21. Styrkur unga
fólksins. Dans, drama, rapp, prédik-
un og mikið fjör.
KEFAS. Breyttur samkomutími.
Samkoma kl. 19:30 í kvöld. Ræðu-
maður Björg R. Pálsdóttir. Mikill
söngur og guðs blessun. Allir vel-
komnir.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður frá Maranatha.
(Maranatha er hópur fólks sem
ferðast um heiminn og vinnur end-
urgjaldslaust í þágu þeirra safnaða
sem þau heimsækja).
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur frá Maranatha.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Gavin Anthony.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Loftsalurinn,
Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta kl. 11. Biblíufræðsla kl. 12.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Fermingar
um helgina
Sleðbrjótskirkja: Messa laugardag-
inn 16. júní kl. 11. Prestur sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir. Organisti
Rosmary Hewlett. Fermd verður
Kolbrún Tinna Guttormsdóttir,
Fögruhlíð.
Mjóafjarðarkirkja: Messa laugar-
dag, 16. júní, kl. 14. Prestur sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir. Organisti
Kristján Gissurarson. Fermd verð-
ur Aðalheiður Elfrid Heiðarsdóttir.
Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarmessa
sunnudag kl. 14. Prestur sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir. Organisti
Rosmary Hewlett. Fermdar verða:
Elín Adda Steinarsdóttir, Hallfreð-
arstöðum, og Árný Birna Árnadótt-
ir, Straumi. Allir velkomnir. Sókn-
arprestur.
Vesturhópshólakirkja. Fermingar-
messa. Prestur sr. Sigurður Grétar
Sigurðsson. Fermdar verða Elín
Ósk Björnsdóttir, Neðri-Þverá, og
Sólveig Hulda Benjamínsdóttir,
Þorfinnsstöðum.
Barðskirkja í Fljótum. Hátíðar-
messa laugardaginn 16. júní kl. 13.
Fermd verður Sigurlaug Jónína
Ólöf Þorsteinsdóttir, Helgustöðum,
Fljótum.
Bjarnarhafnarkirkja. Ferming
sunnudag kl. 16. Fermdur verður
Kristján Hildibrandarson, Bjarnar-
höfn.
Valþjófsstaðarkirkja. Fermingar-
messa 17. júní kl. 11. Fermd verður
Helga Eyjólfsdóttir frá Melum í
Fljótsdal.
Hafnarfjarðarkirkja.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐINU hefur borist
til birtingareftirfarandi yfirlýsing
frá Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins:
„Í viðtali Morgunblaðsins við
félagsmálaráðherra 13. júní um
rekstrarvanda Greiningar- og ráð-
gjafarstöðvar ríkisins koma fram
upplýsingar um rekstur stofnunar-
innar, sem eru til þess fallnar að
valda misskilningi hjá þeim, sem
ekki þekkja til. Því er rétt að gera
grein fyrir fáeinum staðreyndum í
málinu.
1. Rekstraráætlanir stöðvarinnar
gera ekki ráð fyrir að stofnunin
eyði 14,5 milljónum króna meira í
ár en í fyrra, líkt og kemur fram í
viðtalinu. Rekstraráætlun gerir í
meginatriðum ráð fyrir óbreyttum
rekstri. Væntanlegur halli stöðvar-
innar á þessu ári er um 4,5 millj-
ónir, verði ekki dregið úr starfsem-
inni. Þetta er sama upphæð og á
síðasta ári eftir að tekið hefur verið
tillit til aukafjárveitinga frá félags-
málaráðuneyti og aukinna sértekna.
2. Greiðslur vegna ferða erlendis
námu 2,2 milljónum á síðasta ári.
Um er að ræða kostnað vegna sí-
menntunar sérfræðinga, sem er að
miklu leyti bundinn kjarasamning-
um, sbr. kjarasamninga sjúkrahús-
lækna. Einnig voru erlendar ráð-
stefnur sóttar, þar sem
sérfræðingar stöðvarinnar kynntu
niðurstöður rannsókna sinna. For-
ráðamenn stöðvarinnar urðu að
hafna mörgum umsóknum starfs-
manna um þátttöku í erlendum
námskeiðum og ráðstefnum.
3. Risna stofnunarinnar á síðasta
ári nam um 130 þúsundum króna
og var með vitund og samþykki
ráðuneytis. Hún fólst í stuðningi
stöðvarinnar við árshátíð og vorferð
starfsfólks.
4. Aðkeypt sérfræðiþjónusta er
að verulegu leyti kostnaður vegna
beinnar þjónustu við skjólstæðinga.
Sem dæmi má nefna aðkeypta
þjónustu talmeinafræðinga, þar
sem ekki hefur í tvö ár tekist að
ráða talmeinafræðing til stöðvar-
innar vegna launamismunar. Nið-
urskurður slíkrar þjónustu kæmi
beint niður á skjólstæðingum stöðv-
arinnar.
5. Læknar eru sérstaklega til-
teknir í viðtali við ráðherra.
Læknar stöðvarinnar njóta sam-
bærilegra kjara og sérfræðingar
annars staðar í heilbrigðiskerfi og
þiggja laun samkvæmt miðlægum
samningum læknafélaganna.
Áhyggjur forráðamanna Greining-
arstöðvar vegna launaþróunar bein-
ist að öðrum stéttum en þeim.
6. Þótt ekki sé um að ræða
vaktavinnu á Greiningarstöð eins
og á sjúkrahúsum, koma upp tilvik
vegna álags þar sem full þörf er á
yfirvinnu. Fjárhagsstaða stöðvar-
innar leyfir ekki slíkt nema að litlu
leyti.
7. Sérfræðingar Greiningarstöðv-
ar fá að sjálfsögðu laun samkvæmt
gildandi samningum. Í framhaldi af
miðlægum samningum stéttar-
félaga við ríkið verða gerðir stofn-
anasamningar við flest stéttarfélög.
Við gerð þeirra fer ekki hjá því að
starfsfólk líti til hærra launaðra
starfa annars staðar, ekki aðeins
hjá ríkinu, heldur einnig hjá sveit-
arfélögum og sjálfstæðum stofnun-
um, sem eru að miklu leyti reknar
fyrir opinbert fé. Ekki er hægt að
koma til móts við auknar launakröf-
ur nema til komi aukið fjármagn.
Félagsmálaráðherra og ráðuneyti
hans hafa sýnt þörfum Greining-
arstöðvar mikinn skilning á liðnum
árum og vonandi að svo verði áfram
þar sem þörfin eykst í sífellu og
verkefnum fjölgar. Greiningarstöð-
in skammtar sér ekki verkefni sjálf,
heldur sinnir fötluðum börnum og
ungmennum, sem er vísað þangað
til greiningar. Rekstrarhalli stofn-
unarinnar stafar af því að fjárveit-
ingar hafa ekki nægt til að mæta
þessari þörf.“
Yfirlýsing frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins vegna viðtals
Rekstraráætlun gerir ráð
fyrir óbreyttum rekstri
VIÐ skólaslitaathöfn í Vélskóla
Íslands 2. júní síðastliðinn voru
brautskráðir 22 vélstjórar og
vélfræðingar. Athöfnin fór fram
í hátíðarsal Sjómannaskólans að
viðstöddum fjölmörgum gestum.
Sex voru brautskráðir með 1.
stig, tveir með 2. stig og fjórtán
með 4. stig, sem er grunnurinn
undir mestu starfsréttindi, og er
það 208 eininga nám. Einnig
hafa þrettán útskrifast á önninni
með vélgæslumannaréttindi.
Á þessari vorönn hafa fimm
stúlkur stundað nám við skólann
og er það mesti fjöldi sem hefur
verið við nám samtímis í Vél-
skóla Íslands. Tvær útskrifuðust
að þessu sinni með 1. stig.
Að lokinni útskriftarathöfn
fengu eftirtaldir 4. stigs út-
skriftarnemar verðlaun: Ástmar
Sigurjónsson fyrir góðan náms-
árangur í raungreinum, ensku
og íslensku. Jón Haraldsson fyr-
ir mikið námsálag og almennt
góðan námsárangur. Sigurþór
Þórsson hlaut sérstök verðlaun
sem gefin eru af LÍÚ fyrir best-
an námsárangur í samanlögðum
vélfræðigreinum, einnig hlaut
hann sérstök verðlaun frá Olíu-
félaginu ESSO fyrir bestan
námsárangur í samanlögðum
rafmagnsfræðigreinum. Auk
þess hlaut Sigurþór verðlaun
fyrir góðan námsárangur í vél-
smíði og dönsku. Sigþór Hjart-
arson hlut verðlaun fyrir góðan
námsárangur í rafeindatækni.
Vernharður Jósefsson hlaut
verðlaun fyrir góðan náms-
árangur í iðntölvufræðum. Vél-
stjórafélag Íslands veitti Krist-
jáni Reykdal sérstaka
viðurkenningu fyrir störf að
félagsmálum.
Margir árgangar eða fulltrúar
árganga mættu við skólaslitin
og má þar nefna 10 ára, 25 ára,
40 ára og 50 ára útskrift-
arnema. Kveðja barst frá 30 ára
útskriftarnemum en þeir héldu á
útskriftardaginn í skemmtisigl-
ingu um Miðjarðarhafið. Tíu ára
útskriftarnemar færðu skólanum
að gjöf íhluti í eimkerfi svo sem
gufugildrur og fleira, hlutir sem
koma sér mjög vel í kennslunni.
Guðmundur Hagalín Guðmunds-
son flutti kveðju fyrir hönd 25
ára útskriftarnema, óskaði nýút-
skrifuðum vélstjórum velfarn-
aðar og færði skólanum kveðjur
og þakkir. Fyrir hönd fjörutíu
ára útskriftarnema talaði Gunn-
ar Guttormsson, minntist skóla-
áranna og flutti heillaóskir til
útskriftarnema. Fyrir hönd síns
árgangs færði hann skólanum
að gjöf mjög vandaðan skjá-
varpa sem er mikill fengur fyrir
skólann á þessum tímum tölvu-
væðingar.
Meðal gesta var fyrrverandi
skólameistari, Andrés Guð-
jónsson, og kona hans, Ellen
Guðjónsson. Þorsteinn Jónsson
vélfræðikennari, sem starfað
hefur við skólann síðan 1977 og
lætur nú af störfum vegna ald-
urs, var kvaddur við skólaslita-
athöfnina. Auk kennslunnar hef-
ur Þorsteinn unnið að ýmsum
nýjungum í vélfræðikennslunni
og aðlögun að alþjóðakröfum. Í
ræðu sinni minntist skólameist-
ari, Björgvin Þór Jóhannsson,
100 ára afmælis Gunnars
Bjarnasonar, fyrrverandi skóla-
meistara Vélskólans, en vél-
stjóramenntunin og tækni-
menntun á Íslandi á honum
mikið að þakka, segir í frétt frá
skólanum. Gunnar fæddist 12.
febrúar 1901 og lést 24. sept-
ember 1987.
Skólameistari sagði að kenn-
araverkfallið hefði haft í för
með sér ýmis óþægindi fyrir
nemendur og skólastarfið í
heild, sem meðal annars hefði
leitt af sér óvenju hátt brottfall
nemenda frá námi og stuðlað að
fækkun í skólanum. Enn fremur
gat hann þess að stöðugar fram-
farir væru í verklegri kennslu
og unnið að endurnýjun á
kennslutækjakosti. Hann þakk-
aði þeim fjölmörgu sem studdu
skólann á liðnu skólaári með
tækjabúnaði eða á annan hátt.
Útskriftarnemar 4. stigs að lokinni útskriftarathöfn í Hátíðarsal skólans.
Tuttugu og tveir vélstjórar braut-
skráðir frá Vélskóla Íslands