Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 51
- frá einni fullkomnustu
parketverksmiðju í Evrópu!
Verðdæmi:
Eik Unique 14mm 3ja stafa
Tilboð kr. 2.650,- m2
Beyki Classic 14 mm 3ja stafa
Tilboð kr. 2.707,- m2
Jatoba Elegance 14mm 3ja stafa
Tilboð kr. 4.110,- m2
Fjallahlynur 14mm 3ja stafa
Tilboð kr. 2.852,- m2
BALTIC WOOD
parket
Verðdæmi:
Merbau, Hlynur, Beyki, Eik 7mm
Tilboð kr. 1.190,- m2
Kirsuber, Mahony, Eik og Beyki 8mm
Tilboð kr. 1.380,- m2
BERRY FLOOR plastparket
SJÓMENNIRNIR Geir Sigurjóns-
son, Gunnbjörn Jónsson, Ólafur
Halldórsson og Baldur Jóhannsson
voru heiðraðir í tilefni sjómanna-
dagsins í Hafnarfirði.
Valgerður Sigurðardóttir, forseti
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og for-
maður hafnarstjórnar, Kristín Gunn-
björnsdóttir, fulltrúi SVDK Hraun-
prýði, og Guðbjartur Gunnarsson,
sjómaður, fluttu ávörp.
Valgerður sagði m.a. að störf sjó-
manna, sjósókn og siglingar hefðu
verið grundvöllur byggðar í Hafnar-
firði allt frá miðri 15. öld. Fyrirtæki
hefðu byggst upp til þjónustu við
sjávarútveginn og hægt væri að
rekja þá uppbyggingu langt aftur. Á
síðustu tæpum tveim áratugum
hefðu Hafnfirðingar sem og aðrir
landsmenn staðið frammi fyrir mikl-
um breytingum í sjávarútvegi, út-
gerð og landvinnslu. Horft hefði ver-
ið á eftir bátum og togurum sigla
burt frá Hafnarfirði til annarra
landshluta, ef ekki enn lengra til
framtíðarstarfa. Þrátt fyrir þær
breytingar og stundum erfiðleika,
sem slíkar burtsiglingar hefðu valdið
Hafnfirðingum, hefðu þeir ætíð horft
fram á veginn og leitað nýrra leiða. Í
því sambandi nefndi hún að Hafnar-
fjarðarhöfn væri í mikilli uppbygg-
ingu og hafnsækin starfsemi væri í
örri þróun. Í Hafnarfirði væri öflug-
ur fiskmarkaður starfandi, aðstaða
til smábátaútgerðar væri hin besta
og nýlega hefði verið keyptur til
hafnarinnar einn öflugasti dráttar-
bátur landsins. „Ágætu sjómenn,
hetjur hafsins. Ykkar vinna, þarfir og
geta, hefur verið og er leiðarljós í
gegnum aldir í uppbyggingu bæjar
eins og Hafnarfjarðar,“ sagði hún.
„Þeim verður seint fullþakkað þeim
öflugu baráttumönnum og félögum
innan sjómannastéttarinnar sem
staðið hafa vörð um og unnið að
auknu öryggi og réttindum fyrir sjó-
menn og fjölskyldur þeirra.“
Hún sagði ennfremur að þrátt fyr-
ir breytingar liðinna áratuga væri
það sjósóknin sem væri grundvöllur
efnahagslegs sjálfstæðis Íslendinga.
Kristín gerði öryggismál sjó-
manna að umtalsefni. Hún minnti á
hlutverk Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, rifjaði upp merk tímamót í
sögu félagsins og áréttaði mikilvægi
Slysavarnaskóla sjómanna, sem var
stofnaður 1985. Í máli hennar kom
fram að um 16.500 manns hefðu sótt
námskeið skólans og þar af um 960 í
fyrra. „En starf skólans er rétt að
hefjast, því endurmenntun er nauð-
synleg og sjómenn eru búnir að átta
sig á að aldrei má víkja af þeirri braut
að fækka slysum á sjó. Eitt banaslys
hefur orðið frá síðasta sjómannadegi.
Það er einu slysi of mikið.“
Fjórir sjómenn heiðraðir
Ljósmynd/Högni Sigurðsson
Frá heiðrun sjómanna í Hafnarfirði. Frá vinstri: Gunnbjörn Jónsson og
Guðrún María Sigfúsdóttir, eiginkona hans, Geir Sigurjónsson og Berg-
sveina Gísladóttir, kona hans, og Ólafur Halldórsson og Margíea Reim-
arsdóttir, kona hans. Baldur Jóhannsson var ekki viðstaddur.
SJÓMANNADAGURINN
fór fram með hefðbundnu
sniði undir Jökli. Hátíðar-
höldin voru við höfnina á
Rifi á laugardag, þar sem
kappróður, koddaslagur og
ýmsar uppákomur voru
fram eftir degi. Sunnudag-
urinn hófst með fjölmennri
sjómannamessu á Ingjalds-
hóli, en sjómenn lásu ritn-
ingarorð.
Eftir hádegið á sunnudag
var safnast saman í Sjó-
mannagarðinum á Hellis-
sandi. Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri, flutti hátíðar-
ræðu og verðlaun vegna
keppni á laugardaginn voru
afhent. Tveir aldraðir sjó-
menn, Eggert Ingimundar-
son og Gunnar Guðlaugs-
son, voru sæmdir
heiðursmerki sjómanna-
dagsins. Unglingabjörgun-
arsveitin Drekinn sá svo
um leiki fyrir yngri kyn-
slóðina.
Að lokum var safnast
saman við aflraunasteina
sem félagar úr Lions-
klúbbi Nesþinga höfðu
fært Sjómannagarðinum.
Slíkir steinar voru rétt hjá
Keflavíkurvör á Drymbum
á Hellissandi fram yfir
miðja síðustu öld en þeir
hurfu í hafið í einu stór-
briminu. Þyngd steinanna
er sú sama og er á Steina-
tökunum á Djúpalónssandi
og bera þeir sömu nöfn.
Fullsterkur 154 kg, hálf-
sterkur 100 kg, hálfdrætt-
ingur 54 kg og amlóði 23
kg. Fyrstur til að koma
fullsterkum á stall var Ey-
þór Sigmarsson.
Aflraunasteinar í Sjómanna-
garðinum á Hellissandi
Hellissandi. Morgunblaðið.
Tveir aldraðir sjómenn, Eggert Ingimundarson og
Gunnar Guðlaugsson, voru sæmdir heiðursmerki.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
EINSTÖK veðurblíða lék um Óls-
ara um sjómannadagshelgina í ár og
tóku margir þátt í skemmti- og há-
tíðardagskránni.
Hátíðin hófst á laugardaginn við
bryggjuna, þar sem áhafnir báta
kepptu í kassaralli, trukkadrætti og
kappróðri við mikinn fögnuð við-
staddra. Sigursælasta liðið að þessu
sinni var áhöfnin á Gunnari Bjarna-
syni SH. Þá háðu einnig keppni í
sömu greinum sjómannskonur og
sjómannsdætur. Ungviðið keppti
síðan í brettahlaupi við bryggjuna.
Á hafnarbakkanum hafði einnig ver-
ið komið fyrir fiskabúrum, þar sem
gat að líta hinar ýmsu fiskitegundir
sem nytjaðar eru. Dagskráin á laug-
ardag endaði síðan með knatt-
spyrnuleik á Ólafsvíkurvelli, þar
sem heimamenn spiluðu við Fjölni
úr Grafarvogi. Leikurinn endaði
með markalausu jafntefli.
Að morgni sjómannadags var
boðið upp á skemmtisiglingu og var
hún vel sótt af fólki á öllum aldri.
Siglt var út á víkina, m.a. með við-
komu að Vallnabergi út af bænum
Brimilsvöllum í Fróðárhreppi. Farið
var á tveimur glæsilegum skipum
flotans, Steinunni SH og Aðalvík
SH, sem er nýjasti báturinn sem
gerður er út frá Ólafsvík.
Hátíðardagskrá hófst í sjómanna-
garðinum kl. 13:30. Hátíðarræðu
flutti Ásgeir Jóhannesson fv. for-
stjóri, en hann var um tíma skrif-
stofustjóri hjá kaupfélaginu Dags-
brún í Ólafsvík. Heiðursmerki
sjómannadagsins í ár hlutu Kristján
Helgason, hafnarvörður við Ólafs-
víkurhöfn, og Leifur Halldórsson,
fv. skipstjóri en núverandi fram-
kvæmdastjóri fiskverkunarinnar
Klumbu í Ólafsvík. Þá var Torfi Sig-
urðsson, trillusjómaður á Ýr SH,
heiðraður fyrir björgunarstörf en
hann bjargaði manni þegar kviknaði
í trillu út af Rifi í ágúst sl. Tvær
unglingahljómsveitir úr bænum
stigu á svið í sjómannagarðinum og
töframaður sýndi listir sínar. Að
lokinni dagskrá í sjómannagarðin-
um var farið í skrúðgöngu til messu
í Ólafsvíkurkirkju. Prédikun flutti
Lilja Stefánsdóttir, skipstjórar lásu
ritningarlestra, Erla Höskuldsdóttir
söng stólvers og prestur var sr.
Óskar Hafsteinn Óskarsson. Slysa-
varnadeildin Sumargjöf stóð svo
fyrir árlegri kaffisölu í safnaðar-
heimilinu að messu lokinni.
Að kvöldi sjómannadags hélt dag-
skráin áfram í félagsheimilinu Klifi
og boðið upp á hátíðarkvöldverð og
var Flosi Ólafsson veislustjóri. Að
kvöldverði loknum var stiginn dans
undir tónum hljómsveitarinnar
Upplyftingar. Hefð er fyrir því að
sjómannskonur séu heiðraðar í
Ólafsvík í þessu kvöldhófi og í ár
voru það systurnar Jenný og Metta
Guðmundsdætur sem heiðraðar
voru.
Kassarall, kapp-
róður og messa
Ólafsvík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Una Jónsdóttir
Heiðursmerki sjómannadagsins í ár hlutu Kristján Helgason, hafnar-
vörður við Ólafsvíkurhöfn, og Leifur Halldórsson, fv. skipstjóri en nú-
verandi framkvæmdastjóri fiskverkunarinnar Klumbu í Ólafsvík.
DAGSKRÁ Sjómannadags-
ins á Húsavík fór vel fram,
veður var með ágætasta móti
og hátíðarhöldin vel sótt.
Að venju voru húsvískir
sjómenn heiðraðir fyrir störf
sín og fór athöfnin fram í
Félagsheimili Húsavíkur þar
sem kaffisala Slysavarnar-
deildar kvenna fór fram. Að
þessu sinni voru Þórður Ás-
geirsson og Magnús Andrés-
son heiðraðir. Þórður fæddist
á Húsavík 4. júní 1930 og
Magnús er fæddur á Drangs-
nesi 13. september 1931.
Doddi og Maggi, eins og
þeir eru jafnan kallaðir, byrj-
uðu til sjós á sínum unglingsárum.
Þeir hafa stundað sjómennsku jafnt á
smærri bátum sem stærri skipum og
hafa unnið með öll algengustu veið-
arfæri. Þeir fóru báðir á vertíðir suð-
ur með sjó eins og algengt var, voru á
trillubát með sama nafni.
Þessi útgerð þeirra var far-
sæl og þeir kappsamir og
fiskimenn góðir. Árið 1971
létu þeir byggja fyrir sig 12
brl. bát á Seyðisfirði sem
þeir gerðu út til ársins 1978,
er þeir keyptu 20 brl. bát
sem þeir nefndu Ásgeir eins
og þá fyrri. Sameiginlegri
útgerð þeirra lauk svo 1984
er þeir seldu Ásgeir. Höfðu
þeir þá verið saman til sjós
og í útgerð í 26 ár. Þeir félag-
ar keyptu hvor sinn trillu-
bátinn og stunduðu sjóinn
áfram. Maggi hætti sinni út-
gerð 1998 og seldi bátinn.
Doddi er enn að og gerir út Ásgeir
ÞH sem er 8 brl. plastbátur. Ásgeir
sonur hans hefur að mestu tekið við
bátnum en Doddi er í landi við beitn-
ingu og annað sem til fellur við útgerð
í dag.
Þórður Ásgeirsson og Magnús Andrésson.
Húsavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Hafþór
Félagarnir Þórður og
Magnús heiðraðir
síldveiðum fyrir Norðurlandi og í út-
hafinu. Þeir félagar byrjuðu saman til
sjós 1959 og hófu síðan sameiginlega
útgerð 1961 er þeir létu byggja fyrir
sig 5 tonna trillu sem þeir nefndu Ás-
geir, en Doddi hafði áður gert út