Morgunblaðið - 15.06.2001, Qupperneq 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 55
ÉG sem íbúi og skattborgari í Kópa-
vogi er búinn að vera að berjast fyrir
því að vinnuvélar og vörubifreiðar
leggi ekki við húsið sem ég bý í að
Engihjalla 1 í Kópavogi.
Það er oft lagt þessum tækjum
austan við húsið í stæðum sem ætluð
eru fólksbílum en ekki vinnuvélum og
vörubifreiðum og öðrum stórum bíl-
um.
Frá þessum tækjum er mikil
mengun og hávaði, að ekki sé talaðum
slysahættu fyrir börn sem eru að leik
allt í kringum húsið. Ökumenn þess-
ara tækja eru oft að gangsetja þessi
tæki að nóttu til með miklum látum
og vekja bæði börn og fullorðna.
Ég hef sent lögreglu og bæjaryf-
irvöldum í Kópavogi bréf um þetta
málefni, þau benda hvert á annað
ogeins á húsfélagið eða íbúasamtök
Engihjalla, en þessi stæði eru ekki á
vegum húsfélagsins, þau eru í eigu
bæjarins.
Ég hef fengið svör frá lögreglu þar
sem bent er á 16. grein lögreglusam-
þykktar Kópavogsbæjar, en þar er
tekið fram að vöruflutningabílar sem
eru meira en 3 tonn að leyfðri heild-
arþyngd, svo og fólksflutningabif-
reiðar, sem gerðar eru til þess að
flytja 10 farþega eða fleiri, mega ekki
standa á götum eða almennum bif-
reiðastæðum bæjarins á tímabilinu
frá kl. 22:00 til kl. 6:00.
Bann þetta nær einnig til allra
gerða vinnuvéla og dráttarvéla án til-
lits til þunga þeirra. Bæjarstjórn get-
ur veitt undanþágu frá banni þessu
og skal þá afmarka og merkja sér-
staklega þá staði þar sem undanþág-
an hefur verið veitt. Í sömu grein seg-
ir jafnframt: Heimilt er að flytja brott
og taka í vörslu bæjarins bifreiðar
sem standa án skráningarnúmera á
götum og almennum bifreiðastæðum.
Tilkynna skal skráðum eiganda og
eða umráðamanni um flutninginn.
Hann ber kostnað vegna flutnings og
vörslu bifreiðarinnar.
En ekkert hefur verið gert í málinu
af hálfu Kópavogsbæjar eða lögreglu
í Kópavogi. Þessi stæði eru ekki
geymslustaður fyrir verktakafyrir-
tæki eða annan rekstur. Því geta öku-
menn þessara tækja ekki farið á sinn
vinnustað á sínum einkabíl eins flest-
ir aðrir bæjarbúar, frekar en að valda
ónæði og mengun?
GUÐJÓN ÓLAFSSON
Engihjalla 1,
200 Kópavogi.
Bílastæðin við
fjölbýlishúsið Engi-
hjalla 1 í Kópavogi
Frá Guðjóni Ólafssyni:
GREIN Hrafnhildar Tómasdóttur,
sem birtist í Morgunblaðinu 22. des-
ember sl. undir yfirskriftinni:
„Stéttaskipting framtíðarinnar“
opnaði augu mín fyrir ýmsu sem mig
langaði til að velta upp varðandi
starf mitt og starfsumhverfi okkar í
heimaþjónustu hjá Félagsþjónust-
unni í Reykjavík.
Innan stéttarfélagsins Eflingar er
stór hópur fólks sem vinnur á vegum
Félagsþjónustunnar í Reykjavík, við
heimaþjónustu. Um þessar mundir
er verið að gera miklar breytingar
hjá þessum hópi sem við þetta starf-
ar. Breytingarnar felast í að fara til
fólks á öllum aldri, sem þarf á aðstoð
félagsþjónustunnar að halda, en áð-
ur var eingöngu um að ræða þjón-
ustu við eldri borgara. Nú geta það
verið heimili sem þurfa aðstoð vegna
ýmiss konar veikinda, svo sem ein-
staklingar með geðröskun og fólk
með langveik börn, svo eitthvað sé
nefnt.
Mikið er búið að tala um þessar
breytingar, en ekki eru allir sem
skilja af hverju þær eru til komnar
þótt við vonum að þetta verði öllum
til góðs. Við sem sinnum þessum
störfum, innum þessa þjónustu af
hendi fyrir það fólk sem þarf hennar
við, með mikilli ánægju. Afskaplega
er sú hugsun ríkjandi hjá þeim yf-
irmönnum flestum sem ég hef heyrt
tala um þessa breytingu að þetta sé
bara mjög tilbreytingaríkt starf.
Ekkert minnst á ábyrgðina sem því
fylgir að þurfa að fara inn á heimili
þar sem reynir mjög mikið á andlegu
hliðina, ekki sýst eftir þær breyting-
ar sem nú er búið að framkvæma.
Fyrir fólk sem ekki þekkir vel allar
hliðar mannlífsins er þetta mjög erf-
itt. Mér finnst oft eins og starfsfókið
hafi alls ekki neitt val á því í hvað
það er sent og á að láta sér vel líka.
Vinnudagurinn byrjar kl. 9. Ef
starfsfólkið getur, kemur það 15
mínútum fyrr á viðkomandi skrif-
stofu þar sem deildarstjóri okkar er.
Koma sér svo á heimilin sem eru
mislangt í burtu. Svo það segir sig
sjálft að þær sem eiga lengst að fara,
koma ekki á skrifstofuna á undan.
Nú svo er þotið úr einum stað í ann-
an. Stundum 1 tími eða 2 tímar en
mjög sjaldan lengur á hverjum stað,
svo þetta er ansi mikill þeytingur og
við höfum ekki mikla orku til að fara
í líkamsrækt eða stunda annað upp-
byggjandi starf fyrir sál og líkama,
eftir þetta allt. Nei, við skulum öll,
sem vinnum þessi störf, vera sam-
mála um milkilvægi þeirra að þau
eru mjög krefjandi og full þörf á að
vera vakandi yfir öllu sem að þeim
lýtur.
Eitt sem gerir þann hóp er við
þetta starfar, sérstakan, er að vinnu-
félagar vinna aldrei saman og hittast
því örsjaldan. Þetta tel ég einsdæmi
og gerir manneskjuna veikari að
standa á sínu. Þetta segir okkur að
við höfum lítil samskipti, ræðum
aldrei okkar mál og verðum því ein-
angruð, sem leiðir til þess að sam-
staða er lítil og þyrfti nauðsynlega
að bæta úr því.
Nú stefnir hugsanlega í að samn-
ingar losni og reynir á að við séum
vakandi yfir þeirri mikilvægu vinnu
sem við innum af hendi og viljum að
verði metin af sanngirni. Nú er
miklu meiri þörf fyrir heimaþjón-
ustu en oft áður. Það vantar stofn-
anir fyrir eldra fólkið og fólk vill
vera heima eins lengi og það getur.
Það veit líka að Félagsþjónustan vill
aðstoða það og erum það ekki ein-
mitt við sem komum þar að. Við er-
um mjög mikilvægir starfskraftar
og eigum að láta alla vita af því.
Þjóðfélagið getur alls ekki verið án
okkar.
Vonandi verður vinnudagurinn
ekki lengri eftir þessa breytingu.
Breytingin framundan mun trú-
lega orsaka það að labbið utan dyra
verður meira því hvert svæði sem
viðkomandi aðili vinnur á, stækkar
gríðarlega. Ekki eru allir á bílum svo
það segir sig sjálft að vinnutíminn
nýtist verr. Einnig er hluti af þessari
breytingu að með fjölgun heimila
sem hver starfsmaður kemur á,
verður viðvera styttri og nánast um
innlit að ræða og því lítil félagsleg
samskipti við heimilisfólkið en oft
hefur nú verið í umræðunni á und-
anförnum árum, að þessi félagslegu
samskipti væru stór og ómissandi
þáttur í okkar þjónustu við eldri
borgara. Er miður ef dregur úr þeim
þætti starfsins.
SVANHILDUR
SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
starfsmaður heimaþjónustunnar á
Vitatorgi.
Störf og starfsum-
hverfi heimaþjónustu
Frá Svanhildi Sveinbjörnsdóttur:
Veistu að
það er 17. jú
ní
um næstu hel
gi
Já og þ
að er
17% afs
láttur
Opið mánud. - föstud. 13-18
laugard. kl. 10-16
sunnud. lokað
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
LAGER LOSUN
Hamraborg 3 (þar sem Blómahöllin var )
Tilboðs dæmi
(A)
Vandaðir leðurskór
stærðir 36-41
Verð 2.990 kr.
var 7.490 kr.
(C)
Heilsuinniskór
stærðir 42-46
Verð 990 kr.
var 1.990 kr.
(D)
„Buffalo“skór
stærðir 36-41
Verð 1.990 kr.
var 4.990 kr.
(B)
Léttir, þægilegir
stærðir 36-41
Verð 2.900 kr.
var 4.990 kr.
HAMRABORG 3 SÍMI 554 1754
Þjónustaí 35 ár