Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ GERIST æ algengara að per-
sónulegir munir þekkts fólks séu
boðnir upp og ágóðinn rennur ann-
aðhvort í vasa aðstandenda eða til
góðgerðarmála. Nú stendur til að
bjóða upp eigur Jimi heitins Hendrix
og á ágóðinn að renna til forvarn-
arstarfs gegn fíkniefnum en Hendrix
lést, eins og þekkt er orðið, af of
stórum skammti eiturlyfja í septem-
ber árið 1970.
Það er fyrrum unnusta Hendrix,
Kathy Etchingham, sem stendur
fyrir uppboðinu. Meðal þeirra muna
sem í boði verða er Epiphone-gítar
kappans, óbirtar ljósmyndir af hon-
um sem teknar voru af Lindu
McCartney og húsgögn úr íbúð hans
í London.
Uppboð í London
Reuters
Gítargoðið Jimi Hendrix.
Eigur Jimi
Hendrix
undir
hamarinn
Vélamaðurinn úr víti
(Hellraiser: Inferno)
H r o l l v e k j a
Leikstjórn Scott Derrickson.
Aðalhlutverk Craig Sheffer,
Nicholas Turturro. (95 mín.)
Bandaríkin 2000. Skífan.
Bönnuð innan 16 ára.
HÚN ER orðin alveg ágætlega
löng slóðin sem hin kynngimagn-
aða og frumlega hrollvekja Clive
Barkers, Hellrais-
er (1987), hefur
skilið eftir.
Umrædd mynd
ber undirtitilinn
Víti og er hvorki
meira né minna en
sú fimmta í Hell-
raiser-röðinni.
Það er gamla
unglingastjarnan
Craig Sheffer sem er í aðalhlut-
verki, en hann leikur gerspillta
löggu sem er að rannsaka óhugn-
anleg raðmorð. Allt í einu stendur
hann frammi fyrir því að þurfa að
súpa seyðið af syndsamlegu líferni
sínu þegar hann kemst í kast við
vélamanninn ógurlega sem stendur
að baki morðunum – eða hvað?
Þetta er ljót hrollvekja sem skil-
ur æði lítið eftir fyrir ímyndunar-
aflið. Þrátt fyrir að vera fremur
þunglamaleg og ómarkviss er
drunginn þó nokkuð áhrifamikill og
einföld skrímslaförðunin svínvirk-
ar.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Algjör
hryllingur
GUNNLAUGUR er efalaust þekkt-
astur fyrir störf sín með bræðings-
sveitinni Mezzoforte en einnig hefur
hann verið mikilvirkur gesta-
trommuleikari. Gunnlaugur vann
það einstæða afrek að vera kosinn
trommuleikari ársins á Íslensku tón-
listarverðlaununum fimm ár í röð og
margir af helstu trommuleikurum
samtímans nutu handleiðslu hans á
sínum tíma.
Gömul hlaða
En nú er það eigin tónlist, eigið
sköpunarverk. Gunnlaugur hefur
verið búsettur í London í tæp tvö ár
og hefur þar verið að vinna að tónlist
sinni.
„Ég hef verið að hasla mér völl
þar, verið að spila í leikhúsum og
verið að ferðast bæði um Bretland og
Skandinavíu. Ég kýldi svo á það síð-
asta haust að fara í plötuna og náði
mér þar í einvalalið.“
Þeir sem vinna plötuna með Gunn-
laugi eru Clive Martin, upptöku-
stjóri en hann hefur unnið með lista-
mönnum eins og Queen, Les
Negresses Vertes og Sting. Svo er
þarna bassaleikarinn Soul en hann
hefur ferðast mikið með afríska gít-
arleikaranum Keziah Jones. Gítar-
leikarinn Kevin Armstrong er þarna
líka en hann hefur unnið með David
Bowie, Prefab Sprout og Iggy Pop
m.a.
Einnig eru Íslendingarnir Óskar
Guðjónsson, saxófónleikari og Ey-
þór Gunnarsson, hljómborðsleikari
með honum í þessu.
„Þetta var tekið upp í gamalli
hlöðu í Kent, þ.e. hlöðu sem er búið
að umbreyta í hljóðver - það er
meiriháttar að komast út í sveitina til
að gera tónlist.“
Gunnlaugur, eða Gulli eins og
hann er jafnan kallaður, segist svo
stefna á útgáfu í haust.
Tyrkneskt hipp-hopp
Grunnupptökur voru settar á hlið-
rænt (e. analogue) segulband og
þeim síðan dembt inn í tölvu. Um
þessar mundir eru Gulli og félagar
að garfa í þessum upptökum.
„Það er gaman að segja frá því að
nágranni minn, Rod Beale, sem ætl-
ar að vinna þetta með mér, vann
mikið í Real World hljóðverinu
[hljóðveri Peter Gabriel]. Hann tók
upp tvær Peter Gabriel plötur og
ætlar að vera mér innan handan við
hljóðblöndunina.“
Gulli hlær þegar hann er beðinn
um að lýsa tónlist sinni, segir það
vera svolítið erfitt. „Ég veit ekki
hvað ég á að segja. Það eru þarna
Mezzoforteáhrif en ég ólst upp í
þeirri hljómsveit. Þetta er þó svolítið
ævintýralegri tónlist. Hún er ekki
eins djössuð og ég er svona að tína út
áhrif frá hinum og þessum löndum.
Það er þarna einhvers konar tyrk-
neskt hipp-hopp þar sem ég er að
endursemja tyrkneskt þjóðlag –
svona Massive Attack hræringar.
Ég sæki líka í þennan gamla hljóm
frá áttunda áratugnum; þetta er
svona „retro-funk“ stundum.“
Gulli hnyklar brýrnar, áréttar að
þetta sé ekki trommuplata. „Þetta er
fyrst og fremst bara tónlist og það
var mikilvægt að fá rétta mannskap-
inn í þetta í staðinn fyrir að sitja einn
í einhverju tölvuherbergi í ár.“
Gulli segist að lokum spenntur að
sjá hverjar viðtökurnar verða, bæði
hér heima og í Bretlandi. „Ég ætla
að kynna hana á netinu, setja upp
flotta síðu. Gullibriem.com kemur
fljótlega (hlær). Þar getur fólk hlaðið
niður einhverju af þessu.“
Gulli Briem gefur út eigin tónlist
„Ekki trommuplata“
Gulli ásamt samstarfsmönnum. Frá vinstri: Gulli Briem, Clive Martin,
Soul, Kevin Armstrong, Eyþór Gunnarsson og Óskar Guðjónsson.
Gunnlaugur Briem hef-
ur lengi verið í fremstu
röð íslenskra trommu-
leikara og leikið inn á
fleiri tugi platna. Í haust
hyggst hann hins vegar
gefa út einyrkjaskífu,
sína fyrstu. Arnar
Eggert Thoroddsen
ræddi við Gunnlaug.
arnart@mbl.is
Á DÖGUNUM stóð Landsbanki Ís-
lands fyrir svokölluðum Sport-
klúbbsdegi í Laugardalshöll, sem
var fyrir alla 9-13 ára krakka, sem
hafa gaman af því að spretta úr
spori, sprikla og hreyfa kroppinn.
Krakkarnir fengu að spreyta sig á
hinum ýmsu íþróttaþrautum undir
leiðsögn þekktra íþróttastjarna.
Guðmundur Benediktsson sá um
fótboltaþrautir ásamt Sigþóri Júlí-
ussyni félaga sínum í KR, Pétur
Guðmundsson fyrrverandi NBA-
stjarna stjórnaði körfuboltaþraut-
unum, Helgi Ólafsson tefldi fjöltefli
við upprennandi skákmenn, leið-
beinendur frá Týnda hlekknum sáu
um hjólabrettin og Kári Jónsson frá
Íþróttakennaraháskólanum lagði
frjálsíþróttaþrautir fyrir áhuga-
sama. Landsliðsmenn úr 18 ára
handboltalandsliði karla og 20 ára
landsliði kvenna höfðu síðan um-
sjón með handboltaþrautunum og
Þorsteinn Hallgrímsson golfmeist-
ari efndi til púttkeppni. Þar fyrir
utan léku krakkarnir sér að vild á
trampolíni, blöðrufólk var á staðn-
um og töfratrúðurinn Mighty
Gareth gabbaði alla upp úr skónum
með sjónhverfingum sínum.
Að loknu spriklinu var boðið upp
á létta hressingu.
Sportklúbbsdagur Landsbankans
Guðmundur Benediktsson kenndi knattþrautir. Helgi Ólafsson íhugar næsta leik gegn krökkunum.
Morgunblaðið/Arnaldur
Pétur Guðmundsson sýndi krökkunum fram á að hæðin er ekki allt.
Spriklað með íþróttastjörnum
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í KVÖLDFös 15. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Í KVÖLD Fös 15. júní kl. 20 - UPPSELT
Lau 16. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI
Þri 19. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní,
eftir sýningu flytur Ragnheiður
Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og
kynlífspistlahöfundur, erindi tengt
Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir
að sýningin hefst.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR.
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í HAUST
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
>
$ ')?(
$ '(?(
$ 2+?(
$ 2'?(
$ 2*?(
$ 2,?(
$ 21?(
$ 2#?(
!
"#$ %% & '(
")
4 $ 22?(
)*)+ ,! -./!
!
*0! )))1
*0!
2 ))) 3 *! 45 ,6*)) )) 7))!
",)))
3!89 ! *! 4:;4< ,!;! *! 4:8-5!
HEDWIG KL. 20
Frumsýning fös 29/6 UPPSELT
lau 30/6 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
fös 6/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fös 15/6 UPPSELT
fim 21/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
mið 20/6 UPPSELT
fim 21/6 nokkur sæti laus
sun 24/6 nokkur sæti laus
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
Í HLAÐVARPANUM
Föstudaginn 15. júní kl. 22.00
Tónleikar í kvöld
Kleifabandalagið HLJÓMSVEIT
FÓLKSINS... og nú syngja allir með
Aukasýning 19. júní kl. 21.00
EVA - bersögull sjálfsvarnareinleikur
3 ! )))!
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is