Morgunblaðið - 15.06.2001, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
OFT vill svo verða að hljómplötur
berast seint eða aldrei til lands elds
og ísa. Á síðasta ári kom út platan
Heartbreaker, eignuð Ryan nokkr-
um Adams, fyrrum leiðtoga banda-
rísku sveitarokkaranna í Whiskey-
town, en hingað barst hún fyrir
tiltölulega stuttu. Ástæða þess að
ákveðið var að vekja máls á þessari
tilteknu plötu núna er einfaldlega sú
að platan hefur verið að fá frábæra
dóma víðast hvar og þykir með því
allra besta sem fram hefur komið í
„jaðar-sveitarokkinu“ svokallaða,
stefnu sem hefur verið í deiglunni
um nokkurt skeið í nýbylgju- sem
rokkheimum. Af nýrri postulum þar
má nefna Jim White, Will Oldham,
Mark Olson og svo náttúrulega Ryan
Adams. Af eldri frumherjum er
hægt að telja til sveitir eins Jay-
hawks, Long Ryders og Jason & The
Scorchers og svo að sjálfsögðu Gram
Parsons en allir vegir liggja að heita
má til hans í þessum efnum.
Adams er enda undir miklum
áhrifum frá þeim síðastnefnda, bæði
nú og þegar sveit hans Whiskeytown
var starfandi. Whiskeytown gerði á
sínum tíma vel til fundnar tilraunir
með samblöndun á hörðu rokki og
sveitatónlist; en ágæt dæmi um það
eru plöturnar Faithless Street
(1996) og Stranger’s Almanac (1997).
Platan Heartbreaker minnir
óneitanlega á efni það sem Parsons
lét eftir sig á sínum tíma. Angurvær
og melódísk lög, andi hins innblásna
söngvaskálds svífur yfir vötnum.
Emmylou Harris „gestar“ meira að
segja á plötunni en hún starfaði mik-
ið með Parsons á sínum tíma.
Heartbreaker Ryans Adams
Sællegt sveitarokk
Ryan Adams spáir í lífið og til-
veruna á sinni fyrstu plötu,
Heartbreaker.
ÞAÐ er víst ekki
hægt að kvarta yfir
ófrjósemi í verbúð-
um þeirra Radio-
head-manna. Nú er
fimmta hljóðvers-
skífa sveitarinnar,
Amnesiac, komin í
verslanir – aðeins
átta mánuðum eft-
ir að þeir skiluðu af
sér hinni frábæru
Kid A. Nýja platan
er í svipuðum stíl
og sú síðasta,
enda var meirihluti
hennar tekinn upp á sama tíma. Þegar blaða-
maður Morgunblaðsins spurði gítarleikara
Radiohead í nýlegu viðtali hvers vegna þeir
hefðu ekki bara gefið út tvöfalda plötu, svaraði
hann; „Tvöfaldar plötur eru ömurlegar finnst
þér ekki?! Þær eru allt of langar.“
Annar skammtur!
RAPPARINN
Lil’ Bow Wow
var aðeins 6
ára þegar
hann hóf að
„láta rímið
flæða“. Það
var svo rapp-
arinn Snoop
Dogg sem
kom honum á
framfæri eftir
að hafa séð
piltinn á tón-
leikum. Það
var t.d. hann
sem valdi við-
urnefnið á drenginn. Rímur snáða þykja nú tölu-
vert framsæknar, a.m.k. miðað við aldur. Bew-
are of the Dog er fyrsta breiðskífa rapparans
unga sem er aðeins þrettán ára gamall í dag.
13 ára rapphundur!
END-
URKOMA
rokksveit-
arinnar
Weezer hef-
ur farið fram
úr björtustu
vonum. Nýj-
asta platan,
sem ber
nafn hljóm-
sveitarinnar
en kallast
„græna plat-
an“, er nú orðin söluhæsta plata hljómsveit-
arinnar á heimsvísu frá upphafi. Lagið „Hash
Pipe“ er skotheldur rokkslagari og ekki
skemmir frábært myndband fyrir velgengni
lagsins. Næsta smáskífulag verður hinsvegar
lagið „Photograph“ og verður gaman að fylgj-
ast með því hvernig það gengur í fólk.
Aldrei vinsælli!
TÓNLISTARMAÐURINN
Shaggy hefur líkleg-
ast aldrei átt jafn
mikilli velgengni
að fagna eins og
núna með
þessari fjórðu
breiðskífu
sinni, Hot
Shot. Annar
slagarinn af
plötunni, „An-
gel“, ómar nú
ótt og títt á þeim
útvarpsstöðvum
sem fylgja meginstraumnum. Shaggy er yfirleitt
settur í flokk reggae-tónlistarmanna, þótt það
þyki nokkuð víst að Bob Marley myndi líklegast
seint skrifa undir þá lýsingu á tónlist kappans.
Reggae-
engill?
! " #
$ %
&#
'
$ (
) * !
) *
+
,
%
) &%
!
%
+$%
) ( -
*$ #
. / 0
!"
$% " &'( )
* +,-$
./0
$
12
34
/
/456
4
72
58
/349 :&4 434
;
& .)
1 34<:3
=<
>
&5 5
?
2?
@?
A?
B?
C?
D?
E?
F?
?
?
2?
@?
A?
B?
C?
D?
E?
F?
2?
2?
22?
2@?
2A?
2B?
2C?
2D?
2E?
2F?
@?
1
12
122
3
4
5
6
6
11
4
6
7
12
6
16
18
3
12
9
6
6
51
15
12
56
92
8
:
18
5
(;
<
(
(;
<
(;
"
+
=>
"
.&
"
.&
(;
<
?
<
<
<
<
(
.&
@,
$A
B ? C
D
CE
,
+% /
$ F
$A
C
FCC?
C
G. ! H.
HI $H-$?.
H-$?J
H-$?* HK?
!
HK?
H
J
H?
J
H?
* 54
?
2?
@?
A?
B?
C?
D?
E?
F?
?
?
2?
@?
A?
B?
C?
D?
E?
F?
2?
2?
22?
2@?
2A?
2B?
2C?
2D?
2E?
2F?
@?
'(
##
)*
+
##
,#-
##
L
1
5
3
6
9
4
13
:
11
8
7
12
14
17
18
16
52
97
1:
54
19
57
36
59
64
51
53
58
164
SÍÐASTA vetur skaust hljómsveitin
Spooks fram á sjónarsviðið með lag-
inu „Things I’ve Seen“. Tónum
sveitarinnar er lýst sem rafrænni
blöndu af djassi, hipp-hoppi og
rappi. Fyrsta platan þeirra kom út í
fyrra, en hún heitir því undarlega
nafni S.I.O.S.O.S. (skammstöfun
fyrir „Spooks Is on Some Other
Shit“).
Sveitina skipa fjórir rapparar og
ein söngkona en á tónleikum koma
þau fram með lifandi hljómsveit.
Söngkona sveitarinnar, Ming-Xia,
þykir hafa einkar umhverfisvæna
rödd og hefur Spooks oft verið nefnd
sem hin næsta „Fugees“. Miklu um
uppruna hljómsveitarinnar er haldið
leyndu af liðsmönnum, það eina sem
þau vilja gefa upp er að þau hittust
öll fyrst árið ’94 og koma frá ýmsum
stöðum í austurhluta Bandaríkj-
anna. Ástæðuna fyrir hulduleiknum
segja meðlimirnir vera að þegar fólk
veit hvaðan hljómsveitir koma áður
en það heyrir í þeim þá móti það sér
einhverjar fyrirfram ákveðnar skoð-
anir um tónlistina. Einnig segjast
þau vera miklir aðdáendur njósna-
sagna og geri sér þar af leiðandi
grein fyrir því aðdráttarafli sem hið
dularfulla hafi á fólk. Af einni slíkri
njósnasögu er t.d. nafn hljómsveit-
arinnar komið, bókinni The Spook
Who Sat By the Door eftir höfund-
inn Sam Greenlee en Ivan Dixon
leikstýrði afar vel heppnaðri kvik-
mynd eftir sögunni árið 1973. Liðs-
menn Spooks segja að í sveitinni ríki
algjört lýðræði og aðeins ein vinnu-
regla; hugmyndir allra fá hljóm-
grunn. Á þennan máta komi yfirleitt
eitthvað frumlegt upp úr krafsinu og
segja liðsmenn það oftast vera þær
hugmyndir sem þóttu fáránlegastar
sem á endanum verða fyrir valinu.
Samlíkingin við The Fugees er ef
til vill nokkuð augljós en sjálf segja
þau áhrifavalda sína vera Björk, U2,
Cold Crush Brothers, Portishead,
James Brown, Earth, Wind and
Fire og Radiohead.
Hljómsveitin Spooks
Leyndur uppruni
Ljósmynd/James Hicks
Spooks, hver eru þau? Hvaðan
eru þau? Hver á þau?
GLETTILEGA mörgum hlýnar
um hjartaræturnar þegar þeir
heyra minnst á bresku rokksveit-
ina The Cult. Sveitin var nefnilega
ein sú allra heitasta í rokkheim-
inum á seinni hluta 9. áratugarins
og sankaði að sér sæg af sjóðheit-
um hópdýrkendum um heim allan,
ekki síst hér á Fróni. The Cult
sameinaði dulúð og ímynd The
Doors, kraft Led Zeppelin og gít-
arstef AC/DC í ómótstæðilega
blöndu þannig að plötur eins og
Love, Electric og The Sonic
Temple urðu skyldueign fyrir al-
vöru rokkara.
Eftir að risinu hafði verið náð
með The Sonic Temple árið 1989
tók aldeilis að halla undan fæti og
annars náið samstarf aðalsprautna
sveitarinnar Ians Astburys og
Billys Duffys varð æ stirðara uns
uppúr slitnaði árið 1995. Svo þung
orð féllu þá að flestir bjuggust við
að þeir félagar gætu aldrei framar
horfst í augu en það var öðru nær.
Árið 1999 var nefnilega tilkynnt
endurkoma The Cult. Félagarnir
höfðu þá fallist í faðma og gert
upp sín mál, hóuðu í gamla vini úr
rokkgeiranum og héldu nokkra
tónleika við góðar undirtektir.
Hljóðhryðjuverk
Árið í ár markar hinsvegar eig-
inlega upprisu sveitarinnar því í
vikuni kom út hjá gamla Zeppelin-
merkinu Atlantic, ný breiðskífa
Beyond Good and Evil – sú átt-
unda í röðinni en upptökustjóri
hennar var hinn næsta goðsagn-
arkenndi Bob Rock sem tók upp
The Sonic Temple og unnið hefur
með Metallica, Aerosmith og Bon
Jovi m.a. Sagan segir að nýja plat-
an sé mjög í ætt við vinsælustu
skífur sveitarinnar.
Astbury og Duffy eru sem fyrr
segir sameinaðir á ný og að eigin
sögn nánari en nokkru sinni fyrr,
en auk þeirra er trommarinn Matt
Sorum, sá er lamdi húðir með
sveitinni í skamma stund árið
1988, genginn á ný til liðs við þá,
sem hlýtur að teljast gleðiefni.
Líkt og forðum eru þeir Astbury
og Duffy brattir þegar þeir ræða
nýja efnið. Þeir fullyrða að þeir
hafi næstum séð sig knúna til þess
að láta til sín taka vegna ástands
mála í bresku rokki þessa dagana.
„Rokkið er allt of ráðsett og lúið,“
segir Astbury. „Fólk sem er vant
því að sveima um í makindum sín-
um, borðandi gúrkusamloku á
Coldplay-tónleikum á eftir að fá
nett áfall þegar við „svörtu pard-
usdýrin“ stökkvum fram á sviðið
og fremjum hljóðhryðjuverk.“
The Cult eru þessa dagana á
tónleikaferð um Bandaríkin en
snúa aftur heim síðar í sumar og
verða á tónlistarhátíðunum í Read-
ing og Leeds.
Upprisa The Cult
Astbury og Duffy
saman á ný
Grimmur svartur pardus: Billy
Duffy, Ian Astbury, Matt Sorum.