Morgunblaðið - 15.06.2001, Page 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
arlegt yfirvaraskegg. Hann var og
duglegur að skekja sig fram og aft-
ur í takt við lögin eins og hann á
vanda til. Ekki heyrðist eitt auka-
tekið orð frá sviðinu allan tímann.
Það hefði nú verið gaman að fá að
heyra einn brandara: „Ég hitti einu
sinni gamlan vin minn, Steingrím...“
„Smellir“ eins og „Animalia“,
„Sanity“ og „Musculus“ fengu eðli-
lega sterkustu viðbrögðin. Fjörið
datt aðeins niður þegar röð hægari
laga var spiluð, m.a. „Manifesto“ og
„Dimitri“ og hið mjög svo flotta
„Lonesome Duke,“ sem fáir virtust
kannast við. Allt fór svo á fullt þeg-
ar „Svín“ var spilað og þá var ekki
um annað að ræða en að taka fína
sviðsdýfu....ahhh, minningar, minn-
ingar. Hin eðla list, „slammið“ var
annars í heiðri höfð og sviðsdýfur
reglulegar, hvar fólk leið um salinn,
borið uppi af öðrum áhorfendum.
Sumir gripu þá tækifærið og sveifl-
uðu sér í loftfestingum Gauksins
sem svignuðu undan álaginu.
Tónleikarnir náðu svo loks aftur
ákveðnu hástigi í síðasta upp-
klappslaginu, hinu frábæra „Partí-
bær“. Þá var tíma-
vélin alveg að gera
sig; það var eins
og það væri ’92
aftur! Og allt auð-
vitað vitlaust.
Rokk og ról!
Svitamökkurinn
var eðlilega mikill
er Ham yfirgáfu
sviðið í síðasta
sinn og hinir hörð-
ustu reikuðu um,
berir að ofan með
ánægjuglott á
vörum, sýnilega
sáttir. Sumir
þeirra skimandi
eftir týndum skóm
og farsímum.
Ég saknaði laga eins og „Auður
Sif“, „Youth“ og „Austur.“ Og verst
með hljóminn. Hann var ömurlegur.
Segir mér svo hugur, að þeir sem
voru ekki fremst uppi við sviðið,
hafi numið lítið af rokksködduninni,
sem þar fór fram.
Það verður alltént rokkað feitt á
Rammstein í kvöld enda menn þá
komnir í alvöru æfingu, með tvenna
tónleika á tveimur dögum að baki.
Og ég ætla rétt að vona að hljóm-
urinn verði í lagi þá!
Umfram allt var gaman á þessum
tónleikum, a.m.k. í og við kösina.
Lagasmíðarnar að sjálfsögðu allar
skotheldar, sígilt efni sem staðist
hefur tímans tönn. Ham á í fartesk-
inu fullt af frábærum lögum og
staða hennar í íslenskri rokksögu er
tryggð; fáar sveitir hafa náð jafn-
mikilli hópdýrkun og rokknálgunin
þar á bæ er einstök.
Maður minnist orða S. Björns
Blöndals: „Á fjórtándu öld var
rokkið ekki til, en í dag er rokkið
staðreynd.“
ÞAÐ voru rétt um sjö ár liðin síðan
Ham hélt sína fyrstu kveðjutónleika
á Tunglinu, þegar þessir „fyrstu
seinni kveðjutónleikar“ fóru fram.
Þá seldust að sögn 120 miðar í for-
sölu. Á þessa tónleika, svo og á þá
sem voru í gær, seldust upp á ör-
skotsstund um 1200 miðar.
Ég man ekki eftir öðrum eins lát-
um og þeim sem hafa verið í kring-
um þessa Ham/Rammstein tón-
leika. Að komast að því hversu
miklir rokkarar Íslendingar eru nú
hefur verið reynsla, blönduð
ánægju en um leið furðu. Enda var
hálfgerð landsleiksstemning fyrir
þessa tónleika, hópar af glorsoltn-
um rándýrum farnir að hita upp í
heima- sem öldurhúsum, yfir bjór-
um og bárujárnsrokki. Og öðru
hvoru brast herópið á: „Ham! Ham!
Ham! Ham!“ Troðfullur Gaukurinn
minnti svo meira á einhverja þunga-
rokksknæpu í Hollandi, loftið fullt
af gleði og hættu og allir uppgír-
aðir. Margir komnir til að sjá Ham í
fyrsta skipti, búnir að hlusta á sög-
ur af þessari goðsagnakenndu sveit
í öll þessi ár, þar sem meðlimir voru
dýrkaðir sem hálfguðir og því löngu
búnir að taka sér stöðu upp við svið-
ið, tilbúnir í „slammið“. Flestir
gömlu hundarnir mættir líka,
gengnir í barndóm með sælubros á
vör.
Já, loksins skil ég þessa kalla sem
fara að sjá Hljóma á Broadway með
stjörnur í augunum. Endurkoma
hljómsveita hefur alltaf verið frem-
ur vafasamt fyrirbæri samkvæmt
mínum kokkabókum, en þetta kvöld
hugsaði maður einfaldlega: „Æ, fari
það kolað“. Pælingar skildar eftir
heima og fortíðarþráin tekin með í
staðinn. Hvaða ansk… máli skiptir
þetta líka, ef framundan er heil-
næmt og ánægjulegt stuðkvöld?
Það er merkilegt frá því að segja,
að hápunktur tónleikanna varð áður
en tónleikarnir sjálfir byrjuðu.
Spennan, biðin, eftirvæntingin 10
mínútum áður en sveitin steig á svið
var einfaldlega rosaleg, fólk stapp-
andi og öskrandi, spennt og óþol-
inmótt. Loksins, loksins var þetta
að verða að veruleika.
Þegar fyrstu tónar „Trúboða-
sleikjarans“ liðu út í salinn keyrði
auðvitað allt um koll og þeir heit-
ustu tóku að hrista hausinn fram og
aftur, syngjandi með: „Já, trúboð
tungu mína trylla!“ En það voru að-
eins nokkrar mínútur liðnar af lag-
inu þegar botninn datt úr hljóðkerf-
inu. Hljómurinn varð kraftlaus,
alger ömmuhljómur. Og svoleiðis
var það restina af tónleikunum.
Hræðilegt. Rokktónleikar eiga að
skera í eyrun! Broslegt líka þegar
heyrðist kallað hástöfum eftir lagið:
„Hærra! Hærra!“
En þá var ekki um annað að ræða
en að troða sér fremst til að ná að
njóta betur. Og þar var sko gaman
að lifa. Sviti og ósvikin gleðitár
runnu í stríðum straumum og langt
síðan maður hefur upplifað svona
vel hið frumstæða í sér – eitthvað
sem gott rokk, hreint bæði og tært,
á auðvelt með að draga fram. Sveit-
in sjálf var næsta ógreinileg; her-
toginn, Sigurjón, var þarna ein-
beittur með pókerfésið og
prófessorinn, Óttarr Proppé, flottur
að vanda með barðahatt og mynd-
HAMfarir
á Gauknum
Arnar Eggert Thoroddsen
„Ham! Ham! Ham! Ham!“
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Óttarr Proppé, „Prófessorinn“ og Sigurjón Kjart-
ansson, „Hertoginn“.
FJÖLMIÐLAR um allan heim
eru nú í óðaönn að leiðrétta þann
misskilning að Britney Spears
og kærastinn hennar, Justin
Timberlake, hafi látist í bílslysi.
Uppsprettu orðrómsins er að
finna hjá útvarpsmönnum sem
kalla sig Kramer og Twitch og
útvarpa þætti í Texas í Banda-
ríkjunum. Á þriðjudagskvöldið
sögðu þeir áheyrendum sínum
þá sögu að Britney og Justin
væru bæði látin eftir harðan
árekstur í Los Angeles. Þeir
komu sér upp heimildamanni
sem sagði Cedars Sinai-spítal-
ann í L.A. hafa staðfest fregn-
ina.
Hin falsaða dánarfregn barst
út eins og eldur í sinu og hafa
spítalar, lögregla og fjölmiðlar í
Los Angeles ekki haft undan að
svara hringingum frá forvitnum
aðdáendum.
Talsmaður Spears, Lisa
Kasteler, segir parið vera við
hestaheilsu og allar fregnir af
slysinu séu uppspuni frá rótum.
Orðrómur
Britney og
Justin á lífi
kveðinn niður
TÓNLIST
H a m l e i k a r
Tónleikar Ham á Gauki á Stöng,
miðvikudaginn 13. júní, 2001.
GAUKUR Á STÖNG