Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
VEÐUR hefur verið bjart og fallegt í Reykjavík og á suðvesturhorni lands-
ins undanfarna daga og hefur mannlífið í miðbænum verið líflegt eftir því.
Meðal þeirra sem nutu veðurblíðunnar í Reykjavík í gær voru börn á leikja-
námskeiði Neskirkju sem sjást hér á leið yfir Tjörnina.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Á leið yfir Reykjavíkurtjörn
TVEIR Íslendingar eru nú í haldi lögreglu á Spáni
en þeir voru handteknir á sunnudaginn var eftir að
200 kíló af hassi fundust í bifreið þeirra. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa mennirnir
verið búsettir um nokkra hríð á Spáni. Annar
þeirra er 40 ára en hinn 45 ára. Mennirnir eru tald-
ir hafa ætlað að dreifa hassinu á Costa Brava, sem
er fjölsóttur ferðamannastaður skammt frá Barce-
lona.
Í fréttaskeyti frá Europa Press segir að hassið
hafi verið falið í skókössum í bifreið mannanna sem
þeir höfðu tekið á leigu. Við nánari leit lögreglu í
bílnum fundust jafnframt tæki og tól til að pakka
hassinu í söluumbúðir. Hassið var ýmist í kúlum
eða töflum og af mismunandi stærðum og gerðum.
Þegar mennirnir voru handteknir hafði lögregla
fylgst með ferðum þeirra um nokkra hríð en upp-
lýsingar um atferli þeirra höfðu borist frá ótil-
greindum aðilum á Costa Brava-svæðinu. Menn-
irnir munu einnig tengjast fíkniefnasölu í
Frakklandi og í Malaga á Spáni. Lögregla telur að
mennirnir tveir hafi oft ferðast landleiðina til Suð-
ur-Spánar og Norður-Afríku til að útvega fíkniefni.
Um síðustu helgi bárust fregnir um að þeir væru
væntanlegir úr slíkri ferð. Vegatálmar voru þá
settir á vegi sem liggja til Costa Brava. Klukkan
fjögur á sunnudagsmorgun voru mennirnir stöðv-
aðir af 12 þjóðvarðliðum og handteknir. Þeir eru nú
í haldi lögreglunnar í Granollers.
Hjá utanríkisráðuneytinu fengust þær upplýs-
ingar í gær að að ráðuneytið hefði haft spurnir af
málinu í gærmorgun. Verið væri að afla gagna en
málavextir væru ekki að fullu ljósir.
Íslendingar handteknir á
Spáni með 200 kíló af hassi
MIKIÐ tjón hefur orðið
á nýrri vatnsleiðslu sem
liggur milli lands og
Vestmannaeyja. Kom
þetta í ljós í gær við
venjubundið eftirlit á
ljósleiðaranum sem ligg-
ur milli lands og Vest-
mannaeyja, en við eftir-
litið er notaður
ómannaður fjarstýrður
kafbátur með mynd-
bandsupptökuvél. Þá
sást að gríðarleg hönk af
snurvoðartógi var föst í
leiðslunni á um 40 metra
dýpi á svæðinu sem ligg-
ur mitt á milli Elliðaeyj-
ar og Faxaskers, en á
því svæði var talið að
leiðslan væri á kafi í sandi.
Að sögn Stefáns Martin, eiganda
Djúpmynda sem sér um eftirlitið,
er ljóst að snurvoðartógið hefur
rekið með straumi og fest í vatns-
leiðslunni og er margvafið um
hana. Síðan hefur hönkina, sem er
hundruð kílóa að þyngd, rekið hvað
eftir annað yfir leiðsluna með
straumnum og nuddað hana þannig
að hún er stórskemmd á um hundr-
að metra kafla og á um eins metra
kafla er tógið nánast komið í gegn-
um leiðsluna. Snurvoðartóg er
gríðarlega þungt og sterkt tóg með
vírmanillu, því veldur það svo mikl-
um skemmdum sem
raun ber vitni.
Friðrik Friðriksson,
veitustjóri í Vestmanna-
eyjum, segir að hér sé
um mjög alvarlegan hlut
að ræða, en trúlega sé
áðstæðan slæm um-
gengni, eða vanhirða á
veiðarfærum sem slitnað
hafa frá veiðiskipum. Því
miður séu dæmi um
slæma umgengni til sjós
og segir hann veiðarfæri
oft hafa fest í strengjum
milli lands og Vest-
mannaeyja þrátt fyrir
að svæðið þar sem
leiðslur og strengir
liggja sé lokað fyrir veið-
um báta. Friðrik segir að á þessari
stundu sé ekki hægt að meta tjónið
til fulls, en ljóst sé að það skipti
milljónum ef ekki tugum milljóna.
Að sögn Friðriks er engin hætta
á vatnsleysi eins og er enda séu
tvær vatnsleiðslur á milli lands og
Vestmannaeyja.
Stórtjón á vatnsleiðslu
milli lands og Eyja
Vestmannaeyjar. Morgunblaðið
Morgunblaðið/Sigurgeir
Á myndinni, sem tekin er neðansjávar, sést hvernig
snurvoðartógið vafðist utan um vatnsleiðsluna.
VERKFALL 44 þroskaþjálfa
hjá sjálfseignarstofnunum
hófst á miðnætti. Verkfallið
hefur víðtæk áhrif á þjónustu
við á annað hundrað íbúa og
þjónustuþega á sambýlum og
vinnustöðum fatlaðra.
Hefur það m.a. í för með sér
að dagþjónusta fyrir fatlaða á
nokkrum stofnunum Styrktar-
félags vangefinna fellur niður
sem og skerta þjónustu á sam-
býlum og vinnustöðum fatl-
aðra.
Árangurslausir
sáttafundir
Haldnir voru fimm árang-
urslausir sáttafundir hjá ríkis-
sáttasemjara í allan gærdag,
skv. upplýsingum Þóris Ein-
arssonar ríkissáttasemjara.
Samninganefndir Þroska-
þjálfafélagsins og Reykjavík-
urborgar komu saman síðdegs
í gær en sl. þriðjudag lögðu
þroskaþjálfar tilboð fyrir
samninganefnd borgarinnar.
Ekkert þokaðist þó í viðræðun-
um í gær frekar en á öðrum
sáttafundum sem haldnir voru,
að sögn Guðnýjar Stefánsdótt-
ur, talsmanns Þroskaþjálfa-
félagsins, og er deilan í hnút.
Boðað er til næstu sáttafunda í
deilu þroskaþjálfa og launa-
nefndar sveitarfélaga annars
vegar og við Reykjavíkurborg
hins vegar á mánudag. Ekki
hefur verið boðað til fundar í
kjaradeilu þroskaþjálfa á
sjálfseignarstofnunum, sem nú
eru komnir í verkfall eða í deilu
Þroskaþjálfafélagsins og ríkis-
ins, en boðað verkfall þroska-
þjálfa hjá ríkinu hefst að
óbreyttu 28. júní.
Fundir í kjaradeilu
þroskaþjálfa
Verkfall á
sjálfseign-
arstofnun-
um skollið á
JARÐSKJÁLFTI af stærðinni
3,3 á Richterkvarða varð við
suðvesturhorn Kleifarvatns,
nálægt Krísuvík, klukkan að
verða átta í gærkvöldi. Fáeinir
minni skjálftar hafa siglt í kjöl-
farið. Að sögn Ragnars Stef-
ánssonar jarðskjálftafræðings
eru skjálftar af þessari stærð
tiltölulega algengir á þessum
slóðum, þegar til lengri tíma er
litið.
Jarðskjálfti
við Kleif-
arvatnEKIÐ var á dreng á mótum Hverf-
isgötu og Barónsstígs í Reykjavík
um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík hjólaði
drengurinn, sem er tíu ára, á milli
tveggja kyrrstæðra bíla og í veg fyr-
ir fólksbíl. Drengurinn var fluttur á
sjúkrahús og segir vakthafandi
læknir á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss drenginn vera höf-
uðkúpubrotinn en þó ekki í lífshættu.
Hann hefur nú verið fluttur á barna-
deild og er gert ráð fyrir að hann nái
sér að fullu.
Drengur höf-
uðkúpubrotinn