Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 31
✝ Þóra OttesenÓskarsdóttir
(Dídí) fæddist í
Reykjavík 25. des-
ember 1919. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir 2.
september síðastlið-
inn. Þóra var þriðja
elst af átta börnum
Óskars Halldórsson-
ar, stórútgerðar-
manns og síldarsalt-
anda, f. 17. júní
1893, d. 15. janúar
1953, og konu hans
Guðrúnar Ólafsdótt-
ir frá Litla-Skarði í Borgarfirði,
f. 27. nóvember 1893, d. 22. ágúst
1939. Þóra átti tvö eldri systkini,
Guðnýju Ottesen, f. 27. apríl
1916, d. 23. maí 1922, og Óskar
Theodór Ottesen, f. 22. febrúar
1918, fórst með línuveiðaranum
Jarlinum í september 1941. Yngri
systkini Þóru eru 1) Guðný Otte-
sen húsmóðir, f. 15. ágúst 1921, d.
5. nóvember 1993, maki Gunnar
Halldórsson, útgerðarmaður og
síldarsaltandi, f. 1. september
1921, d. 2. júní 1973. Þau eign-
uðust sjö börn. 2) Ólafur Ottesen
útgerðarmaður, f. 18. ágúst 1922,
d. 15. maí 1995, maki Hanna
Sveinbjarnarsyni Egilson skrif-
stofumanni. Þorsteinn var sonur
Sveinbjarnar Egilsonar ritstjóra
og Elínar Vigfúsdóttur húsmóð-
ur. Þóra og Þorsteinn eignuðust
dóttur, Helgu, f. 7. febrúar 1958,
gift Jóni Friðriki Kjartanssyni,
börn þeirra eru þrjú: Guðbjörg,
maki Kristinn Sigursveinsson,
þau eiga þrjú börn; Þorsteinn
Otti; og Theodór Þór.
Þóra ólst upp í Reykjavík í föð-
urhúsum, að mestu leyti á Ing-
ólfsstræti 21, hún hlaut hefð-
bundna skólagöngu, í framhaldi
fór hún í Kvennaskólann í
Reykjavík, síðan fer hún til Dan-
merkur í húsmæðraskóla í Kold-
ing 1939. Þóra var húsmóðir alla
tíð, en vann einnig um tíma hjá
kexverksmiðjunni Fróni svo og í
blaðasölunni Kiosk í Austur-
stræti, einnig vann hún í mörg ár
sem sjálfboðaliði fyrir Rauða
krossinn á Landakotsspítala.
Þóra og Þorsteinn bjuggu nánast
allan sinn hjúskapartíma í Ing-
ólfsstræti 21 en voru nýlega flutt
í Hvassaleiti 56 er Þorsteinn lést
3. júní 1987. Þóra bjó í Hvassaleiti
56 til ársins 1993 er hún flutti til
dóttur sinnar Helgu og fjölskyldu
í Stigahlíð 39, þar sem hún bjó til
ársins 1997 er hún flutti á hjúkr-
unarheimilið Eir, þar sem hún bjó
þar til yfir lauk, þá áttatíu og eins
árs.
Útför Þóru fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Gísladóttir húsmóðir,
f. 1. desember 1924,
d. 12. október 1985.
Þau eignuðust fimm
börn. 3) Guðríður
Erna Ottesen hús-
móðir, f. 10. janúar
1924, maki Jón Sig-
urður Ólafsson, lög-
fræðingur og deildar-
forstjóri í félags-
málaráðuneytinu, f.
7. október 1919, d. 5.
ágúst 1984. Þau eign-
uðust fjögur börn. 4)
Halldóra Ottesen
húsmóðir, f. 27. febr-
úar 1925, d. 30. október 1993.
Maki Einar Sigurðsson, hæsta-
réttarlögmaður og fasteignasali,
f. 22. apríl 1923, d. 29. september
1994. Þau eignuðust fjórar dætur.
5) Guðrún Ottesen, Hamely, hús-
móðir, f. 8. febrúar 1930, maki
Milutin Kojic, heiðursræðismaður
Júgóslavíu á Íslandi, f. 16. febr-
úar 1922, d. 19. nóvember 1990.
Þau eignuðust fjórar dætur.
Hálfsystkini samfeðra, Óskars-
börn, voru Harald Eyrdal, f. í
Danmörku og bjó þar alla tíð, og
Erna, f. í Noregi og bjó þar alla
tíð. Þau eru bæði látin.
Þóra giftist árið 1942 Þorsteini
Mín elskuleg tengdamóðir og
hjartans vinur er nú látin.
Vandfundinn var betri vinur,
raungóð, trygg og ljúf, alltaf hafði
hún tíma og kunni að hlusta á mig og
aðra, miðla af gæsku og vísa á rétta
leið. Það eru u.þ.b. 17 ár síðan ég
kynntist þér, er við Helga dóttir þín
byrjuðum að búa saman, þú tókst
mér strax svo vel og lést þér umhug-
að um mig sem og aðra í fjölskyldu
minni. Það er ógleymanlegur sá tími
sem við áttum öll saman og sú ást og
væntumþykja er þú sýndir börnun-
um og barnabörnunum enda hænd-
ust öll börn að þér hvort sem þau
voru þér tengd eða ekki, börnin
skynja svo vel hver færir þeim kær-
leika, hlýju og öryggi.
Það kemur upp í huga mér þegar
við fórum í ferðalag, þú, Hamely
systir þín, ég og Ásgrímur vinur
minn frá Siglufirði. Við fórum um
Skagafjörð og til Siglufjarðar þar
sem þið systurnar höfðuð svo oft
verið að sumarlagi þegar faðir ykkar
rak og átti síldarverkun á Bakka og
víðar. Við gáfum okkur síðan tíma,
skoðuðum og spjölluðum við eldra
fólk sem mundi eftir síldarárunum,
komum síðan við og stoppuðum hjá
foreldrum mínum á Tjörnum í
Skagafirði og það var ekki lítil
veisla. Seinna þegar við rifjuðum
upp minningar og skoðuðum myndir
ljómuðu brúnu fallegu augun þín.
Síðustu árin eftir að veiki þín fór
að ágerast reyndust þungbær fyrir
alla. Huggun er í því að þú komst að
á yndislegu hjúkrunarheimili, Eir,
þar sem gott og óeigingjarnt starfs-
fólk vinnur. Það er ógleymanlegt
fyrir okkur Helgu og börn að sjá og
finna alla þá hlýju, ást og umhyggju
sem þetta elskulega fólk sýndi þér
og okkur. Hafi það hjartans þökk
fyrir. Sárt er þín að sakna en hugg-
un að vita þig frjálsa og lausa frá
þjáningum þínum. Guð geymi þig og
blessi alla tíð. Hafðu hjartans þökk
fyrir allt.
Jón Friðrik Kjartansson.
Amma mín var glæsileg kona og
mjög góð. Allt sem hún gerði var vel
gert. Hún hugsaði elskulega um
okkur öll, gleymdi engum og vildi
gleðja alla. Þegar við bjuggum í
Svarthömrum kom hún í strætó með
grjónagraut handa Steina bróður
því að hún vissi að það þótti honum
best af öllu.
Amma kenndi mér svo margt – til
dæmis að baka sandköku. Hún söng
alltaf fyrir mig. Hún elskaði söng og
öll börn. Til hennar var alltaf gott að
koma. Það var yndislegt og ómet-
anlegt að hún skyldi koma í brúð-
kaupið okkar Kidda og taka undir
sönginn í kirkjunni þótt hún væri
mjög veik.
Elsku amma mín, þakka þér fyrir
allt og allt.
Guðbjörg.
Elsku amma mín.
Mér verður svo oft hugsað til þín.
Þær voru yndislegar stundirnar sem
við áttum saman heima hjá þér í Ing-
ólfsstræti og Hvassaleitinu þegar ég
var lítill. Ég vildi alltaf vera hjá þér,
þú sem varst mér allt og varst svo
góð við mig. Ég man öll þau skipti
sem ég gisti hjá þér og við töluðum
um allt sem okkur datt í hug. Mér
fannst fátt skemmtilegra en að
hlusta á þig segja sögur um gömlu
dagana. Ein af uppáhaldssögunum
okkar var þegar mamma hoppaði í
tjörnina. Ég lét þig segja hana aftur
og aftur og alltaf gátum við hlegið
jafn mikið. En þú gerðir meira en að
hlæja með mér. Þú kenndir mér svo
margt um lífið og varst alltaf tilbúin
til að kenna mér hvað væri rétt og
rangt. Ég hlustaði á þig og leit svo
mikið upp til þín. Ég sakna þín svo
sárt og óska þess stundum að þú
gætir verið ennþá hérna hjá mér til
að hjálpa mér þegar ég á engin svör.
En ég má ekki vera eigingjarn og ég
veit að núna ertu komin á betri stað
þar sem þér líður vel og engin veik-
indi eru til og þú og Steini afi getið
verið saman á ný. Þú veist að ég mun
aldrei gleyma þér elsku amma mín.
Þinn
Þorsteinn.
Svo elskaði guð heiminn að hann
gaf son sinn eingetinn til að hver
sem á hann trúir glatist eigi heldur
öðlist eilíft líf.
Elín María, Þórey
og Friðrik Óli.
Elsku Dídí, systir mín.
Ég og dætur mínar kveðjum þig
með virðingu og söknuði, með þakk-
læti fyrir allt sem þú varst okkur frá
því ég man eftir mér.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(V. Briem.)
Megi hún hvíla í friði og launi nú
guð henni að verðleikum. Helgu og
Jóni og börnum votta ég mína inni-
legustu samúð.
Guðrún Hamely.
Núna þegar laufin sölna og far-
fuglarnir eru að undirbúa ferð sína
yfir hafið kvaddi hún Dídí (frænka)
þetta jarðlíf. Því frænkunafnið fékk
hún af þeim nánu og góðu kynnum
sem hún og móðir okkar áttu. Þegar
við systurnar vorum litlar komum
við oft í heimsókn til Dídí, Steina og
Helgu í Ingólfstrætið. Komið var inn
í forstofuna með stóru málverki sem
var málað beint á vegginn. Þegar
Dídí stóð þar og tók á móti okkur
leið okkur eins prinsessum því við-
mót hennar gagnvart okkur var
þannig.
Afmælin hennar Helgu voru ein-
stök og þar var gaman og alltaf hús-
fyllir, því ekkert var nógu gott fyrir
sólargeislann þeirra, t.d. átti Helga
alvöru búðarkassa, þannig að þarna
var hægt að fara í alvöru búðarleik
með alvöru peningum.
Á hverju ári fórum við systurnar
með foreldrum okkar í jólaboð til
Dídí og þá var ekkert til sparað, fín-
asta stellið, silfrið, kristallinn og við
hvern disk beið fallega innpakkaður
jólapakki. Dídí átti stóran páfagauk
sem hét Peter og hann talaði, sagði
Þóra, þegar hann var svangur. Það
er óhætt að segja að heimsóknirnar
til hennar Dídi voru sem ævintýri
fyrir okkur systurnar.
Hún átti við mikil veikindi að
stríða síðustu æviárin en alltaf var
hún jafn góð, ljúf og brosmild. Það
er ómetanlegt fyrir okkur að hafa
fengið að kynnast henn Dídí. Þökk-
um við allar góðu stundirnar og í
huga okkar lifir minningin um ynd-
islega konu.
Ástríður, Sesselja
og Ingibjörg Jóna.
Í dag er kvödd æskuvinkona mín
Þóra Óskarsdóttir eða Dídí eins og
hún var ávallt kölluð. Dídí var ein-
stök manneskja og frábær vinur í
þau sextíu ár sem við vorum vinkon-
ur. Aldrei féll skuggi á vináttu okkar
í allan þennan tíma. Dídí var óvenju
jákvæð, hlý og skemmtileg kona.
Alltaf var jafngott að hitta hana,
hvort sem var á hennar fallega heim-
ili eða hjá mér í Hafnafirðinum og
eru minningarnar margar og dýr-
mætar.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum er fengu að kynnast
þér.
(Ingibj. Sig.)
Hjartans þakkir fyrir allt. Guð
blessi þig, elsku vinkona mín.
Þín
Margrét Eyþórsdóttir.
Elsku Dídí, takk fyrir allt.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Inga Dóra.
ÞÓRA OTTESEN
ÓSKARSDÓTTIR
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
!
"
# $%
"!
# $ & %
!
" '" %
# $ # $()
"
*+, -)"" !.
/0 #12021 3-3
++4$
5+++ 66
!
"#
"##$
* " ,
"% 7 !
3+ " ,
5 5 !
*+4 " , !
" $ *""
)" " , !
+ " , !
, ' ,
( ()
( ( ()
" ( ( ( () .
%
11 #8
-3
0$
!
%
"#
"&$$
' (
! )( *
"4$ '4 " $!
" $ . +!
()" " $!
( () " ( ( () .