Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 17
ÚTIBÚ Búnaðarbankans í Borg-
arnesi hélt afmæliskaffi 6. sept-
ember sl. en þá voru liðin tíu ár frá
opnun þess. Upphaflega var útibúið
stofnað sem afgreiðsla frá Akranesi
en um áramótin ’91–’92 var ákveðið
að ráða útibússtjóra og gera það
sjálfstætt. Kristján Björn Snorra-
son útibússtjóri hóf störf í janúar
1992 og hefur verið útibússtjóri síð-
an. Þá voru einungis þrír starfs-
menn en eru núna tíu. Að sögn
Kristjáns hafa umsvifin vaxið gíf-
urlega og einna mest hér á lands-
vísu. Hann nefnir sem dæmi að frá
1. september í fyrra til 1. sept-
ember í ár sé 40% innlánsaukning
og rúm 20% útlánaaukning. Sex
mánaða uppgjör sýnir í þessu litla
útibúi 28 milljónir í hagnað eftir
skatta, en til samanburðar er allur
hagnaður Búnaðarbankans rúmar
50 milljónir eftir skatta. Lágmarks-
kröfur um arðsemi eru 15% en arð-
semin hér er 66,7%, sem er með því
besta sem gerist á landinu og útibú-
ið í 8. sæti af 30 útibúum.
Kristján þakkar þetta fyrst og
fremst mannauði. ,,Hér er er gott
fólk, og þeir sem byrja hér viðskipti
halda þeim áfram. Það er alveg
undantekning ef einhver hefur
hætt hér viðskiptum og farið ann-
að. Við leggjum mikið upp úr þjón-
ustu og persónulegri ráðgjöf, mað-
ur finnur að fólk er ánægt með
þetta. Okkar styrkur liggur fyrst
og fremst í orðspori, enda byggjum
við ekki á einhverri vaxtakeppni,
heldur því að fólki líði vel að versla
við okkur.“ Viðskiptavinir bankans
eru ekki bara íbúar Borgarbyggðar
heldur er fjöldi fólks í Reykjavík og
á öðrum svæðum í viðskiptum hér.
Ennfremur eru nokkur fyrirtæki í
Reykjavík sem sækja hingað við-
skipti og telur Kristján að rekja
megi 2–3 störf hér beinlínis til við-
skipta sem koma annars staðar frá.
Útbúið hefur frá upphafi verið
styrktaraðili körfubolta- og knatt-
spyrnudeilda Skallagríms og á
þessu tíu ára tímabili hafa 20–30
milljónir farið í þessi málefni. Krist-
ján segist alltaf verða var við þakk-
læti frá fólki og á afmælisdaginn
bárust hlýjar kveðjur, óvæntar
gjafir og blóm. Um 3–400 manns
komu í afmæliskaffið og vildi Krist-
ján koma á framfæri þakklæti til
viðskiptavina bankans fyrir traust
og góðar viðtökur á þessum tíu ár-
um.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Starfsfólk útibúsins, fremri röð frá vinstri: Dóra Axelsdóttir, Gerður K.
Guðnadóttir, Helga Theodórsdóttir, Fanney Ólafsdóttir og Rósa Jenna-
dóttir. Aftari röð frá vinstri: Skúli Ingvarsson, Kristján B. Snorrason
útibússtjóri og Einar G. Pálsson. Á myndina vantar Hrönn Helgadóttur,
Maríu Eyþórsdóttur og Ingu S. Baldursdóttur en þær voru í fríi.
Búnaðarbankinn
í Borgarnesi 10 ára
Borgarnes
HINN 1. september síðastliðinn af-
hentu nemendur Skógaskóla sem
luku námi þar vorið1957 tvö málverk
sem hópurinn hafði látið gera af
tveimur fyrstu kennurum skólans,
þeim Jóni Jósep Jóhannessyni frá
Hofsstöðum í Skagafirði og Albert
Jóhannssyni frá Teigi í Fljótshlíð.
Framlag til verksins fékkst einnig frá
Búnaðarbanka Íslands á Skógum,
Ferðaskrifstofu Íslands, Hótel Eddu
og Lionsklúbbnum í Vík.
Málverkin voru sett á vegg gagn-
fræðastofunnar gömlu í Skógaskóla,
en skólinn er ekki starfræktur lengur
og óvissa ríkir um framhald skóla-
starfsins. Byggðasafnið í Skógum tók
við málverkunum en það hefur um-
sjón með skólahúsunum og sér um
rekstur þeirra. Að sumrinu er Eddu-
hótel starfrækt á Skógum en móttaka
ferðahópa og ráðstefnuhald er að
vetrinum.
Tæplega 50 manns voru viðstaddir
afhjúpun málverkanna, þar af um 20
úr nemendahópnum. Hólmfríður Jó-
hannesdóttir, systir Jóns Jóseps, af-
hjúpaði málverkið af bróður sínum en
Erla Þorbergsdóttir, ekkja Alberts,
afhjúpaði málverkið af honum. Nafni
og sonarsonur Alberts tendraði
kertaljós við málverkin fyrir afhjúp-
un. Listamaðurinn, Benedikt Gunn-
arsson, sagði frá málverkunum og
fjallaði um þýðingu málverka og ann-
arra lista fyrir þroska manna. Flutt
voru minningarorð um Jón Jósep eft-
ir samkennara hans og síðar ritstjóra
Freys, Júlíus J. Daníelsson, og Þórð-
ur Tómasson safnstjóri flutti minn-
ingarorð um Albert. Sungin voru á
milli atriða, við undirleik Þórðar Tóm-
assonar, þjóðlög og hvatningarljóð í
anda Jóns Jóseps og Alberts og þess
minnst að þeir hefðu verið brautryðj-
endur í mannrækt og skógrækt í
Skógaskóla. Þetta var falleg sam-
koma, en loft var blandið trega, m.a.
vegna þess að Skógaskóli er ekki
starfræktur lengur.
Fram kom í máli manna, að full
þörf væri ennþá fyrir skóla af þessari
gerð og stærð fyrir uppeldi þjóðarinn-
ar. Margir tóku til máls, m.a. Jón R.
Hjálmarsson og Sverrir Magnússon,
fyrrum skólastjórar, Friðjón Guðröð-
arson sýslumaður og Drífa Hjartar-
dóttir alþingismaður sem var síðasti
formaður skólanefndar. Um sali skól-
ans lék sem forðum andi vináttu og
lífsgleði og skólinn var lífgaður við
eitt andartak með dansæfingu eins og
þeim sem forðum voru haldnar í
Skógaskóla. Gestir þáðu veitingar í
boði byggðasafnsins og nemenda-
hópsins og heimsókninni lauk með
samverustund í Skógakirkju.
Málverk gefin til minn-
ingar um frumherja
Fagridalur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Listamaðurinn Benedikt Gunn-
arsson og Albert Þórir Sigurð-
arson, sonarsonur Alberts,
tendra kertaljós.
UMHVERFISVERÐLAUN Hvol-
hrepps fyrir árið 2001 hafa verið af-
hent. Að þessu sinni hlutu þau hjónin
Rannveig Baldvinsdóttir og Ólafur
Ólafsson, Öldugerði 18 á Hvolsvelli,
viðurkenningu fyrir fallegan heimil-
isgarð og ræktunarstörf.
Þau hjónin hafa komið upp þremur
fögrum og gróskumiklum heimilis-
görðum á Hvolsvelli og auk þess hafa
þau stundað umfangsmikla trjárækt
við sumarbústað sinn á Stóru-Mörk í
Vestur-Eyjafjallahreppi. Dalíu- og
blómarækt þeirra hjóna hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Hjónin Markús Runólfsson og Jó-
hanna Jóhannsdóttir, Dalsbakka 6 á
Hvolsvelli, hlutu umhverfis- og nátt-
úruverndarverðlaun fyrir ræktunar-
störf og einnig hlaut Markús verð-
launin fyrir uppgötvanir og hönnun á
tækjum til gróðursetningar og
áburðargjafa.
Markús hefur verið formaður
Skógræktarfélags Rangæinga mörg
undanfarin ár og hefur verið ötull
tals- og athafnamaður á sviði skóg-
ræktar. Hann hefur hannað og látið
smíða svokallaðan Markúsarplóg,
tæki þar sem allt er gert í senn, bún-
ar til gróðurrásir og plöntur settar
niður með áburðargjöf. Plógurinn af-
kastar margfalt á við handgróður-
setningu en við hann vinna tveir
menn, annar á dráttarvél sem dregur
plóginn og hinn á tækinu sjálfu.
Markús hefur einnig hannað tæki
til áburðargjafa í skógrækt. Að því er
mikið hagræði fyrir þann sem ber á
því tækið skammtar áburðinn og við-
komandi þarf ekki að beygja sig nið-
ur við hverja plöntu.
Umhverfisverðlaun Hvolhrepps
eru veitt á hverju ári og geta þau fall-
ið í skaut hverjum þeim sem þykir
skara fram úr í umhverfismálum.
T.d. geta íbúar við tiltekna götu feng-
ið þau, sumarbústaðareigendur, fyr-
irtæki, stofnanir eða einstaklingar.
Umhverfisverðlaun
afhent í Hvolhreppi
Hvolsvöllur
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeins.
Umhverfisverðlaunahafar í Hvolhreppi: Rannveig Baldvinsdóttir, Ólaf-
ur Ólafsson, Jóhanna Jóhannsdóttir og Markús Runólfsson.
Sími 594 6000
JARÐVEGS-
ÞJÖPPUR
HOPPARAR