Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
tímamörkum á lokaákvörðun vegna
byggingar álvers í Reyðarfirði og
virkjunar við Kárahnjúka því
tengdri um sjö mánuði, frá 1. febrúar
í vetur til 1. september næsta haust.
Þessi frestun á þó ekki að verða til
þess að seinka afhendingu orku
nema um örfáa mánuði. Þetta var
ákveðið á fundi samráðsnefndar
stjórnvalda, Landsvirkjunar og fjár-
festa í Kaupmannahöfn í gær.
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, sagði að
á fundinum hefði orðið samstaða um
nýja tímaáætlun sem fæli í sér að
lokaákvörðun um framkvæmdir yrði
tekin 1. september næsta haust.
Hins vegar yrði í júnímánuði tekin
ákvörðun um það í samráðsnefndinni
að mæla með því við viðkomandi
stjórnir að fara í verkefnið og það
ætti að duga til þess að Landsvirkj-
un gæti hafið takmarkaðar fram-
kvæmdir næsta sumar.
Fyrri tímaáætlun gerði ráð fyrir
að lokaákvörðun yrði tekin 1. febr-
úar í vetur. Valgerður sagði að þessi
frestun lokaákvörðunar ætti ekki að
verða til þess að fresta afhendingu
orkunnar nema um örfáa mánuði.
Ennþá væri að því stefnt að það yrði
á árinu 2006 en aftur á móti síðar á
því ári en áður var áætlað.
Frestað vegna
umhverfismálanna
Valgerður sagði að þessi frestun
væri ákveðin vegna umhverfismál-
anna. Það þyrfti að gefa þeim meiri
tíma. Hins vegar hefðu allar athug-
anir sem fram hafa farið í þessum
efnum á undanförnum mánuðum
orðið til þess að styrkja verkefnið.
Aðilar hefðu því áfram fulla trú á
þessu verkefni en tímamörkin hefðu
verið of þröng.
Hún bætti því við að allt aðrar
ástæður hefðu legið til frestunar
Fljótsdalsvirkjunar á sínum tíma. Sú
frestun hefði verið ákveðin vegna
þess að menn hefðu ekki haft trú á
verkefninu. „Núna eru aðstæður allt
aðrar. Menn hafa fulla trú á þessu en
tímaramminn gengur ekki upp,“
sagði Valgerður ennfremur.
Virkjun við Kárahnjúka og bygging álvers í Reyðarfirði
Lokaákvörðun frestað
til 1. september að ári
MÆGÐIN eru látin eftir bílslys á
mótum Skeiðavegar og Suður-
landsvegar í Árnessýslu síðastliðið
laugardagskvöld. Drengur á þriðja
ári lést í slysinu og móðir hans, sem
var með honum í bifreiðinni, lést á
gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi á mánudag. Drengurinn
hét Gabríel Elí Brynjarsson, fædd-
ur 3. október 1998. Hann var sonur
Brynjars Sigurðssonar og Selmu
Jóhannsdóttur, til heimilis á Arn-
arheiði 27, Hveragerði. Móðir
hans, Selma Jóhannsdóttir, var
fædd 4. júlí 1973. Selma lætur eftir
sig sambýlismann, sem hlaut
minniháttar meiðsli í bílslysinu, og
uppeldisdóttur.
Létust í bílslysi
HÓTUN um sprengju í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar barst síðdegis í
gær og var stöðin rýmd í skyndingu.
Flugvélar voru einnig færðar frá
landgöngurananum. Engin sprengja
fannst og var hættan liðin hjá kl. 21.
Vegna hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum hafði öryggisgæsla og
vopnaleit verið hert í flugstöðinni og
á varnarsvæðinu. Voru sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar
staddir á vellinum og hófu strax að-
gerðir ásamt lögreglu.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, sagði að
hótun um sprengju hefði borist síð-
degis en hún hefði ekki borist beint
til embættis lögreglunnar á Kefla-
víkurflugvelli. Vildi hann ekki greina
nánar frá tilkomu hótunarinnar.
Stöðin var rýmd og taldi sýslu-
maður að um 100 manns hefðu verið í
byggingunni, aðallega starfsmenn
en fáir farþegar þar sem síðdegisvél-
arnar voru farnar. Sagði hann óþæg-
indi fyrir flugrekendur því hafa verið
í lágmarki.
Farþegar þotu frá Lufthansa voru
rétt að stíga aftur um borð í vélina
þegar hótunin barst. Hafði henni
verið snúið frá Bandaríkjunum til
Evrópu. Varð hún að lenda hér
vegna eldsneytistöku og var henni
komið frá byggingunni.
Jóhann sagði leit að sprengju hafa
hafist fljótlega og vélar sem voru við
landganginn voru færðar frá.
Sprengjusveitarmenn Landhelgis-
gæslunnar og lögreglumenn leituðu
sprengju en engin fannst. Kl. 21,
þegar tilskilinn tími var liðinn frá því
að hótunin barst, að viðbættum ör-
yggistíma, var talið óhætt að hefja
störf í flugstöðinni á ný.
Rannsókn á sprengjuhótuninni
hófst strax en auk lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli sinna henni fleiri
embætti.
Morgunblaðið/Þorkell
Öryggis-
gæsla og
vopnaleit
hert
ÞESSI sænska kona var á leið til New York í gær
ásamt syni sínum, til að heimsækja ættingja, sem búa
á Manhattan í grennd við World Trade Center-bygg-
inguna. Sonur hennar reynir að hugga óttaslegna
móður sína eftir að hafa fengið fregnir af hryðju-
verkaárásunum í New York og Washington.
Ótti í Leifsstöð
FRIÐRIK Þór
Friðriksson kvik-
myndagerðar-
maður átti að
vera meðal far-
þega í annarri
American Air-
lines-vélinni sem
rænt var og flog-
ið á World Trade
Center-skýja-
kljúfana í New
York í gær, þ.e.
flugi 11 frá Boston til Los Angeles.
Hann breytti hins vegar fluginu yfir
í beint flug frá Toronto til Los
Angeles.
„Ég var á leið til Hollywood til að
tala við leikara út af bíómynd og var
búinn að bóka mig í þetta flug. En
ég þurfti ekkert að koma við í Bost-
on, nennti því eiginlega ekki, svo ég
breytti bókuninni fyrir tveimur dög-
um og ætlaði að fljúga beint frá
Toronto til Los Angeles. Það voru
engir draumar eða neitt sem vöruðu
mig við svo ég held að það hafi nú
ekki verið neinir fyrirboðar. Nú eru
auðvitað allir flugvellir lokaðir og
farþegaflug liggur niðri svo ég verð
eitthvað áfram hér í Toronto,“ sagði
Friðrik Þór.
Friðrik Þór kvaðst engu geta
svarað um hvernig honum liði að
hafa sloppið svo naumlega frá þessu
feigðarflugi. „Maður hugsar bara
sem minnst um hvernig gæti hafa
farið – ég var t.d. ekki búinn að
segja stráknum mínum að ég hefði
breytt fluginu og hann var því ansi
skelkaður en ég er nú búinn að tala
við hann núna,“ sagði Friðrik Þór í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöld.
Öllum sýningum á Toronto Inter-
national-kvikmyndahátíðinni hefur
verið aflýst vegna atburðanna í
Bandaríkjunum og hefur verið kom-
ið upp áfallahjálparstöð þar sem
margir þátttakenda eru frá New
York.
Friðrik Þór Friðriksson átti bókað með flugi 11 frá Boston
Breytti bókun sinni
fyrir tveimur dögum
Friðrik Þór
Friðriksson