Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 25 ,,ÉG VERÐ harmi sleginn og lamaður þegar svona skelfilegir atburðir eiga sér stað. Þótt það sé af öðrum toga, þá getum við Íslend- ingar reynt að rifja upp hvernig okkur hefur liðið á stundum mikilla náttúru- hamfara og stórslysa sem hafa gengið yfir. Ég geri ráð fyrir að bandarísku þjóðinni sé svipað farið og að fólk sé þar lamað og harmi slegið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. ,,Auðvitað veltir maður líka fyrir sér hverjar geti orðið afleiðingar þessara voðalegu atburða í alþjóðastjórnmálum og hver áhrif þeirra verða á viðhorf til öryggis borgaranna. Það er auðvitað ekki hægt að útiloka að þetta eigi eftir að hafa víðtæk áhrif á samskipti í alþjóðamál- um og viðhorf til margra hluta. Ég held að þetta sýni betur en margt annað hversu mikils virði það er að reyna að tryggja forsendur frið- ar og stöðugleika í heimssamfélaginu, vegna þess að ekkert hervald er svo máttugt að það geti varið sig fyrir svona löguðu eins og þessir atburðir sýna,“ segir Steingrímur. ,,Það er augljóst mál að ekkert ranglæti heimsins getur réttlætt svona aðgerðir. Allur heimurinn hlýtur að fordæma þær,“ sagði Steingrímur að lokum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG Allur heimur- inn hlýtur að fordæma aðgerðirnar Steingrímur J. Sigfússon ,,ÉG er sleginn bæði harmi og skelfingu yfir þessum at- burðum. Ég skal hins vegar játa að það tók mig nokkra klukkutíma að átta mig á því hvað var að gerast,“ segir Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra um hryðju- verkin í Bandaríkjunum. ,,Nú blasir þetta við og þá er manni ljóst að heimurinn verður ekki sá sami á morg- un og var í dag. Það mun margt breytast. Við- horf fólks til öryggismála og eigin öryggis verð- ur annað og menn munu átta sig á því að þessi ógn, sem hryðjuverk og glæpastarfsemi er, er raunveruleg og það verður að takast á við hana af öllu afli. Aðalatriðið er að menn geri allt sem Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra Aðalatriðið að varðveita heimsfriðinn Halldór Ásgrímsson ,,VIÐ fordæmum þennan viðbjóðslega voðaverknað sem virðist vera framinn af óvinum Bandaríkjanna og lýðræðisins í heiminum,“ segir Davíð Oddsson for- sætisráðherra um hryðju- verkin í Bandaríkjunum í gær. ,,Þúsundum jafnvel tug þúsundum manna var stefnt í voða. Við vitum ekki enn hversu margir hafa látið lífið í þessum árásum en það er ljóst að þessir menn gátu náð því fram að það yrðu tugir þúsunda manna vegna þess að þeir frömdu verknaðinn gagn- vart þess háttar byggingum. Sem betur fer hef- ur fjöldi fólks bjargast þannig að sá fjöldi er sennilega ekki svona mikill, en söm er gjörðin,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Morgun- blaðið. Mun taka langan tíma að skapa öryggiskennd með þjóðum Davíð sagði augljóst að eftirköst þessa at- burðar yrðu mikill. ,,Það mun taka langan tíma að skapa öryggiskennd með þjóðum vestrænna ríkja vegna þess að þegar menn sjá að þetta er hægt í Bandaríkjunum þá er hætt við því að annars staðar, til að mynda í Vestur-Evrópu, gætu menn hugsað sér gott til glóðarinnar. Þessir atburðir vekja mikinn óhugnað og við- bjóð,“ segir Davíð. Forsætisráðherra sagði að um væri að ræða mestu árás sem nokkru sinni hefði verið gerð á Bandaríkin. ,,Hugsanlega er manntjónið mun meira en þegar ráðist var á Pearl Harbor á sín- um tíma, þar sem létust á þriðja þúsund manns. Þetta er lúaleg árás og gerð án fyrirvara á varnarlausan almenning í borgum Bandaríkj- anna. Menn hljóta því að líta á þetta sem mesta illvirki,“ sagði hann. Aðspurður hvort gerðar hefðu verið ein- hverjar sérstakar ráðstafanir hér á landi vegna þessara atburða sagði Davíð að gripið hefði verið til ráðstafana varðandi m.a. umferð og ör- yggi á Keflavíkurflugvelli, í ratsjárstöðvum og vegna öryggis sendiráðs Bandaríkjanna. ,,En við teljum ekki að að okkur stafi nein sérstök ógn í augnablikinu, en það er auðvitað sjálfsagt að gera þessar ráðstafanir,“ sagði hann. Bandaríkin líta á atburðina sem stríðsyfirlýsingu Davíð segir ljóst að hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum muni hafa áhrif á alþjóðleg samskipti, á öryggi og öryggistilfinningu fólks og á flugumferð. ,,Bandaríkjamenn virðast a.m.k. í augnablikinu líta á þetta sem stríðs- yfirlýsingu gagnvart sér. Það er of fljótt að segja til um hverjir standa þarna að baki. Það mun koma í ljós en það er ljóst að Bandaríkja- menn munu láta einskis ófreistað að koma rétti yfir þessa menn og ef einhverjar þjóðir áskilja sér rétt að veita slíkum aðilum skjól, þá munu þær verða taldar samsekar um stríðsárás á Bandaríkin. Þá held ég að þeir aðilar ættu að fara að hugsa sinn gang vel og vandlega,“ sagði Davíð. Davíð Oddsson forsætisráðherra Fordæmum þennan viðbjóðslega voðaverknað Davíð Oddsson ,,MAÐUR á ekkert einasta orð í eigu sinni yfir þessa skelfingar atburði og af- leiðingar þeirra verða al- veg skelfilegar,“ segir Sverrir Hermannsson for- maður Frjálslynda flokks- ins. ,,Það sér hver maður hvernig Bandaríkin munu bregðast við og herða eft- irlitið og öll Vestur-Evr- ópa a.m.k. mun gera gríðarlegar gagnráðstaf- anir sem munu kosta ótrúlega fjármuni og óþægindi,“ sagði Sverrir. Aldrei orðið þrumu lostnari á ævi minni ,,Mér fannst þetta vera eins og stríðsyfirlýs- ingin og stríðsbyrjunin 1. september [1939] þegar ég var lítill strákur. Þá skynjaði ég hver ósköp voru á ferðinni en þó ekkert nálægt því eins og nú. Hvernig má þetta vera? spyrja menn. Getur [Osama] bin Laden einn gert þetta? Hver ósköpin eru þetta í raun og veru? En það þýðir ekki að vera með ágiskanir. Ég hef aldrei orðið þrumu lostnari á ævi minni. Ég var að aka vestur á Snæfellsnes þegar fóst- urdóttir mín hringdi í mig og sagði mér hvað hefði gerst. Það var nóg að heyra fyrstu fréttir til að sjá hver býsn og ódæmi þetta voru,“ sagði Sverrir. Skelfilegir at- burðir og gríð- arleg viðbrögð Sverrir Hermannsson Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins draga af þessu. Ég óttast líka að þetta leiði yfir okkur hið alsjáandi auga Stóra bróður. Það er auðvitað ljóst að hverskonar eftirlit með óbreyttum borgurum mun aukast í samfélagi sem þarf að búa við þessa ógn,“ sagði Össur. Nauðsynlegt að ræða varnir gegn hryðjuverkum ,,Ég vek eftirtekt á því að hér á Íslandi hefur framsýn utanríkisþjónusta okkar vakið eftir- tekt á því, í skýrslu fyrir tveimur árum, að það er nauðsynlegt að haga vörnum Íslands með þeim hætti að hægt sé að verjast atlögum er- lendra hryðjuverkasveita, sem kynnu að gera okkur að fórnarlambi í baráttu sinni fyrir ein- hverskonar markmiðum sínum. Nú þurfa menn að dusta rykið af þessari skýrslu og sjá hvort ekki sé rétt að fylgja henni eftir af meiri þunga en áður,“ sagði Össur að lokum. hægt er til að varðveita heimsfriðinn og að þær aðgerðir, sem verður að fara út í, beinist eingöngu að þeim sem bera þarna ábyrgð og hafa skipulagt þetta ódæði. Það er öllum ljóst að það eru engir viðvaningar sem þarna eru að verki,“ segir utanríkisráðherra. Að sögn Halldórs var viðbúnaður á Kefla- víkurflugvelli aukinn vegna þessara atburða og er utanríkisráðuneytið einnig í nánu sam- bandi við yfirstjórn bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli vegna viðbúnaðar í varn- arstöðinni. ,,Það er ljóst að bandaríski herinn er kom- inn á hæsta viðbúnaðarstig og þar eru allir til- búnir og bíða eftir fyrirskipunum, hverjar sem þær kunna að verða. Það ríkir því mikið spennuástand,“ sagði Halldór. Sérstök vakt var í utanríkisráðuneytinu í gærkvöld og í nótt vegna atburðanna. ,,Við höfum verið að fá beiðnir frá fjölda fólks um að hjálpa til við að hafa upp á aðstandendum og við reynum að gera okkar besta til að hjálpa til við það. En það er alveg ljóst að það mun líða langur tími þangað til ljóst verður hvað margir fórust í þessum skelfilegum at- burðum,“ sagði utanríkisráðherra. Að hans sögn hafa ekki borist upplýsingar um að Íslendingar hafi slasast eða farist í hryðjuverkaárásunum. ,,Það búa Íslendingar á þessu svæði og við getum aldrei verið full- vissir um hvar fólk er á ferð. En við höfum engar upplýsingar um að slíkt hafi átt sér stað en það er engin leið að útiloka það á þessu stigi,“ sagði Halldór. Hætti við ferð til Möltu Utanríkisráðherra var á leið út á flugvöll í gær í ferðalag til Möltu með hópi Íslendinga þegar fréttir bárust af hryðjuverkunum í Bandaríkjunum og ákvað hann að hætta við ferðina. Aðspurður segir Halldór að ekki hafi verið boðað til fundar á vegum Atlantshafsbanda- lagsins í gær vegna atburðanna í Bandaríkj- unum. ,,En það er alveg ljóst að Atlantshafs- bandalagið sem slíkt mun fjalla um þetta mál og mun áreiðanlega taka mið af því í framtíð- inni í enn ríkara mæli en áður hefur verið. Hryðjuverk og glæpastarfsemi hafa verið of- arlega á dagskrá hjá Atlantshafsbandalaginu og ég hef lengi haldið því fram að við Íslend- ingar þyrftum að endurskoða okkar mál með tilliti til þessarar hættu. Ég tel að þessir at- burðir sýni það ljóslega að það er nauðsynlegt að einhver varnarviðbúnaður sé til staðar hjá öllum þjóðum. Það er alveg ljóst að þessir at- burðir hafa mikil áhrif á öryggistilfinningu fólks og afstöðu til sameiginlegra varna og ör- yggiskerfis heimsins,“ sagði Halldór að lok- um. ,,ÉG er sleginn djúpri hryggð yfir þessum voveif- legum atburðum og það er erfitt að finna orð sem tjá tilfinningar sem bærast innra með manni and- spænis þessum úthugsaða hryllingi, sem einhver nafnlaus hermdarverka- samtök koma fram gagn- vart óbreyttum borgur- um,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinn- ar. Össur sendi í gær sendiherra Bandaríkj- anna samúðarkveðju fyrir hönd Samfylking- arinnar vegna atburðanna. ,,Ég tel að í reynd sé þetta atlaga að því samfélagi sem við lifum í, vegna þess að ég held að það verði ekki óbreytt eftir þetta. Það er komin fram ný ógnun við líf okkar sem erf- itt virðist vera að ráða niðurlögum á eins og sakir standa, hvað sem síðar verður. Menn eru ekki óhultir og eru fullir kvíða og ótta. Ég held að ógnunin sem menn hafa áður haft af skipulögðum hernaði fölni andspænis þessu vegna þess að þarna eru hermdarverkasam- tök að koma fram vilja sínum gagnvart sak- lausu fólki. Þetta beinir líka augum okkar að því að þau ráð sem þetta fremsta herveldi heims hefur haft forgöngu um að beita gagnvart hryðju- verkum duga ekki. Þar á ég við að George Bush forseti hefur haft forgöngu um og reynt að færa mönnum heim sanninn um að rétt sé að verja gríðarlegu fjármagni til að setja upp eldflaugavarnakerfi, einmitt í þeim tilgangi að verjast hermdarverkamönnum. En í einu vetfangi hafa þessir sömu óvinir sýnt fram á að hún er engin hlíf og til einskis nýt. Það er einn af þeim lærdómum sem við þurfum að Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar Atlaga að því samfélagi sem við lifum í Össur Skarphéðinsson r niður. Guðjón ltrúi Flugleiða, ega hafa komið gær sem halda aríkjanna. Var á hótelum og ld hvenær far- vestur. Sagði myndu hætta úa til Evrópu á Flugleiða er á w York og bíð- l að fljúga til afnir Flugleiða maði ekkert að agsins í öðrum r þotur vrópu ákvað í gær að u félagsins og Parísar vegna m aðild hryðju- ður-Afríku og/ m að hryðju- verkunum í Bandaríkjunum. Önnur þota félagsins var einnig flutt frá Als- ír til London. Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta, sagði að 25 starfs- menn hefðu verið fluttir frá Alsír. Flug félagsins í Sádi-Arabíu og Mið- Austurlöndum hefur einnig verið stöðvað og sagði Hafþór að þrjár vél- ar yrðu því um kyrrt í bili. Tekin verður ákvörðun með litlum fyrirvara um að flytja flugvél og starfsfólk frá Sádi-Arabíu til Evrópu ef ástæða þykir til. Hann sagði þessar ákvarð- anir hafa verið teknar í samráði við þá sem leigðu vélarnar. Hafþór sagði að vegna tilgátu um að samtök í þess- um heimshluta gætu verið viðriðin hryðjuverkin í Bandaríkjunum hefði þótt rétt að grípa til þessara örygg- isráðstafana. Ómar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsflugs, segir að áhafnir hafi verið beðnar að herða hvers kyns öryggisráðstafanir í öllu flugi. Félagið hefur sem stendur eng- in verkefni sem krefjast flugs til Bandaríkjanna. í kjölfar hryðjuverkanna íkjanna ðinn tíma n ein flugvél- ennd við Pitts- fastur eins og til Kanada er í n ég verð feg- Kanada, því öll þar. Ég held upplifað neitt lífi. Við sjáum m, t.d. í Arma- það loftsteinn. konar árásar- gsun sem ligg- gerir einhver einhver trúar- ví að einhver gðist vera feg- dabúi en ekki Kanadamenn ginn vildi gera fa áhyggjur af rk? New York og býr reyndar í námi. Ég er mjög hissa á því að þetta skyldi ger- ast í Pittsburgh. Það er ekkert þar.“ Trúðu ekki eigin eyrum Feðgarnir Arne og Klaus Land- wehr voru á leið frá Frankfurt til Minneapolis, að heimsækja bróður Arne, sem þar býr. Blaðamenn þurftu að upplýsa þá eins og aðra um það sem gerst hafði. Þeir höfðu ekki heyrt neitt og áttu erfitt með að trúa eigin eyrum. Frank Koester frá Iowa, sem var að koma frá Amsterdam á leið til Minneapolis, trúði ekki heldur því sem honum var sagt. Hann hafði ekki hugmynd um að nokkuð hefði gerst og virtist ekki skilja almenni- lega eða trúa orðum blaðamanna þegar þeir reyndu að útskýra fyrir honum ástæðuna fyrir því að allt flug til Bandaríkjanna lægi niðri. Eflaust hefur því verið þannig far- ið með fleiri sem millilentu í Keflavík í gær á leið til Bandaríkjanna og fengu óljósar fregnir af atburðum. eið til Bandaríkjanna í gær llingur Morgunblaðið/Þorkell miðbæ New York og ynnu í World Trade Center.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.