Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 39
VETRARSTARF KFUM og KFUK
er í þann veginn að hefjast og af því
tilefni var efnt til hausthátíðar fé-
laganna í aðalstöðvum þeirra við
Holtaveg í Reykjavík. Velunnarar
og áhugafólk um starf félaganna lét
sig ekki vanta á samkomuna enda
var dagskráin fjölbreytt.
Félagar í Sportfélaginu Hvata,
sem er nýstofnað félagslið KFUM
og KFUK, stóðu fyrir knattspyrnu-
og blakmóti og foringjar úr sum-
arbúðum félaganna sáu um ýmsa
leiki og uppákomur. Komið hafði
verið fyrir hoppukastala og ýmsum
leiktækjum og innandyra fór fram
kynning á vetrarstarfinu sem verð-
ur að vanda fjölbreytt, bæði fyrir
börn og fullorðna.
Á hátíðinni tók Kristín Pálsdóttir,
sem setið hefur í leikskólanefnd
KFUK frá upphafi, fyrstu skóflu-
stunguna að nýjum leikskóla félag-
anna. Að þeirri athöfn lokinni var
gengið til fjölskyldusamkomu í fé-
lagsheimili KFUM og KFUK. Leik-
skólabörn sungu og haldin var hug-
leiðing með aðstoð sjónhverfinga.
Hátíðinni lauk með sameiginlegum
kvöldverði í umsjá Hlíðarmeyja
Vindáshlíðar en fyrsta skóflu-
stungan að nýjum íbúðarskála sum-
arbúðunum í Vindáshlíð var tekin
fyrir skömmu.
Kaffihús og færanleg starfsstöð
KFUM og KFUK hafa í yfir
hundrað ár starfrækt fjölþætt
barna- og æskulýðsstarf á kristnum
grunni hér á landi. Tugir þúsunda
barna og ungmenna hafa tekið þátt
í starfinu í fjölmörgum deildum víðs
vegar um landið í áranna rás. Þá
eiga margir dýrmætar minningar
frá dvöl í sumarbúðum félaganna í
Vindáshlíð, Vatnaskógi, Kaldárseli,
Ölveri og Hólavatni.
Að vanda verða ýmsar nýjungar í
boði í vetrarstarfinu og má þar
helst nefna að tekinn verður í notk-
un tveggja hæða strætisvagn sem
verður nokkurs konar færanleg
starfsstöð. Þá verður nýtt kaffihús
opnað í miðbæ Reykjavíkur, að
Austurstræti 20, síðar í mánuð-
inum.
Börnin skemmtu sér konunglega í hoppukastalanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristín Pálsdóttir tók fyrstu skóflustungu að leikskóla KFUM og KFUK.
Hausthátíð KFUM og KFUK
Vetrarstarfið kynnt
Á HAUSTÖNN verður boðið
upp á nám í verðbréfaviðskipt-
um hjá Endurmenntun HÍ.
Vaxandi þörf er fyrir þetta nám
en ný lög um verðbréfaviðskipti
gera nýjar kröfur til menntun-
ar þeirra sem stunda fjármála-
viðskipti, segir í frétt frá End-
urmenntunarstofnun.
Áður þurftu einungis fram-
kvæmdastjórar verðbréfastofa
að hafa lokið prófi í verðbréfa-
viðskiptum en nú þurfa einnig
millistjórnendur í fjármálafyr-
irtækjum að hafa lokið slíku
prófi. Mörg hundruð manns
hafa lokið námi í verðbréfavið-
skiptum frá Endurmenntun HÍ
á undanförnum árum og á liðn-
um vetri luku 118 manns prófi.
Margir
vilja læra
verð-
bréfavið-
skipti
NÝLEGA fór fram önnur úthlutun
úr Verðlaunasjóði Guðmundar P.
Bjarnasonar frá Sýruparti á Akra-
nesi. Hann stofnaði í fyrra sjóð með
35 milljón króna framlagi, til að
verðlauna efnilega útskriftarnem-
endur í eðlis- og efnafræði við Há-
skóla Íslands.
Að þessu sinni komu verðlaunin í
hlut tveggja stúlkna. Verðlaunin í
eðlisfræði hlaut Árdís Elíasdóttir
sem útskrifaðist sl. vor með ágæt-
iseinkunn í eðlisfræði og verðlaunin
í efnafræði hlaut Soffía Sveinsdóttir
sem einnig var brautskráð sl. vor
með ágætiseinkunn í efnafræði.
Stúlkurnar hlutu 400.000 kr. hvor.
Guðmundur G. Haraldsson prófess-
or veitti styrkina fyrir hönd stjórn-
ar sjóðsins.
„Ljóst er að vegleg gjöf Guð-
mundar P. Bjarnasonar er afar
óvenjuleg en um leið ánægjuleg
hvatning bæði fyrir Háskóla Ís-
lands, nemendur og samfélagið allt.
Gamall maður sem unnið hefur
hörðum höndum alla ævi ákveður
að ráðstafa stórum hluta ævitekna
sinna til að efla iðkun raunvísinda á
Íslandi og við Háskólann. Háskóli
Íslands og raunvísindadeild eru
stolt af að eiga slíka velunnara með-
al hins almenna borgara á Íslandi.
Þetta er í senn hvatning fyrir nem-
endur til að sækja í auknum mæli í
nám í efnafræði og eðlisfræði við
Háskóla Íslands og að leggja sig
fram í náminu,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Háskólanum.
Fulltrúar stjórnar sjóðsins og verðlaunahafarnir: F.v. Hafliði P. Gísla-
son, prófessor í eðlisfræði, Árdís Elíasdóttir, Guðmundur G. Haralds-
son, prófessor í efnafræði, Soffía Sveinsdóttir og Hanna María Pálma-
dóttir, staðgengill fulltrúa Kaupþings.
Hlutu styrki til náms
í raunvísindum
EFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt einróma á sameiginlegum
fundi þingflokks, framkvæmda-
stjórnar og formanna kjördæmaráða
Samfylkingarinnar um síðustu helgi:
„Stefna Samfylkingarinnar er að
allar stórframkvæmdir eigi að fara í
mat á umhverfisáhrifum. Eftir þeim
leikreglum, sem Alþingi samþykkti,
á taka ákvörðun um framkvæmdir.
Þeirri stefnu fylgdi flokkurinn varð-
andi Eyjabakkavirkjun á sínum tíma
og sú stefna er áréttuð varðandi
Kárahnjúkavirkjun og tilheyrandi
mannvirki.
Í því matsferli sem nú stendur yfir
varðandi mannvirkin hefur Skipu-
lagsstofnun nýlega lagt fram faglegt,
jákvætt mat á fyrirhugaðri verk-
smiðju við Reyðarfjörð. Sömuleiðis
hefur fengist jákvæð niðurstaða í
umhverfismati vegna orkuflutnings-
lína frá Kárahnjúkavirkjun og vegna
hafnarframkvæmda. En jafnframt
hefur komið fram neikvæður úr-
skurður Skipulagsstofnunar um
þann virkjunarkost sem Landsvirkj-
un hefur sett fram. Eigi að verða af
þessum fyrirætlunum er brýnt að ná
sátt og samstöðu um virkjunarkosti
til að afla þess rafmagns sem verk-
smiðjan þarf til framleiðslu sinnar.
Álit Skipulagsstofnunar er hluti af
matsferli. Því matsferli er ekki lokið.
Lögum samkvæmt þarf umhverfis-
ráðherra, áður en rökstuddur úr-
skurður er felldur, að leita álits
margra aðila, þar á meðal frekara
álits Skipulagsstofnunar á nýjum
gögnum í tengslum við stjórnsýslu-
kærur vegna málsins. Mikilvægar
upplýsingar hafa þegar komið fram í
nýjum gögnum Landsvirkjunar,
bæði varðandi mótvægisáhrif og
þjóðhagsleg áhrif, og upplýst er að
frekari gögn verða lögð fram áður en
matsferlinu lýkur.
Til þessara nýju gagna þarf ráð-
herra að taka efnislega, faglega af-
stöðu áður en rökstuddur úrskurður
er kveðinn upp.
Samfylkingin áréttar að fyrr en
matsferlinu er lokið er ekki hægt að
taka endanlega afstöðu til málsins.“
Fyrst verði matsferli lokið
Brunaslöngur
Eigum á lager 25 og 30 m
á hjóli og í skáp
Ármúla 21,
sími 533 2020
HEILSALA - SMÁSALA
www.ef.is
Láttu eftir þér að fá þér
þessa frábæru pönnu
Verð: 24 sm 4.480
26 sm 5.390
28 sm 5.780
Glerlok frá kr. 1.110
3 viðurk
enningar
„Frábær“
hjá þýsk
um
neytenda
samtöku
m
Besta steikarapannan
í Evrópu....