Morgunblaðið - 12.09.2001, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
AFDRIFARÍKT
GRIMMDARVERK
Hugur fólks um allan heim er hjáBandaríkjamönnum vegnahinna skelfilegu hryðjuverka
sem framin voru í Bandaríkjunum í
gær. Rán flugvélanna fjögurra og árás-
in á byggingar World Trade Center í
New York og bandaríska varnarmála-
ráðuneytið, Pentagon, í Washington er
eitt umfangsmesta og mannskæðasta
hryðjuverk sögunnar. Enginn málstað-
ur getur réttlætt slíkt ódæði, sama
hversu heilagan fylgjendur hans kunna
að telja hann. Farþegaflugvélar, fullar
af saklausu fólki, voru notaðar sem
sprengjur til að bana hundruðum eða
þúsundum óbreyttra borgara. Flest
bendir til að tilræðið hafi verið þaul-
skipulagt með það í huga að bana sem
flestum, jafnframt því sem ráðizt var
gegn einhverjum þekktustu og sýnileg-
ustu táknum yfirburða Bandaríkja-
manna í hernaði og viðskiptalífi heims-
ins.
Árásinni hefur verið líkt við árás
Japana á Pearl Harbour árið 1941, sem
breytti gangi seinni heimsstyrjaldar-
innar og raunar mannkynssögunnar.
Þar týndu 2.300 Bandaríkjamenn lífi,
en líkast til var árásin í gær miklu
mannskæðari. Hún er sömuleiðis líkleg
til að hafa víðtækar og alvarlegar af-
leiðingar fyrir heimsbyggðina.
Munurinn er þó sá, að 1941 var ljóst
hver óvinurinn var og hver væru rök-
rétt viðbrögð Bandaríkjanna við árás-
inni. Enn sem komið er hefur enginn
lýst ábyrgð á árásinni í gær. Enginn
veit með vissu hver óvinurinn er og það
ýtir enn frekar undir þá óvissu og ör-
yggisleysi, sem óhjákvæmilega hlýtur
að grípa um sig, ekki aðeins í Banda-
ríkjunum heldur einnig í öðrum opnum
og lýðræðislegum þjóðfélögum, sem
standa með sama hætti berskjölduð
gagnvart árásum af svipuðu tagi.
Ógn sú, sem lýðræðisríkjum stafar af
hryðjuverkum, er nú nálægari og
áþreifanlegri en nokkru sinni fyrr. Til-
tölulega fámennur, en þrautskipulagð-
ur hópur hefur valdið gífurlegu mann-
falli og tjóni og hér um bil lamað
daglegt líf í öflugasta ríki heims. Fólk
trúir því varla að þrátt fyrir stranga ör-
yggisgæzlu á flugvöllum hafi verið
hægt að ræna fjórum stórum flugvélum
nánast samstundis. Til þessa hafa flug-
ræningjar yfirleitt tekið farþegana í
gíslingu til að fá kröfum sínum fram-
gengt, en í þetta sinn voru flugvélarnar
notaðar sem fljúgandi sprengjur og
hvergi skeytt um líf farþeganna. Hern-
aðarmáttur Bandaríkjanna stoðaði
ekkert; engum vörnum varð við komið.
Landamæraeftirlit og tollgæzla kom að
engu gagni; hryðjuverkamennirnir
þurftu ekki einu sinni að smygla
sprengiefnum inn í Bandaríkin.
George W. Bush forseti Bandaríkj-
anna hefur lýst því yfir að þeir, sem
stóðu að baki ódæðinu, verði eltir uppi
og þeim refsað. Vissulega er mikilvægt
að koma höndum yfir þá, sem skipu-
lögðu þessi myrkraverk, en réttlæti er
mikilvægara en hefnd og brýnna að
gripið verði til aðgerða gegn hryðju-
verkamönnum almennt á grundvelli
greinargóðra upplýsinga og horft til
lengri tíma en að Bandaríkin svari
strax í sömu mynt.
Atburðirnir í Bandaríkjunum munu
hafa mikil áhrif á það hvernig vestræn
lýðræðisríki skilgreina og verja öryggi
sitt. Öryggishugtakið hefur tekið
breytingum undanfarinn áratug. Með-
an á kalda stríðinu stóð var ógn sú, sem
Vesturlönd bjuggust til varnar gegn,
tiltölulega skýrt skilgreind – hernaðar-
máttur Sovétríkjanna. Í heimi ógnar-
jafnvægisins var afstaða andstæðings-
ins þrátt fyrir allt tiltölulega vel þekkt,
viðbrögð hans fyrirsjáanleg og hægt að
fylgjast með vísbendingum um að
hætta væri á ferðum. Á síðustu árum
hafa umræður farið vaxandi, ekki sízt
innan Atlantshafsbandalagsins, um að
Vesturlönd verði að endurskipuleggja
öryggisviðbúnað sinn til að geta brugð-
izt við ýmsum verr skilgreindum og
ófyrirsjáanlegri hættum, m.a. af
hryðjuverkum.
Hins vegar hefur í raun ekki verið
gripið til raunverulegs, alþjóðlegs
átaks gegn hryðjuverkastarfsemi.
Slíkt er líka langt frá því að vera auð-
velt. Hryðjuverkamenn eiga létt með
að dyljast á meðal almennra borgara.
Vaxandi tíðni sjálfsmorðsárása gerir
enn erfiðara að verjast þeim. Það getur
verið torvelt að hindra starfsemi þeirra
án þess að takmarka um leið persónu-
og ferðafrelsi borgara í lýðræðisríki
eða grípa til mismununar að ósekju
gagnvart fólki frá ríkjum, sem grunuð
eru um að hýsa hryðjuverkamenn.
Engu að síður verða Vesturlönd að
leita allra leiða til að verja borgara sína
fyrir þessari nýju ógn. Árásin á Banda-
ríkin verður án efa til þess að NATO-
ríkin setji nýjan kraft í varnir gegn
hryðjuverkum. Stjórnvöld og skatt-
greiðendur geta þurft að horfast í augu
við að slíkt þýði að útgjöld til varnar-
og öryggismála verði aukin á nýjan
leik. Nýrra aðferða er hins vegar þörf;
atburðir gærdagsins sýna að hefð-
bundnar varnir duga ekki til. Eld-
flaugavarnir þær, sem Bandaríkja-
menn hafa áætlanir um, gætu heldur
ekki hindrað hryðjuverk á borð við þau,
sem nú hafa verið framin. Líklegt er að
vestræn ríki þurfi að efla mjög leyni-
þjónustu sína og upplýsingaöflun, enda
spyrja margir nú hvers vegna leyni-
þjónusta og alríkislögregla Bandaríkj-
anna hafi ekki komizt á snoðir um hið
þaulskipulagða samsæri. Jafnframt
hlýtur stórefld öryggisgæzla í flugi um
allan heim að verða þáttur í viðbrögð-
um við árásinni.
Ekki er ósennilegt að hörmungar
gærdagsins verði ennfremur til þess að
kröfur verði háværari í Bandaríkjun-
um um að ríkisstjórn Bush endurskoði
stefnu sína í málefnum Mið-Austur-
landa. Margir leiða líkur að því að árás-
armennirnir tengist hryðjuverkahreyf-
ingum í Mið-Austurlöndum og að
óbilgjarn stuðningur núverandi Banda-
ríkjastjórnar við Ísrael hafi orðið til-
efni árásarinnar í gær. Sumir munu
krefjast þess að Bandaríkin dragi sig
inn í skel einangrunarinnar og hætti að
styggja erlend öfl með íhlutun í málefni
annarra heimshluta. Aðrir munu
heimta enn meiri hörku í samskiptum
við íslömsk Arabalönd. Hvorugt er
skynsamlegur kostur. Hryðjuverka-
mennirnir, hverjir sem þeir eru, eru
ekki fulltrúar neinnar þjóðar, neinna
trúarbragða eða neins réttmæts mál-
staðar. Bandaríkin eru í krafti efna-
hagslegs og hernaðarlegs styrks síns
áfram í lykilstöðu til að stuðla að friði
fyrir botni Miðjarðarhafs og hörmung-
ar gærdagsins mega ekki verða til þess
að þau hætti að nota þá stöðu; þvert á
móti verða allir nú að leggja enn meira
á sig til að koma á friði.
ALLT flug til Bandaríkjanna var
bannað í gær um óákveðinn tíma
vegna hryðjuverkanna. Um 40 flug-
vélar voru í íslenska flugstjórnar-
svæðinu á vesturleið þegar tilkynn-
ingin barst. Vélar sem komnar voru
vestur fyrir íslenska flugstjórnar-
svæðið og voru á vegum bandarískra
og kanadískra flugfélaga lentu í Kan-
ada en um 20 vélum var snúið til Evr-
ópu á ný.
Gripið var til hertra öryggisráðstaf-
ana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á
varnarsvæðinu strax eftir hádegi í
gær í kjölfar atburðanna í Bandaríkj-
unum. Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, tjáði
Morgunblaðinu að Bandaríkjamenn
hefðu lýst ákveðnu viðbúnaðarstigi á
öllum herstöðvum í Bandaríkjunum
og stöðvum sínum erlendis. Sýslumað-
ur sagði þennan viðbúnað þýða að um-
ferð inn og út af vallarsvæðinu færi
aðeins um eitt hlið, leitað væri í flest-
um farartækjum og bæði herlögreglu-
menn og íslenskir lögreglumenn
vopnuðust. Gripið væri til ákveðinna
varúðarráðstafana við mannvirki á
svæðinu sem hefðu hernaðarlega
þýðingu. Öryggiseftirlit var einnig
hert í Flugstöðinni með vopnuðum
vörðum, vopnaleit var hert bæði hjá
farþegum á leið inn og út úr landinu.
Jóhann sagði ekki hafa hlotist tafir af
þessum aðgerðum þar sem starfs-
mönnum hefði verið fjölgað.
Fjórar þotur lentu í Keflavík síð-
degis til að taka eldsneyti á leið sinni
til baka. Tvær voru frá SAS og tvær
frá Lufthansa. Mikið álag var á ís-
lensku flugstjórnarmiðstöðinni og
fjölgað á vaktinni. Á venjulegum degi
eru 6 til 9 manns við störf en í gær
voru þeir 16. Heimir Már Pétursson,
upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar,
sagði röskun hafa verið mikla á flugi
milli Evrópu og Bandaríkjanna og
ekki væri ljóst hvænær flug yrði með
eðlilegu móti á ný. Þá sagði hann að
búast mætti við töfum á flugi í Evr-
ópu vegna aukins álags.
Á vegum Flugleiða átti að fljúga til
fjögurra borga í gær, New York,
Baltimore, Boston og Minneapolis og
voru þær ferðir felldar
Arngrímsson, blaðafull
sagði um 420–430 farþe
frá Evrópu síðdegis í g
áttu áfram til Banda
þeim útveguð gisting
ekki var ljóst í gærkvö
þegar kæmust áfram
Guðjón að einhverjir
við Ameríkuferð og snú
ný.
Boeing 757 fraktvél
JFK-flugvellinum í New
ur þess að fá leyfi ti
Keflavíkur. Tvær áha
eru í New York og am
þeim eða áhöfnum féla
borgum.
Atlanta flytur
frá Alsír til E
Flugfélagið Atlanta á
flytja Boeing 747 þotu
starfsfólk frá Alsír til
óstaðfestra fregna um
verkasamtaka frá Nor
eða Mið-Austurlöndum
Aukið álag varð á íslenska flugstjórnarsvæðinu í
Flug til Bandarí
bannað um óákveð
EFTIR að ljóst var orðið í gær að
flugumferð yfir Bandaríkjunum yrði
bönnuð, í það minnsta í einn sólar-
hring, í kjölfar hryðjuverkaárásanna,
fóru blaðamenn Morgunblaðsins í
Leifsstöð og tóku tali nokkra farþega
sem voru á leið til Bandaríkjanna,
annaðhvort eftir dvöl á Íslandi eða
með millilendingu í Keflavík á leið frá
Evrópu. Fæstir höfðu nokkra hug-
mynd um það sem gerst hafði. Aldrei
þessu vant voru blaðamenn aðallega í
því hlutverki að upplýsa viðmælend-
ur sína. Vantrú, hryllingur og ótti
einkenndi viðbrögð fólks við fréttun-
um, enda ótrúlegar og óhugnanlegar.
Margir vinir starfa í miðbænum
Usha Shanmugan var búin að vera
á ferð um Ísland og hugðist fljúga til
New York með síðdegisvélinni í gær.
Hún er frá New York og á auk þess
fjölskyldu í Pittsburgh. Hún hafði
ekkert heyrt um atburðina í Banda-
ríkjunum þegar blaðamenn tóku
hana tali og brast í grát þegar henni
var sagt frá.
Hún reyndi strax að hringja til
New York að fá fréttir af fjölskyldu
sinni eins og fleiri samlandar hennar
sem staddir voru í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar en útilokað var að ná sam-
bandi við New York. Hún sagðist
þekkja marga sem unnu í World
Trade Center. „Ég á marga vini sem
starfa í miðborginni,“ sagði hún. „Og
ég á fjölskyldu í Pittsburgh og í New
York.“ Shanmugan átti erfitt með að
trúa því, að þetta hefði gerst. „Svo að
The World Trade Center er bara
horfið? Hrunið? Svo allir þar inni …?
Óttast um fjölskylduna
David Sumner frá Tennessee í
Bandaríkjunum ætlaði einnig að
fljúga til Bandaríkjanna í gær. Hann
á fjölskyldu í Washington og var að
vonum mikið niðri fyrir. „Mér líður
auðvitað hræðilega. Á þessum tíma-
punkti er þetta mjög mikið áfall. Það
er litlar fréttir að fá og erfitt að skilja
hvað er að gerast. Auðvitað er ég í
miklu uppnámi; líklega hafa fjöl-
margir slasast og dáið. Auðvitað er
maður áhyggjufullur, því maður ótt-
ast um fjölskyldu sína.“
Hvað gerir Bush?
„Ef ég hefði verið fyrr á ferð hefði
ég verið í hættu,“ sagði Ronny Sun-
shine frá New York, sem millilenti á
leið frá Amsterdam. Hann sagðist
hafa beðist fyrir, meðal annars um
frið í heiminum, áður en hann fór í
loftið og svo hefði þetta gerst. Hann
var nýbúinn að hringja í vin sinn og
biðja hann um að reyna að ná sam-
bandi við mömmu sína, sem býr í
New York. Hann hafði ekki mikla
tiltrú á skynsamlegum viðbrögðum
Bush Bandaríkjaforseta. „Það er
ekki gott að vita hvað Bush mun
gera. Það hefði þrátt fyrir allt verið
miklu betra að hafa Clinton við þess-
ar aðstæður, miklu betra.“ Það er til
marks um það uppnám og þær sögur
sem fara á kreik við aðstæður sem
þessar að Sunshine sagði blaðamönn-
um að hann hefði frétt í gegnum síma
að kjarnorkusprengja hefði verið
sprengd einhvers staðar neðanjarðar
í miðvesturríkjum Bandaríkjanna.
Besti vinurinn í Pittsburgh
Mike Gabon, Kanadabúi sem býr í
Toronto, ætlaði einnig að fljúga vest-
ur um haf síðdegis í gær. Hann átti
eitt sinn heima í New York og sagð-
ist eiga marga vini þar í borg og
einnig í Pittsburgh, e
anna féll til jarðar í gre
burgh. „En nú er ég f
aðrir því að eina leiðin t
gegnum Bandaríkin. E
inn þegar ég kemst til K
fjölskylda mín er þó
ekki að við höfum u
þessu líkt í okkar eigin
þetta í kvikmyndunum
geddon. En þar er þ
Hér er það einhvers k
gjörn, vel skipulögð hug
ur að baki. Af hverju
svona lagað? Er það e
vitleysa? Hvað olli þv
gerði þetta?“ Hann sag
inn því að vera Kanad
Bandaríkjamaður.
væru friðsamir og eng
þeim slíkt.
En þú hlýtur að haf
vinum þínum í New Yor
„Vinum mínum í N
besta vini mínum, sem
Pittsburgh. Er þar í
Viðbrögð erlendra farþega í Leifsstöð sem voru á le
Vantrú og hryl
Usha Shanmugan sagðist eiga marga vini sem störfuðu í m