Vísir - 23.10.1979, Qupperneq 1
Þriðjudagur 23. október 1979/ 233. tbl. 69. árg.
Eitt hundraS nýir „útsölubilar” til Daihatsu umboösins komu tii landsins meö Hafskipi f morgun.
Vfsismynd — JA.
Prófkjör Aibýöuflokksins:
Benedikt hræddur
um að detta út!
Benedikt Gröndal, forsætisráö-
herra og formaöur Alþýöuflokks-
ins, sagöi f Morgunpóstinum i
morgun, aö hann óttaöist ekkert
meira f landsmálum þessa stund-
ina en aö tapa fyrir Braga
Jósepssyni i prófkjörinu i
Reykjavik og þurfa aö leita sér aö
nýrri atvinnu.
Vegna þessara ummæla sneri
Vfsir sér til Benedikts i morgun
og spuröi hvort þaö væri ekki sitt-
hvaö annað i landsmálum, sem
hann þyrfti aö hafa áhyggjur af.
„Persónulega hef ég mestar
áhyggjur af prófkjörinu. Ég vil
ekki leggja áherslu á orðiö
„landsmál” I þessu sambandi,
heldur frekar pólitik”.
Benedikt Gröndal: óttast aö tapa
fyrir Braga Jósepssyni og þurfa
aö leita sér aö annarri atvinnu.
— Hefur þú ástæöu til aö halda
aö dr. Bragi Jósepsson sigri þig i
þessu prófkjöri?
„Ég tel Braga vera mjög
hættulegan andstæðing, sem hafi
fullkominn möguleika á aö sigra.
Bragi hefur sýnt þaö i prófkjörum
áöur, aö hann er mjög haröur og
duglegur áróöursmaöur og hann
hefur öfluga sveit stuönings-
manna.
Viö erum báöir f framboöi bara
til fyrsta sætis og þaö þýöir aö sá
sem tapar, hann dettur af listan-
um. Menn færast ekki til. I minu
tilfelli myndi ég detta alveg út af
þingi og ef til vill meiru”, sagöi
Benedikt Gröndal.
—ATA
Tónlístarskólarnlr:
Grelðsiur ekki siöðvaðar
en frestað sums slaðar
„Viö höfum engar ráöstafanir
gert til aö stööva greiöslur tii tón-
listarskólanna. Þeim hefur hins
vegar verið frestað til nokkurra
skóla vegna meiri kostnaöar en
áætlaöur var vegna þeirra,”
sagöi Birgir Thorlacius, ráöu-
neytisstjóri I menntamálaráöu-
neytinu, viö Visi i morgun.
Um helgina birtust fréttir þess
efnis, að launagreiðslur heföu
verið stöövaðar til tónlistarskóla
landsins. Birgir Thorlacius sagði,
aö þaö væri misskilningur. Sumir
tónlistarskólanna hefðu vanáætl-
að launakostnaö fyrir þetta ár.
Auk þess heföu endurgreiöslu-
kröfur margra sveitarfélaga bor-
ist örar en gert hafi verið ráö
fyrir.
Þetta kvaö Birgir vera ástæöur
þess, aögreiöslur rikissjóösheföu
i mörgum tilfellum tafist og sagöi
hann, aö likindi væru til aö svo
yröi áfram til þeirra skóla, sem
heföu fafiö verulega fram úr sin-
um eigin áætlunum.
Enneróráöstafað I22miljónum
króna, sem samkvæmt fjárlögum
er ætlaö til launagreiöslna tón-
listarskólanna og taldi Birgir það
mundu nægja til aö standa við
greiðsluskuldbindingar rikissjóös
vegna þessa árs.
—SJ
Ólafur fram
í Reykjavík
„Ég er aö ihuga þaö”, sagöi
Ólafur Jóhannesson fyrrverandi
forsætisráöherra viö Visi i
morgun er hann var spuröur
hvort hann gæfi kost á sér til
framboðs I Reykjavik.
Ólafur varö i efsta sæti i skoö-
anakönnun Fulltrúaráös Fram-
sóknarflokksfélaganna i
Reykjavik fyrir alþingiskosn-
ingarnar, sem fram fór á
laugardag, sunnudag og mánu-
dag.
Ólafur fékk 195 atkvæöi. I
ööru sæti varö Haraldur ólafs-
son meö 167 atkv., Guömundur
G. Þórarinsson fékk 142 atkv.,
Sigrún Magnúsdóttir 70 atkv. og
Kristján Friöriksson 54 atkv.
1 næstu fimm sætum uröu
Sverrir Bergmann, Svala Thor-
lacius, Kristinn Agúst Friö-
finnsson, Þórarinn Þórarinsson
og Bjarni Einarsson.
„Þaö má segja aö maöur sé
alltaf spenntur fyrir kosningum,
og það liöur að þvi, aö ég veröi
aö taka ákvöröun”, sagöi Ólaf-
ur.
Ólafur sagöi aö hann heföi
ekki gefiö kost á sér i skoðana-
könnunina en hefði veriö kunn-
ugt um að áhugi væri fyrir þvi
aö hann færi fram.
„Ég er búinn aö ákveöa aö ég
fer ekki fram fyrir norðan og ég
mun kveðja þá þar á kjör-
dæmisþingi um helgina”, sagði
Ólafur.
Fulltrúaráö Framsóknarfél-
aganna mun siöan á föstudaginn
og laugardaginn nk. kjósa um
þá sem uröu í 10 efstu sætum i
skoðanakönnuninni. Talið er
fullvíst meöal stuöningsmanna
Ólafs Jóhannessonar i Reykja-
vik aö hann muni gefa kost á sér
til framboðs þar.
—KS
Ólafur Jóhannesson. Kannski hefur hann ekki sagt sitt sföasta orö á
Alþingi, þó aö margir hafi haldiö þaö.
„Berst ekkí við oiaf”
- segir Guðmundur G. Þórarlnsson
„Ég geri þaö. Aö visu er mér
ekki alveg ljóst um framboö
Ólafs Jóhannessonar. Ef hann
stefnir á fyrsta sætiö, geri ég
það ekki”, sagöi Guömundur G.
Þórarinsson, verkfræöingur, viö
Visi I morgun, er hann var
spuröur hvort hann stefndi á
fyrsta sæti framboöslista
Framsóknarflokksins i Reykja-
vik fyrir alþingiskosningarnar.
„Ég tek ekki þátt i neinni'bar-
áttu viö Ólaf Jóhannesson, sem
er ókrýndur foringi flokksins ”,
sagöi Guömundur. —KS
Guömundur: Stefni á fyrsta
sætiö, en berst ekki viö Óiaf.
„Tek ekki sæti á listanum”
- seglr Svala Thorlaclus
„Það kemur mér mjög á
óvart aö sjá þetta þvi ég hef
itrekað sagt aö ég gæfi ekki kost
á mér I framboö”, sagöi Svala
Thorlacius hdl„ viö Visi I morg-
un,en hún varö i hópi 10 efstu
manna við skoðanakönnun Full-
trúaráös framsóknarfélaganna
i Reykjavik fyrir alþingis-
kosningarnar.
Svala sagöi aö hún myndi
undir engum kringumstæðum
taka sæti á listanum. „Ég stóö i
þeirri trú að þegar ég væri bú- _
in að segja nei myndi nafn mitt B
ekki koma til greina i þessari I
skoðanakönnun”, sagöi Svala. ■
—KS ■
• mmwmmmmwmd