Vísir - 23.10.1979, Blaðsíða 3
3
VÍSIR
Þriöjudagur 23. október 1979
Prófkjör
Sjálfstæðis-
f lokksins í
Reykjavík
Jóna Gróa Sigurðardóttii
„Nú er ég sko hættur!”
„Hérna fer ég af, og þakka
þér kærlega fyrir samfylgd-
ina”.
Fyrir þá, sem ekki gera sér
fyllilega ljóst hvaö hér er á
seyði, skal þaö upplýst, að hér
skiljast leiðir hestsog knapa, og
það heldur óvænt. Hesturinn var
að fara yfir hindrun en tókst
ekki betur en svo, að hann fór
beinlínis á hausinn. Knapinn sá
sér þá þann kostinn vænstan að
yfirgefa samkvæmið.
Hvorki hesti né knapa varð
meint af þessari kollsteypu, en
hesturinn mun hafa sett upp
hundshaus vegna þess að hann
var dæmdur úr leik fyrir vikið.
VALFRELSI:
VILL ATKVÆÐA-
GREHDSLU UM
ÞJÓÐARATKUÆÐI
„Fyrsta skrefið er að finna út
hvort mögulegt sé að koma tillög-
unni til atkvæðagreiðslu i næstu
kosningum,” sagði Sverrir Run-
ólfsson framkvæmdastjóri Val-
frelsis i samtali við Vlsi.
Á fundi framkvæmdanefndar
Valfrelsis fyrirhelgina var sam-
þykkt að freista þess að fá 25.
grein stjórnarskrárinnar breytt,
þannig að fólkeigi möguleika á að
fá þjóðaratkvæðagreiðslu um
ákveðin mál.
í tillögu Valfrelsis á þjóðarat-
kvæðagreiðsla að fara fram, ef
1% kjósenda undirritar yfirlýs-
ingu um að tiltekið mál verði
þannig lagt undir dóm þjóðarinn-
ar um leið og almennar kosningar
fara fram. Ef efna þarf til sér-
stakra kosninga, þurfi 10% kjós-
enda að undirrita slika yfirlýs-
ingu.
„Gunnar G. Schram segir okk-
ur, að til þess að unnt sé að greiða
atkvæði um þetta i næstu kosn-
ingum, þurfi aðeins samþykki
rikisstjórnarinnar,” sagði Sverr-
ir.
„Við höfum skrifað ráðherrun-
um og beðið um viðtal. Égséekki
hvernig þeir geta staðið gegn
þessu, þvi þetta mál hefur verið á
stefnuskrá Alþýðuflokksins. En ef
þeir segja að þetta sé ekki fram-
kvæmanlegt, munum við koma
undirskrif talistum til allra kjós-
enda. Það er vel hægt fyrir kosn-
ingar. Ef áhuginn er fyrir hendi,
er allt mögulegt.” —SJ
Norourland eystra:
TVÆR FYLKINGAR KRATA
OG VfBAR ER ÓLGA
Tvær fylkingar berjast um
efstu sætin I prófkjöri Alþýðu-
flokksins á Norðurlandi eystra
og þykir hagur Árna Gunnars-
sonar hafa vænkast mjög eftir
að Jón Helgason, formaður Ein-
ingar, og Sigbjörn Gunnarsson
Steindórssonar, fyrrverandi
skólameistara, ákváðu að taka
þátt i prófkjörinu.
Arni gefur aðeins kost á sér i
1. sæti, JónHelgason I 2. og Sig-
björn Gunnarsson i 3. sæti. Hinn
armurinn er skipaður Braga
Sigurjónssyni i 1. sæti, Jóni
Ármanni Héðinssyni.sem býður
sig fram i 1. og 2. sætið og Bárði
Halldórssyni I 3. sæti.
Framboð Sigbjarnar
Gunnarssonar vekur athygli á
Akureyri, þar sem Steindór
Steindórsson, fyrrverandi skóla-
meistari og hans fólk, hefúr
jafnan verið ein helsta krata-
fjölskylda norðan heiða og stutt
Braga Sigurjónsson gegnum
þykkt og þunnt. Eru sumir
þeirrar skoðunar að Steindórs-
fjölskyldunni hafi þóttfram hjá
sér gengið, er Bragi bauð Bárði
sæti á listanum og þetta kunni
að reynast Braga dýrkeypt.
Fylgismenn Braga bendla Arna
við Reykjavikurvald en hins
vegar telja margir Alþýðu-
flokksmenn utan Akureyrar, að
Akureyrarvaldið sé sýnu verra
og fylkja sér um Arna.
Sólnes úr leik
Niber talið öruggt að Jón G.
Sólnes verði ekki i efsta sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins er
hann verður birtur um næstu
helgi. Ekki mun Sólnes þó
hyggja á sjálfstætt framboðeins
og heyrst hefur, en hins vegar er
mikil ólga meðal margra stuðn-
ingsmanna hans og sumir hafa
haft á orði að kjósa ekki flokk-
innnæst, þar sem gamla ljóninu
hafi verið bolað i burtu.
Lárus Jónsson telur sig eiga
rétt á sæti Jóns Sólness, það er
fyrsta sætinu, en einhver hreyf-
ing er i þá átt að styðja Halldór
Blöndal i það sæti.
Naumt hjá Stefáni
Alþýðubandalagið kom sam-
anlistaum helgina, enþaðgekk
ekki átakalaust og um tima leit
út fyrir að Helgi Guðmundsson
trésmiður felldi Stefán Jónsson
úr efsta sætinu. Yngra fólkið i
Alþýðubandalaginu heimtaði
forval með það i huga að koma
Helga að, en Stefán marði
meirihluta með þvl að sam-
þykkt var ályktun.þar sem þvi
var heitið að forval færi fram
næst.
Framsókn í vanda.
Mikil ólga er meðal ungra
Framsóknarm anna sem heimta
skoðanakönnun áður en gengið
verður frá framboðslista I þeim
tilgangi að koma Stefáni Val-
geirssyni frá og jafnvel þykir
sumum sem Ingvar Gi'slason
hafi setið nógu lengi. Ljóst ct að
Ingi Tryggvason ætlar ekki að
taka þriðja sæti listans.
Hinir ungu hyggjast sækja sér
frambjóðanda til Keflavikur
sem er Guðmundur Bjarnason,
útibússtjóri Samvinnubankans
þar. Guðmundur var áður á
Húsavik og er kvæntur inn i eina
mestu krataf jölskyldu Húsavflí-
ur. Hinir eldri vilja hins vegar
raða röðun listans i ró og næði
og er ekki vitað hvernig þessi
barátta endar. "SG
Húsn
Sverrir Runólfsson, Valfrdsi: Al-
þýöuflokkurinn getur ekki staðið
á móti þjóöaratkvæðagreiðslu.
ÓLAFSYÍK - GKUKDAKFJORÐUK - STYKKISHOLMUR
phyris Snyftiyörukynning
Snyrtif ræðingur okkar kynnir hinar vinsælu
Phyris snyrtivörur og leiðbeinir um
meðhöndlun húðarinnar. „ókeypisV
ólafsvík
Grundarf jörður
Stykkishólmur
miðvikud. 24.okt. Stykkishólms-
Apótek
fimmtud. 25. okt. Versl. Grund.
föstud. 26. okt. Stykkishólms-
Apótek.
Phyris er húðsnyrting og hörundsfegrun
með hjálp blóma og jurtaseyða.
Phyris f yrir allar húðgerðir
Fegrun úr blómum og jurtum.
phyris
Umboðið
phyris
Svanborg Danielsdóttir
snyrtifræðingur.