Vísir - 23.10.1979, Blaðsíða 6
VISLR Þri&judagur 23. október 1979
6
Jón Karlssonog félagar i Val ættu ab fara létt meft aö tryggja sér sæti I
8-liöa úrslitum Evrópukeppni meistaraliöa, þvi aö ensku mótherjarnir
þeirra eru ekki þeir bestu eöa frægustu á handknattieiksvellinum.
Róöurinn lettur
hjá valsmönnuml
- Drógust gegn ensku meisturunum í Evrópukeppninni
í handknatlleik. Enska liðið komsl í 2. umleró án pess að
leika. pvi að peir neituðu Færeylngum um trestun
„Égerekkifráþviaö við reyn-
um aö leita eftir samningum um
að leika báöa leikina Uti”, sagöi
Jón Karlsson, handknattleiks-
maöur hjá Val, er Visir ræddi við
hann i gær. Þá hafði verið dregiö i
2. umferð i Evrópukeppni meist-
araliöa, og á Valur að leika þar
gegn ensku meisturunum Brent-
wood,
„Égreikna ekkimeöþviaö þaö
hafi margir áhuga á aö sjá Eng-
lendinga leika hér handknatt-
leik”, sagði Jón. „Þeir eru góöir I
knattspyrnu Englendingar, en i
handknattleik eru þeir ekki i
fremstu röð”.
— Hvaö var efst á óskalistanum
hjá ykkur?
„Ég veit það varla, en viö hefö-
um ekki haft áhuga á þvi aö fara
enn eina feröina austur fyrir
járntjald, þaö er vist nóg aö fara
þangað i úrslitaleikinn”.
Þaö er óhætt aö segja, aö Vals-
menn hafi verið bæöi heppnir og
óheppnir. Oheppnir hvað þaö
snertir, aö sennilega „trekkja”
Englendingarnir ekki mikiö af á-
horfendum ef leikiö veröur hér-
lendis, en heppnir að þvi leyti að
sætiö i 8-liöa úrslitunum ætti aö
vera gulltryggt.
Enska liðið Brentwood komst i
2. umferð, þarsem færeyska liðiö
Kyndill, sem átti aö leika gegn
þeim i 1. umferö, komst ekki til
Englands á réttum tima. Færey-
ingarnir fóru fram á þaö við for-
ráðamenn Brentwood, aö þeir
frestuðu leiknum um nokkrar
klukkustundir, en þaö var ekki
tekið i mál. Ekki beint iþrótta-
mannsleg framkoma hjá þeim
ensku, setn fá vonandi „rass-
skellingu” fyrir hjá Valsmönn-
um. — gk.
FramstúlKurnar
tll Þýskalands
Það veröur sennilega erfiöur
róöurinn hjá Islandsmeisturum
Fram i handknattleik kvenna,
þegar þær ganga til leiks i 2. um-
ferö Evrópukeppni meistarahöa.
Fram vann sem kunnugt er yf-
irburöasigra gegn færeysku
meisturunum i 1. umferöinni, en i
næstu umferö veröa þaö v-þýsku
meistararnir Bayern Leverkusen
sem verða mótherjar Fram-
stúlknanna.
Kvennahandknattleikur i V-
Þýskalandi er mjög góður og
varla möguleiki á þvi að Fram
vinni sigur og komist i 3. umferð,
þótt best sé aö fullyröa ekki neitt
um þaö fyrirfram.
iTÁÍÍGÍ NÖMÉR 57735 'ÆTLÁR
AB VERBA HEIMSMEISTARI
„Ég á eftir aö veröa heims-
meistari i hnefaleikum, á þvi er
enginn vafi”, segir Bandarikja-
maöurinn James Scott, fangi
númer 57735 I Rahway State
fangelsinu i New Jersey i
Bandarikjunum.
Blökkumaöurinn Scott, sem
situr þar inni og afplánar 45 ára
fangelsisdóm fyrir vopnaö rán
og morö er þess fullviss, aö hans
timi sem heimsmeistara eigi
eftir aö lita dagsins ljós, og ef
marka má frammistöðu hans i
hringnum til þessa, er ekki
margt sem mælir gegn þvi aö
svo geti oröiö.
Þegar Scott var fangelsaöur
þann 27. mai 1977 haföi hann aö
baki 11 bardaga sem atvinnu-
maður i létt-þungavigt og hann
hafbi „afgreitt” alla mótherja
sina léttilega. Margir héldu aö
nú væri ferill hans á enda, en
Scott var á öðru máli. Hann hóf
þegar miklar og strangar æfing-
ar i fangelsinu.en þar er leik-
fimisalur, sem hann getur haft
aögang aö þegar hann óskar, og
það er ekki slegiö slöku viö æf-
ingarnar.
„Nú stefni ég að þvi aö fá leik
um heimsmeistaratitilinn á
næsta ári, annað hvort viö landa
minn Matthew Muhammed
eöa Argentinumanninn Victor
Galindez, sem er núverandi
heimsmeistari. Sá þeirra, sem
mun keppa við mig, verður að
koma hingað, þvi aö ég fæ ekki
leyfi til að berjast utan fang-
elsismúranna.
I fangelsinu hefur Scott þegar
háö fimm viðureignir viö þekkta
atvinnumenn og slegiö þá alla
„kalda” eftir fremur stuttan
tima. Hann beið spenntur eftir
þvi aö fá aö berjast viö blökku-
manninn Alvaro Lopez, en þeg-
ar til átti aö taka þoröi Lopez
ekki aö mæta.
„Ég var ekkert hissa á þvi,
þaö sem undraöi mig mest var
ab hann skyldi lýsa þvi yfir i
fyrstu aö hann þyröi i hringinn á
móti mér”, segir Scott.
Þegar þessi leikur fórst fyrir
var boö látiö út ganga til þriggja
annarra þekktra kappa, en þeir
færðust allir undan þvi að mæta
Scott. Loksins fannst einn, sem
þoröi, breski meistarinn Bunny
Johnson.
Johnson stóð sig vel til að
byrja með og i fjórðu lotu kom
hann griðarlegu höggi á Scott,
höggi, sem hefði riðið hverjum
meðaímanni að fullu. En Scott
bara hristi sig, og tveimur lot-
um siöar var það Johnson, sem
lá flatur með tærnar upp i loftið!
//Kostar ekkert"
Viðureignum hans i fangels-
inu hefur verið sjónvarpað af
NBC sjónvarpsstöðinni, og
nýlega lýsti danska sjónvarpiö
áhuga sinum á þvi að fá myndir
af viðureignum hans. Voru
gerðir út menn til að hitta Scott
og ná samningum við hann, en
hann var ekki til viðtals um
neinar peningagreiöslur. „Þiö
getið fengið aö sjónvarpa mynd-
um frá viöureignum minum án
gjalds, ég vil einungis aö heim-
urinn fái að sjá næsta heims-
m piofo i»o
Ariö 1975 stóö til að Scott
skyldi keppa við þáverandi
heimsmeistara I létt-þungavigt
um heimsmeistaratitilinn. Það
átti að skrifa undir samning
varöandi bardagann i mai þaö
ár, en daginn áöur heyrði Scott i
útvarpinu að auglýst væri eftir
bilnum hans vegna vopnaðs
ráns og morðs.
„Ég gaf mig strax fram viö
lögregluna, en var ekki sleppt
lausum vegna þess að þaö fund-
ust blóðblettir i sætinu hjá mér
og för eftir byssukúlur á hurð-
um bflsins. Ég kannaðist ekki
neitt viö rán og morð og vildi
heldur ekki segja þeim, hver
heföi verið með bilinn minn aö
láni. Og i staöinn fyrir aö fá aö
keppa um heimsmeistaratitil-
inn fékk ég fanganúmeriö
57735”.
gk—.
James Scott: „1 staöinn fyrir aö fá leik um heimsmeistaratitilinn
fékk ég fanganúmerið 57735”.
...og haföu svo þennan á kjammann, vinur... — Scott æfir sig af
krafti I fangelsisgaröinum og félagi hans fær „einn á snúöinn” eins
og sjá má.