Vísir - 23.10.1979, Síða 12

Vísir - 23.10.1979, Síða 12
Hér eru þeir saman á góðri stund Kissinger og Sjii Enlc. Kissinger segir i minningabók sinni, aö Sjú Enlæ sé eitt mesta mikilmennib, sem hann hafi hitt á lifsleihinni. Palladómar Kissinger setur fram i bók sinni sem nú er aö koma út, nokkra hreinskilnislega palladóma um þjóðarleiðtoga og valdamenn sem hann haföi samskipti viö á þeytingi sinum heimshornanna i miili. Leggur hann enga dul á viröingu sinni fyrir kinversku leiötogunum, Mao og Sjú Enlæ. Sjú Enlæ Hann telur Sjvl Enlæ annan tveggja eða þriggja mestu mikilmenna, sem hann hefur hitt á lífsleiðinni, þótt hann geri sér hins vegar ekki háar hug- myndir um það þjóðskipulag og stjórnkerfi, sem Sjú var fulltrúi fyrir. Kissinger gerir samanburð á samningaaöferðum Sovét- manna og Kinverja og hefur m.a. orð á þvi, aö Klnverjar hafi aldrei gripið til ómerkilegra Rabin Um þáverandi sendiherra tsraels i Bandarlkjunum Yitzhak Rabin sem siðar varð forsætisráöherra, segir Kissing- er, aö Rabin hafi haft ýmsa lofs- veröa hæfileika og veriö fyrir margar sakir merkilegur maður, en næmi fyrir mannleg- um samskiptum hafi ekki verið meðal kosta hans. „Ef hann hefði fengiö gefins allan flugher Bandaríkjanna, hefði honum tekist að láta á sér Kissingers Hvað skyldi Nixon vera að hugsa um Indlru þarna? Að sögn Kissingers var það ekki allt prenthæft, sem Nixon lét sér um munn fara um Indlru eftir viðræður við hana. skilja, að þar hefðu tsraelsmenn svo sem ekki fengið annað en það, sem þeir heföu unnið til, fundið ýmsa tæknigalla á flug- vélunum, og látið llta svo út, að þeir tækju við þeim sárnauöugir af einskærri greiðasemi við okkur”. Ekki verður annað séö en við þetta tækifæri hafi Bresjnev sýnt Nixon betri hliðina á sér. bragða I von um aö fá sitt fram, eins og Kissinger haföi þó einatt mætthjá öörum kommúnistum I samningabralli. — Klnverjarnir gengu hreint til verks, komu sér beint aö efninu, studdu sln við- horf rökum og stóöu við sln orð. Bresjnev Um Bresjnev skrifar Kissing- er meðal annars, að hann hafi verið dæmigerður Rússi. Skipst hafi á hrottaskapur og hlýleiki, samtímis ruddalegur en þó hrlf- andi, slóttugheit og einlægni og þegar Bresjnev gortaöi af mætti Sovétrlkjanna hafi hann þó um leið verið eins og ekki of viss I sinni sök. Kissinger um Rabin: Merkileg- ur maður, en ekki sérlega lag- inn I mannlegum samskiptum. Indira Indira, dóttir Nehrús, var heldur ekki meðal uppáhalda Kissingers og Nixons. Taum- laust sjálfsöryggi og sann- færing um eigið ágæti og næst- um arfgenga siðgæðisyfirburði, vakti nánast upp gæsahúð hjá Nixon, sem átti bágt með að þola skort hennar á skopskyni og frystandi þagnir I samræð- um. Hún meðhöndlaði Nixon með samblandi af fyrirlitningu fyrir fulltrúa hins kapítalíska vest- ræna heims — sem er svo mjög I tlsku I þróunarlöndunum — og fasi sem gaf til kynna að allt það, sem gáfnaljósin meðal kunningja hennar hefðu sagt henni af Nixon, gæti ekki verið vitlaust. Nixon áleit, að Indlra væri jafn óbilgjörn og ófyrirleitin og hann sjálfur I stjórnmálum. Segir Kissinger, að það hafi margt hvað ekki verið prent- hæft, sem Nixon lét sér um munn fara um Indiru, eftir viö- ræður við hana. De Gaulle Leiðtogaeiginleikar De Leiötogahæfileikar De Gaulle höfðu mikil áhrif á Kissinger. Gaulles höfðu mikil áhrif á Kissinger sem lýsir því, hvernig aliir hafa flykkst um hers- höfðingjann, þegar hann kom til þess að vera við jarðarför Eisenhowers I Washington 1969. Kissinger segist hafa haft þaö á tilfinningunni, að færði De Gaulle sig út að glugga mundi þyngdarpunkturinn I herberg- inu færast með og allt velta út I garðinn. —GP 12 SÍS í Bandaríklunum: Byggja lyr- ir næstu 5-10 ár Nú eru hafnar miklar Sbygg- ingaframkvæmdir hjá sölufyrir- tækinu Iceland Seafood Corpora- tion I Bandarlkjunum. Fyrir skömmu var fyrsta skóflustungan tekin að viðbyggingunni að -viö- stöddum allmörgum gestum. Við það tækifæri kom m.a. fram, að byggingar fyrirtækisins eru nú samtals að flatarmáli um 9.000 fermetrar, en nýbyggingin verð- ur heldur stærri, eða samtals r- rúmir 9.7000 fermetrar. Frá þeim segir I nýútkomnum Sambands- fréttum. 1 ræöu Guðjóns B. Ólafssonar frkvstj. viö þetta tækifæri kom það m.a. fram, að áætlaö er að ljúka allri byggingunni á árinu 1980. I fyrsta áfanga, sem á að vera tilbúinn i febrúar, verður til húsa rannsókna- og tilraunadeild fyrirtækisins, sem m.a. mun hafa til afnota sérstaka tilraunafram- leiðslulinu, og einnig sérstaka efnarannsóknarstofu. Jafnframt þvl verður gæðaeftirlit fyrir- tækisins flutt um set I rúmbetra húsnæði en það hefur nú. Annar áfangi verður stór frystigeymsla, sem á að vera tilbúin i mal, ásamt loftkældu hleðslurými, hleösluaö- stööu fyrir 10 vörubila, viðgerðar- aðstöðu fyrir gaffallyftara og skrifstofum fyrir hleösludeild og frystigeymsludeild. 1 október á næsta ári er siöan áætlað, að búið verði að reisa allstóra viðbótar- byggingu fyrir sjálfa framleiðslu- starfsemina. Að öllum þessum byggingum loknum verður fyrir hendi hús- næðisaðstaða, sem gerir þaö kleift aö tvöfalda núverandi af- köst fiskréttaverksmiðjunnar. A hinn bóginn er það ekki ætlunin að auka framleiðsluna strax um helming I einum áfanga. Það er búist við, að þessar byggingar dugi fyrirtækinu a.m.k. næstu 5- 10 árin, en nákvæm athugun leiddi þaö I ljós, að hagkvæmara myndi vera að reisa þessar bygg- ingar vel við vöxt og I einum áfanga, heldur en að bæta smátt og smátt við verksmiðjuhúsnæð- ið. Núverandi byggingar Iceland Seafood Corporation eru um 9000 fermetrar að flatarmáli. Nýbygg- ingin verður nokkru stærri. sis fiytur inn graskðggla 1 kjölfar óþurrkanna I sumar lét Innflutningsdeild Sambandsins kanna það noröanlands og aust- an, hvort áhugi væri þar fyrir kaupum á dönskum graskögglum til fóðrunar I vetur. Arangurinn af því varð sá, að nú hinn 23. októ- ber lestar Hvassafell 450 lestir af graskögglum i Svendborg, sem fara til Akureyrar, Svalbarös- eyrar og Húsavlkur, handa bænd- um á þessu svæði. A öðrum stöö- um á Norður- og Austurlandi reyndist hins vegar ekki þörf á þessari fyrirgreiðslu. Verðið á þessum graskögglum er talið svipað og á innlendum grasköggl- um, eða um 210 kr. fóðureiningin. Tapaði veski Hafi einhver fundiö veski á Nesvegi við Tjarnarból er hann beðinn að láta lögregluna á Sel- tjarnarnesi vita. Maður einn var svo óheppinn að týna þar veski á laugardags- kvöldið en I þvi voru 60-70 þúsund I peningum auk skilrikja. —SG

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.