Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 14

Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÆJARYFIRVÖLD í Kópavogi telja ekki að Niðursuðuverksmiðja ORA þurfi að flytja starfsemi sína frá núverandi stað, verði tillögur um bryggjuhverfi á Kársnesi að veru- leika. Þetta er meðal þess sem kem- ur fram í svarbréfi bæjarins til lög- manns ORA, en nýlega óskaði hann skýringa á áhrifum fyrirhugaðrar landfyllingar á starfsemi verksmiðj- unnar. Eins og Morgunblaðið greindi frá höfðu eigendur ORA áhyggjur af rykmengun í tengslum við fram- kvæmdir við landfyllinguna sem gera myndi verksmiðjuna óstarf- hæfa á meðan á framkvæmdunum stæði en verksmiðjan er staðsett í Vesturvör á Kársnesi í grennd við fyrirhugaðan landfyllingarstað. Þá var óskað eftir upplýsingum hvort til stæði að taka verksmiðjuna eign- arnámi eða hvort henni væri ætl- aður staður í fyrirhuguðu breyttu umhverfi. Búist við óverulegri rykmengun Í bréfi bæjarráðs er undirstrikað að ekki hafi verið teknar ákvarðanir um framkvæmdir við bryggjuhverfi á landfyllingu við Kársnes. Bent er á að landfylling sé tímabundin fram- kvæmd og að búast megi við óveru- legu svifi rykagna á meðan á henni stæði. „Í því sambandi vilja bæj- aryfirvöld benda á að í umhverfi ORA í dag er væntanlega svifryk frá t.d. umferð bíla, frá strönd við Fossvog og eflaust frá fleiri stöðum í nágrenninu. Að öllu samanlögðu er það mat bæjaryfirvalda að ryk- mengun í nágrenni verksmiðjunnar verði ekki meiri en við megi búast almennt í nágrenni matvælaverk- smiðja. Miðað við það verður ekki dregin önnur ályktun en svo að bæj- aryfirvöld verði ekki dregin til ábyrgðar jafnvel þótt rykmengun aukist lítillega tímabundið meðan á framkvæmdum við landfyllingu stendur,“ segir í bréfinu. Þá benda bæjaryfirvöld á að aukning á rykmengun eigi ekki að vera vandamál fyrir þann loft- hreinsibúnað sem gera verði ráð fyrir að þörf sé á í matvælaverk- smiðju eins og ORA, sé hún á annað borð staðsett í þéttbýli. Þá telja bæjaryfirvöld að matvælaverk- smiðja ORA samrýmist hugmynd- um um bryggjuhverfi á Kársnesi og því standi ekki til að taka hana eign- arnámi. Morgunblaðið/Þorkell Séð yfir byggingar Niðursuðuverksmiðjunnar ORA á Kársnesi. Hugsanlegar framkvæmdir við landfyllingu á Kársnesi Engin áhrif á starf- semi verksmiðju ORA Kópavogur GOSBRUNNUR sem tákna á regn- ið verður settur upp á Ingólfstorgi í haust. Gosbrunnurinn er hluti af upphaflegri hönnun torgsins, en fyrir um tíu árum var haldin sam- keppni um hönnun þess. Það voru arkitektarnir Elín Kjartansdóttir, Haraldur Örn Jónsson og Helga Benediktsdóttir, sem nú reka teiknistofuna Arkitektur.is, sem unnu samkeppnina. Að sögn Elínar gerðu tillögur þeirra ráð fyrir að á torginu yrðu sett upp þrjú vatnslistaverk sem ættu að tákna hringrás vatnsins í íslenskri náttúru. „Þetta var hugsað þannig að þessi þrjú verk ættu að vinna saman. Regnið fellur til jarð- ar, niður fossinn og ofan í jörðina og kemur upp sem gufa,“ segir hún. „Þegar Ingólfstorg var byggt á sínum tíma voru gufustaurarnir settir upp en þeir minna á öndveg- issúlur Ingólfs og gufan er jarðhit- inn sem gaf Reykjavík nafn sitt. Tröppufossinn, sem er sitt hvorum megin við rampinn, hefur aldrei verið settur í gang vegna þess að lagnir að honum þurftu að koma frá Aðalstræti og nú kemst hann loks í gang þegar Aðalstræti hefur verið endurnýjað.“ Þriðji hlutinn, sem nú á að fara að koma fyrir á torginu, er að sögn Elínar tákn um upphafið eða regnið sem fellur til jarðar. Um er að ræða skál með vatni sem felld er ofan í hellulögnina en ofan í skálinni stendur stálbogi sem er tákn regn- bogans. Að sögn Sigurðar I. Skarphéð- inssonar gatnamálastjóra verður gosbrunnurinn settur upp í norður- hluta torgsins eða framan við Fálkahúsið svokallaða. Búist er við að farið verði í framkvæmdir nú í haust en kostnaðaráætlun vegna verksins er 9–10 milljónir en í þeirri upphæð eru innifaldar fram- kvæmdir við gosbrunninn með tjörn, auk veggja í kring og tveggja bekkja. Regn á Ingólfstorgi Miðborg Gosbrunnurinn sem nú verður tekinn í notkun er hugsaður sem tákn um upphafið eða regnið sem fellur til jarðar. FRÉTTIR TILLÖGUR um svo kölluð 30 km hverfi og aðgerðir sam- hliða þeim voru kynntar á opnum borgarafundi í Kópa- vogi í vikunni. En heildaráætl- un fyrir allan bæinn hefur ekki verið kynnt áður í Kópa- vogi. Þórarinn Hjaltason, bæjar- verkfræðingur Kópavogs, seg- ir 30 km hverfi ekki hafa verið skipulögð á svo stórum mæli- kvarða hingað til en á fram- kvæmdaáætlun til ársins 2005 er m.a. gert ráð fyrir að breyta hámarkshraða í stórum hluta íbúagatna bæjarins þannig að hann samræmist 30 km hámarkshraða. Þegar hafa verið settar 30 km hraðatakmarkanir í Sæ- bóls- og Hólmahverfi en næstu götur á framkvæmdaskrá eru í næsta nágrenni við Kópavogs- skóla. Í næsta áfanga verða svo Skjólbraut og Meðalbraut, Kópavogsdalur og norðurhluti Lindahverfis. Þórarinn segir umferðar- hraða við þessar götur mikinn og þar sem fjöldi barna sé í bænum geti skapast þar mikil slysahætta. Því sé nauðsynlegt að minnka ökuhraða í íbúa- hverfunum. Íbúar séu einnig yfirleitt ánægðir með breyt- inguna. Stefnt er að því að afgreiða tillögurnar síðar á þessu ári en áætlaður kostnaður við fram- kvæmdirnar liggur að sögn Þórarins ekki fyrir að svo stöddu. 30 km hverfi í Kópavogi Kópavogur BYGGÐA- og umhverfismál auk vel- ferðarmála verða meðal helstu áhersluatriða í starfi Vinstri-grænna á komandi þingi. Þingflokkur VG kynnti á blaðamannafundi á þriðju- dag fyrstu tíu þingmál flokksins þar sem mikil áhersla er lögð á lausn byggðavandans og verndun um- hverfis gagnvart stóriðjufram- kvæmdum. Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri-grænna, segir ljóst að á komandi þingi verði um- hverfismál og stóriðjuáform til um- ræðu þar sem tekist verði á um stór- iðjudrauma stjórnvalda. Hann sagði VG hafa lagt að nýju fram hugmynd um að komið yrði á sérstöku byggða- þingi í byrjun næsta árs og jólaleyfi þingmanna stytt en Alþingi kallað saman í janúar til að fjalla sérstak- lega um framtíðarþróun byggðar í landinu. Þá er hugmyndin sú að í tengslum við þingið verði haldin al- menn byggðaráðstefna. Þuríður Backman kynnti á fund- inum átak til að treysta byggð og efla atvinnulíf á landsbyggðinni og sagði VG vilja fara aðrar leiðir til að styrkja byggðir en reisa stóriðju. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að átakið hefjist árið 2002 á Austurlandi og beinist að verkefnum á sviði þróunar-, byggða-, viðskipta- og menningarmála. Til átaksins á að veita árlega 400 milljónir króna í sex ár af fjárlögum ríkisins. Gert er ráð fyrir að Þróunarfélagi Austurlands verði falin ábyrgð á ráðstöfun fjárins að því er Austurland varðar og reiknað er með að árangur verði metinn áður en tímabilið er hálfnað. Í ljósi þess er ætlunin að hrinda öðr- um landshlutabundnum verkefnum af stað, sem jafnframt standi yfir í sex ár. Þuríður segir að byrjað verði á Austurlandi vegna sérstakra að- stæðna þar og hinnar löngu biðar fóks og væntinga um stóriðju. Í umhverfismálum hafa VG lagt fram þingsályktunartillögu þar sem skorað er á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að mörk friðlandsins í Þjórsárverum verði stækkuð þannig að sem mest af gróðurlendinu lendi innan þeirra marka. Kolbrún Hall- dórsdóttir segir Landsvirkjun þegar hafa kynnt matsáætlun vegna fyrir- hugaðs Norðlingaöldulóns sem muni skerða umtalsverðan hluta gróður- lands innan hins friðlýsta svæðis og markmiðið með tillögunni sé að koma í veg fyrir ágang virkjana- áforma á slíkum svæðum. Milljarður til lausnar á fjárhagsvanda félagslega íbúðakerfisins Einnig hafa VG lagt fram frum- varp um breytingu á vatnalögum þar sem gert er ráð fyrir að allir meiri- háttar vatnaflutningar, líkt og fyr- irhugaðir eru vegna Kárahnjúka- virkjunar, verði háðir sérstöku samþykki Alþingis í hverju sérstöku tilviki. Meðal annarra þingmála sem VG hafa lagt fram er frumvarp til fjár- aukalaga þar sem gert er ráð fyrir að einum milljarði verði varið til lausn- ar fjárhagslegum vanda sveitarfé- laga vegna félagslega íbúðakerfisins. Þá hafa VG endurflutt þingsályktun- artillögu sína um umbætur í velferð- armálum og þróun verlferðarsam- félagsins og lagt fram tillögu um að fela ríkisstjórninni að kanna á hvern hátt unnt er með lagasetningu að sporna gegn því að fólk sé látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur er með uppsögnum eða mis- munun í starfi. Einnig hafa VG lagt fram frum- varp um breytingar á almennum hegningarlögum þar sem markmiðið er m.a. að sporna gegn klám- og vændisiðnaði. Þá leggja VG til að ríkisstjórninni verði falið að vinna rammaáætlun um eflingu hvers kyns félagslegs forvarnarstarfs, m.a. til að berjast gegn notkun ávana- og fíkni- efna. Þingflokkur Vinstri-grænna kynnir áherslumál flokksins við upphaf þings Áhersla lögð á umhverfis- og byggðamál UNNIÐ er að undirbúningi þess að færa verkefni Þjóðhagsstofnunar til annarra stofnana á vegum forsætis- ráðuneytisins. ,,Þessari vinnu mun væntanlega ljúka á næstu vikum,“ segir í greinargerð fjárlagafrum- varpsins fyrir næsta ár. Í frumvarpinu eru þrátt fyrir þessar breytingar sett fram áætluð rekstrargjöld Þjóðhagsstofnunar á næsta ári, samtals 132,6 milljónir kr., sem er 9,2 millj. kr. hækkun frá gildandi fjárlögum, vegna launa- og verðlagsbreytinga. Tekið er fram að unnið hafi verið að undanförnu á vegum forsætis- ráðuneytisins að breyttri verka- skiptingu stofnana ríkisins á sviði efnahagsmála. Flutt verði frumvarp vegna þessarar breyttu verkaskipt- ingar á haustþingi og þá verði gerð grein fyrir þeim breytingum sem gera þurfi á fjárlagafrumvarpinu í tengslum við þær. Fjárlagafrumvarp 2002 Verkefni Þjóðhags- stofnunar færð til annarra stofnana STUÐNINGUR við ríkisstjórnina er 62% nú og hefur ekki mælst meiri það sem af er árinu. Þetta kemur fram í nýrri viðhorfskönnun Gallups þar sem fólk var spurt hvaða flokk eða lista það myndi kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvort fólk styddi rík- isstjórnina og hvað það kaus í síðustu alþingiskosningum. Ríkisstjórnin hef- ur mestan stuðning í Suðurlandskjör- dæmi en minnstan í Norðvesturkjör- dæmi. Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist 42% og lækkar lítillega frá síðasta mánuði en fylgi Framsóknarflokks eykst hins vegar um 1 prósentustig í rúm 15%. Stuðningur við Samfylk- inguna eykst úr 17% í 19% en fylgi Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs minnkar lítið eitt og er nú 21%. Rúmlega 21% svarenda var ekki visst um hvað það myndi kjósa eða neitaði að svara og rösklega 7% myndu ekki kjósa eða skila auðu ef kosið yrði til Alþingis í dag. Stuðningur við ríkis- stjórnina eykst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.