Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 17
TIL SÖLU - HÁTEIGUR - AKUREYRI
232 fermetra einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Háteigur
er syðst í bænum og stendur eitt og sér á fallegu bæjarstæði með
útsýni yfir fjörðinn. Frábært skógivaxið umhverfi aðeins 5 mín. akstur
í miðbæinn. Verð 14.2 m. Brunabótamat 18 m. Ath. Eignaskipti á
ódýrara. Myndir á vefnum: http://ex18.com.
Upplýsingar gefa Fasteignasalan ehf., sími 462 1878 og eigendur
í síma 894 2618.
TÍU nemendur af listnámsbraut
Verkmenntaskólans á Akureyri,
þrír kennarar og fjórir listamenn
frá Akureyri eru að leggja upp í
ferð til Rovaniemi í Finnlandi þar
sem þeir munu vinna með finnsk-
um listamönnum. Viðfangsefnið
verður skógurinn og finnsk nátt-
úra.
Forsaga Finnlandsferðarinnar
er sú að í júní síðastliðnum hófst
samnorrænt listaverkefni sem ber
nafnið „Hraun – Ís – Skógur“ og
er áhersla lögð á hreyfilist. Fólk
frá Finnlandi, Íslandi og Græn-
landi tekur þátt í þessu verkefni,
eða frá þeim löndum sem næst
liggja heimskautsbaugnum.
Barna- og unglingalistaskólinn
í Rovaniemi, listadeild Lapplands-
háskóla og Listasafnið í Rov-
aniemi taka þátt í verkefninu fyr-
ir hönd Finnlands, Verk-
menntaskólinn á Akureyri og
Listasafnið á Akureyri fyrir hönd
Íslands og á Grænlandi hefur
verið haft samband við Norræna
húsið og Listaskólann í Nueq auk
vinabæjar Akureyrar, Nasaq.
Fimm listamenn og tíu ungling-
ar frá Finnlandi komu í sumar til
Akureyrar og dvöldu í bænum í
tíu daga en íslensk náttúra var
viðfangsefni þeirra.
Næsta haust, 2002 er svo áætl-
að að árangur nemendanna og
listamannanna af þessu samstarfi
verði á sýningu í Listasafni Rov-
aniemi og Listasafninu á Ak-
ureyri auk þess sem sýningar
verða í höfuðborgum landanna,
Reykjavík og Helsinki.
Akureyrsku listamennirnir sem
taka þátt í verkefninu eru Að-
alheiður Eysteinsdóttir, Sigríður
Ágústsdóttir, Gústaf Geir Bolla-
son og Stefán Jónsson, en kenn-
ararnir sem unnið hafa að skipu-
lagi og undirbúningi verkefnisins
eru Guðmundur Ármann Sig-
urjónsson, Sveinbjörg Hallgríms-
dóttir og Ragnheiður Þórsdóttir
auk þess sem Rósa Kristín Júl-
íusdóttir textíllistakona hefur
annast samskipti við forsvars-
menn í Rovaniemi og tekið þátt í
undirbúningi.
Áætlaður kostnaður við verk-
efnið er 22,5 milljónir króna og
hafa fengist styrkir frá Menning-
arborgarsjóði Listahátíðar
Reykjavíkur, Norræna menning-
arsjóðnum, menntamálaráðuneyti
Finnlands, Menningarmálanefnd
Finnlands og Listanefnd Lapp-
lands.
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur og kennarar í listadeild Verkmenntaskólans á Akureyri auk fimm akureyrskra listamanna taka þátt
í samnorrænu listaverkefni en hópurinn hittist í Kjarnaskógi til að undirbúa verkefnið í Finnlandi.
Taka þátt í listaverk-
efninu í Finnlandi
Nemendur og kennarar á listnámsbraut
Verkmenntaskólans og akureyrskir listamenn
BYGGÐASTOFNUN og Akureyr-
arbær eignuðust húsnæði Ako-
Plastos við Þórsstíg 4 á Akureyri á
uppboði í gær og var eignin slegin
á 85 milljónir króna. Húsnæðið er
samtals tæpir 3.800 fermetrar að
stærð, gamla húsnæði Rafveitu
Akureyrar og rúmlega 2.220 fer-
metra nýbygging.
Akureyrarbær og Byggðastofn-
un voru saman á 2. veðrétti eign-
arinnar og voru heildarkröfur bæj-
arins upp á um 90 milljónir króna
og kröfur Byggðastofnunar upp á
um 95 milljónir króna. Fasteigna-
mat eignarinnar er um 160 millj-
ónir króna og söluverð áætlað í
kringum 200 milljónir króna.
Hákon Stefánsson bæjarlög-
maður Akureyrarbæjar sagði að
reynt yrði að selja húsið en fyrst í
stað kæmi til greina að leigja húsið
undir núverandi starfsemi.
Plastprent hf. keypti 85% hlut í
Ako-Plastosi seint á síðasta ári og
hefur rekið starfsemi í húsnæðinu
frá þeim tíma.
Húsnæði Ako-Plastos selt á uppboði
Eignin slegin Akureyr-
arbæ og Byggðastofnun