Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Leifur Agnars-son var fæddur í Reykjavík 12. apríl 1948. Hann lést á líknardeild Landspít- alans 27. september síðastliðinn. Móðir hans er Unnur Sím- onar, f. í Reykjavík 5.7. 1926. Faðir hans var Agnar Kristjáns- son, forstjóri Kassa- gerðar Reykjavíkur, f. í Reykjavík 18.7. 1925, d. 27.12. 1988. Systkini Leifs er: 1) Kristján Jóhann, f. 4.7. 1946. Hans kona er Andrea Guðnadóttir, f. 9.12. 1950. Þeirra börn eru Kristján Jóhann, f. 1977, eldrar eru Haraldur Kristjánsson, f. 22.2. 1924, og Perla Kolka, f. 31.5. 1924. Börn Leifs og Mar- grétar eru: a) Margrét Perla Kolka, nemi í tónlistarþerapíu, f. 26.11. 1972. Eiginmaður hennar er Hlöð- ver Hlöðversson, verkfræðinemi, f. 16.3. 1972. Dætur þeirra eru Hekla Kolka, f. 27.12. 1993, og Margrét Kolka, f. 20.3. 1997. b) Haraldur Agnar, viðskiptafræðingur hjá Ís- landsbanka, f. 23.9. 1976. c)Unnur Kolka, nemi, f. 28.5. 1980, og d) Kristján Páll, nemi, f. 10.12. 1983. Leifur tók stúdentspróf frá Verslunarskóla Íslands 1969 og lauk BA prófi í ensku og stjórn- málafræði árið 1975. Hann helgaði Kassagerð Reykjavíkur starfs- krafta sína til æviloka. Auk þess voru honum falin ýmis trúnaðar- störf innan íslensks atvinnulífs og sat hann í stjórnum nokkurra fyr- irtækja. Útför Leifs verður gerð frá Vídalínskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Þorvaldur Símon, f. 1981, og Margrét Sess- elja, f. 1986. Dætur Kristjáns af fyrra hjónabandi eru Sigríð- ur, f.1967, og Unnur Helga, f. 1969. 2) Agata, f. 4.5. 1957. Hennar synir eru Bjartur, f. 1990, og Hlynur, f. 1994. 3) Bróðir Leifs samfeðra er Agnar Gunnar, f. 1.8. 1972. Móðir hans er Anna Lilja Gunn- arsdóttir. Hinn 15. nóvember 1970 kvæntist Leifur Margréti Kolka Haraldsdóttur, myndlista- kennara, f. 13.11. 1948. Hennar for- Okkar kæri tengdasonur og vinur Leifur Agnarsson er látinn, langt um aldur fram og öllum harmdauði sem þekktu hann.Það er mikið skarð fyrir skildi. Leifur tókst á við veik- indi sín, krabbamein, af mikilli karl- mennsku, stóð á meðan stætt var og reyndar miklu lengur. Lífsviljinn var mikill. Hann vildi sem minnst um veikindi sín tala. Við hlið hans í þessari baráttu var Margrét kona hans, sterk og ástrík, algjör hetja, sem hann mátti ekki af sjá, einnig var móðir hans kær og börnin, hringurinn sem lukti sig um hann í lokabaráttunni. Dauðinn kom að lok- um sem líkn fyrir örþreyttan líkam- ann og sálin hans góða og sterka komin á æðra tilverustig þar sem bíða endurfundir við ástvini. Leifur var mikill mannkostamað- ur. Hann bar hreinan skjöld og sterkan. Hann var mikill fjölskyldu- maður, ástríkur eiginmaður, faðir og sonur. Leifur var ekki allra, frekar dulur, það sem maður kallar í ensku- mælandi löndum „a very private person“, en mikill vinur vina sinna og skemmtilegur í góðra vina hópi. Hann var örlátur og greiðvikinn, heiðarlegur, skarpgreindur, greindi fljótt kjarna þess máls sem var til umræðu hverju sinni og var virtur í viðskiptalífinu. Þau kynntust ung Margrét og hann, gengu í hjónaband stuttu eftir að þau luku stúdentsprófi úr Versl- unarskólanum. Fóru síðan bæði í framhaldsnám, hann í háskólanám og hún í myndlistaskólanám. Þau eignuðust fjögur elskuleg og mynd- arleg börn; Margréti Perlu, Harald Agnar, Unni og Kristján Pál, auk tengdasonar, Hlöðvers, sem var þeim og er eins og sonur, og tvær in- dælar dótturdætur. Hjónaband Margrétar og Leifs var afar farsælt og gott, mikið jafnræði með þeim og studdi Leifur t.d. vel við bakið á Margréti sinni þegar hún ákvað að fara í frekara nám í háskólanum eft- ir að börnin stálpuðust, þau voru líka bestu og nánustu vinir hvort annars, sannir ástvinir. Margrét og Leifur áttu saman yfir þrjátíu innihaldsrík hjónabandsár og hlutu meiri lífsfyllingu á þeim tíma en margir sem lengur njóta samvista. Bæði voru hraust, dugleg og bjartsýn og kunnu að lifa lífinu lifandi, þau voru mjög gestrisin og gaman að sækja þau heim eins margir vinir þeirra vita og þau áttu mörg sameiginleg áhugamál. Þau ferðuðust mikið bæði innanlands og utan, fóru oft með vinum sínum á fjöll og firnindi Íslands eða í veiði- skap, svo eitthvað sé nefnt og ferð- uðust víða erlendis. Fyrir tveimur eða þremur árum keyptu þau sér lít- ið hús á Hofsósi sem þau gerðu skemmtilega upp og hugsuðu gott til framtíðar þegar tími gæfist til að vera þar. Við hjónin urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að fara tvisvar, með fimm ára millibili, með þeim í ökuferðir um Skotland og Suður-England, Leifur ók og Margrét fann réttu leiðirnar á kortinu, við gistum í heimahúsum, þetta eru ógleyman- legar ferðir sem við erum þakklát fyrir eins og svo margt annað gott frá þeim. Ekki var neitt kynslóðabil í þessum ferðum frekar en í öðrum okkar samskiptum og söknum við nú vinar í stað, öll tengdafjölskyldan. Elsku Leifur fór allt of fljótt, minn- ingin um hann mun lifa með okkur. Starfsævi Leifs verða ekki gerð skil hér, það gera aðrir sem vita bet- ur, en bræðurnir Kristján og Leifur unnu saman alla tíð og í mörg ár sem forstjórar í fjölskyldufyrirtækinu Kassagerð Reykjavíkur eftir að fað- ir þeirra Agnar fyrrum forstjóri lést, voru um margt líkir og voru alltaf samrýndir. Svo er og einnig með fjölskyldur þeirra og er það mikill styrkur fyrir Margréti okkar, börnin þeirra og hans góðu móður. Að lokum biðjum við góðan guð að styrkja ástvinina hans Leifs og hjálpa þeim á erfiðum tímum sem nú eru framundan. Blessuð sé minning Leifs Agnarssonar. Guð geymi hann og þau öll. Perla og Stefán. Það er með miklum harmi, að ég rita þessi fáu kveðjuorð til míns kæra tengdasonar, Leifs. Það er sárt að þurfa að missa þennan góða vin langt fyrir aldur fram. Þegar hann fékk þann úrskurð að hann gengi með þann sjúkdóm sem nú hefur leitt hann til dauða var ekki liðið nema eitt ár frá því að hann lét sig ekki muna um það að ganga á Öræfajökul. Þessi sjúkdómur spyr ekki um aldur og það bera ekki allir þá gæfu að vinna á honum sigur. Leifur var sérlega hógvær og lát- laus maður. Hann var alltaf tilbúinn að leysa hvers manns vanda og á ég honum og Margréti mikið að þakka. Leifur og Margrét voru einstaklega gestrisin og á ég margar og góðar minningar frá heimili þeirra. Leifur barðist við sjúkdóm sinn með kjarki og æðruleysi, hann var ekki vanur að bera tilfinningar sínar á torg. Á þessari sorgarstundu bið ég Guð að geyma hann og blessa fjöl- skyldu hans. Hafi hann þakkir fyrir ógleymanleg ár. Haraldur Kristjánsson. Það voru mannalegir ungir menn sem settust í 7 ára G-bekk í Mela- skólanum haustið 1955. Þar kynntist ég Leifi Agnarssyni, og við áttum eftir að paufast saman í skólakerfinu í allmörg ár eftir það. Við vorum í sama bekk öll barnaskólaárin, en fórum hvor í sinn gagnfræðaskóla. Mér er afar minnisstæður sá dagur, er ég kom til fyrsta skóladags í Verzlunarskólanum haustið 1963. Nemendur stóðu úti á götu á Grund- arstígnum, og voru lesnir upp um leið og raðað var í bekki. Í þessum 120 manna hópi kom ég aðeins auga á einn nemanda sem ég þekkti – Leif Agnarsson. Við lentum í sama bekk, og sátum saman eins og það var kall- að. Frá og með þeim tíma þróaðist með okkur náinn kunningsskapur og vinátta, sem engan skugga hefur borið á síðan. Æskuheimili Leifs var við Hring- braut. Móðir Leifs, Unnur Símonar, bjó með börnum sínum þremur á annarri hæð hússins en föðurafi hans, hinn landskunni athafnamaður Kristján Jóhann Kristjánsson, for- stjóri, á efstu hæðinni ásamt seinni eiginkonu sinni. Leifur og Kristján bróðir hans höfðu hvor um sig stórt herbergi í kjallara hússins, og hann varð nánast eins og félagsheimili fyrir okkur félagana, sem vöndum komur okkar þangað. Ég hef oft hugsað til þess síðar, hvílíkt um- burðarlyndi þetta mikla sómafólk sýndi okkur á þessum árum, því að það kom fyrir að menn gleymdu því hvað tímanum leið og að fólk byggi á efri hæðum hússins eða jafnvel í ná- grenni þess. Þarna var ýmislegt brallað sem ekki verður orðlengt um hér, en í minningunni stendur upp úr sá hlýlegi heimilisbragur sem þar ríkti og sú umhyggja sem unga fólk- ið sannarlega naut í þessu húsi. Það hélst svo áfram, eftir að Leif- ur stofnaði sitt heimili á Lynghaga 4 með Margréti, skólasystur okkar úr Verzlunarskólanum, að íbúð þeirra varð eins og fundarstaður kunningj- anna sem margir voru þá við nám í Háskóla Íslands. Þegar fjölskylda þeirra stækkaði fluttust þau í Garða- bæinn, og þar hefur glæsilegt heim- ili þeirra verið síðan. Að loknu námi stóð Leifur frammi fyrir þeirri spurningu, hvort hann ætti að taka við starfi í fjölskyldu- fyrirtækinu, Kassagerð Reykjavíkur hf., eða hasla sér völl annars staðar. Margir hafa sjálfsagt talið víst að hann færi þangað til starfa, en Leif- ur var sjálfur lengi að gera það upp við sig. Þegar hann hafði gert upp hug sinn urðu hann og Kristján, bróðir hans, framkvæmdastjórar fé- lagsins, og eftir það helgaði Leifur fyrirtækinu alla starfskrafta sína. Þessu fylgdu margs konar trúnaðar- störf sem tengdust starfsemi fyrir- tækisins, en annars sóttist hann ekki eftir vegtyllum af neinu tagi. Persónueinkenni Leifs komu sterkt fram eftir að hann greindist með krabbamein á síðasta ári. Frá upphafi var ljóst að brugðið gæti til beggja vona með bata. Hann tók ör- lögum sínum með þeirri karl- mennsku og æðruleysi sem alltaf einkenndi hann. Hann gerði þær ráðstafanir með málefni fyrirtækis- ins sem hann taldi því fyrir bestu og reyndi að undirbúa allt umhverfi sitt sem best fyrir það sem koma mundi. Leifur hefði sennilega lítið kært sig um að ég skrifaði langa lofrollu um hann, hvorki fyrr né síðar. Ég er afskaplega þakklátur fyrir að hafa átt vináttu hans um áratuga skeið. Leifur hafði höfðinglegt yfirbragð, var bráðgreindur og sannur vinur vina sinna, á hverju sem gekk. Hann var fremur hlédrægur í fasi og hafði ekki mjög hátt um skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar, en var rökfastur og réttsýnn. Enginn efað- ist um orðheldni hans – það stóð sem hann sagði. Þegar á unglingsárum kom það skýrt fram, að hann hafði sterka trúarsannfæringu og var ávallt tilbúinn að standa við hana, þótt ekki flíkaði hann slíku. Leifur var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Perlan í lífi hans var eiginkonan, Margrét Kolka Har- aldsdóttir. Börn þeirra eru fjögur. Leifi var afar umhugað um fjöl- skylduna, og ekki dró úr stoltinu þegar tengdasonur og barnabörn LEIFUR AGNARSSON Æ tli það sé ekki dæmigert að eina umræðan sem farið hef- ur fram um sjónvarp á þessu hausti hefur snúist um hvort Skjár einn hafi gert rétt í því að betla peninga af þjóðinni. Og allir ruku upp til handa og fóta og töluðu um betliprinsa og þotulið með betli- skál. Af hverju var þeim ekki frekar hrósað fyrir að fara þessa líknarfélagsleið í stað hinnar hefðbundnu sem er að heimta stuðning frá hinu opinbera þegar allt er komið í kaldakol og hug- myndin sem leit svo vel út í upp- hafi virðist ekki ætla að skila hagnaði. Foreldraleiðina mætti kalla hana, þar sem eng- inn tekur fulla ábyrgð á eigin gjörðum og ætlast til að bjargað sé í horn þegar sjálfstæðisbröltið gengur ekki upp. Enda hafa allir skynsamir sjálfstæðismenn gætt þess vel að taka aldrei neina fjárhagslega áhættu persónulega nema til staðar séu öruggar tryggingar hins opinbera fyr- irfram. Ekki eftirá. Í því er barnaskapurinn fólginn og gerir menn að athlægi. Að ganga þannig frá málum að einhverjir aðrir beri ábyrgðina þegar loft- kastalarnir eru hrundir niður allt í kringum þá. Það er ekkert aumingjalegt við það að biðja um peninga. Það er bara ekki sama hvernig það er gert. Það er aum- ingjalegt að biðja um þá á röng- um tíma. Einhver gæti líka sagt að ekki væri sama hvað gert væri við peningana en það er aukaatriði. Skjár einn er íslenskt sjónvarp að nokkru leyti. Þar situr íslenskt fólk í myndveri og sýnir okkur á hverju kvöldi hversu halloka íslensk tunga hef- ur farið á undanförnum árum. Það er stórskemmtilegt að horfa upp á þotuliðið blanka eiga í mestu erfiðleikum með að orða hugsun sína þar til það er svo heppið að fá í heimsókn til sín enskumælandi gesti. Þá kjaftar á þeim hver tuska og málfræði og orðaforði þenjast út og umlykja viðmælendur eins og vorgola við strönd. Samt er Skjár einn ís- lenskasta sjónvarpsstöðin. Þar sést íslenskt fólk sem end- urspeglar hugarheim ákveðins hóps ungs fólks í landinu. Þetta er ekki mjög stór hópur en hóp- ur samt og minnihlutahópar eiga fullan rétt á að komast að með sín sjónarmið. Annar minnihlutahópur sem haldið hefur fast í úreltar hug- myndir um tilgang íslensks sjón- varps lét í sér heyra um daginn og lýsti vanþóknun sinni á því að hvergi væri gert ráð fyrir því að framleitt væri íslenskt leikið efni fyrir ríkissjónvarpsstöðina. Náð- arhöggið hefði verið veitt með niðurlagningu Menningarsjóðs útvarpsstöðva. Hópurinn sem hér um ræðir er Leikskáldafélag Íslands, lítill hópur bústinna vesalinga sem hafa aldrei náð tökum á þeirri kúnst að horast svo á hanabjálka að þeir njóti sannrar aumingjagæsku ann- arra. Skáldin ættu að taka sér peningamennina á Skjá einum til fyrirmyndar. Menntamálaráðherrannn furð- aði sig á heimtufrekju leikskáld- anna og benti réttilega á að sjóð- ir handa rithöfundum væru nægir á vegum hins opinbera. Leikskáldum er svo í sjálfsvald sett hvort þau skrifa leikrit fyrir sjónvarp, útvarp, leikhús eða bara skúffuna sína. Látum vera þótt allir viti að meira þurfi til en leikskáldið eitt á starfs- launum hins opinbera til að handrit að sjónvarpsleikriti verði að mynd á skjá allra lands- manna; laun leikskáldsins eru smámunir í því reikningsdæmi; öllu erfiðara er að láta af- skiptaleysi opinberra yfirvalda gagnvart menningarlegu hlut- verki ríkisútvarpsins sem vind um eyru þjóta. Engu er samt líkara en komin sé ákveðin uppgjöf í andófið gegn aumingjaskapnum í ís- lensku sjónvarpi og flestir hættir að nenna að furða sig á því til hvers verið sé að þenja út svo ómerkilega dagskrá. Steininn tók þó úr þegar eymingjarnir tóku upp á því að biðla til ódauðleik- ans með því að troða lúkunum í blauta steypu. Í tilkynningu frá stjórn RÚV var komist svo að orði að Íslendingar væru með þessu „að eignast sitt eigið Hall of fame“. Ekki var einu sinni hægt að orða þessa lágkúru á ís- lensku svo vel færi. Hvað er eig- inlega Hall of fame? Hversu lágt er eiginlega hægt að leggjast? Í rökstuðningi Leikskálda- félagsins fyrir því hvers vegna sé þörf á íslensku leiknu efni í íslensku sjónvarpi – þetta þarf semsagt að rökstyðja – er því haldið fram að okkur sé nauð- synlegt að sjá samfélag okkar og menningu spegluð í þessum áhrifamikla fjölmiðli í eigu þjóð- arinnar. Rökvilla leikskáldanna felst í því að þrátt fyrir að Sjón- varpið sé að nafninu til í eigu allrar þjóðarinnar þá er það í raun undir stjórn lítils hóps fólks einsleitra skoðana pólitískra. Það hvarflar að manni möguleikanum á samfélagsspeglun sé markvisst haldið frá skjánum. Þjóðinni gæti kannski mislíkað við speg- ilmyndina. Hún gæti kannski vaknað upp við vondan draum ef það hvarflaði nú einhvern tím- ann að einhverjum að það væri ómaksins vert fjalla um það sem miður fer í draumalandinu okk- ar. En líklega er þó nærtækari skýring að hjarta þessa ágæta fólks brennur bara alls ekki af löngun til að skapa í sjónvarpinu vettvang fyrir menningarlega og listræna umfjöllun; sýn þess á möguleika sjónvarpsins tak- markast við afþreyingarhlutverk þess og lítilfjörlega samkeppni um að komast yfir „bestu“ er- lendu þættina. Enda er þeim að takast ágætlega upp við að gera innlenda dagskrárgerð að al- gjöru aukaatriði og maður hefur á tilfinningunni að markmið þeirra sé að eignast fullkomna afsteypu af fyrrverandi rík- issjónvarpi. Afsteypur af höndum „Leikskáldafélag Íslands er lítill hópur bústinna vesalinga sem hafa aldrei náð tökum á þeirri kúnst að horast svo á hanabjálka að þeir njóti sannrar aumingjagæsku annarra.“ VIÐHORF Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.