Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 04.10.2001, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 49 hennar systkini en hún missti einnig tvö af börnum sínum fyrir aldur fram. Þrátt fyrir þessa lífsreynslu var amma ein af þessum konum sem höfðu mikið að gefa. Hún hafði mikla útgeislun og heimili hennar bar henni ávallt fagurt vitni. Ég átti því láni að fagna á yngri árum að búa í nálægð við ömmu og var tíður gestur í hennar húsum. Amma var með stórt hjarta og þegar mig bar að garði var mér og vinum mínum ávallt vel tekið, jafnvel þó að við værum oftar en ekki óhreinir eftir ærsl og útileiki. Amma giftist Benna afa sem gekk barnabörnum ömmu í afa stað og reyndist hann okkur einnig mjög vel. Með ömmu gengur kynslóð sem lifði við töluvert aðrar aðstæður en við þekkjum í dag. Tíma sem mik- ilvægt er að minnast og koma á framfæri við okkar eigin börn. Fyrir okkur sem yngri erum er erfitt að gera sér í hugarlund þá lífsreynslu sem eldri kynslóðir gengu í gegnum, missi ástvina, kröpp kjör og á tímum erfiða lífsbaráttu, en samt viðhalda reisn og trú á það góða og vera fær um að gefa af sér í eins ríkum mæli og amma gerði. Erfið lífsreynsla get- ur bugað fólk eða gert það að betri manneskjum en til þess þarf skap- festu og jákvætt hugarfar sem þú hafðir í svo ríkum mæli. Arfleifð þín til okkar sem eftir stöndum er að takast á við lífið á jákvæðan og upp- byggilegan hátt, rækta það góða í okkur og reynast samferðafólki okk- ar vel. Amma mín, ég kveð þig með sökn- uð í hjarta og eftir standa minningar um hlýja og hjartagóða manneskju sem bætti þennan heim sem við lif- um í. Þú skilar kveðju til afa sem ég veit að þú hvílir nú loks í örmum hjá, afa sem ég fann svo sterkt fyrir nær- veru við í gegnum þig og móður mína, til afa sem var stóra ástin í lífi þínu. Rafn Benedikt Rafnsson. Ástkær amma mín Ólafía Sigurð- ardóttir er látin en hún hefði orðið áttatíu og átta ára í dag, fjórða októ- ber. Á tímapunkti sem þessum rifj- ast upp ýmsir atburðir og minning- ar. Fyrstu minningar mínar um ömmu eru frá Fálkagötunni en þær eru því miður frekar óljósar. Frá Stóragerði eru margar góðar æsku- minningar, þegar ég kom með for- eldrum mínum í bæinn var alltaf komið við og stundum fékk ég að gista. Amma var mikil áhugamann- eskja um bíómyndir og horfði oft á sjónvarp. Á þessum tíma var kana- sjónvarpið upp á sitt besta. Ég man þegar ég átti að vera farinn að sofa en læddist fram aftur og kíkti á sjón- varpið á bak við sófann. Þegar aldurinn færðist yfir kom ég oftar í bæinn og um tíma bjó ég hjá ömmu að Háaleitisbraut 111. Þar var allt í röð og reglu eins og vera bar hjá Ólafíu ömmu, maturinn ná- kvæmlega á réttum tíma og það var eins gott að koma ekki of seint því þá var maturinn óætur að hennar mati. Eins og allir vita sem þekktu ömmu þá var hún listamanneskja í eldhús- inu og faðir minn, tengdasonur hennar, spurði móður mína oft af hverju hún eldaði ekki mat eins og mamma hennar. Röð og regla var í fyrirrúmi á heimilinu og gerði ég og fleiri stund- um smá tilraunir í stofunni hjá henni með að færa örlítið til hluti, eftir augnablik var búið að lagfæra allt og koma hlutunum á réttan stað, en það var oft gert ómeðvitað. Fyrir tæpum tíu árum kynntust börnin mín Ólafíu ömmu mjög vel en þá bjuggu hún og foreldrar mínir saman með minni fjölskyldu á Reykjaveginum og minnast börnin þessa tíma með ánægju og gleði. Eft- ir að amma var komin á Eir voru ófá- ar ferðir sem börnin fóru með afa og ömmu að heimsækja langömmu. Elsku amma og langamma, megi guð varðveita þig og við kveðjum með söknuði. Gústaf Adólf Hjaltason og fjölskylda.  Fleiri minningargreinar um Ólafíu Sigurðardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. EVRÓPUMÓTI taflfélaga lauk um helgina og sendu tvö íslensk fé- lög sveitir á mótið, Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir. Mótið fór fram á Krít. Árangur ís- lensku sveitanna var athyglisverð- ur fyrir margra hluta sakir. Það var þó ljóst þegar við upphaf mótsins að það yrði á brattann að sækja, því Taflfélagið Hellir var í 25. sæti í styrkleikaröðinni samkvæmt Eló- stigum og TR í því 28. Besti árangur félags frá Vestur-Evrópu Árangur beggja íslensku félag- anna var langt umfram það sem bú- ast mátti við fyrir mótið. Taflfélagið Hellir lenti í 10. sæti, hlaut 8 stig og 26 vinninga. Taflfélag Reykjavíkur var ekki langt undan, hafnaði í 12. sæti, einnig með 8 stig en 24½ vinn- ing. Taflfélagið Hellir náði þeim at- hyglisverða árangri að verða efst félaga frá Vestur-Evrópu og ein- ungis fimm félög í keppninni fengu fleiri vinninga en Hellir. Árangur annarra félaga frá Norðurlöndum var sá, að sænska félagið lenti í 14. sæti, danska félagið í því 20., norskt félag í 28. sæti, finnska félagið í 35. sæti og annað norskt taflfélag varð í 37. sæti, en alls tóku 39 félög þátt í keppninni. Hannes sigraði einn sterkasta skákmann heims Öll sterkustu taflfélög Evrópu sendu öflugar sveitir til leiks og margar hverjar voru styrktar með útlendingum líkt og núorðið tíðkast í Ís- landsmóti skák- félaga, þótt bæði ís- lensku liðin væru eingöngu skipuð ís- lenskum skákmönn- um í Evrópukeppn- inni. Flestar sterkustu sveitirnar komu frá Austur- Evrópu, ekki síst Sovétríkjunum fyrrverandi. Fimm sveitir voru með meðalstig yfir 2.600, þannig að toppurinn var ekki beint árennilegur. Þetta kom greinilega í ljós strax í fyrstu um- ferð mótsins þegar bæði íslensku liðin mættu sterkum mótherjum. Taflfélagið Hellir tefldi við úkr- aínska liðið Danko Donbass sem var skipað stórmeisturum á öllum borðum og að þessu sinni með sjálf- an Ruslan Ponomariov í broddi fylkingar. Ponomariov er með 2.684 Eló-stig og einungis 20 skákmenn í heiminum eru stigahærri. Hann tefldi nú á nýjan leik fyrir Donbass, eftir að hafa teflt fyrir annað tafl- félag á síðasta keppnistímabili. Hannes Hlífar Stefánsson fékk það erfiða hlutverk að tefla gegn þess- um ofurstórmeistara. Hannes lét það þó ekki hafa áhrif á sig og það var hann sem tefldi eins og sterkari aðilinn, þjarmaði jafnt og þétt að Ponomariov og endaði á því að króa kóng hans úti í horni með tveimur riddurum og máta hann. Frábært afrek hjá Hannesi. Þrír íslenskir skákmenn fengu borðaverðlaun Hvert lið var skipað sex skák- mönnum og veitt voru sérstök verð- laun fyrir bestan árangur á hverju borði. Þrír íslenskir skákmenn voru í hópi þeirra sem bestum árangri náðu á sínu borði. Þar skal fyrstan telja Hannes Hlífar Stefánsson sem fékk verðlaun fyrir árangur á fyrsta borði. Hann fékk 5 vinninga af 7 og tapaði ekki skák. Auk hans hlutu tveir af sterkustu skákmönnum heims verðlaun fyrir árangur á fyrsta borði, þeir Vassily Ivanchuk, sem er sjötti sterkasti skákmaður heims og Alexey Dreev, sem er í 19. sæti á lista FIDE. Björgvin Jónsson sem tefldi fyrir TR fékk flesta vinninga á þriðja borði, eða 6 af 7. Ótrúlega góður ár- angur hjá Björgvini í ljósi þess hvað hann hefur teflt lítið að undanförnu og kærkomin búbót fyrir lið TR- inga. Það var svo gamla kempan Ingv- ar Ásmundsson, sem tefldi á sjötta borði fyrir Helli, sem nældi sér í borðaverðlaun á sjötta borði. Að auki var hann einungis hársbreidd frá því að tryggja sér áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli. Hann upp- fyllti stigaskilyrðin, en tefldi ekki við nægilega marga titilhafa. Stórmeistararnir teknir í karphúsið Mörg góð afrek voru unnin á mótinu, þegar íslensku liðin mættu firnasterkum keppinautum sínum. Jón Viktor Gunnarsson (2.404) náði jafntefli við stórmeistarann Lub- omir Ftacnik (2.580) í lokaumferð mótsins. Þorsteinn Þorsteinsson (2.324) gerði jafntefli við stórmeist- arann Yanickh Pelletier (2.534). Kristján Eðvarðsson (2.245) lagði stórmeistarann Efstratios Grivas (2.489) og Ingvar Ásmundsson hóf mótið á því að leggja stórmeistar- ann og liðsfélaga Ponomariovs, Genadi Kuzmin (2.542). Árangur einstakra liðsmanna Taflfélagið Hellir: Hannes Hlífar Stefánsson 5 v. Helgi Ólafsson 4½ v. Jón L. Árnason 3½ v. Kristján Eðvarðsson 3 v. Björn Þorfinnsson 4½ v. Ingvar Ásmundsson 5½ v. Taflfélag Reykjavíkur: Þröstur Þórhallsson 3½ v. Jón Viktor Gunnarsson 4 v. Björgvin Jónsson 6 v. Þorsteinn Þorsteinsson 4 v. Magnús Örn Úlfarsson 3½ v. Sigurður Daði Sigfússon 3½ v. Friðrik Ólafsson og Guð- mundur Pálmason á minning- armótinu um Jóhann Þóri Minningarmótið um Jóhann Þóri Jónsson, sem hefst í Ráðhúsi Reykjavíkur 23. október, verður vel skipað, jafnt ungum sem eldri skák- mönnum. Bæði Friðrik Ólafsson og Guðmundur Pálmason hyggjast taka þátt í mótinu. Þótt Friðrik hafi hætt atvinnumennsku í skák fyrir mörgum árum hefur hann af og til tekið þátt í skákmótum. Guðmund- ur Pálmason hefur hins vegar ekki teflt opinberlega á skákmóti í a.m.k. 20 ár, var síðast með í helgarskák- móti í Grímsey 1980. Ekki er að efa að þessir tveir skákmenn eiga eftir að draga að sér mikla athygli. Taflfélagið Hellir í 10. sæti og TR í 12. sæti á Evrópumótinu SKÁK K r í t 23.–30.9. 2001 EM TAFLFÉLAGA Daði Örn Jónsson Björgvin Jónsson Ingvar Ásmundsson Hannes Hlífar Stefánsson FRÉTTIR HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður haldin föstudaginn 5. október í Háskólabíói. Hátíðin hefst kl. 15. Á dagskránni verður ávarp rekt- ors, Páls Skúlasonar, hátíðarræða Björns Bjarnasonar menntamálaráð- herra og Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður Stúdentaráðs HÍ, ávarpar samkomuna. Einnig verða starfs- mönnum Háskóla Íslands veittar við- urkenningar. Að lokum verða veittar heiðursdoktorsnafnbætur. Hollvinir Háskóla Íslands eru sér- staklega hvattir til að mæta til há- skólahátíðar nú og fagna 90 ára af- mæli skólans. Háskólahátíð Hollvinir hvattir til þátttöku LOKAFUNDURINN í Evrópuút- tekt Samfylkingarinnar verður hald- inn í Norræna húsinu, laugardaginn 6. september kl. 11–14. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, flytur ávarp. Valgerður Bjarnadóttir viðskipta- fræðingur fjallar um fullveldismál. Árni Páll Árnason lögmaður fjallar um utanríkismál. Ingileif Ástvalds- dóttir, forseti bæjarstjórnar í Dal- víkurbyggð, fjallar um byggðamál og Halldór S. Guðmundsson félagsráð- gjafi fjallar einnig um byggðamál. Eiríkur Bergmann Einarsson, rit- stjóri Evrópuúttektar Samfylking- arinnar, stjórnar fundinum. Fundur um Evrópuúttekt ARNFIRÐINGAFÉLAGIÐ, félag brottfluttra Arnfirðinga, heldur haustfagnað í Breiðfirðingabúð laug- ardaginn 6. október kl. 21. „Söng- fuglar að vestan og einhverjir burt- flognir láta í sér heyra. Jazztríó Péturs Valgarðs Péturssonar leikur fyrir dansi. Miðaverð 1.000 kr. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta,“ segir í fréttatilkynningu. Arnfirðinga- félagið með haustfagnað EINN liðurinn í hátíðahöldum og viðburðum í tilefni af 90 ára afmæli Háskóla Íslands er opið málþing um háskóla í fortíð, samtíð og fram- tíð með þátttöku rektora menning- arborga Evrópu árið 2000. Rektorar menningarborganna eru heiðursgestir Háskóla Íslands á 90 ára afmæli skólans. Á mál- þinginu mun þeir ræða um málefni háskóla sinna og fjalla um mik- ilvægi háskóla fyrir framtíðina, auk þess að varpa ljósi á hvert framlag háskólanna hefur verið til borga sinna og landa. Að loknum erindum rektoranna verða umræður. Málþingið hefst kl. 16, fimmtudaginn 4. október nk., í hátíðasal Háskóla Íslands í Aðal- byggingu og stendur til kl. 18, það fer fram á ensku og er öllum opið. Háskólar í fortíð, samtíð og framtíð Á VEGUM SÍBS er nú verið að vinna að mjög stóru átaki á Reykjalundi, sem er bygging 2.700 m² þjálfunar- húss og sundlaugar með mjög full- kominni aðstöðu. „Það hófst með landssöfnuninni Sigur lífsins í októ- ber 1998, en þá lagði á annan tug sam- taka lið og landsmenn tóku vel undir. Í því átaki náðist að safna um 50 millj- ónum króna. Þó vantar enn yfir 200 milljónir sem SÍBS hefur verið falið að afla með samþykkt frá 32. þingi sambandsins. Því eru landsmenn hvattir til að leggja inn á söfnunar- reikning nr. 0301-26-2600. Með því verður enn styrkari stoðum rennt undir brúna til lífsins. Markmið SÍBS eru skýr: Að styðja sjúka til sjálfs- bjargar með forvörnum, endurhæf- ingu og félagslegri uppbyggingu,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá SÍBS. „SÍBS-daginn í ár ber upp á sunnu- daginn 7. október. Þá verður opið hús á Suðurgötu 10 frá kl. 13–17 á skrif- stofum SÍBS og aðildarfélaga sam- takanna fyrir alla sem vilja kynna sér starfsemina. Það er von SÍBS að sem allra flestir sjái sér fært að heiðra SÍBS með nærveru sinni þennan dag og huga um leið að mikilvægi starfs SÍBS í fortíð, nútíð og framtíð. SÍBS er með heimasíðu á Netinu, http://www.sibs.is, og þar er að finna upplýsingar á íslensku og ensku um starfsemi sambandsins, félaga innan þess, fyrirtæki þess og stofnanir og Happdrætti SÍBS,“ segir þar enn- fremur. Bygging endurhæfing- arhúss á Reykjalundi SNEMMTÆK íhlutun – meðferð, þjálfun og stuðningur fyrir ung börn með þroskafrávik og fatlanir og fjöl- skyldur þeirra er yfirskrift nám- stefnu á vegum Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríkisins, sem fer fram á Grand Hóteli dagana 9.–10. októ- ber nk. Aðalfyrirlesari námstefn- unnar verður dr. Mark Sigurjón Innocenti, en hann er vísindamaður af íslensku bergi brotinn. „Á námstefnunni mun dr. Mark Sigurjón Innocenti m.a. fjalla um hugmynda- og aðferðafræði snemm- tækrar íhlutunar og rannsóknir á því sviði. Hann mun skýra hvað greinir snemmtæka íhlutun frá almennu uppeldisstarfi og gera grein fyrir áætlunum sem ætlaðar eru mismun- andi hópum barna með þroskafrávik og fatlanir og börnum í áhættuhóp- um,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. „Námstefnan er ætluð fagfólki sem starfar við skipulagningu og/eða framkvæmd meðferðar, þjálfunar og kennslu 0–6 ára barna með þroska- frávik eða fatlanir og þeim sem vinna með börnum í áhættuhópum, s.s. vegna frávika af læknisfræðilegum og félagslegum toga, aðstandendum og öðrum sem áhuga hafa. Upplýsingar um skráningu og dagskrá er að finna á heimasíðu Greiningarstöðvar, www.greining.- is,“ segir í fréttatilkynningu. Ráðstefna um börn með þroskafrávik TOURETTE–samtökin á Íslandi hafa opið hús fyrir foreldra barna með Tourette–heilkenni í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 í Hátúni 10b, 9. hæð. Þessi opnu hús eru mánaðar- lega, fyrsta fimmtudag hvers mán- aðar. Þar gefst foreldrum tækifæri til að spjalla saman yfir kaffibolla um málefni barna sinna. Tourette með opið hús ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.