Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 29
heimsækið
www.lancome.com
HAUST- OG
VETRARLITIRNIR 2001
Gylltir, flottir, kvenlegir!
Blautir augnskuggar í túpum. Skrautlakk á neglur.
Glitrandi gloss á varir. Glæsilegir kaupaukar.
Kringlunni — Sími 533 4533
Kynning í dag,
fimmtudag, föstudag
og laugardag
Í ANDDYRI k-álmu Landspítalans
stendur nú yfir sýning á verkinu
Manneldi eftir leirlistakonuna Helgu
Birgisdóttur.
Helga starfaði lengi sem ljósmóðir
og hjúkrunarfræðingur á Landspít-
alanum áður en hún hóf nám í
Listaháskóla Íslands, þaðan sem hún
útskrifaðist nú í vor. Verk Helgu
samanstendur af leirskúlptúrum og
tilbúnum hlutum þar sem hún fjallar
um lífið á fósturstigi og virðing-
arleysið gagnvart því. Hún bendir á
hvernig mannskepnan æðir áfram í
blindni með erfðatæknina að vopni í
leit sinni að hinum fullkomna ein-
staklingi og veltir um leið fyrir sér
hvað verði um alla hina sem ekki ná
að uppfylla gæðakröfurnar. Til að
ná fram ákveðnum áhrifum notar
Helga olíurakú-brennslu á leirinn en
sú aðferð hefur lítið eða ekkert verið
notuð hér á landi áður.
Sýningin stendur til 12. október.
Manneldi í k-álmu Landspítalans
Morgunblaðið/Golli
Verkið Manneldi eftir Helgu Birgisdóttur.
RÁÐHILDUR Ingadóttir
verður með innsetningu í
gluggagalleríinu Window space
í Kaupmannahöfn frá og með
deginum í dag til 25. nóvember
næstkomandi. Galleríið er í
Peder Skrams götu 16b, rétt
hjá Nýhöfn. Verk Ráðhildar
heitir „Inni í kuðungi, einn
díll“, og er hugleiðing um tíma-
rúm. Þetta er fjórða innsetning
Ráðhildar en áður voru sýning-
ar í Gerðubergi, Nýlistasafninu
og í Ketilhúsi á Akureyri.
Eigandi gluggagallerísins er
íslenska listakonan Björg Inga-
dóttir.
Innsetning
í Danmörku
ORMSTUNGA sendir á
næstunni frá sér fjórða smá-
sagnasafn Ágústs Borgþórs
Sverrissonar, Sumarið 1970.
Í tilkynningu frá útgefanda
segir að Ágúst hafi hægt og
sígandi verið að festa sig í
sessi sem einn af helstu smá-
sagnahöfundum þjóðarinnar
og síðastliðið vor hlaut hann
fyrstu verðlaun í smásagna-
samkeppni hjá vefgáttinni
Strik.is fyrir söguna Hverfa
út í heiminn. Sú verðlaunasaga er eitt
af níu verkum þessarrar nýju bókar
en flestar sögurnar eru óbirtar og
skrifaðar á þessu ári og því síðasta.
Um helmingur bókarinnar eru
uppvaxtarsögur frá áttunda
áratugnum en aðrar sögur
hennar gerast á síðustu árum
og lýsa fólki sem ólst upp á
fyrrgreindu tímabili.
Flestar sagnanna fjalla á
einn eða annan hátt um fjöl-
skyldubönd: t.d. er sagt frá
ungri konu sem endurtekur
lífsmynstur móður sinnar án
þess að gera sér grein fyrir
því, önnur saga fjallar um
ungan mann sem reynir
óvenjulega aðferð til að jafna sig eftir
sambúðarslit, fjölskyldumaður á
framabraut hefur efasemdir um
tryggð eiginkonu sinnar og unglings-
piltur lifir í skugga látins bróður síns.
Ágúst B.
Sverrisson
Nýtt smásagnasafn
DILBERT mbl.is