Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 59
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 59
!"# $#
%& ' (
(
) * +
+ ,
"
-
. / % 0 #
101
!" # $
%## % &#
#
#
# ''
(
#
) #
!
"#
" $
%
&#
'## # ' "( )***
KRINGLUNNI, SÍMI 581 1944 & LAUGAVEGI 95, SÍMI 552 1844
SELECTED
HELGAR TILBOÐ
Nile skyrta 3.990 2.490
Casco peysa 6.490 2.990
Pace buxur 5.990 3.990
OPIÐ FIMMTUDAGA
Í KRINGLUNNI TIL KL. 21.00
kynning verður í snyrtivörudeild
Hagkaups, Kringlunni, fimmtudag,
föstudag og laugardag.
Glæsilegur kaupauki
þegar verslað er fyrir
kr. 4.500 eða meira
Kringlunni
Falleg svört hliðar-
taska.
Scarf Edt. 5 ml.
Profutura dag- og
næturkrem 5 ml.
Profutura augn-
krem 3 ml.
Energy Face and
Eye Mask 5 ml.
w
w
w
.f
o
rv
al
.is
Á NÆSTU mánuðum munFilmundur sýna litaþríleikpólska leikstjórans Krzyszt-
ofs Kieslowski og ríður á vaðið með
fyrstu myndinni, Bláum eða Trois
couleurs: Bleu, í kvöld.
Kieslowski er tvímælalaust einn af
eftirminnilegustu leikstjórum síð-
asta áratugar eða svo en hann er
meðal annars þekktur fyrir Dekalog-
syrpuna, sem samanstendur af tíu
stuttmyndum sem taka boðorðin fyr-
ir, og Tvöfalt líf Veroníku. Þríleik-
urinn er síðasta verk Kieslowski en
hann lést árið 1996.
Heiti myndanna í þríleiknum,
Blár, Hvítur og Rauður, vísa í liti
franska fánans, en einnig hafði hann
einkunnarorðin frelsi, jafnrétti og
bræðralag til hliðsjónar við gerð
myndanna. Segja má að Blár sé hug-
leiðing um möguleika frelsis í lífi ein-
staklingsins, eða öllu heldur hversu
takmarkaðir þeir möguleikar eru í
raun og veru.
Eftir að Julie missir eiginmann
sinn og dóttur í bílslysi selur hún all-
ar eigur sínar, finnur sér litla íbúð í
París og ákveður að hefja nýtt líf og
rjúfa þar með öll hugsanleg tengsl
við fortíðina. En minningarnar láta
ekki að sér hæða, Julie losnar ekki
svo auðveldlega undan þeim. Mað-
urinn hennar var eitt af ástsælustu
tónskáldum Frakka og tónlist hans
ásækir hana í sífellu. Þegar maður-
inn hennar dó var hann að vinna að
stóru verki fyrir kór og hljómsveit
sem átti að frumflytja á hátíð tileink-
aðri evrópskri samvinnu. Í ljós kem-
ur sá möguleiki að Julie hafi í raun
samið verkið, án þess að það sé end-
anlega staðfest í myndinni en mikið
fer fyrir þessu dularfulla og tilkomu-
mikla verki í myndinni og sífellt
heyrast brot úr því.
Kieslowski tekst öðrum fremur að
blanda saman heimspekilegum við-
fangsefnum og vönduðum efnistök-
um, ekki síst á hinum sjónræna vett-
vangi. Hann notar liti til dæmis
markvisst í þríleiknum og eðli máls-
ins samkvæmt er blár ríkjandi í sam-
nefndri mynd. Hvert skot er skipu-
lagt út í ystu æsar með þetta í huga
og er hinn kaldi, blái litur aldrei
langt undan. Öll tæknivinnsla er afar
vönduð, eins og í öðrum myndum
leikstjórans og er óhætt að segja að
möguleikar miðilsins séu nýttir út í
ystu æsar.
Með aðalhlutverkið fer Juliette
Binoche og hlaut hún einróma lof
fyrir túlkun sína á Julie. Hún er tví-
mælalaust ein þekktasta leikkona
Frakklands og hefur einnig leikið í
nokkrum myndum vestanhafs, til
dæmis í Unbearable Lightness of
Being, The English Patient og nú
síðast í Chocolat en hún var tilnefnd
til Óskarsverðlauna fyrir leik sinni í
þeirri mynd.
Blár verður sýnd í Háskólabíói í
kvöld kl. 22.30 og endursýnd mánu-
dagskvöldið 8. október á sama tíma.
Miðaverð er 500 kr. fyrir meðlimi
Filmundar en 800 kr. fyrir aðra.
Hægt er að gerast meðlimur í
klúbbnum í miðasölu.
Blár er
litur
frelsis
Juliette Binoche glímir við blámann í Trois Couleurs: Bleu.
Filmundur sýnir litaþríleik Kieslowski