Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 63
MINNING Johns Lennons
var heiðruð á þriðjudaginn á
stjörnum prýddum tónleikum í
Radio City Music Hall í New
York. Hryðjuverkin ömurlegu
í New York og Washington
breyttu áherslum gjörsamlega
á tónleikunum sem höfðu verið
nokkuð lengi í undirbúningi.
Allur ágóðinn af þeim var látinn
renna óskiptur til fórnarlamb-
anna og Lennon var sérstaklega
minnst sem New York-búa af lífi og
sál. Upphaflega átti ágóði tón-
leikanna að renna til báráttunnar fyr-
ir auknu eftirliti með skotvopnaeign.
„Þetta kvöld er tileinkað New
York og hinum mögnuðu íbúum
borgarinnar,“ sagði kynnir kvöldsins,
leikarinn og Lennon-aðdáandinn
Kevin Spacey. „Andi Lennons er
meðal okkar í kvöld, sem og andi
5.798 annarra. Á meðan ég lýsi yfir
stolti mínu yfir að vera hér þá get ég
ekki annað en verið argur yfir því að
þessi ástríðufulli friðarpostuli og svo
margir aðrir hafi ekki getað verið
með okkur í kvöld sökum þess að við
lifum í sífellt ofbeldisfyllri veröld.“ Að
þessum þungu orðum slepptum tók
leikarinn að syngja tilfinninga-
þrungna útgáfu af laginu „Mind
Games“ sem fékk tónleikagesti til að
rísa úr sætum af hrifningu.
Aðrir listamenn sem komu fram
voru m.a. Sean, sonur Lennons, sem
söng rödd föður síns í Bítlalaginu
„This Boy“ á móti Rufus Wainwright
og Robert Schwartzman. Cyndi
Lauper söng „Strawberry Fields
Forever“ beint frá Strawberry
Fields-reitnum í Central Park og
undir lokin sameinuðust allir lista-
menn sem tóku þátt í dagskránni í
„Give Peace A Chance“ og „Power to
the People“.
Yoko Ono þakkaði slökkviliðs-
mönnum, lögreglumönnum og öðrum
sem komu að hjálparstarfinu fyrir
fórnir sem þeir hafa fært í þágu New
York-búa og sagði þá hafa endurvak-
ið trú sína á mannkyninu.
Minning Lennons heiðruð á góðgerðartónleikum í New York
Kevin Spac-
ey gaf sig allan
í flutninginn á
lagi Lennons
„Mind Games“
og risu gestir
úr sætum af
hrifningu.
New York-búans sárt saknað
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 63
NÚ er búið að skrúbba og skúra Til-
raunaeldhúsið, hátt sem lágt, og
ekkert því til fyrirstöðu að fara að
elda af móð. Tilraunaeldhúsið, sem
eru samtök leitandi tón- og hljóð-
listamanna, hefur vaxið að umfangi
síðastliðin misseri og er útgáfuarm-
ur félagsskaparins t.a.m. farinn að
teygja anga sína víða um móður
jörð.
En „lifandi“ uppákomur hafa ver-
ið aðal eldhússins og í kvöld er kom-
ið að einni slíkri, þeirri fyrstu í
haust. Þá munu ýmsir tilraunaglaðir
kokkar hittast í Vesturportinu svo-
kallaða (Vesturgötu 18) og leiða
saman rétti sína. Um er að ræða
m.a. Orgelkvartettinn Apparat sem
flytja mun svokallaða „stílófóníu“
og múm sem spilar ásamt trommu-
leikaranum Samuli Kosminen. Sam-
uli þessi spilaði með múm er Til-
raunaeldhúsið fór til Finnlands og
gekk samstarfið svo vel að hann
mun tromma á væntanlegri breið-
skífu múm. Með honum er kona
hans en saman skipa þau sveitina
Matala sem einnig mun leika.
Hinn eldhressi Borko kemur og
fram ásamt þem Kiri Kiri og Óbó.
Að síðustu verða þeir Hilmar Jens-
son og Auxpan þarna, og gefst þá
gott tækifæri til að sjá hvað gerist
er tvær kynslóðir hljóðlistamanna
leiða saman hesta sína.
Hreiðrað um sig
Kristín Björk Kristjánsdóttir,
matmey úr eldhúsinu, segir þetta
fyrstu tónleikana þar sem verði
gerð tilraun til að segja skilið við
hefðbundna tónleikastaði.
„Við viljum geta hreiðrað um
okkur á stöðum þar sem við höfum
frjálsari hendur með hvernig við
setjum tónleikana upp. Við vonumst
til að geta haldið fleiri tónleika í
Vesturportinu og jafnvel líka í
heimahúsum; svona litlum vinaleg-
um stöðum.“
Kristín segir að hugmyndin sé að
breyta því hvernig áhorfandinn
skynjar sig. „Okkur langar mikið til
að fara að lita tónleikana ákveðnu
andrúmslofti sem er frá okkur sjálf-
um komið; baka piparkökur og
bjóða þær; eða elda mat fyrir gest-
ina o.s.frv.“ Hún segir þau ætla að
fara sér hægt í þessum umleitunum
en stefnan sé vissulega tekin á fleiri
svona litla „andríka“ tónleika.
Innileikar Tilraunaeldhússins
„Jafnvel
líka í heima-
húsum“
Morgunblaðið/Kristinn
Orgelkvartett-
inn Apparat,
einhvers staðar
í Reykjavík,
haustið 2000.
arnart@mbl.is
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Hrikalega flott ævintýramynd með hinum sjóðheita og sexý
Heath Ledger (Patriot). Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar,
brjálaðar bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig undir
pottþétta skemmtun! Cool Movie of the Summer! Rolling
Stone Magazine Hann Rokkar feitt!
Það þarf
þorpara
til að negla
þjóf.
Frábær
gamanmynd með
stórleikurunum
Martin Lawrence
og Danny
DeVito
Sýnd. 6, 8 og 10.
betra en nýtt
Sýnd kl. 6 og 8.
Kvikmyndir.com
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sprenghlægileg mynd
frá sama manni og
færði okkur Airplane og
Naked Gun myndirnar.
Hér fara á kostum
Rowan Atkinson, hinn
eini sanni Mr. Bean, og
John Cleese, úr Monty
Python, ásamt fleiri
frábærum leikurum.
Kvikmyndir.com RadioX
Það
þarf
þorpara
til að negla
þjóf.
Frábær
gamanmynd
með
stórleikurunum
Martin Lawrence
og Danny
DeVito
Sýnd kl. 6, 8
og 10.10.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
X-ið
Beint á toppinn í USA
Sýnd kl. 8. Vit265.Sýnd kl. 8 og 10.15 Sýnd kl. 10.25.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.40 og 10.
Vit270 Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 245Sýnd kl. 8 og 10.
X-ið
Sýnd kl. 8. Síð. sýn.
B.i. 16. Vit 251
KYNNING
á morgun, föstudag
kl. 13–18.
Spennandi nýjungar
Fagleg ráðgjöf og
fallegur kaupauki
Vertu velkomin!
Andlitsmeðferðir
Lúxus í húðsnyrtingu
Einstök áhrif
Tafarlaus árangur
Listhúsinu Laugardal,
sími 588 5022.
S N Y R T I S T O F A