Vísir - 04.12.1979, Qupperneq 32
Spásvæöi Veöurstofu tslands
eru þessi:
1. Faxaflói, 2. Breiöafjörö-
ur, 3. Vestfirðir, 4. Norður-
land, 5. Noröausturland, 6.
Austfiröir, 7. Suðausturland,
8. Suðvesturland.
veðurspá
dagsins
Enn er 973 millibara lægð á
Grænlandshafi en vaxandi
lægð, álika djúp, en nú 650
kilómetra suður af landinu og
fer hratt norðaustur með
stefnu á Færeyjar. Mun iiún
hafa áhrif á Austurlandi. Hiti
breytist litið.
Veðurhorfur næsta sólar-
hring:
Suövesturland iil Vestfjarða
og miðin, austan gola eða
kaldi og viðast dálitið él.
Norðurlaud og Norðurmið,
austan gola i dag en norð-aust-
ankaldi i nótt, él.
Norðausturland og mið, norð-
austan gola i dag, norðaustan
kaldi eða stinningskaldi i
kvöld og nótt.
Austfirðirog mið, norðan gola
og bjart veður inni á fjörðum
en él á miðum fram eftir degi,
allhvöss norðaustanátt og
éljagangur siðdegig en norð-
lægariog viðast bjart veður til
landsins i kvöld og nótt.
Kuðausturland og mið, norð-
austan gola, siöan kaldi og él
siðdegis en norðan kaldi og
léttir til í kvöld.
veðrið
hér og Dar
Veörið klukkan 3 i nótt:
Akureyri snjókoma -3,
Rcykjavik él -2. Veörið á
miðnætti: Helsinki þoka og
örlitið frost, Kaupmannahöfn
léttskýjað 7, Osló skýjað 5,
Stokkhólmur léttskýjað 4,
Pórshöfn skúr 5.
Veðrið klukkan 18 i gær:
Aþena rigning 15, Berlin
skýjáð 9, Nuuk léttskýjað -10,
London léttskýjað 10, Luxem-
burg léttskýjað 8, Mallorka
mistur 11, Montreal léttskýj-
að 1, Paris skýjað 10, Róm
þokumóða 11, Malaga þoku-
móða 14, Vin léttskýjað 6,
Winnipeg heiðskirt 0.
Loki
segip
Svo virðist sem leiftursókn-
in hafi hrakið kjósendur i aðra
átt cn til stóö og inn undir pils-
fald framsóknarmaddömunn-
ar. En skyldi vist þeirra þar
verða langvinnari en hjá A-
flokkunum síöast?
Varð úli eftlr að
hafa test bíl slnn
Ungur maöur varö úti á
SvaIbarösströnd við
Eyjafjörðá laugardaginn
eftir að hafa fest bíl sinn <
snjó. Hann hét Jón Egils
son, 22 ára gamalb ti
heimilisað Syðri-Varðgjá
i Eyjafirði.
Jón fór að heiman frá sér á
laugardagsmorgun og var álitið
að hann hefði farið til vinnu á
Svalbarðsströnd. Þegar hann
kom ekki heim um kvöldið, var
farið að grennslast fyrir um
ferðir hans og kom þá i ljós að
hans hafði ekki orðið vart á
Svalbarðsströnd.
Leit var hafin og á sunnu-
dagsmorgun fannst bill hans við
Geldingsárbrú og virtist hafa
fest þar i snjó. Lik Jóns fannst
þar nokkuð frá. Veður var kalt
og hvasst á þessum slóðum á
laugardaginn og var nokkur
skafrenningur.
—SG
..Kem ekkl
á hnjánum
r ningfiokk
Sjálfstæðís-
flokksins”
- seglr Eggert Haukdal
,,Mér er 'fyrst og fremst efst i
huga þakklæti til stuðningsmanna
fyrir ágætan stuðning”, sagði
Eggert Haukdal í samtali við Visi
i nótt er ljóst var að hann hafði
verið kosinn á þing i Suðurlands-
kjördæmi.
„Þessi sigur er sigur fólksins i
héraði gegn flokksræði. Þessu
kann að verða eftir tekið og
marka einhver timamót, að ekki
sé gengið á rétt héraða”, sagði
Eggert en hann bauð fram utan
flokka eins og kunnugt er.
,,En að sjálfsögðu lit ég á mig
sem þingmann allra Sunn-
lendinga þó listinn hafi verið bor-
inn fram af sjálfstæðismönnum
austan Þjórsár. Það er eðlilegt i
viðlendu kjördæmi að þingmenn
séu dreifðir um héruðin”
„Það verður að koma i ljós”,
sagði Eggert er hann var spurður
hvort hann myndi fylla þingflokk
Sjálfstæðisflokksins. „Hins vegar
hlýtur maður að leita eftir sam-
stööu til að koma fram sinum
málum. Enginn getur staðið einn.
Það er i sjálfu sér mikill sigur að
ná þessum árangri og vera utan
flokka”.
Má búast við þvi að þú leggir
inn beiðni um inngöngu i þing-
flokk Sjálfstæðisflokksins?
„Það kemur á daginn hvernig
að þvi verður staðið. Ég kem ekki
þar inp á hnjánum heldur upp-
réttur. —KS
Undanfarnar þingkosningar hafa fyrstu atkvæöatölur borist úr Reyikjavik, en aö þessu sinni voru
Reyknesingar fyrri til meö tölur. Hér eru starfsmenn viö talningu f Austurbæjarskólanum aö hlusta á
atkvæöatölurnar úr Reykjaneskjördæmi í kosningaútvarpinu i nótt. Þeir, sein einbeita sér hér aö út-
varpinu eru Magnús Óskarsson og Björn L. Friöfinnsson. Visismynd: GVA.
ÖLDRIIB KONA LÉST
VEGNA NARSMhA
Sonur hennar er í haidi grunaður um verknaðinn
Sextiu og sex ára gömul kona lést af völdum áverka sem hún hlaut i ibúð
sinni að Æsufelli 4 i Reykjavik siðdegis i gær. Sonur hennar, 25 ára gamall,
er i varðhaldi grunaður um að hafa valdið dauða móður sinnar.
Þórir Oddsson, vararann-
sóknarlögreglustjóri, sagði i
samtali við Visi, að nágrannar
mæðginanna hefðu heyrt að ekki
væri allt með felldu i ibúðinni
og leitað eftir hjálp. Rann-
sóknarlögregla rikisins fékk til-
kynningu um atburðinn klukkan
15 minútum fyrir fimm.
Mæðginin voru tvö i ibúðinni.
Þegar að var komið var konan
látin. Hún var með mikla
áverka og virðist henni hafa
verið veitt mörg högg með
þungum kertastjaka. Sonur
hennar var þegar handtekinn.
Hann hefur átt við andlega van-
heilsu að striða og var fyrst
fluttur til læknis en siðan í varð-
hald.
Ekki reyndist unnt að yfir-
heyra manninn eða taka af hon-
um skýrslu i gær en reyna átti
yfirheyrslur i morgun. Sem fyrr
segir voru engin vitni að þessum
hörmulega atburði en hann mun
hafa átt einhvern aðdraganda.
—SG
fllenglssöiu var hafnað
Selfyssingar kusu ekki aðeins
til Alþingis um helgina heldur
greiddu þeir lika atkvæöi um það
hvort opna skyldi áfengisútsölu á
staðnum eða ekki. Úrslit urðu þau
að meirihluti kjósenda hafnaði
útsölunni.
A kjörskrá voru 2.021 en at-
kvæði greiddu 1.688 eða 83.52%.
Þeir sem vildu útsölu voru 671 en
á móti voru 979. Auðir seðlar
voru 36 og tveir v.oru ógildir-SG