Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 1
Reuters
Slökkviliðs- og lögreglumenn rannsaka slysstað í Rockaway-hverfi í Queens í New York í gær. Stélhluti þot-
unnar kom niður í sjónum í Jamaica-flóa, og í gær var hluti hliðarstýrisins fluttur á land.
ALLT bendir til að stórfelld vélarbil-
un, fremur en hryðjuverk, hafi valdið
því að farþegaþota hrapaði í íbúða-
hverfi í New York fáum mínútum eft-
ir flugtak frá Kennedy-flugvelli í gær.
Allir sem um borð voru, 260 manns,
fórust og sex manns sem voru á jörðu
niðri var saknað. Fregnum bar í gær-
kvöldi ekki saman um hvort spreng-
ing hefði orðið í vélinni áður en hún
hrapaði, en haft var eftir sjónarvott-
um að annar hreyfla þotunnar hefði
dottið af henni áður en hún hrapaði.
Veður var gott er slysið varð.
Þotan var af gerðinni Airbus
A-300-600R, í eigu flugfélagsins Am-
erican Airlines. Hún fór í loftið frá
Kennedy klukkan 9.14 að staðartíma
(14.14 að íslenskum tíma) og var för-
inni heitið til Santo Domingo í Dóm-
iníska lýðveldinu. Þrem mínútum eft-
ir flugtak hrapaði vélin í
Queens-hverfi, austur af Manhattan.
Talsmaður bandaríska loftferðaeftir-
litsins (FAA) sagði að ekkert í sam-
skiptum flugmanna vélarinnar og
flugumferðarstjórnar hefði bent til að
neitt væri að.
Annar flugrita vélarinnar, sá sem
skráir tæknilegar upplýsingar um
flugið, fannst á slysstaðnum. George
Pataki, ríkisstjóri í New York-ríki,
sagði á fréttamannafundi í gær að svo
virtist sem flugmenn vélarinnar hefðu
losað eldsneyti úr tönkum hennar yfir
Jamaica-flóa áður en hún hrapaði, og
benti það til að flugmennirnir hefðu
orðið varir við alvarlega bilun í vél-
inni. Þetta væri þó óstaðfest.
Rudy Giuliani, borgarstjóri í New
York, sagði á fréttamannafundinum
að brak úr vélinni hefði komið niður á
nokkrum stöðum, og sumir hlutar
hennar lent í sjónum. Stærsti hluti
hennar kom niður í Rockaway-hverf-
inu í Queens. Fjögur íbúðarhús eyði-
lögðust og átta önnur skemmdust
mikið. Á fréttamannafundinum kom
fram að stærsti hluti braksins úr vél-
inni hefði lent á tiltölulega afmörkuðu
svæði, og benti það til þess að vélin
hefði steypst beint niður.
„Þegar þessu var lýst fyrir okkur
og við vorum á leiðinni á slysstaðinn
hélt ég að þetta væri mun verra en
raun bar vitni,“ sagði Giuliani. „Við
fórum yfir svæðið í þyrlu og það var
ótrúlegt hvernig vélin hafði lent á
litlu, afmörkuðu svæði, í stað þess að
lenda á mörgum húsum. Ég veit ekki
hvað gerðist, en þetta hefði getað ver-
ið miklu verra.“
Giuliani sagði ennfremur að þótt
fregnum bæri ekki saman virtist sem
flestir sjónarvottar bæru að þotan
hefði dottið í sundur á flugi en segðust
ekki hafa heyrt eða séð sprengingu
fyrst. Borgarstjórinn greindi enn-
fremur frá því að 225 lík væru fundin.
Fulltrúar framleiðanda vélarinnar,
evrópsku flugvélasamsteypunnar
Airbus Industrie, og framleiðanda
hreyflanna, bandaríska fyrirtækisins
General Electric, héldu á slysstað til
að veita aðstoð við rannsókn slyssins,
sem er stjórnað af Bandaríska sam-
gönguöryggisráðinu (NTSB). Að
sögn Airbus var vélin afhent Americ-
an Airlines ný 1988.
260 fórust með farþegaþotu American Airlines er hrapaði skömmu eftir flugtak í New York
Allt bendir til að þotan hafi
farist vegna vélarbilunar
Sex manns sakn-
að í hverfinu sem
þotan lenti á
New York, Washington. AFP, AP,
Washington Post.
Talið að sprenging/34
Ekkert bendir/4
260. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 13. NÓVEMBER 2001
HER Norðurbandalagsins, andstæðinga talibana-
stjórnarinnar í Afganistan, var í gær kominn að
borgarmörkum Kabúl, og sagði talsmaður banda-
lagsins að her þess héldi kyrru fyrir um 10-15 km
norður af borginni. Hermenn bandalagsins hefðu
brotist í gegnum víglínu talibana og hefðu margir
þeirra lagt á flótta eða gefist upp. Fulltrúi talibana
staðfesti að Norðurherinn hefði rofið víglínuna við
borgina, en sagði að framrás norðanmanna hefði
verið stöðvuð.
Norðurherinn hélt ekki inn í Kabúl í gær, þótt
talsmenn hans segðu að fyrirstaða væri engin.
Bandaríkjamenn höfðu farið þess á leit að herinn
færi ekki inn í borgina á meðan viðræður standa
yfir um myndun bráðabirgðastjórnar.
Mohammed Abil, talsmaður Norðurhersins,
sagði að herinn hefði farið inn í borgina Herat í
gærmorgun. Herat er við þjóðveginn til Kandah-
ar, sem er um 500 km í suðaustur, höfuðvígi talib-
anastjórnarinnar og heimaborg múllans Moh-
ammeds Omars, æðsta leiðtoga talibana.
Framrás Norðurhersins undanfarna daga virð-
ist hafa verið hröð, og hófst með töku borgarinnar
Mazar-e-Sharif á föstudaginn. Segja fréttaskýr-
endur þetta benda til að margir stríðsherrar og
hermenn talibana hafi gengið í lið með Norður-
hernum, fremur en að veita mótspyrnu.
Í Mazar-e-Sharif voru karlmenn í biðröðum við
rakarastofur til að fá klippt af sér skeggið, sem
talibanastjórnin skyldaði alla menn til að hafa,
konur köstuðu kuflunum sem hafa hulið þær frá
toppi til táar, og heyra mátti tónlist – sem talib-
anar banna – að því er fréttastofan Afghan Islamic
Press greindi frá.
Fregnir um hraða framrás hermanna Norðurbandalagsins í Afganistan
Segjast halda kyrru fyrir
við borgarmörk Kabúl
Kabúl, Islamabad. AP, APF.
Líklegt að fall/28