Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 2

Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isFjör á „Íslendingaleiknum“ í Stoke/B5 Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV, hættur/B1 12 SÍÐUR40 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM FYRRVERANDI flugrekstrarstjóri Leiguflugs Ísleifs Ottesen neitaði sök þegar ákæra lögreglustjórans í Reykjavík á hendur honum var þing- fest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir nokkru. Hann er ákærður fyrir brot gegn lögum um loftferðir með því að hafa sem flugstjóri flugvélarinnar TF- GTX flutt tólf farþega í vélinni frá Vestmannaeyjum til Selfoss. Búin sætum og öryggisbeltum fyrir tíu farþega Flugvélin var á hinn bóginn aðeins búin sætum og öryggisbeltum fyrir tíu farþega. Hún var jafnframt að- eins skráð fyrir tíu farþega. Þess er krafist að flugrekstrar- stjórinn verði dæmdur til refsingar og sviptur réttindum til að starfa sem atvinnuflugmaður. Brot gegn lögum um loftferðir varða sektum eða fangelsi allt að fimm árum. Hildur Briem sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Tólf farþeg- ar í flugvél sem skráð var fyrir tíu RAFMAGNSTRUFLANIR urðu á Suður- og Vesturlandi í gær vegna seltu á raflínum og spennivirkjum. Snjókoma á Suðurlandi í gærmorgun jók enn á vandann þar sem leiddi á milli og línur slógu því út. Hjá Raf- magnsveitum ríkisins á Hvolsvelli og í Borgarfirði var gripið til þess ráðs að fá slökkvilið til að dæla vatni á spennivirki í þeim tilgangi að skola seltuna burt. Mikil selta barst yfir landið með roki á laugardag og settist m.a. á rúð- ur húsa og bíla, þannig að vart var hægt að sjá út um þær. Seltunnar varð vart á Suður- og Vesturlandi og allt norður til Akureyrar. Samkvæmt upplýsingum Veður- stofu Íslands þyrlaðist seltan upp af sjónum á stóru hafsvæði vestur af landinu í miklu hvassviðri og barst þaðan austur yfir landið. Hörður Þórðarson veðurfræðingur segist vita til þess að seltan hafi borist allt til Akureyrar og að hún virðist ekki hafa verið minni inni í landi en úti við sjó. „Við erum að glíma við seltuvanda- mál í framhaldi af suðvestanrokinu fyrir helgi. Þá barst mikil selta upp á land og við erum að súpa seyðið af því núna eftir að hann fór að snjóa,“ sagði Knútur Scheving, fjármálastjóri hjá Rafmagnsveitum ríkisins á Suður- landi, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við höfum fengið slökkvilið til að spúla spennivirkin og þá kemst raf- magn oftast aftur á. Við erum að vona að það dugi til að halda höfuðlínunum inni. Það albesta væri að hann gerði nú hellirigningu því þá mundi saltið skolast af línum og spennivirkjum,“ bætti Knútur við. Töluverðar rafmagnstruflanir voru einnig á Vesturlandi í gær vegna seltu á dreifilínum. Truflana gætti í Kjós, Melasveit, Innri-Akranes- hreppi og Hvalfirði. Einnig urðu truflanir af sömu sökum út frá Vatns- hömrum á dreifilínum í Borgarfirði. Rafmagn datt út um tíma á Mýrum, í Norðurárdal, Lundarreykjadal og víðar. Í Holtahverfi í Reykjavík var raf- magnslaust í gærkvöldi milli kl. 18.20 og 18.55 vegna bilaðs jarðstrengs í Skipholti, sem olli því að sex spenni- stöðvar duttu út. Sjávarselta eftir rok orsakaði rafmagnsleysi á Suður- og Vesturlandi Þvoðu seltuna af með aðstoð slökkviliðs Morgunblaðið/Hallgrímur Í vonda veðrinu um helgina fór ýmislegt lauslegt af stað. Þetta litla hús sem stóð við Búlandshöfða á Snæfellsnesi þoldi ekki álagið og fauk. HÉRAÐSDÓMUR Austurlands dæmdi í gær skipstjóra þriggja norskra loðnuskipa til að greiða 2,5 milljónir króna hver í sekt fyrir ólög- legar veiðar innan íslensku lögsög- unnar í júlí í sumar. Greiði þeir ekki sektirnar þurfa þeir að sæta fangelsisvist í fjóra mán- uði. Skipin voru ekki staðin að ólögleg- um veiðum með venjulegum hætti heldur voru skipstjórarnir sakfelldir á grundvelli upplýsinga úr fjareftirlit- skerfi Landhelgisgæslunnar. Afli skipanna, samtals 2.410 tonn af loðnu, var jafnframt gerður upptæk- ur. Heildaraflaverðmæti var tæplega 19 milljónir króna. Þá var skipstjór- unum gert að greiða allan sakar- kostnað. Mennirnir voru skipstjórar á norsku skipunum Tromsöbyen, Inger Hildur og Torson. Þau voru öll færð til hafnar á Seyðisfirði 7. júlí sl. Sam- kvæmt afladagbókum voru skipin innan grænlenskrar landhelgi þegar þau veiddu loðnuna. Gögn úr fjareft- irlitskerfi Landhelgisgæslunnar sýndu á hinn bóginn að skipin höfðu verið um fjórar til tíu sjómílur innan íslenskrar lögsögu norðvestur af Horni. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði ákærði því skipstjórana fyrir land- helgisbrot og fyrir að hafa vanrækt lögbundna tilkynningarskyldu um staðsetningu skips og afla í íslenskri lögsögu og að hafa tilkynnt sig rang- lega út úr lögsögunni. Drógu sönnunargildi í efa Skipstjórarnir neituðu allir sök og drógu verjendur þeirra í efa sönnun- argildi gagna úr fjareftirlitskerfinu. Fram kemur í dómunum að ákæru- valdið hafi lagt fram gögn um áreið- anleika hins sjálfvirka fjareftirlits- búnaðar og þau gögn verið studd vætti sérfróðra manna á því sviði. Skipstjórarnir hafi á hinn bóginn eng- in gögn lagt fram sem gefi tilefni til að bera brigður á þær staðarákvarðanir sem þar eru gefnar upp. Fjareftirlitskerfið var tekið í notk- un með samningi Íslands og Noregs í júlí í fyrra en hafði verið prófað í eitt ár áður en gengið var frá samningum. Kerfið byggist á staðsetningum frá GPS-gervihnöttum og sjálfvirkum sendingum frá skipum til lands- stöðva. Skipstjórunum var öllum kunnugt um að þessi búnaður væri í skipinu. Logi Guðbrandsson héraðsdómari kvað upp dóminn ásamt meðdómend- unum Jónatan Sveinssyni, hæstarétt- arlögmanni og fyrrverandi skipstjóra, og Róberti Dan Jenssyni, sjómæl- ingamanni og fyrrverandi skipstjóra. Dæmdir á grundvelli upplýs- inga úr fjareftirlitskerfi Morgunblaðið/Magni Norsku skipin þrjú við bryggju á Seyðisfirði í sumar eftir að varðskip hafði fært þau til hafnar þar. FLUGLEIÐIR aflýstu í gær flugi til New York eftir að flugvél Am- erican Airlines fórst við JFK-flug- völl. Öllum alþjóðaflugvöllum í New York var lokað í kjölfar slyss- ins. Þota Flugleiða átti að leggja af stað frá Keflavík til New York rúmlega þremur tímum eftir að bandaríska flugvélin fórst. Rúm- lega 100 farþegar áttu bókað far með vélinni og voru flestir að koma frá Evrópu. Þeim var boðið að fara til Boston. Um helmingur farþeganna nýtti sér það boð. Flugvél Flugleiða átti að leggja af stað frá New York í gærkvöldi en það flug var sömuleiðis fellt niður. Næsta áætlunarflug Flugleiða til New York er á morgun. Flugi til New York aflýst NOKKRIR þjófnaðir hafa verið til- kynntir á fartölvum, skjávörpum og fleiru úr skólum borgarinnar að undanförnu, einkum framhaldsskól- um. Í flestum tilvikum er hlutunum stolið meðan nemendur eru við störf. Að sögn lögreglu virðist sem óviðkomandi aðilar geti gengið óhindrað inn og út úr skólunum og gripið með sér eigur nemenda. Lögreglan segir ástæðu fyrir skólayfirvöld að vera vakandi fyrir þessum möguleika og hvetur þau til að gera ráðstafanir sem dregið geta úr aðgangi fólks sem ekki á erindi í skólabyggingar. Stolið frá nemendum ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.