Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 4

Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 4
LJÓST er að mikið tjón hefur orðið á línubátnum Núpi BA-69 sem strandaði við Sjömannabana í Pat- reksfirði á laugardag. Göt eru á botni skipsins og verður ekki hægt að draga skipið á flot fyrr en búið er að þétta þau. Um 20 tonn af fiski voru í Núpi þegar hann strandaði og er hann allur ónýtur. Sigurður Viggósson, fram- kvæmdastjóri Odda á Patreksfirði, sagði ljóst að tjón vegna strandsins skipti tugum milljóna. Botn skipsins væri mjög mikið skemmdur og mik- ill sjór hefði komist inn í það. Sjór hefði flotið yfir vél skipsins á háflóði og komist í íbúðir skipsins. Í gær og í nótt var unnið að því að þétta botninn. Unnið var á vöktum, en ekki er hægt að vinna við skipið nema á fjöru. Sigurður sagðist ekki geta svarað því hvenær reynt yrði að draga skipið á flot. Það færi eftir því hversu vel gengi að þétta það. Menn stefndu að því að meta stöð- una á hádegi í dag. Sigurður sagði að veður hefði verið gott í gær og menn því fengið sæmilegan frið við björgunarstörf, en aðstæður væru eigi að síður erfiðar. Aflinn dæmdur ónýtur Stærstur hluti af hráefni Odda hefur komið frá Núpi. Sigurður sagði að Núpur hefði verið kjölfest- an í hráefnisöflun fyrirtækisins, en auk þess keypti Oddi hráefni á mörkuðum og af öðrum skipum. Hann sagði að það væri afar slæmt að missa Núp, en menn væru lítið farnir að velta fyrir sér hvernig hrá- efni yrði tryggt fyrir vinnsluna. Menn einbeittu sér að því að ná Núpi á flot og þegar það hefði tekist yrði hugað að næsta verkefni, að tryggja hráefni til vinnslunnar. Um 20 tonn af fiski voru í Núpi þegar hann strandaði. Við strandið komst olía í lestina og dæmdu fisk- eftirlitsmenn, sem voru um borð í varðskipi sem kom til Patreksfjarð- ar á sunnudag, hann ónýtan. Aflinn var urðaður í landi en eitthvað af honum fór hins vegar í sjóinn að sögn Sigurðar. Hann sagði að að- stæður á strandstað hefðu verið erf- iðar og vera kynni að menn hefðu misst eitthvað af fiski í sjóinn. Þorri hans hefði hins vegar verið urðaður. Sjóslys við Sjömannabana Núp BA rak á laugardagsmorgun vélarvana upp í fjöru um kílómetra utan við bæinn í Partreksfirði og tók niðri við stóran stein eða hlein sem gengur fram í sjó og heitir Sjö- mannabani. Nafnið dregur steinninn af því að þar mun forðum hafa farist bátur með sjö mönnum, að því er fram kemur í skrám Örnefnastofnunar. Sjömannabani er við endann á Engj- unum, sem eru graslendi neðan við fjallið Skjöld. Morgunblaðið/Erlendur Gíslason Olía komst í lestar skipsins og var aflinn úrskurðaður ónýtur. Talsvert af honum lenti í sjónum þegar verið var að flytja hann í land. Morgunblaðið/Sigurbjörn Grétarss Aðeins var hægt að vinna við þéttingu skipsins á fjöru í gær. Lagður var vegur að skipinu til að koma að tækjum og búnaði á strandstað. Tugmilljóna tjón varð þegar Núpur strandaði maður Íslands í New York og var að störfum á skrifstofu sinni á 36. hæð á Manhattan er fréttir bárust af flugslysinu um stundarfjórðung yfir níu að staðartíma. Hann segir að fyrst í stað hafi sést miklir reykjarbólstrar á staðn- um og frá skrifstofuglugganum hafi virst mikið um að vera en fljótlega hafi reykurinn dvínað mjög. Umferð var nokkru minni en venjulega á götunum við skrifstofu- húsið sem gæti stafað af því að bú- ið var að loka fyrir umferð frá Manhattan um aðalbrúna yfir til Queens-hverfisins. „Hér sveima þyrlur og F-15 her- þotur yfir borginni og augljóst að menn eru við öllu búnir þó að talið sé nú víst að um slys en ekki HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra var staddur í byggingu Sameinuðu þjóðanna á Manhattan þegar fregnir bárust af flugvéla- hrapinu í New York. Þar stendur nú yfir Allsherjarþing SÞ, sem sótt er af utanríkisráðherrum flestra aðildarríkjanna. Halldór kveðst hafa komið inn í byggingu Sameinuðu þjóðanna um klukkan níu í gærmorgun að stað- artíma, þegar fundur var að hefj- ast. Skömmu eftir það hafi fregnir borist af flugslysinu og var bygg- ingunni þá lokað, enda var óttast að um hryðjuverk kynni að vera að ræða. „Menn voru beðnir að halda ró sinni. Fundi var síðan haldið áfram með venjubundnum hætti og það var verið að opna bygginguna núna rétt í þessu þannig að þeir sem ekki voru komnir hingað í morgun eru að tínast inn, meðal annars ráðherrar sem ekki komust inn á meðan byggingin var lokuð. Þannig að mér sýnist að starfið hér sé að komast í eðlilegan farveg,“ sagði Halldór þegar Morgunblaðið náði tali af honum síðdegis í gær að íslenskum tíma. Halldór sagði að fólki í byggingu Sameinuðu þjóðanna hefði verið mjög brugðið er fregnir bárust af slysinu. „Það er alveg ljóst að hryðjuverkin 11. september hafa haft gífurleg áhrif á alla sem hérna búa og það er stöðugt verið að minna á þau með fréttaflutningi. Þessi hörmulegi atburður rifjar voðaverkin upp á nýjan leik.“ Hann kvað öryggisgæslu vegna Allsherj- arþingsins vera gríðarlega. „Ég hef aldrei upplifað jafn miklar örygg- isráðstafanir og eru viðhafðar hér núna, og hafa þær þó oft á tíðum verið miklar í kringum fundahöld SÞ,“ sagði Halldór. Að sögn ráðherrans er engin ástæða til að ætla að Íslendingar hafi verið meðal fórnarlamba slyss- ins. Samkvæmt upplýsingum fasta- nefndar Íslands hjá SÞ búa engir Íslendingar á því svæði í Queens þar sem flugvélin kom niður og ekkert bendir til að Íslendingar hafi verið um borð í vélinni sem fórst. Gripið var til mikilla varúðarráð- stafana í New York er skýrt var frá slysinu við JFK-flugvöllinn enda árásirnar mannskæðu 11. september enn í fersku minni. Ör- yggiseftirlit við stórar byggingar og fleiri staði var hert og fylgst vandlega með flugumferð. Magnús Bjarnason er starfandi aðalræðis- hryðjuverk hafi verið að ræða,“ sagði Magnús. Hann var spurður hvort hann hefði orðið var við fát og ótta við að hryðjuverkamenn hefðu aft- ur látið til skarar skríða en hann neitaði því, fólk virtist almennt hafa tekið tíðindunum með still- ingu. Ljóst væri þó að margir hefðu orðið hræddir fyrst í stað en fljótlega hefðu borist yfirlýsingar um að mestar líkur væru á að ekki væri um hryðjuverk að ræða held- ur slys. Brugðist við af stillingu „Fólk brást við af stillingu. Við höfðum strax samband við fulltrúa borgarstjóra og American Airlines til að fá að vita hvort Íslendingar hefðu verið meðal farþeganna en svo mun ekki hafa verið,“ sagði Magnús. Hann sagði að samkvæmt bestu fáanlegu upplýsingum byggju engir Íslendingar í þeim hluta Queens-hverfisins sem um ræðir, Rockaways. Magnús segir að í Queens búi víða millistéttarfólk og meðal ann- ars margir slökkviliðs- og lögreglu- menn. Rudolph Giuliani borgarstjóri minntist þess í gær að nokkrir slökkviliðsmenn, sem búsettir hefðu verið í hverfinu, hefðu verið meðal þeirra sem fórust við björg- unarstörf í World Trade Center 11. september. Logi Bragason tölvufræðingur vinnur hjá stórfyrirtækinu Bloom- berg í New York en hann býr í vesturhluta Queens ásamt unnustu sinni, Juliu Oleinik sem er frá Kas- akstan. Slysstaðurinn er hins vegar í eystri hluta Queens. Sjálfur var Bragi farinn til vinnu sinnar er slysið varð en Julia var heima. Þau hafa ekki búið nema þrjá mánuði í hverfinu og hafa því lítið kynnst nágrönnunum en segja að fólk hafi í fyrstu verið felmtri slegið en ekki hafi verið um almenna skelfingu að ræða. Julia segist ekki hafa orðið veru- lega hrædd en manntjónið sé hryggilegt. „Ég var sjálf í Wash- ington og vann skammt frá Hvíta húsinu þegar árásirnar voru gerðar á New York og Washington 11. september,“ segir Julia. „Það var ægilegt en kannski er ég farin að venjast öllum þessum hræðilegu hlutum. Ég held ekki að þetta sem gerðist í dag hafi verið hryðju- verk.“ Halldór Ásgrímsson var í byggingu SÞ í New York AP Fulltrúar í öryggisráði SÞ votta samúð sína vegna slyssins í New York. Magnús Bjarnason Halldór Ásgrímsson Ekkert bendir til að Íslendingar hafi farist FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MMC Pajero 2800 diesel, f. skr.d. 30.03.1999, ek. 72 þ. km, 5 dyra, beinskiptur, 32" upphækkun, húddhlíf o.fl. Verð 2.720.000. Opnunartímar: Mánud. - föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16. Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.