Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Góð tilbreyting frá stórborgarferðum...
TIL FÆREYJA UM HELGAR
Stuttar helgarferðir til Færeyja – brottför alla föstudaga
33.900
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515,
www.gjtravel.is netfang: outgoing@gjtravel.is
Græn borg í bláu hafi
Nútímalegur bragur í bland við þjóðlega stemningu
einkennir Þórshöfn í Færeyjum, sem er laus við ys
og þys stórborganna. Gestrisni og vinátta einkenna
móttökurnar hjá frændum okkar.
Stuttar helgarferðir – slökun og tilbreyting
Flogið er með þotu færeyska flugfélagsins Atlantic
Airways frá Reykjavík á föstudagskvöldum og komið
til baka á mánudegi.
Í boði er gisting á tveimur hótelum í höfuðborginni
Þórshöfn; Hótel Tórshavn og Hótel Hafnia.
Einstakt tækifæri – hagstætt verð
Innifalið er flug, flugvallaskattar, gisting í 3 nætur
og morgunverður. Heildarverð á mann er frá 33.900
til 36.900 krónum eftir hótelum, miðað við 2ja
manna herbergi.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær, að málefni sem
varði verðtryggingu séu jafnan til
skoðunar hjá Seðlabanka. Benti hann
á að verðtryggingar hefðu verið tak-
markaðar á undanförnum árum og úr
þeim dregið. Á hinn bóginn sé ljóst að
afnám verðtrygginga þýði ekki endi-
lega að vaxtaskuldbindingar vaxi.
„Dæmin hafa sannað það, að þegar
vextir eru eingöngu nafnvextir, en
ekki verðtryggðir, að hafi menn borð
fyrir báru þannig að raunvaxtatrygg-
ing með nafnvaxtatryggingu getur
orðið hærri en raunvaxtatrygging
með verðtryggingu,“ sagði forsætis-
ráðherra og benti á að þetta gæti
gengið í báðar áttir; verðtrygging
innstæðna skapi þannig nokkra ró
þegar órói ríki í verðlagsmálum.
Gísli S. Einarsson (S) hafði í fyr-
irspurn sinni látið svo um mælt, að
fólki brygði í brún þessa dagana þeg-
ar lán hækki milli mánaða vegna
verðtrygginga, þrátt fyrir að afborg-
anir séu í skilum. Sagði hann mikla
verðbólgu hafa komið mörgum í upp-
nám og fyrirtæki og einstaklingar
sæju fram á nauðungarsölu og jafn-
vel gjaldþrot. Á sama tíma kæmu
fram í Lögbirtingablaðinu tilkynn-
ingar um tugi nýrra fyrirtækja og
velti þingmaðurinn því upp hvort
slíkt kynni að tengjast „kennitölu-
skiptum“, eins og hann orðaði það.
Vill gengiskörfu með
jeni, evru og dollara
„Alþýðusamband Íslands hefur
sett fram kröfu um afnám verðtrygg-
ingar lána,“ sagði Gísli og kvaðst
sjálfur vel geta hugsað sér að tekið
yrði fremur mið af gengiskörfu sem
byggð væri á jeni, evru og dollara.
Davíð Oddsson sagði í máli sínu að
verðbólgan hafi nú „litið um hæl“ og
sé á niðurleið. Gísli S. Einarsson
sagði hins vegar að fólk fyndi nú á
„eigin skinni“ þegar kjörin versna og
illa gengur að greiða af skuldum.
Nefndi hann dæmi af ríflega 1.100
þúsund kr. láni sem tekið hefði verið
fyrir tveimur árum og jafnan greitt
skilvíslega af. Tuttugu og fjórum
gjalddögum síðar hefði höfuðstóllinn
ekkert lækkað, heldur vaxið um tutt-
ugu þúsund krónur.
Forsætisráðherra sagði af þessu
tilefni að það kunni að gerast um hríð
að nafnupphæðir lána hækki, en þau
væru þó raunverulega að lækka.
Hins vegar tók hann ekki undir þá
fullyrðingu að kjör og staða væri að
versna.
„Enn sem komið er og fram á síð-
asta ársfjórðung hefur kaupmáttur
verið að aukast og atvinnuleysi hefur
ekki aukist,“ sagði hann og því bendi
þessar tvær forsendur – enn sem
komið er – til þess að staða fólks hafi
ekki breyst. „Hins vegar vitum við að
það er nokkuð úr að draga og það er
augljóst að greiðslur manna fyrir yf-
irvinnu og þess háttar kunna að
dragast saman þegar úr þenslu dreg-
ur,“ sagði Davíð ennfremur og vísaði
til þess að ráðherrar í ríkisstjórn hafi
verið til þess ákaft hvattir að draga
úr þenslunni til þess að tryggja
mjúka lendingu. „Það er akkúrat það
sem ég held að sé að gerast,“ sagði
hann.
Davíð Oddsson forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í gær
Málefni verðtryggingar
eru alltaf til skoðunar
SKRIFLEGT svar landbúnaðarráð-
herra vegna fyrirspurnar Ástu Ragn-
heiðar Jóhannesdóttur (S) um sölu
ríkisjarða varð enn að deiluefni á Al-
þingi í gær eftir að Ásta Ragnheiður
upplýsti að upplýsingar um andvirði
sölu ríkisjarða mætti finna þrjú ár
aftur í tímann í ríkisreikningi. Guðni
Ágústsson (B) landbúnaðarráðherra
sagði þessar upplýsingar koma sér,
ráðuneytinu og raunar líka Ríkisend-
urskoðun á óvart, en hét því að skoða
málið frekar.
Ásta Ragnheiður sagði að í svari
ráðherra frá fyrri viku kæmu fram
mjög alvarlegar rangfærslur. M.a.
vísi hann til þess að alþingismenn
hafi sama rétt til aðgangs að upplýs-
ingum og almenningur gegnum upp-
lýsingalög og tveggja ára gamallar-
skýrslu um starfsskilyrði
stjórnvalda. Upplýsti hún að sam-
kvæmt sinni beiðni hefðu lögfræðing-
ar nefndasviðs Alþingis verið beðnir
um að finna þessum skilningi ráð-
herrans stað. „Ég hef fengið bréf frá
nefndadeildinni þar sem segir: Við
skoðun er ekki unnt að finna fram-
angreindum skilningi stað,“ sagði
Ásta Ragnheiður og vísaði til stjórn-
arskrárvarins réttar þingmanna til
upplýsinga sem væri ofar upplýs-
ingalögum.
Upplýsingar liggja fyrir
í ríkisreikningi
Hún benti einnig á að ráðherra
hefði neitað að upplýsa söluverð rík-
isjarða í svari sínu og vísað m.a. til
mannréttinda. Nú hefði hins vegar
komið í ljós að þessar upplýsingar
væri að finna í ríkisreikningi. Velti
hún því upp hvað væri á seyði í ráðu-
neytinu þegar ljóst væri að þing-
mönnum væri meinað um opinber
gögn.
Guðni Ágústsson sagði að sér
hefðu komið upplýsingar um ríkis-
reikning á óvart. „Það kemur ráðu-
neyti mínu á óvart og það kemur Rík-
isendurskoðun einnig á óvart,“ sagði
hann. Bætti hann við að þarna stang-
aðist augljóslega eitthvað á og hann
myndi þegar fara yfir þessi mál.
„Það er alveg ljóst í mínum huga að
ráðherra sem fær á sig úrskurð og
brýtur hann er sakaverður. Það verð-
ur að kjöldraga svoleiðis pilt sem
brýtur gegn úrskurði og lögum,“
sagði Guðni en ítrekaði að hann hefði
ekkert að fela í þessum efnum. Það
kæmi hins vegar mjög á óvart að
þessar upplýsingar lægju fyrir í rík-
isreikningi, því hann hefði talið birt-
ingu þeirra stríða gegn lögum og úr-
skurði upplýsinganefndar.
Verið að selja einkavinum?
Fleiri þingmenn Samfylkingarinn-
ar gerðu harða atlögu að landbúnað-
arráðherra. M.a. sagði Lúðvík Berg-
vinsson að ráðherrann hefði ítrekað
reynt að koma sér hjá því að veita
umbeðnar upplýsingar. Benti þing-
maðurinn á að þessa dagana væri far-
þegalistum eytt í stað þess að láta
þingmönnum þá í té og ekki væri
heldur unnt að fá upplýsingar um það
hverjir kaupi ríkiseignir. Eina ástæð-
an hlyti að vera sú að hann hefði eitt-
hvað að fela. Velti Lúðvík því upp
hvort verið væri að selja einkavinum
það sem ekki þyldi dagsins ljós og
hlaut um leið frammíkall frá ráðherra
sam sakaði hann um ódrengskap.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði ljóst
að landbúnaðarráðherra hefðu orðið
á alvarleg mistök þar sem hann hefði
greinilega gefið þinginu rangar og
villandi upplýsingar. „Vonandi ekki
vísvitandi,“ bætti Jóhanna við, en
sagði að ráðherra bæri nú að fara of-
an í þetta mál og gera Alþingi grein
fyrir hinu rétta í málinu.
Landbúnaðarráðherra sagði undir
lok umræðunnar það óheiðarlegt hjá
þingmönnum „að láta svo í veðri vaka
að þeir viti að hann hafi unnið til
saka“. Það væru aðferðir ómerki-
legra stjórnmálamanna. Hann sagð-
ist þó fallast á að margt væri misvís-
andi í þessum efnum og komast yrði
að því hvers vegna ríkisbókhald birti
söluverð ríkisjarða sem upplýsinga-
nefnd telji óheimilt. „Yfir þetta verð
ég að fara og um það skulda ég
þinginu svör og skýringar. Ég við-
urkenni það,“ sagði Guðni Ágústsson.
Hörð gagnrýni á landbúnaðarráðherra vegna svara um sölu ríkisjarða
Ráðherra segist
skulda þinginu
skýringar
Morgunblaðið/Þorkell
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra stinga saman nefjum undir umræðum á Alþingi.
FUNDUR hefst á Alþingi í dag,
þriðjudaginn 13. nóvember, kl.
13.30. Á dagskrá er atkvæða-
greiðsla um fjölda þingmála, en
einnig umræður um frumvörp og
þingsályktunartillögur er varða
samgöngumál. Í upphafi fundar
verður þó umræða utan dagskrár
um erlent vinnuafl. Málshefjandi er
Guðrún Ögmundsdóttir (S) en til
andsvara er Páll Pétursson félags-
málaráðherra.
JÓNÍNA Bjartmarz (B) formaður
heilbrigðis- og trygginganefndar Al-
þingis sagði við upphaf þingfundar í
gær, að hallað hefði verið réttu máli
í liðinnu viku þegar gagnrýni kom
fram á nefndina fyrir að sinna ekki
óskum sjúkraliða um fund.
Sagði Jónína að gagnrýnin hafi að
sínu mati verið ómakleg.
„Þetta er ekki rétt. Formanni
Sjúkraliðafélagsins var sagt sl. vor
þegar erindi þeirra barst og líka áð-
ur en erindið barst nefndinni skrif-
lega, að ekki væri nokkur von til
þess að hægt væri að verða við því
þá fyrir þinglok heldur yrði brugðist
við því þegar þing kæmi saman á
ný,“ sagði hún.
Formaður heilbrigðisnefndar
sagði að erindinu hafi því hvorki
verið synjað né hunsað og formaður
Sjúkraliðafélagsins hafi ekki ítrekað
erindi sitt við nefndina, heldur séð
ástæðu til að fara með það á fund
þingflokks Samfylkingarinnar og til
fjölmiðla.
Jónína bætti því við að fyrir um-
ræðuna í síðustu viku hafi hún verið
búin að fela ritara nefndarinnar að
boða til fundar með fulltrúum
sjúkraliða. Sagði hún Ástu Ragn-
heiði Jóhannesdóttur (S) hafa vitað
af þeirri fundarboðun og því hafi
umræðan „augljóslega verið tilefn-
islaus“ og „tilgangur hennar ein-
hver allt annar en að koma á þessum
fundi,“ sagði hún.
Heilbrigðis- og
trygginganefnd
Formaður
telur gagnrýni
ómaklega