Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 18
AKUREYRI
18 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MILDI þykir að ekki urðu slys á fólki er Slétt-
bakur EA, frystitogari Útgerðarfélags Ak-
ureyringa hf., fékk á sig brotsjó um kl. 4.30
sl. laugardagsmorgun. Togarinn var þá
staddur í vondu veðri á Deildargrunni, um 20
sjómílur út af Rit. Þrír gluggar í brú skipsins
brotnuðu og fylltist brúin nánast af sjó á svip-
stundu. Miklar skemmdir urðu á skipinu og
hleypur tjónið á milljónum króna.
Magnús Kristjánsson stýrimaður var einn á
vakt í brúnni er brotið gekk yfir skipið. Hann
hafði setið í skipstjórnarstólnum andartaki
áður en ósköpin dundu yfir. „Ég var rétt stað-
inn upp úr stólnum til að stilla á veðurfréttir í
útvarpinu og stóð aftan við stólinn þegar
brotið reið yfir skipið. Þetta var eins og
sprenging, þar sem glerbrot og brak spýttist
inn í brúna,“ sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið. Það varð Magnúsi til happs að
vera á bak við stólinn, hann náði að beygja
sig niður og slapp því ómeiddur. „Þeir menn
sem komu fyrstir upp í brú eftir ósköpin og
sáu kringumstæður voru mest hissa á því að
ég skyldi vera ómeiddur.“
Magnús sagði að eftir að hann hafði áttað
sig á hlutunum hefði hann slegið skipinu und-
an og sett á lens. Miklar skemmdir urðu á
tækjum í brú Sléttbaks og fylgdi Höfrungur
AK skipinu inn á Ísafjarðardjúp. Þar tókst
skipverjum að gera radar skipsins virkan á
ný og var lagt af stað til Akureyrar um kl. 23
á laugardagskvöld. Sléttbakur kom til Ak-
ureyrar um kl. 17 á sunnudag, eftir um 18
tíma siglingu. Magnús sagði að heimferðin
hefði gengið vel, enda veðrið verið þokkalegt
á leiðinni.
Sæmundur Friðriksson, útgerðarstjóri ÚA,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
ekki væri enn hægt að segja til um hversu
mikið tjónið væri en þó ljóst að það hleypur á
milljónum króna. „Það er þó fyrir mestu og
mikil mildi að ekki urðu slys á fólki. Það má
lengi gera við stálið,“ sagði Sæmundur.
Mikið af tækjum í brú eru ónýt og þá er
verið að skoða hvort hægt er að gera við önn-
ur tæki. Eftir er að meta tjón á raflögnum og
stáli en strax í gærmorgun var hafist handa
við að rífa tæki og klæðningar úr brú skips-
ins. Sæmundur sagði stefnt að því að koma
skipinu sem fyrst til veiða á ný.
Sléttbakur hafði verið á veiðum í 33 daga
sl. laugardag og átti að vera í heimahöfn í
gærmorgun. Afli skipsins upp úr sjó var 425
tonn, 315 tonn af frosnum afurðum voru í
lestum skipsins og aflaverðmætið tæpar 100
milljónir króna.
Stýrimaður Sléttbaks EA slapp með skrekkinn er skipið fékk á sig brotsjó
Þetta var eins og sprenging
Sléttbakur EA kom með á fjórða hundrað tonna af frosnum afurðum til hafnar og var því
bæði unnið að viðgerð og löndun í gær.
Morgunblaðið/Kristján
Unnið var að því að rífa tæki, tól og klæðningar úr brú Sléttbaks í gær.
EKKI hefur enn náðst samstaða
um nýjan urðunarstað fyrir sorp í
Eyjafirði og því eru sorpmálin
ekki inni í tillögu að svæðisskipu-
lagi Eyjafjarðar 1998-2018. Bæj-
arstjórn Akureyrar hefur sam-
þykkt tillöguna fyrir sitt leyti en
að henni standa 12 sveitarfélög á
svæðinu.
Sigurður J. Sigurðsson bæjar-
fulltrúi á Akureyri og fulltrúi í
samvinnunefnd um svæðisskipu-
lagið sagði að í tillögunni væru
hins vegar mörg önnur atriði sem
skiptu miklu máli varðandi þróun
byggðar á svæðinu til framtíðar.
Eitt meginverkefnið varðandi
sorpeyðinguna er að finna nýjan
urðunarstað fyrir sorp af Eyja-
fjarðarsvæðinu fyrir árið 2002 en
starfsleyfi núverandi urðunar-
staðar á Glerárdal lýkur árið 2003.
Allt sorp af Eyjafjarðarsvæð-
inu er nú urðað á Glerárdal og
sagði Sigurður það alveg ljóst að
ef ekki verði fundinn nýr urðunar-
staður á svæðinu fyrir sorp á kom-
andi árum leiði það til þess að Ak-
ureyrarbær þurfi að nýta svæðið á
Glerárdal áfram. „En það er þá
líka alveg ljóst að það svæði verð-
ur þá ekki til ráðstöfunar fyrir
fleiri.“
Það tekur enginn annar
sorpið fyrir okkur
Sveinn Jónsson athafnamaður í
Ytra-Kálfsskinni og formaður
stjórnar Sorpeyðingar Eyjafjarð-
ar sagði að unnið hefði verið að því
að finna nýtt svæði til sorpurðun-
ar og að hringurinn væri farinn að
þrengjast. „Ég tilkynnti það á
fundi Héraðsnefndar sl. vor að
staðan væri óviðunandi og ef við
fyndum besta staðinn fyrir sorp-
urðun í Eyjafirði, yrðum við að
vinna hann, þrátt fyrir að ein-
hverjir væru því mótfallnir. Að
öðrum kostum verður ekkert af
þessu og það tekur enginn annar
sorpið fyrir okkur. Þetta er gríð-
arlega stórt mál enda erum við að
tala hér um næstu 50-100 árin og
því er mikilvægt að vanda valið,“
sagði Sveinn.
Morgunblaðið/Kristján
Sorp af Eyjafjarðarsvæðinu er urðað á Glerárdal en unnið er að
því að finna nýjan urðunarstað í firðinum.
Enn ekki náðst samstaða um nýjan
urðunarstað fyrir sorp í Eyjafirði
Hringurinn far-
inn að þrengjast