Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Eggert
Tryggvason
Jensína
Böðvarsdóttir
Með hnífinn
á lofti!
Stjórnun fyrirtækja í samdrætti
Félag viðskipta- og hagfræðinga í samvinnu við IMG stendur
fyrir opnum hádegisverðarfundi fimmtudaginn 15. nóvember
nk. kl. 12:00-13:30 á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð.
Á fundinum verður farið yfir stjórnunarlega aðferðafræði, sem
stjórnendur geta nýtt sér til að bregðast við ytri aðstæðum
og hvort að skera eigi niður eða ekki og ef svo, þá hvar og
hvernig. Í lokin fáum við að heyra reynslusögu stjórnanda,
sem hefur gengið í gegnum tímana tvenna.
Fundur sem ætti að vera áhugaverður fyrir fjölmarga.
Fyrirlesarar:
Eggert Tryggvason frá IMG
Jensína Böðvarsdóttir frá IMG
Bogi Pálsson, forstjóri P. Samúelssonar hf.
Fundarstjóri:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317
Verð með hádegisverði er 2.500 kr. fyrir félagsmenn og 3.500 kr. fyrir aðra
Bogi Pálsson
Árelía Eydís
Guðmundsdóttir
VÍSITALA neysluverðs miðuð við
verðlag í nóvemberbyrjun 2001 var
218,5 stig og hækkaði um 0,4% frá
fyrra mánuði, samkvæmt upplýsing-
um frá Hagstofu Íslands. Fjármála-
fyrirtæki höfðu almennt spáð á bilinu
0–0,2% hækkun á milli mánaða.
Hækkun vísitölu neysluverðs er
þó heldur minni á milli október og
nóvember en hún hefur verið á milli
undanfarinna mánaða en vísitalan
hækkaði um 0,6% á milli september
og október og um 0,7% á milli ágúst
og september. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vísitala neysluverðs
því hækkað um 1,7%, sem jafngildir
6,9% verðbólgu á ári. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 8,1% og vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis um 8,8%, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Hagstofu Íslands.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis
var 218,1 stig í nóvemberbyrjun og
hækkaði einnig um 0,4% frá fyrra
mánuði. Verð á bílum hækkaði um
2,4% en verð á bensíni lækkaði um
4%. Verð á mat- og drykkjarvörum
hækkaði um 0,6%.
Margir liðir hækka
„Rúmlega 8% verðbólga er að okk-
ar mati algerlega óviðunandi,“ segir
Rannveig Sigurðardóttir, hagfræð-
ingur Alþýðusambands Íslands.
„Varðandi þessa nýjustu mælingu
höfum við áhyggjur af því hve marg-
ir liðir vísitölunnar hækka. Nú er
ekki hægt að rekja hækkunina til
mikillar hækkunar á einum liði vísi-
tölunnar. Það virðist sem minni eft-
irspurn í þjóðfélaginu hafi ekki í för
með sér aukna samkeppni og skili
sér því ekki í lægra vöruverði.
Spurningin er hvort þeir sem
ákvarða verð á vöru í landinu séu að
bæta sér upp minni sölu með því að
hækka verð á vörum,“ segir Rann-
veig.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir að verðbólgan sé
ótvírætt á niðurleið. „Hækkun síð-
astliðinna þriggja mánaða er með
minnstu hækkunum sem verið hafa á
árinu og sýnir minni verðbólgu á árs-
grundvelli en verið hefur. Það eru
einkum innfluttu liðirnir sem valda
þessari hækkun. Það eru hins vegar
lítil tíðindi í innlendri kostnaðarþró-
un og það hefur hægt mjög á verð-
þrýstingi af völdum hennar,“ segir
Hannes. Hann bendir á að hækkun á
vísitölu neysluverðs nú sé svipuð og
á sama tíma í fyrra og yfirleitt séu
litlar breytingar frá nóvember til
desember. „Það má búast við að
þessi kúfur sé í þann mund að
hjaðna.“
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4% á milli mánaða
Verðbólga meiri
en búist var við
! "
!
"
#$!%& '
(
)
"#$!
'(*!$& +*+ "
,#*!
%!*
&
*
-
"# "
" $#
#% &
-.!
!/( )
)0(!
(
#*
!& "
1&
2! ,
"
!"!
#$%"&$'(
3 ,
3
3
' %
3
)*+,
' 3
' "
' "
3 ,
4 3
3
4 ' %
(% REKSTUR Landssíma Íslands skil-
aði 790 milljóna króna hagnaði á
fyrstu níu mánuðum ársins og er það
100 milljónum króna meiri hagnaður
en gert hafði verið ráð fyrir á tíma-
bilinu.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, nam rúmum 5,3
milljörðum króna á tímabilinu, eða
40,7% af rekstrartekjum, en var á
sama tíma í fyrra tæpir 5 milljarðar,
eða 41,9% af rekstrartekjum þess
tímabils. Hækkun EBITDA milli ára
nemur tæpum 7%.
Tekjur Símans á tímabilinu voru
hærri og rekstrargjöld utan fjár-
magnsgjöld lægri en reiknað var með.
Rekstrartekjurnar hækkuðu um 10%
frá fyrra ári og námu rúmum 13 millj-
örðum. Rekstrargjöldin hækkuðu um
12% frá í fyrra og námu tæpum 7,8
milljörðum. Í fréttatilkynningu segir
að þar af hafi uppgjörsgjöld til ann-
arra símafélaga hækkað mest m.a.
vegna aukinnar hlutdeildar þeirra af
innlendum markaði.
Fjármagnsgjöld námu rúmum ein-
um milljarði króna á tímabilinu en 450
milljónum á sama tíma í fyrra. Hækk-
un þessa liðar nemur 140% og er sögð
skýrast af gengissigi krónunnar.
Þá var hlutdeild í afkomu dóttur-
og hlutdeildarfélaga neikvæð um 237
milljónir króna á tímabilinu og er það
samkvæmt áætlun en Síminn á hluti í
37 innlendum félögum og 6 erlendum.
Veltufé Símans frá rekstri nam ríf-
lega 4,2 milljörðum. Veltufjárhlutfall-
ið var 1,82 nú en 1,11 í fyrra og eig-
infjárhlutfallið er 45,2% en var 47,3%.
Arðsemi eigin fjár var 7,69% í lok
tímabilsins.
Hvað varðar afkomu ársins í heild
standa áætlanir Símans óbreyttar um
6,7 milljarða króna hagnað fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði, eða sem
nemur 40% af rekstrartekjum félags-
ins.
Afkoma Símans
umfram áætlun
BRESKA blaðið Guardian sagðist á
laugardag hafa heimildir fyrir því að
sl. föstudag hefði verið gengið frá
fjármögnun Baugs varðandi kaupin
á Arcadia Group. The Observer
sagði hins vegar á sunnudag að enn
hefði ekki verið gengið frá fjármögn-
uninni en að tilboð yrði lagt fram í
upphafi næsta mánaðar.
Þá sagði í The Observer að allar
líkur væru á því að tilboð Baugs í
hlutabréf í Arcadia kæmu til með að
liggja nær 280 pensum en 300, eins
og Guardian hafði áður spáð.
Sérfræðingar á breskum fjár-
málamarkaði hafa lýst vantrú sinni á
að Baugur geti yfirhöfuð fjármagnað
kaupin en nú er talið að yfirtökuferl-
ið sé mun lengra á veg komið en
menn grunaði.
Talsmenn Baugs og Arcadia
mega, samkvæmt breskum reglum
um yfirtökur, enn ekki tjá sig um
málið.
Tilboð Baugs nær
280 en 300 pensum