Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 24

Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 24 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ TILBOÐX Y Z E T A / S ÍA • Rafdrifnar rúður og útispeglar • Rafhituð framsæti • Samlæsing • Loftpúði í stýri og fyrir farþega • Hiti í afturrúðu • Sjálfvirkar framdrifslokur • 31" dekk • 16" álfelgur • Útvarp og geislaspilari Örfáir Mazda B2500 TD double cab á frábæru verði. Ekki hika þú gætir orðið af mögnuðum kaupum. Einstakt Tilboðsverð 2.449.000 kr. Aukabúnaður á mynd: Brettakantar HAGNAÐUR Pharmaco hf. nam tæpum 1,2 millj- örðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og er það fjórföldun hagnaðar frá sama tímabili í fyrra en þá nam hagnaður félagsins 299 milljónum kr. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam ríflega 2,3 milljörðum króna á tímabilinu, eða 22,3% af rekstrartekjum félagsins, en sama hlutfall nam 18,4% í fyrra. Áhersla hefur verið lögð á markaðsstarf Pharmaco eftir kaupin á Balkanpharma í Búlgaríu og hefur félagið því ráðið til sín fjölda sölumanna, að því er segir í fréttatilkynningu. Þá segir að stefnt sé að enn frekari fjölgun sölumanna í Rúss- landi og Úkraínu auk þess sem útibú verður opnað í Rúmeníu á næsta ári. Velta Pharmaco nam 10,5 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðunum og er það ríflega fjórföldun veltu frá sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu segir að 75% heildarveltu hafi verið erlendis og það hlutfall hafi hækkað úr 69% árið 2000 en söluaukn- ingin nam 17% í dollurum. 14,5 milljarða króna ársveltu spáð Þá segir að útflutningur lyfja hafi aukist um 19% á tímabilinu og útflutningur hráefna um 11%. Veltufé Pharmaco frá rekstri nam tæpum 1,8 milljörðum króna. Veltufjárhlutfall var 1,82 og eiginfjárhlutfall var 49,2 í lok tímabilsins. Arðsemi eigin fjár var 31,4% á ársgrundvelli. Afkomuhorfur fyrir árið í heild eru sagðar góð- ar og reiknað er með, samkvæmt endurskoðaðri rekstraráætlun, að ársveltan verði 14,5 milljarðar króna, sem er nær 12% aukning frá fyrri áætlun. Þá er gert ráð fyrir að hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, verði 3,4 milljarðar á árinu. Ennfremur lýsir félagið yfir, með fyrirvara um að fyrirhugaðar lagabreytingar nái fram að ganga, að frá næstu áramótum verði rekstur þess gerður upp í erlendri mynt, sem og skráning hlutabréfa í félaginu. Pharmaco gerir ráð fyrir 20% söluaukningu á næsta ári og að hlutfall EBITDA hagnaðar af rekstrartekjum félagsins verði 25%. Fjórföldun hagnaðar Pharmaco HRÆÐSLA greip fjárfesta um allan heim í kjölfar brotlendingar flugvélar American Airlines í New York í gær vegna óvissu um hvort þar hefði verið um hryðjuverk að ræða. Fjármagns- markaðir tóku dýfu víðast hvar eftir að fyrstu fréttir af brotlendingunni bárust en réttu úr kútnum þegar lýst var yfir að líklega hefði verið um slys að ræða. Slysið átti sér stað rétt eftir opnun hlutabréfamarkaða í New York og hrundi verð hlutabréfa í fyrstu, þá fyrst og fremst verð bréfa í flugfélög- um og fyrirtækjum í ferðamanna- þjónustu. Mest lækkuðu bréf í móð- urfélagi American Airlines, AMR, eða um 14% og átti það sinn þátt í að vísi- tala flugfélaga lækkaði um nær 10% á tímabili. Verð hlutabréfa í Evrópu lækkaði einnig talsvert fyrst eftir slysið, þ. á m. lækkuðu bréf í breska flugfélaginu British Airways um 13% um tíma og bréf í EADS féllu um 12% en EADS á 80% eignarhlut í Airbus, framleið- anda vélarinnar sem fórst í New York. Breska FTSE-vísitalan lækkaði um 3,4% á tímabili, þýska DAX-vísi- talan um 5% og franska CAC-40 um 2,7%. Þessar lækkanir gengu að nokkru leyti til baka fyrir lokun markaða, eftir að bandaríska Dow- vísitalan náði sér aftur á strik. Flugfélög lækkuðu í verði Við lokun markaða í Evrópu nam lækkun á gengi FTSE-100 vísitölunn- ar í London 1,87%. CAC-40 í París hafði lækkað um 3,05% yfir daginn og Dax -vísitalan í Frankfurt um 1,83%. Bandarískur hlutabréfamarkaður fékk heldur betri tíma til að rétta úr kútnum og fór svo að Nasdaq-vísital- an hækkaði lítillega í viðskiptum dagsins, eða um 0,64%. Dow Jones- vísitalan lækkaði hins vegar um 0,56% og það aðeins einum viðskipta- degi eftir að hafa náð sama gildi og hún var í fyrir árásirnar 11. septem- ber. Atburðurinn í gær er talinn áfall fyrir flugfélög og fyrirtæki í ferða- mannaþjónustu en þau félög hafa orð- ið hvað verst úti eftir hryðjuverka- árásina í september. Nú lítur út fyrir að sárin hafi verið ýfð upp og félögin, sem hafa mikið til þess unnið að ávinna sér traust ferðamanna á nýjan leik, hafi verið sett á byrjunarreit. Gengi hlutabréfa í AMR, móður- félagi American Airlines, hafði við lokun markaða lækkað um 9,05% og lækkun á gengi bréfa í EADS nam 9,4% yfir daginn. Gull lækkaði og dollari veiktist Þá nam lækkun hlutabréfa British Airways um 6,5% yfir daginn, þýska flugfélagið Lufthansa lækkaði um 6,4% og hollenska flugfélagið KLM lækkaði einnig um 6,4%. Lokað var fyrir viðskipti með bréf í Alitalia í Míl- anó þegar verð þeirra hafði lækkað um 10%. Flugslysið hafði ekki eingöngu áhrif á hlutabréfamarkað. Verð á gulli, sem venjulega helst nokkuð stöðugt þegar áföll ríða yfir, lækkaði um rúm 10% en hækkaði svo aftur umfram lækkunina. Þá veiktist dollarinn talsvert, sem varð til þess að fjárfestar á gjaldeyr- ismarkaði fluttu fjármagn sitt í nokkrum mæli yfir í evrur og sviss- neska franka. Dollarinn styrktist þó aftur þegar líða tók á daginn. Afar lítil viðskipti voru á íslenskum hlutabréfamarkaði í gær, eða fyrir 117 milljónir króna, og lækkaði úr- valsvísitala Aðallista um 0,84%. Skjálfti fór um fjármagnsmarkaði Morgunblaðið/Ásdís Þegar fréttist af flugslysinu í New York í gær lækkuðu hlutabréf mjög í verði en þegar leið á daginn hækkuðu þau aftur. Félög tengd ferðaþjónustu urðu verst úti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.