Morgunblaðið - 13.11.2001, Page 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 25
HAGNAÐUR Bakkavör Group af
reglulegri starfsemi fyrir skatta
nam 109 milljónum króna fyrstu níu
mánuði ársins samanborið við 1
milljón króna á sama tímabili í fyrra
sem er umfram áætlanir félagsins.
Reiknaðir skattar tímabilsins reynd-
ust vera 60 milljónir króna og hagn-
aður eftir skatta er því 50 milljónir
króna.
Sala félagsins var 2.715 milljónir
króna fyrstu níu mánuði ársins en
var 1.703 milljónir króna á sama
tíma í fyrra og jókst því um 63% á
milli ára í íslenskum krónum. Hagn-
aður tímabilsins fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, EBITDA, nam 314
milljónum króna, eða sem nemur
11,6% af tekjum á móti 177 millj-
ónum króna, eða sem nam 10,4% af
tekjum á sama tíma í fyrra. Eigið fé
félagsins var 2.132 milljónir króna
og hefur hækkað um 878 milljónir
króna frá áramótum. Heildarskuldir
Bakkavör Group hafa lækkað um
180 milljónir króna frá síðustu ára-
mótum og er eiginfjárhlutfallið nú
35,6%.
Mesti sölutíminn framundan
Í tilkynningu frá Bakkavör Group
kemur fram að framundan sé mesti
sölutími ársins hjá Bakkavör Group,
en síðasti ársfjórðungur er að jafn-
aði sá hluti ársins sem mest áhrif
hefur á afkomu félagsins. Engu að
síður sé ljóst að rekstur félagsins
hafi það sem af er árinu gengið bet-
ur en áætlanir gerðu ráð fyrir, og
líklegt sé að það muni endurspeglast
í endanlegri ársafkomu félagsins.
Vegna óvissu á hráefnismörkuðum
hafi hins vegar verið tekin ákvörðun
um að kynna ekki endurskoðaða
rekstraráætlun fyrir árið, en núver-
andi áætlun gerir ráð fyrir að hagn-
aður eftir skatta verði 251 milljón
króna á árinu öllu.
Helstu félög sem mynda sam-
stæðu Bakkavör Group eru: Bakka-
vör Sweden AB., Bakkavör France
S.A., Bakkavör (Birmingham) Ltd.,
Bakkavör Polska s.p.a., Bakkavör
Germany Gmbh., Bakkavör Ísland
hf. og Bakkavör Chile S.A. Hinn 1.
september var nafni Wine & Dine
Plc. í Bretlandi breytt í Bakkavör
(Birmingham) Ltd. til samræmis við
þá stefnu Bakkavör Group að öll
dótturfélög þess beri nafn Bakka-
varar auk tilvísunar í staðsetningu
þeirra. Að því er fram kemur í til-
kynningu Bakkavör Group hefur
rekstur Bakkavör (Birmingham)
Ltd., sem var keypt um mitt síðasta
ár, gengið vel og allar forsendur sem
gengið var út frá við kaupin hafa
staðist.
Bætt afkoma hjá BakkavörMjög mik-
ið tap hjá
ÍSHUG
HEILDARTAP Íslenska hugbúnað-
arsjóðsins samkvæmt rekstrarreikn-
ingi nam 1.378 milljónum króna
fyrstu níu mánuði ársins. Innleyst tap
félagsins á fyrstu níu mánuðum árs-
ins 2001 eftir skatta nemur 59 millj-
ónum króna en var 31 milljón króna
eftir fyrstu sex mánuði rekstrarárs-
ins. Óinnleyst gengislækkun á skráð-
um hlutabréfum í eigu félagsins nem-
ur 269 milljónum sem er 93 milljóna
króna viðbót frá sex mánaða uppgjöri.
Til viðbótar þessu er gerð óbein
niðurfærsla á hlutabréfasafninu að
upphæð 1.050 milljónir króna. Heild-
areignir félagsins nema 1.538 milljón-
um króna sem er lækkun um 947
milljónir frá upphafi ársins og nemur
eigið fé 1.366 milljónum króna sam-
kvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjár-
hlutfall er 89% og innra virði hlutafjár
2,53.
Í tilkynningu Íslenska hugbúnað-
arsjóðsins segir að það sé álit forráða-
manna félagsins að staða flestra fyr-
irtækja í eignasafninu sé góð og mörg
félaganna hafi náð mjög markverðum
árangri í sínum rekstri. Stjórn og
stjórnendur félagsins hafi nýlokið við
nýja stefnumótun félagsins og m.a.
eigi að stækka félagið til að nýta betur
þá fjárfestingarkosti sem fyrir hendi
eru en jafnframt til að bæta áhættu-
dreifingu í eignasafninu, auka hag-
kvæmni í rekstri og styrkja samn-
ingsstöðu þess gagnvart þeim
tækifærum sem félagið stendur nú
frammi fyrir varðandi fjárfestingar
og stækkunarmöguleika.